Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1977 35 trimma, claves, symbalar, járn- symbali og tam-tam.“ SINDUR.....er skrifað fyrir trommusett, timbales-trommur, arabíska tabla-trommu og tvær tom-tom trommur. Þar sem verk þetta byggist að miklu leyti á þvi að ólíkum taktegundum er bland- að saman, svo að út komi sífelldur breytileiki (þrátt fyrir síendur- tekin „rytmisk" mótif hljóðfæra- leikaranna tveggja) var nafngift- in auðveld, er ég sá fyrir mér sjálfan mig erfiðandi við að hamra saman púslara." KRABBINN.......er kannski nokkurs konar ,,prógramm“- músik, eins og VATNSDROP- INN", nema hér er röð ólíkra drauma raðað upp í eina mynd, sem ég siðan samdi verkið út frá. Það er samið fyrir trommuleikara ot tvo slagverksmenn sem leika á marimba, víbrafón, klukkuspil, bongotrommur og tam-tam.“ Þrátt fyrir þá erfiðleika sem Slagbrandur fann til við að reyna að meðtaka þessa tónlist, þá leik- ur enginn vafi á því í huga Slag- brands, að Áskell er mikill hæfi- leikamaður og á vissan hátt er Slagbrandur hreykinn yfir því hversu langt Áskell hefur náð, með það í huga, að hann var eitt sinn „bara“ i popphljómsveit. Það er þó merkilegur tónlistarskóli að mörgu leyti, popphljómsveitin, þótt Slagbrandur viðurkenni fús- lega, að ekki byggja liðsmenn popphljómsveitanna á mikilli fræðiiegri tónlistarmenntun í starfi sínu. Slagbrandur er raunar ánægð- astur, þegar hann heyrir í tónlist- armönnum sem sýna og sanna að þeir eru í alvöru að reyna að þroska sig og bæta og draga fram sina duldu hæfileika, sinn hreina tón. Og það er greinilegt, að Ás- kell fyllir þann fámenna flokk ungra tónlistarmanna hér á landi, sem þannig vinna. Þvi vill Slagbrandur nota tæki- færið og óska Áskeli Mássyni til hamingju með þessa tónleika í Norræna húsinu. Áskeli til að- stoðar voru þeir Guðmundur Steingrimsson og Reynir Sigurðs- son og stóðu þeir sig báðir með mikilli prýði og fóru hreint á kost- um í þeim köflum tónverkanna, þar sem þeir fengu færi á frjálsri tjáningu, tóku sóló, eins og það er kallað. Það sama gilti um Áskel, hann virtist njóta sin betur i frjálsa forminu en þegar hann sló nákvæmlega eftir nótunum, líkt og tölvustjórnuð brúða. Aðsókn að tónleikunum var betri en aðstandendur Jassvakn- ingar höfðu átt von á, því að salur- inn fylltist strax, og nokkur hópur áheyrenda þurfti að sitja í bóka- safninu og horfa og hlusta á flutn- inginn aftan frá, ef svo má segja. I lokin tekur Slagbrandur sér það bessaleyfi að birta kynning- una á Áskeli Mássyni úr efn- isskránni: „ÁSKELL MÁSSON er fæddur i Reykjavík 21. nóvember 1953. Sjö ára gamall fór hann í Barna- músíkskólann í Reykjavik og var þar i tvö ár. Siðan beindist áhugi hans sérstaklega að trumbum og slagverki, og frá níu ára aldri hefur hann stefnt markvisst að vaxandi tækni og þekkingu á þeim vettvangi. Á fimmtánda ári fór Áskell i Tónlistarskólann í Reykjavík og nam þar einn vetur. Hann var þá þegar farinn að fást við tónsmíð- ar, enda eru verk fyrir þau marg- víslegu og sérstæðu hljóðfæri sem hann hreifst af ekki á hverju strái. Árið 1970 kom Áskell fyrst fram í islenska sjónvarpinu með lagasafn eftir sig. Sköpunarþrá hans fékk byr undir báða vængi þegar hann gekk til samstarfs við Alan Carter hjá íslenska dans- flokknum í desember 1973. Áskell hafði þá um skeið unnið að tón- verkinu HÖFUÐSKEPNURNAR. Carter samdi ballett við það sem var frumfluttur í Þjóðleikhúsinu í tilef'ni Listahátíðar 1974. Næsta árið var viðburðarikt hjá Áskeli. Áframhaldandi starf við Þjóðleikhúsið leiddi af sér þrjú önnur verk, sem þar voru flutt, ELDTRÖLLUÐ (fyrst flutt í sjón- varpi), LAGASAFN II (að auki flutt í Iðnó og á Listahátið 1974) og SVART — HVÍTT. Auk þessa samdi hann þá kórverkið INSTINCT og átti eldra verk, SILJA (frá 1972), á Ung Nordisk Musikfest í Svíþjóð. Þessu tímabili lauk svo í mars 1975, þegar Áskell hélt til Lon- don. Þar var hann við nám í tón- smíðum hjá Patric Savill og slag- verki hjá James Blades til ársloka 1976. Síðan hefur hann samið tvö orgelverk auk þeirra þriggja verka sem hér verða frumflutt. Hann er nú með hljómsveitarverk i smíðum. Áskell hyggur á frekara nám erlendis á næsta ári og ætlar þá að helga sig tónsmiðum.“ Tónlistarfélag Menntaskólans við Hamrahlíð mun gangast fyrir endurtekningu á tónleikunum i húsakynnum skólans, mánudags- kvöldið 21. mars klukkan 21. Auk þeirra þriggja verka sem voru flutt í Norræna húsinu, verður Dúó fyrir trommusett og slagverk á efnisskrá. Forsala aðgöngumiða hefst I Bóksölu stúdenta á mánudags- morgun. og þegar loks kom að því, eftir sex ára puð, að plötufyrirtæki féllst á að gefa út plötu með tónlist hans, réð hann fjóra hljómlistarmenn í hljómsveit sína sem hann kenndi við borg- ina Boston Plötufyrirtækið auglýsti plötuna sem mest það mátti og innan tiðar fór hún að seljast í stórum stíl. Tom Scholz og félagar æfðu á meðan af kappi og bjuggu sig undir að hefja hljómleikaferðir vitt og breitt um Bandrikin. -í fyrstu var Boston bara aukahljómsveit á hljómleikum þekktra lista- manna, en eftir tvo mánuði eða svo var hljómsveitin orðin svo kunn af plötu sinni, að hún var hækkuð í tign og gerð að aðal- númerinu á hljómleikum Og þetta olli hljómsveitinni nokkr- um vandræðum, vegna þess, að hún var ekki enn komin með efni til einnar klukkustundar lags flutnings, eins og ætlazt er til að aðalhljómsveitunum á hverjum hljómleikum. En með mikilli vinnu hafðist þetta og nú getur hljómsveitin flutt þrumandi rokk i hálfa aðra klukkustund, áheyrendum til mikillar ánægju. En þótt hraðferð Boston upp á stjörnuhiminn tæki aðeins sex mánuði, þá heldur Tom Scholz því fram, að í rauninni liggi sex ára vinna að baki þessari velgengni — og er hann vart öfundsverður af vel- gengninni, þegaar þetta er haft ihuga. En á meðan poppáhuga- menn geta glaðzt yfir komu Tom Scholz og félaga hans í Boston fram á sjónar- og heyrnarsviðið, situr Polaroid- Ijósmyndafyrirtækið eftir með sárt ennið, því að það misst einn af sinum færustu visinda- og uppfinningamönnum. Eins dauði er annars brauð — SU. i líkust Viðar- Vegg- klæðning þiljur þiljur þiljur þiljur Nýkomin stór sending af viðarþiljum frá Kóreu. Stærð 122x244x0,4 cm. Verökr 1894,- m./sölusk Vegg- Vegg- klæðning strigi strigi strigi strigi Ávallt eitthvað nýtt í Nýborg Úrval af veggstriga í mörgum litum. Verö frá kr. per. 1 m. Nýborg c§d BYGGINGAVORUR ÁRMÚLA 23 SlMI 86755 CROWN JAPAN Opnunartakki (eject) stopp takki ■ spiltakki hraSspilun áfram hraSspilun afturábak-^-^ upptökutakki (rec) Verð kr. 16.100.- hátalari Cassettu hólf tónbreytir styrkstillir inntak fyrir rafstraum(240V~) innbyggSur hljóðnemi inntak fyrir beina upptöku af plötuspilara eða útvarpi. inntak fyrir heyrnartól Tengi fyrir auka hljóðnema. áÉMtrax í dag DC Socket (6V inntak fyrir rafstraum Verð kr. 17.920.- BUÐIM HF. / Skipholti 19 við Nóatún, Sími23800 Klapparstig 26 Sími 19800 hátalari Cassettu hólf innbyggður hljóðnemi inntak fyrir beina upptöku af plötuspilara eða útvarpi. aukatengi blöndunartengi Tengi fyrir auka hljóðnema. inntak fyrir heymartól upptökuljós opnunartakki stopp takki spiltakki (►) hraðspilun áfram ( kk ) hraðspilun afturábak ( 44 ) upptökutakki (REC) styrkstillir tónbreytir Sendum i póstkröfu samdægurs um allt land. Pöntunarsími 23500 CROWN ílTi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.