Morgunblaðið - 20.11.1976, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976
MORöJK/-
KAFFINU
(0
POLLUX
Lögregluþjónn: Jæja, lagsi,
svo þú ætlaðir að stinga af
þegar þú varst búinn að brjóta
rúðuna.
Strákur: Nei, ég ætlaði bara
að hlaupa heim eftir
peningum til þess að borga
rúðuna.
Eg er ekki sú fyrsta sem fær að
heyra svona lofræðu.
GRANI göslari
Ef við eigum að fara ( ferðalag
þá koma aðeins til greina
Korsfka eða Sankti Helena.
Nýr leigjandi: Er engin
bjalla f þessu herbergi?
Gestgjafafrú: Nei, en þér
þurfið ekki annað en að stappa
f gólfið og þá kærir leigj-
andinn fyrir neðan fyrir mér
og þá kem ég.
Áttu sfgarettu?
— Hvað er þetta, ég hélt að
þú værir hættur að reykja.
— Nei, til að byrja með er ég
aðeins hættur að kaupa tóbak.
Bara stemma reikninginn af!
BRIDGE
w *
/ UMSJA PALS
BERGSSONAR
1 dag lítum við á spil, sem kom í
Reykjavíkurmeistaramótinu í tví-
menning, en þvf lauk nýlega.
Sigurvegararnir, Ásmundur Páls-
son og Hjalti Elíasson, náðu góð-
um árangri í spilinu á skemmti-
legan hátt. Suður var gjafari og
austur-vestur á hættu.
Norður
S. 7
H. 1087
T. K7652
L. D1032
Við hittumst hér aftur hjá honum Pedró eftir hálfan
mánuð?
Barnaheimili í Ólafsvík
„MIKIÐ hefur verið ritað um
Barnaheimili Olafsvíkur að und-
anfönru en hver er ástæðan?
Grunur minn er sá, að forstöðu-
konan viti meira um það er hún
vill vera láta, enda ekki heima
þegar sá atburður gerðist sem er
um að ræða svo hún gat engu þar
um ráðið hvað gerðist meðan hún
var fjarverandi.
Þær eru nú búnar að leggja
fram sitt sönnunargagn, lista
þann sem kom í Mbl. þann 3. þ.m.
Sunnudaginn 31. október skrifar
Emanúel Ragnarson, að hann hafi
rekið I rogastanz er hann las þess-
ar spurningar sem voru f fyrsta
bréfinu um þetta mál, og mig
furðar ekki á því. Hann segist
eiga son, sem er á umræddri
stofnun og er mjög ánægð yfir
veru hans þar. Nú vil ég biðja
hann að setja sig í spor annars
drengs, sem væntanlega verður
minnzt á seinna, ef áframhald
verður á þessum skrifum sem eru
bæði leiðinleg og særandi fýrir
marga aðila.
Tekið skal skýrt fram, að það
barn sem um er að ræða var
hvorki barið né flengt, en það er
til fleira en það. Ég get þess
vegna fullvissað Emanúel um
það, að það bjó nefnilega ekki
fávizka undir þessari spurningu,
en hitt teldi ég meiri fávizku ef
ekki væri tekið eftir óréttlæti
gagnvart börnum fyrr en þau
hætta að dafna eins og bréfritari
segir.
Er ekki einkennilegt að þessar
konur, sem ásaka 3 konur fyrir
þessi skrif, sem aðrir kalla helber
ósannindi og skítkast, skuli ekki
snúa sér beint til þeirra og tala
við þær í stað þess að rjúka inn i
önnur hús og rífast þar og óskap-
ast, jafnvel berja í borð með við-
eigandi orðbragði. Þá hefðu þær
getað rætt málin og komizt að
hinu sanna hvað þetta snertir.
Eitt dæmi enn. Ung stúlka hér á
staðnum hefur tvívegis sótt um
starf þarna til undirbúnings fyrir
fóstrunám, henni hefur i bæði
skiptin verið neitað. Þessi stúlka
er að ég held öllum þeim kostum
búin sem til þarf, er frá góðu
heimili, það vita allir sem til
þekkja. Hvernig hægt er að neita
henni um þetta?
Þá vil ég minnast á starfs-
reynslu þessara kvenna. Víst er
um það að þær eru búnar að
vinna þarna það lengi og vinna
gott starf, en ef starfsreynslan
hefur svona mikið að segja þá er
spurningin sú: Hafði sú reynsla
ekkert að segja viðkomandi
gæzluvellinum síðast liðið vor?
Mér er nær að halda að þær konur
hafi verið búnar að vinna við það
álíka lengi og hinar, en svarið sem
þær fengu einmitt var það að það
hefði verið svo mikið kvartað og
svo væri líka mál til komið að
skipta um andlit. En viðvíkjandi
kvörtunum og aðdróttunum
máttu þær þola sitt af hverju,
Vestur
S. D65
H. G9543
T. G43
L. 96
Austur
S. K1083
II. ÁKD6
T. —
L. ÁKG54
Suður
S. ÁG942
H. 2
T. ÁD1098
L. 87
Sagnir gengu þannig:
Suður Vestur Norður Austur
Hjalti •' Asmundur
1 spaði pass 1 grand dohl
2 tiglar pass pass dobi
pass 2 hjörtu 3 tiglar 3 hjörtu
4 tiglar pass pass 1 hjörtu
pass pass dobl allir P-ls
Norður spilaði eðlilega út ein-
spilinu sínu I spaða, suður tók á ás
og norður trompaði spaða. Síðan
fengu varnarspilararnir ekki
fleiri slagi. 4 hjörtu dobluð unnin
með yfirslag gáfu mjög góða skor,
24 stig af 26 mögulegum. Takið
eftir sögnum Ásmundar. Með
þessum hæga stfganda f sögnum
sfnum plataði hann norður til að
dobla f stað þess að segja 5 tfgla,
en það er mjög góð fórn. Á flest-
um borðanna fengu norður-suður
að spila 5 tfgla doblaða en örfáir
spilarar í austur skelltu sér f 5
hjörtu, þrátt fyrir spaðaopnun
suðurs. — P.B.
Maigret og þrjózka stúlkan
Framhaldssaga eftir Georges
Simenon
Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi
14
— Það var hríngt tvfvegis til
yðar frá Parfs. Það verður sjálf-
sagt hringt enn einu sinni.. .og
það gæti orðið á hverri stundu.
Janvier eina ferðina enn. Nei,
það er ekki rödd Janviers. Lög-
regluforinginn kannast ekki við
þessa rödd.
Þetta er sem sagt ekki f sam-
bandi við málið.
— Þér talið við þjón á veitinga-
húsi á Gare Saint Lazare.. .Það ar
maður sem bað mig að hringja til
yðar.. .æ fjárinn sjáifur, nú er ég
búinn að gleyma hvað hann sagð-
ist heita...
— Janvier?
— Já, Janvier.. .Hann er far-
inn með lestinni tif Rouen. Hann
hafði ekki tfma til að bfða. Hann
sagðist ekki gera ráð fyrir að þér
væruð f Rouen þegar lestin kæmi.
En ef þér tækjuð bfl...
— Og ekkert fleira?
— Nei, herra. Hann bað mig
bara að skila þessu, fleira var það
ekkl.
Hvað á nú þetta að þýða? Fyrst
Janvier er skyndflega lagður af
stað með lestinni tll Rouen hlýtur
það að þýða að PetiIIon sé á leið
þangað. Hann hugsar sig ekki
lengi um. Hann er kominn út úr
sfmaklefanum, þar sem er loft-
laust og kæfandi. Hann þerrar
ennið á sér og sfmastúlkan horfir
forvitin á hann. Bfl hlýtur hann
að geta fengið...
— Vitleysa, segir hann svo
gremjulega. Janvier verður sjálf-
ur að sjá um það.
Rannsóknin á herbergjunum
þremur hefur ekki leitt annað
nýtt f Ijós en vasabók Felicie.
Lucas finnst skelfilega leiðinlegt
að þurfa að þramma úti fyrir
húsinu við Cap Horn. Þeir sem
búa f næstu húsum horfa stund-
um á hann út um gluggana og eru
skrýtnir á svipinn.
t stað þess að þjóta af stað og
hafa upp á skrýtna frændanum
borðar Maigret árbftinn f mestu
makindum við borð úti fyrir
kránni og drekkur kaffið f róleg-
heitum. Svo stfgur hann
stynjandi á hjólið. Hann lætur
Lucas fá samlokuböggul og sfðan
brunar hann niður hæðina tíl
Poissy.
Hann finnur krána fijótt þar
sem Felicie er sögð koma til að
dansa á sunnudögum. Það er
bjálkahús við ána. Um þetta leyti
dags er enginn þar og -vertinn
sjáffur sem spyr hvað megi bjóða
honum. Þegar þeir sitja fimm
mfnútum sfðar og dreypa á glös-
um sfnum uppgötva þeir að þeir
kannast hvpr við annan. Alltaf
hittist maður aftur! Maðurinn
sem gengur um á sunnudögum og
rukkar dansandi fólk um peninga
hefur nefnilega fengizt við ýmsa
iðju á árum áður og átt f útistöð-
um við lögregluna. Þ'að er hann
sem verður fyrri til að bera
kennsl á lögregluforingjann.
— Ég vona þér séuð ekki að
eltast við mig? Þér getið ekki
fmyndað yður hvað ég er orðinn
sómakær borgari.
— Efast ekki um það.. .segir
Maigret og brosir við.
— Og gestirnir mfnir.. .Nei
lögregluforingi. Eg held þér finn-
ið lftið bitastætt hjá mér. Sendi-
sveinar, vinnustúlkur.. .skikkan-
legt ungt fólk...
— Þekkið þér Felicie?
— Hver er það?
— Einkennileg horgrind með
beint nef og alltaf klædd eins og
hún sé að fara á grfmudansleik...
— Þér eigið við páfagaukinn...
Ja, þvflfkt auknefni sem ves-
lings Felicie hefur fengið hér.
— Hvað hefur hún gert af sér? -
— Ekkert... Ég þarf bara að
vita hverja hún hittir hjá yður...
með hverjum hún er...
— Eiginlega er hún ekki með
neinum... Konan mfn — þér
þurfið ekki að hafa áhyggjur af
þvf hver hún er, þvf að hún er
mesta prýðismanneskja og má
ekki vamm sitt vita — hefur allt-
af kallað hana „prinsessuna"
vegna þess hvað hún sýnist finna
mikið til sfn. Hvers lags stúlka er
hún eiginlega?... Ég hef aldrei
getað áttað mig á þvf. Hún kom
hingað... og alitaf með þennan
hrokasvip... stff eins og hún væri
með kústskaft við bakið, Ifka þeg-
ar hún dansar... Ef hún var
spurð einhvers iét hún mann
skilja, að hún væri ekki það sem
maður héldi og að hún kæmi hér
öllum ókunn. Hún#hefur sjálfsagt
bara viljað reyna að gera sig
spennandi... Hún sat alltaf alein
við þetta borð. Hún dreypti á gias-