Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1977
47
Loðnuveiðin orðin
520 þúsund lestir
UM HÁDEGI f gær var heildar-
loðnuveiðin orðin 520 þúsund
lestir en á sama tfma f fyrra var
veiðin aðeins 302 þúsund lestir.
Þá gerðist það f fyrrinótt, að
loðnuskip fór f fyrsta sinn yfir 20
þúsund lesta afla, en þá tilkynnti
Sigurður RE um 1200 lesta afia,
og var þar með búinn að fá 20.300
lestir samtals á vertfðinni.
Loðnuskipin eru enn að veiðum
úti af Reykjanesi og á tímabilinu
frá kl. 15 í fyrradag fram til kl. 12
í gær tilkynntu eftirtalin 18 skip
um afla:
Keflvíkingur KE 230 lestir,
Kári Sölmundarson RE 160, Börk-
ur NK 750, Hilmir SU 500, Hug-
inn VE 550, Sigurður RE 1200,
Hrafn GK 320, Vonin KE 150,
Hamravik KE 150, Ólafur
Magnússon EA 200, Steinunn RE
100, Dagfari ÞH 260, Stapavík SI
420, Náttfari ÞH 290, Jón Finns-
son GK 400, Rauðsey AK 500, Ás-
borg RE 190 og Hákon ÞH 440
lestir.
Umferðaróhöppum í
Rvík hefur stórfækkað
ÓHÖPPUM f höfuðborgarumferð-
inni hefur enn stórfækkað tvo
fyrstu mánuði ársins miðað við
sömu mánuði f fyrra. Aftur á
móti hafa jafnmargir slasazt, eða
25 manns.
Óskar Ólason, yfirlögreglu-
þjónn, veitti Mbl. þær upplýsing-
ar, að I janúar og febrúar í ár
hefðu orðið 365 umferðaróhöpp í
Reykjavík á móti 635 óhöppum
sömu mánuði í fyrra. Er þetta 270
óhöppum færra. Taldi Óskar, að
gott tíðarfar hefði haft mikið að
segja, en I fyrra var fremur snjó-
þungt í janúar og febrúar. Af
Þrennt
slasaðist
FÓLKSBIFREIÐ var ekið á mik-
illi ferð á ljósastaur á Hafnar-
fjarðarvegi, rétt sunnan Arnar-
ness, um fjögurleytið í fyrrinótt.
Kubbaðist staurinn í sundur.
Fimm manns voru í bilnum og
slasaðist þrennt, tvær stúlkur og
einn piltur. Grunur leikur á um
ölvun. Billinn er talinn ónýtur, en
hann er af Volkswagengerð.
— Líbanon
Framhald af bls. 1.
innan dyra af ótta við að bardagar
blossuðu upp þá og þegar.
Kamal Jumblatt, sem myrtur
var í vikunni, var af ættflokki
Drúsa, sem búa í fjallahéraðinu
Shouf, suðaustur af Beirút, en
Drúsar eru jafnframt sérstakur
trúflokkur múhameðstrúar-
manna. Kveður fornt siðalögmál
þeirra á um að leiðtoga skuli hent
sé hann ráðinn af dögum.
þeim sem slasazt hafa í ár slösuð-
ust 11 litið en 14 mikið en i fyrra
slösuðust 13 lítið en 12 mikið.
Fækkun óhappa varð mest I
janúar. Á þessu ári urðu óhöppin
193 í þeim mánuði en 410 sama
mánuð I fyrra.
— Stanzlaus
straumur í
Bláfjöll
Framhald af bls. 48
Skíðalyfta á hæsta tind
Nýlega hefur Bláfjallanefnd
beðið um upplýsingar og tilboð
hjá lyftuframleiðendum erlendis
vegna skíðalyftu norðan megin í
Kóngsgili og upp á hæsta tind,
annaðhvort í sveig upp eða I
tveimur áföngum. Er ætlunin að
vinna að því I sumar, því lyftu-
skortur er I gilinu, þar sem
verður miðstöð skiðaiðkana í fólk-
vanginum. Snyrtiskáli er kominn
og tekinn í notkun. En einnig er
áformað að leggja rafstrengi til
skiðafélaga, sem aðstöðu hafa í
Bláfjöllum.
Mót og námskeið
Um helgina verður svonefnt
punktamót í Kóngsgili, sem skíða-
menn hvarvetna að af landinu
taka þátt i. Verður þvi innri Blá-
fjallalyftan upptekin, og braut
lögð innst i gilinu. Þrengir þvi
nokkuð að almennri skíðaiðkun á
meðan.
Þá hefur fræðsluráð Reykjavík-
ur samþykkt að efna i annað sinn
til sérstaks námskeiðs fyrir
kennara í skólum borgarinnar
eftir mánaðamót, til að gera þá
færari um að fara með krökk-
unum á skiði, og stjórna þeir
Eins og þú veizt
eru reykingar hættulegar
Því er spurningin þessi: Langar þig til að hætta
að reykja? Ef svarið er já, en þú treystir þér ekki
til þess, þá gæti danska meðalið RAFFALTS 28
sem þegar hefur hjálpað mörgum íslendingum
til að hætta að reykja, verið rétta lausnin fyrir
Þ'g
Meðal þetta er unnið úr náttúrulegum efnum
og er því algerlega skaðlaust, einnig fyrir
barnshafandi konur. Á 28 dögum getur þú
algerlega hætt að reykja. Engin óþægindi þó
þú reykir, en þú finnur löngunina minnka.
„íslenzkur leiðarvísir fylgir"
Nú er einnig hægt að fá RAFFALTS 28 gegn
póstkröfu fyrir aðeins 3.295 kr. stk. + burðar-
gjald. Sendið meðfylgjadi seðil eða skrifið til
Þ. Kolbeinsson & Co
Box 10045, Rvk (sími 8-1 5-1 9)
Vinsamlega sendið mér _____ flöskur af
RAFFALTS 28 á 3.295 kr. stk.+ burðar-
gjald.
Nafn ..............................
Heimilisfang ......................
Staður ............................
Stefán Kristjánsson, Iþróttafull-
trúi, og Valdimar örnólfsson
þeim.Var slíkt námskeið haldið I
fyrra við mjög góðar undirtektir.
Er þar m.a. kennd hjálp í viðlög-
um o.fl. En námskeiðið sjálft
verður i Bláf jöllum.
- Byggingameist-
ari í 20 ár
Framhald af bls. 25
veikinda. Við höfum líka verið það
lánsamir að á þeim langa tíma, sem
kirkjan hefur verið í byggingu, hafa
ekki orðið nein slys á starfsfólki hér í
hyggingunni.
Ekki hægt að mæla
kirkjusmíðina upp
— Það hefur verið ánægjulegt að
starfa að byggingu Hallgrímskirkju
Verkið er margbreytilegt og óneitan-
lega flókiðá köflum. Sennilega felst þó
besta lýsingin á kirkjusmíðinni í þvi að
mælingamenn hafa ekki enn treyst sér
til að mæla smíðina upp En hversu
erfiðir. sem einstakir hlutar kirkju-
byggingarinnar hafa verið í byggingu,
er þó enginn eins erfiður og sá, sem
við erum nú að vinna við en það eru
samskeyti kórsins og kirkjuskipsins
íslenzku stuðlarnir og stuðlabergið,
sem er fyrirmyndin að byggingarlagi
kirkjunnar hafa frá upphafi freistað mín
og þó stundum hafi menn verið að því
komnir að leggja árar í bát og kasta frá
sér verkfærunum. hafa menn orðið enn
ánægðari, þegar verkinu var lokið Við
höfum alltaf smátt og smátt verið að
sjá ávöxt verka okkar og það var stór
áfangi er lokið var við turninn.
— Um það hvenær byggingu Hall-
grímskirkju verður lokið er ómögulegt
að segja Byggingarhraðinn hefur eins
og ég sagði áður alltaf ráðist af því
fjármagni, sem til ráðstöfunar hefur
verið Það væri vitanlega hægt að gera
hana fokhelda á tveim til þremurárum,
ef fj’armagnið leyfði að nægur mann-
skapur yrði ráðinn til verksins. En
hversu langan tíma tekur að innrétta
hana, get ég ekki sagt um að svo
komnu. Teikningar liggja reyndar ekki
heldur fyrir að allri innréttingunni og
það er alveg Ijóst að þær verða vanda-
samar. Sá áfangi, sem nú er unnið að
er kórinn og þvi verki verður haldið
áfram þar til kórþakið er komið Eftir
það er ætlunin að hefjast handa við að
byggja yfir kirkjuskipið
Skylda okkar að halda minningu
Hallgríms á loft
— Ósk mín á þessum afmælisdegi
mínum er að geta haldið áfram að
starfa að byggingu Hallgrimskirkju og
óskadraumurinn er að sjá hana i sinni
endanlegu gerð áður en maður hverfur
úr þessum heimi Hvað, sem menn
hafa sagt um Hallgrímskirkju á liðnum
árum þá hef ég ekki trú á öðru en hún
eigi eftir að þjóna hlutverki sínu vel i
framtíðinni Bæði til kirkjuathafna og
sem tónleikahús Kirkjan er að hluta
hönnuð með það fyrir augum að flytja i
henni stór kórverk og fyrir þvi hugsa$
að fá út góðan hljómburð Gleymum
lika ekki þeim perlum, sem Hallgrimur
Pétursson lét eftir sig og hafa verið
þjóðinni haldreipi i þáningum hennar
oft á tiðum Það er skylda okkar að
halda mmningunni um Hallgrim á loft
og sýna honum þá virðingu, sem hann
á skilið. sagði Halldór að lokum.
Halldór Guðmundsson býr nú á
Grenimel 5 i Reykjavik ásámt konu
sinni Guðfinnu Þorleifsdóttur.
*
Köld borð”
y ij-JL-m-VJr JLVJL H/V/l. V/
Smurt brauð
Heitur veizlumatur
Þið sjáið að veizluborðið hjá Gísla
er glæsilegt og rausnarlegt
Verkin lofa meistarann
Stoltur gestgjafi — ánægðir gestir
Veitingarnar frá Brauðbæ — og verdið er gott