Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1977 + Maðurinn minn oq faðir okkar ÞORSTEINN H. ÓLAFSSON, skipasmiður, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22 þ m kl 1 30 Sigrlður Kristinsdóttír og börn. t Utför eiginkonu minnar, móður, ömmu og tengdamóður SVÖVU KLÖRU HANSDÓTTUR. (fædd ísebarn) Barmahlíð 12, fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 22 marz kl. 1 5.00 SigurðurÓ.K. Þorbjarnarson, Lúther Garðar Sigurðsson, Lúther Leifur Garðarson, Geirþrúður Pálsdóttir. t Einlægar þakkír fyrir hlýjar kveðjur og vinarhug við andlát og útför þrúðar gunnarsdóttur Eggert GFslason. Roshan Eggertsson, Þráinn Eggertsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður. tengdaföður og afa VIGGÓS H.V. JÓNSSONAR, forstjóra Lindargötu 12, Sigríður Jónsdóttir Ásdís Viggósdóttir Manuel Coronil Merino Jón V. Viggósson — og bamabörn. Saab 99 L' 75 2ja dyra Indiagulur 20 þús km. Saab 99 L. '75 2ja dyra rauður 33 þús. km. Saab 99 L' 74 Combi Coupé blár 45 þús km. Saab 99 L' 74 dyra Indíagulur 35 þús km. Saab 99 L' 74 2ja dyra brúnn 50. þús km. Saab 99 L' 74 2ja dyra rauður 46 þús km. Saab 99 x7'74 2ja dyra hvítur 30. þús km. Saab 99 L' 73 L E' 73 4ra dyra sjálfskiptur brúnn 58 þús km. Saab 99 L' 73 4ra dyra grænn 67 þús km. Saab 99 L'73 2ja dyra gulbrúnn 73. þús km. Saab 99 L' 73 2ja dyra blár 80 þús km. Saab 99'72 4ra dyra gulbrúnn 82. þús km. Saab 99'72 4ra dyra 56. þús km. Saab 99'72 2ja dyra hvítur 45. þús km. Saab 99 2ja dyra grænn 60 þús km. Saab 99'71 2ja dyra blár 83. þús km. Saab 99'7 1 2ja dyra grænn 72. þús km. Saab 99'70 2ja dyra blár 115. þús km. Saab 96'74 rauður 42. þús km. Saab 96'74 rauður 59. þús km. Saab 96'74 grænn 47. þús km. Saab 96'74 gulur 62. þús km. Saab 96'73 blár 50. þús km. Saab 96'73 blár 76. þús km. Saab 96'72 gulbrúnn 52. þús km. Saab 96'72 gulbrúnn 80. þús km. Saab 96'72 grænn 88. þús km. Saab 96'72 drapp 68. þús km. Saab 95'71 grænn 90. þús km. Þessir bílar, ásamt fleirum eru til sölu hjá okkur. B3ÖRNSSON Aco. SKEIFAN 11 SÍMI 81530 Þorbjöm Amoddsson Seyðisfírði — Minning Hann lézt heima á Seyðisfirði 31. ágúst 1976 á 80. aldursári. Síðari hluti ævi hans var samof- inn samgöngumálum Seyðfirð- inga og sá þáttur gildur, sem hann spann í þeirri llftaug, sem örugg- ar samgöngur eru sérhverri byggð. Farandmenn eins og sá, sem þessar línur skrifar, gleyma honum seint. Og raunar hygg ég, að Þorbjörn verði næsta hugstæð- ur samferðamönnum almennt sakir persónuleika hans, burtséð frá afreksverkum á vegum úti. Ég held líka, að Þorbjörn hafi verið mjög vinmargur. Aldrei heyrði ég nokkurn leggja honum illt til. Og hann átti trygga og dugmikla sam- starfsmenn sem voru vinir hans. Þorbjörn Arnoddsson fæddist að Giljum á Jökuldal 3. marz 1897. Foreldrar hans voru hjónin Ing- unn Antoníusdóttir frá Markúsar- seli i Álftafirði suður og Arnodd- ur Þorleifsson frá Karlsskála við Reyðarfjörð. Þau bjuggu næstu 10 árin á ýmsum bæjum á Jökul- dal. Þá fluttust þau út i Hróars- tungu, bjuggu fyrst I Heiðarseli og síðar í Brekkuseli til dauða- dags. En þau létust með stuttu millibili árið 1920. Þorbjörn var þá við smíðanám hjá Jónasi Þór- arinssyni á Hrafnabjörgum. Hann | lauk þvi námi, fluttist til Seyðis- fjarðar og átti þar heimili upp frá þvi. Þorbjörn vann í fyrstu í vél- smiðju Jóhanns Hanssonar við járnsmfði og vélaviðgerðir. Eftir það mátti segja, að hann væri jafn vígur á tré og járn, en næstu árin vann hann við húsa- og húsgagna- smiðar. Hef ég fyrir satt, að hann hafi verið bæði hagur og kapps- fullur við verk. Árið 1925 kvæntist hann Þór- unni E. Waage, sem var ættuð frá Seyðisfirði og Mjóafirði. Eignuð- ust þau eina dóttur, Pálínu Kristínu. Hún rekur verzlun á Seyðisfirði og var alltaf samtíða föður sínum. Um 1935 tókst Þorbjörn á hend- ur viðgerðir bíla og sfðan akstur í almannaþágu. Það varð eftir það aðalstarf Þorbjörns. Og þótt hann hætti áætlunarferðum hálfsjötug- ur, þá fékkst hann við akstur til síðasta dags. Hann hafði bil í smíðum á verkstæði sfnu, snjóbíl, og hugðist útfæra þar hugmyndir sinar um ýmsar nýjungar. Var hann búinn að efna sér I bflinn og nokkuð langt kominn með smið- ina. Þorbjörn lifði þróun íslenzkra vega f hálfa öld. Torfæruakstur varð honum íþrótt og mér fannst hann ævinlega vera við öllu bú- inn. Það var eitt sinn um vor i leysingu, að við komum að „stórri móðu“ í lægð norðanvert á Fjarðarheiði, en litill fólksbíll á veginum og vatn upp á miðjar hurðir. — Það var eins og ekkert væri sjálfsagðara! Þorbjörn seild- ist aftur fyrir sig og tók fram vöðlur mittisháar, sem hann brá sér f, festi taug f þann sokkna og dró hann á þurrt. Áhöfninni buð- um við far. Hægt en örugglega ók hann yfir „móðuna" og síðan héldum við leiðar okkar eins og ekkert hefði í skorizt. — Þetta atvin er dæmigert. En sérgrein Þorbjörns var þó akstur snjóbfla I brattlendi. Þar var hann svo sannarlega brautryðjandi. Gjör- bylting varð I vetrarsamgöngum Seyðfirðinga með tilkomu snjó- bílsins. Það var undrunarvert, hversu Þorbjörn komst leiðar sinnar í bullandi ófærð og bráð- ófæru' veðri. Fjarðarheiðin er ekkert lamb að leika sér við á vetrardegi. Þar var aðalvett- vangurinn — en ekki sá eini, því að aldrei var neitað ef unnt var að rétta hjálparhönd. Auk þess heill- uðu öræfin. Akstur var um langt skeið at- t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ÖNNU GUÐRÚNAR ÁSKELSDÓTTUR frá Bassastóðum Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði og Elliheimilinu Grund Guðbjörg Bjamadóttir Tryggvi Bjarnason Ketilríður Bjamadóttir Bjami Bjarnason Áskell Bjarnason Þórhallur Bjarnason Ásta VigdFs Bjarnadóttir og bí Kristberg Jónsson Arnfriður Benediktsdóttir Eyjólfur Árnason Brandis Guðmundsdóttir Anna Jóhannsdóttir Stella Sigurjónsdóttir Ingimar Eliasson vinna Þorbjörns, sem hann hafði lffsframfæri sitt af. Jafnframt voru góðar samgöngur og batn- andi hans hjartans mál. Er þá vel, þegar saman fer hugsjón og starf. Þorbjörn var sæmdur riddara- krossi hinnar íslenzku fálkaorðu 17. júni 1975 fyrir brautryðjenda- störf á sviði samgöngumála. en hann var raunar verður viður- kenningar einnig sakir annarra hluta og er mér þá efst í huga ævilöng eljusemi og trúmennska í verki og órofa tryggð við ísland og þess aðskiljanlegu náttúru, dauða og lifandi. Varð ég þess oft var hversu glöggt auga hann hafði fyrir mörgum þeim tilbrigð- um á dásamlegum, sem fara fram- hjá mér og mfnum líkum nema okkur sé á þau bent. Það væri þarft verk til varð- veizlu merkrar sögu — og yrði góð lesning að gera myndarlegan þátt um Þorbjörn Arnoddsson, æviferil hans, afrek, já og ævin- týri, ef svo má að orði komast. Hér verður litlu við bætt þennan fátæklega ramma, sem ég læt fylgja ljósmynd hans. Á ég þó margar góðar minningar frá sam- verustundum. Fyrsti fundur okkar Þorbjörns er mér einkar minnisstæður og svo orðin, sem hann sagði. Við mættumst á Ströndinni út hjá Melstað. Hann kom að innan á herbfl gagngert til að spara mér sporin. Ég var nýkominn af Brekkugjá, var vfst eitthvað latur og hafði hringt frá Hánefsstöðum. Framhald á bls. 31 Kveðja Við áttum margar góðar sam- verustundir með Steinari í skól- anum. Hann kenndi okkur nátt- úrufræði. Þegar okkur barst fregnin um lát hans, brá okkur mikið í brún. Gengu skólakrakk- arnir hljóðlega um. Oft sagði hann okkur af sjálfum sér þegar við misstum áhugann á faginu og lífgaði hann þá strax upp á bekkinn. Við biðjum einlægan Guð að blessa konu hans og börn og megi hann hvíla í friði. Asdís V., Árdfs J., Sigríður J„ 5. bekk A. Melaskóla. SALA verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs hefst þriðjudaginn 22. mars y ■ V VlsV- SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.