Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1977 Samúel litli Jónsson á Borgarspftalanum I gær. i.jósm. Friðþjófur. á grúfu, meðvitundar- laus og mjög kaldur. Klæddu þeir hann strax úr blautum fötunum, vöfðu hann í teppi og hófu strax björgun úr dauðadái með blástursað- ferðinni. Tók Samúel litli fljótt við sér. Hann var fluttur á Borgarspítalann en í gær var hann orðinn svo hress, að hann fékk að fara heim til sín. „Þeir félagarnir Ársæll og Baldur stóöu hárrétt að björg- unaraðgerðunum enda búnir að læra þetta. Björgunin sýnir vel hve nauðsynlegt er að sem flestir læri blástursaðferðina og hjálp í viðlögum því þessar aðferðir hafa margsannað gildi sitt,“ sagði Gísli Þorsteinsson lögregluþjónn í samtali við Mbl. í gær, en Gísli kom fljótt á vettvang. Málavextir voru þeir í stuttu máli, að Samúel litli fór niður að höfn ásamt systur sinni. Fóru þau niður í flotpramma á höfninni, þar sem drengir voru að veiða. Samúel féll í sjóinn og hljóp þá systir hans upp á bryggjuna og kallaði á hjálp. Dreng bjargad úr höfninni á síðustu stundu: „Hárrétt staðið að björg- uninni” - segir lögreglan FRÆKILEGT björg- unarafrek var unnið í Reykjavíkurhöfn skömmu eftir hádegi á föstudaginn. Sex ára drengur, Samúel Jóns- son, fell í höfnina en var bjargað skömmu síðar af tveimur skipverjum á Árvakri, þeim Baldri Halldórssyni og Ársæli Björgvinssyni. Þegar þeir náðu Samúel litla upp úr sjónum var hann Þeir Baldur og Ársæll, sem voru þarna skammt frá, brugðu skjótt við, Ársæll henti sér í sjóinn og náði Samúel litla upp i prammann en Baldur hringdi á hjálp. Síðan kom Baldur á vettvang og beitti blásturs- aðferðinni. V arnarlidid los- ar hvellhettu- hylki í sjóinn Lögbrot, þar sem ekki var haft samband við Siglingamálastofnun- ina, segir verkfræðingur hennar upplýsingum, sem hann hefði fengið um málið, kvað hann þessi hylki hafa verið án eiturefna eða sprengiefnis. Magnús Jóhannsson, verk- fræðingur Siglingamála- stofnunarinnar, en hún er sá aðili hérlendis, sem hefur eftirlit með þeim efnum, sem varpað er í sjó, kvað varnarliðið ekki hafa haft samband við stofnunina og ekki leitað heimildar til þess að hylkjunum væri kastað í sjóinn. „Er því um hreint lögbrot að ræða,“ sagði Magnús. Hann kvað þetta mál verða kannað nánar eft- ir helgina. VARNARLIÐIÐ hefur látið fleygja f sjóinn litlum hylkjum utan af hvellhettum, sem notaðar eru til þess að losa hlustunardufl frá flugvél þegar þvf er varpað í sjóinn til að fylgjast með ferðum kafbáta. Hylki þessi, sem eru á stærð við hárlakksbrúsa og opin f annan endann, eru úr málmi. Hefur þeim verið sökkt á svæði, þar sem hraunbotn er, svo að þau ' komi ekki upp f togveiðibúnað. Páll Ásgeir Tryggvason sendi- herra og yfirmaður varnarmála- i deildar utanríkisráðuneytisins sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að þessi hlylki væru algjör- i lega skaðlaus og i þeim væri * hvorki eiturefni né annað, sem skaðað gæti lífið í sjónum. Um væri að ræða málmhylki, sem ekki væri unnt að nýta aftur hér á landi og hefðu þau verið farin að safnazt fyrir á Keflavíkurflug- velli. Hafi því verið ákveðið að ' losa sig við þessi hylki á þennan hátt. Hylkin eru eins og litlir brúsar, opnir i annan endann og eru þau notuð til þess að losa stærri hylki úr ramma, sem þau eru fest í í könnunarflugvélum varnarliðs- ins. Um leið og hylkið, sem er eins konar hveflhetta, springur, losnar hlustunardufl, sem fellur frá flugvélinni og i sjóinn. Hlustar duflið eftir ferðum kafbáta og sendir upplýsingar um hljóð- merki til flugvélarinnar. Páll Asgeir kvað þessi hylki hafa verið flutt um hliðið á Keflavikurflug- velli með fullu samþykki lög- reglustjórans á Keflavíkurflug- velli, Þorgeirs Þorsteinssonar, og jafnframt mun hafa verið haft samráð við Landhelgisgæzluna um hentugan stað til þess að sökkva hylkjunum i sjó. Páll kvað hylkin algjörlega meinlaus. Þórður Ásgeirsson, skrifstofu- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu kvaðst eiga von á skýrslu um þetta mál frá utanrikisráðuneyt- inu eftir helgina, en samkvæmt Samkvæmt alþjóðasamningi, sem gerður var í London árið 1972 og fjallar um efni, sem varpað er í sjó, ber að tilkynna öðrum aðildarríkjum, sem samþykk hafa samninginn, hverju varpað hafi verið í sjó, hvar og hve miklu magni. Við samþykktina eru þrír viðaukar, sem skilgreina sérstak- lega þau efni, sem algjörlega er bannað að losa í sjó, og eru þau tilgreind í fyrsta viðaukanum. Eru það t.d. lífræn halogen- efnasambönd, ýmsir þungmálmar eins og t.d. cadmiumblý, nælonnet og annað slíkt, sem flýt- ur. 1 öðrum viðaukanum er rætt um allan rúmfrekan úrgang, sem sekkur til botns. Þarf sérstakt leyfi til þess að losa hann. Magnús sagði, að ekkert hefði verið leitað til Siglingamálastofnunarinnar um þessa ákveðnu losun nú og væri því ljóst að um lögbrot væri að ræða. Skylt er síðan að til- kynna um öll gefin Ieyfi til losun- ar. [ Prestskosningar í Hafnarfirði ► PRESTSKOSNINGAR fara fram í tveimur prestaköllum í Hafnar- [ firði f dag, Hafnarfjarðarpresta- kalli og Víðistaðaprestakalli. Hafnarfjarðarprestakall nær f yfir svæðið sunnan og austan , Reykjavíkurvegar og er kjörstað- I ur í Lækjarskóla, en Víðistaða- ! prestakall yfir svæðið vestan og norðan Reykjavíkurvegar og er kjörstaður í Víðistaðaskóla. — Kosning hefst kl. 10 f.h. og lýkur kl. 10 e.h. Umsækjendur um Hafnar- fjarðarprestakall eru tveir sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir og sr. Gunnþór Ingason. — Stuðnings- menn sr. Auðar eru með skrif- stofu í Góðtemplarahúsinu, sími 5-22-66, en stuðningsmenn sr. Gunnþórs að Lækjargötu 10, sími 5-25-44. Einn umsækjandi er um Viði- staðaprestakall, sr. Sigurður H. Guðmundsson. Stuðningsmenn hans eru með skrifstofu að Reykjavíkurvegi 68, sími 5-19-75. Morgunn Iffsins eftir Kjarval. Ný Kjarvalssýning á Kjarvalsstöðum: Altaristafla strengir í ótrú- lega fjölþættri list- hörpu Kjarvals,, 1 í Súsanna f baðinu og tveir senatorar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.