Morgunblaðið - 20.11.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.11.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÖVEMBER 1976 13 2norgunb(attit> Stjörnubfó sýnir um þessar mundir heimsfræga, sannsögulega banda- rfska kvikmynd um lögreglumanninn Serpico, en hann varð til þess að rumska allóþyrmilega við yfirmönnum lögreglunnar f New York. Kvikmyndahandritið er byggt á metsöiubðk, sem Peter Mass ritaði um ævi Serpicos. Hjarta mitt hróp- ar á þig” HÖRPUUTGAFAN á Akranesi hefur sent frá sér nýja bók eftir danska rithöfundinn Erling Poul- sen. Þessi bók hefur verið gefin út vfða um lönd og þykir ein mest spennandi bók þessa vinsæla höf- undar. Hún hefur verið endur- prentuð mörgum sinnum í Dan- mörku og alltaf selst upp. Sagan gerist að hluta í Agadir, þar sem jarðskjálftar og flóð- bylgja orsökuðu miklar hörmung- ar 29. febrúar 1960. Ást og dular- fullir atburðir fylla síður bókar- innar. Islenskir lesendur þekkja bæk- ur Erling Poulsen, því að nokkrar þeirra hafa áður komið út á íslenzku. Bók þessi er hin fyrsta i nýjum bókaflokki Hörpuútgáf- unnar. Skúli Jensson þýddi bókina. Prentverk Akraness h.f. hefur annast prentun og bókband. Káputeikningu gerði Hilmar Þ. Helgason. Stofnfundur samtaka um dagvistar- mál í dag STOFNFUNDUR samtaka um dagvistarmál verður haldinn i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut laugardaginn 20.nóv. kl. 14. Framsögumenn verða Ari Guðmundsson, Þórunn Friðriks- dóttir, Guðrún Jónsdóttir og Sig- rún H. Þorgrimsdóttir. Allt áhugafóik um dagvistarmál er hvatt til að koma á fundinn til að liggja ekki á liði sínu, að þvf er segir í fréttatilkynningu undir- búningsnefndar. AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 ERUNG POULSEN taiLÖu--------, jurnar Bjóðið gestunum í Blómasalinn Það er skemmtilegt og stundum nauðsynlegt að taka vel á móti fólki - án sérstakrar fyrirhafnar. Hvort sem um vináttu- eða viðskiptatengsl er að ræða er þægi- legt og stundum ómetanlegt að geta setið og spjallað saman í ró og næði yfir góðri máltíð. í Blómasalnum á Hótel Loftleiðum er glæsilegt kalt borð í hádeginu. Þar að auki fjölbreyttur matseðill. Og notalegur bar. HOTEL LOFTLEIÐIR Opið 12-14.30 og 19-22.30. Sími 22322 Fijrir bfkk/eljendur *Settu bílinn á söluskrá hjá okkur. *Ef þú skilur bílinn cftir hjá okkur selst hann fyrr. *Þú getur einnig haft bílinn inni i rúmgóðum sal, þveginn og bónaöan, velútlítandi fyrir kaupendur, scm ganga á milli bíla og skoða. *Eða fyrir utan, á bílastæðinu, þar sem menn aka iðulega framhjá til að skoða btlaúrvalii VERKSTÆDISÞJÓNVSTA | *Ef billinn þafnast viðgerðar, geturðu skilið hann eftir og við sjáum um að hann sé lagfærður á bilavcrkstæðl okkar. i *Ef óskað er, verður hann yfírfarinn, skipt um platínur, kerti og stilltur. *Þú getur fengið vélina þjöppumælda, til að sýna í hve góðu ástandi hún er. *Og meðan við seljum bílinn fyrir þig, getur þú leigt Blazcr eða Scout jeppa hjá bílaleigu okkar. Þó þú ætlir ekkfáð selja bílinn þinn, viljum við minna þig á að halda honum í sem bestu ásigkomulagi til þess að halda verðgildi hans. Það borgar sig upp á komandi tíma, þegar þú vilt fara að selja hann, og við tölum ckki um öryggið. Komdu með hann á verkstæðið og sjá um að búa hann undir veturinn og komandi tíma. ÞJÓflUÍTA PVRIR ÖUU Fyrir bíkikoupendur *Við tökum vel á móti þér og sýnum hina fjölbreyttu söluskrá okkar. *Við höfum til sölu, allt frá minnstu smábflum upp í stóra sendibíla á öllum verðum, og ýmsum kjörum. *Ef þú hefur augastað á einhverjum sérstökum bíl, sýnum við þér hann og kynnum þér ásigkomulag hans. *Þú getur fengið vélina þjöppumælda, til að sjá í hvaða ásigkomulagi hún er, ef þjöppumæling er ekki fyrir hendi. *Þú getur fengið bílinn skoðaðan af fagmönnum, og heyrt þeirra álit. *Þú getur verið viss um að rétt sé gengið frá öllu í sambandi við bflakaupin. DÍIAIKIPTI ÞAÐ FARA ALLIR ÁNÆGÐIR FRÁ OKKUR bflkiurir Leigjum út Blazer og Scout jeppa - Leigið góða bíla. Opið mánudaga - föstudaga 9.00 - 20.00 laugardaga 10.00 - 18.00 AUtaf opið í hádeginu. örar ferðir til Færeyia FLUGFÉLAG tslands hefur nú haldið uppi reglubundnu áætlun- arflugi til Færeyja sfðan 1963. Flogið var f upphafi milli Fær- eyja og tslands og þaðan áfram til Norðurlanda, og var einnig flogið milli Færeyja og Glasgow. Undanfarin sumur hefur verið flogið fjórum sinnum f viku til Færeyja en ein ferð yfir veturinn. Nú hefur stjórn Flugleiða ákveð- ið að fjölga vetrarferðum og verð- ur í vetur flogið tvisvar f viku, á fimmtudögum og sunnudögum. Flogið er frá Reykjavfk kl. 10:30, komið við á Egilsstöðum og siðan haldið áfram til Færeyja og til baka sama dag, einnig með við- komu á Egilsstöðum. Flugtími milli Egilsstaða og Færeyja er 1 klst. og 20 mínútur. Þetta nýja fyrirkomulag gerir kleift að fara í stuttar heimsóknir til Færeyja og samið hefur verið við hótel þar um sérlega hag- kvæmt gistiverð. Á sama hátt geta farþegar frá Færeyjum komið til Islands og njóta þá sérstaks gisti- verðs hér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.