Morgunblaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 27
Og ... svo gerðist það sem var enn verra. Malli var á svo mikilli ferð, að
honum tðkst ekki að nema staðar við ána. Hann féll þvf út f hana —
skvamp, skvamp! Og þar brölti hann um og hrópaði á hjálp. En ég,
snigillinn Snar, gat ekkert aðhafzt, þvf miður. Ég hugsaði bara með
mér, að gott hefði verið, ef Malli hefði kunnað lffsregluna mfna:
Flýttu þér hægt.
Til allrar hamingju kom einn vina Malla að og bjargaði honum upp
úr ánni. Og ég tók gleði mfna á ný.
Dag einn fór að rigna, og það rigndi mikið. Eg varð hræddur, þegar ég
sá, að fljótið fór að vaxa og útlit var fyrir flóð. Mfn vegna var það
reyndar f lagi, þvf að ég á regnhlíf og ég er syndur. Malli var ekki
heima þegar rigningin hófst, en þeir sem bjuggu við fljótið komu sér
burtu f skyndi. Hver og einn hugsaði um að bjarga sér. Ég varð eftir og
beið eftir Malla. Loks kom hann og leit inn f kofann, þar sem hann átti
heima. En þar var enginn. Hann varð hræddur og tók til fótanna. Ég
hélt af stað á eftir honum. (Framhald).
27
Teikning: Brynja
Ragnarsdóttir 10 ára,
Hrísey.
Skrýtin
kjr
,.En hvað þetta er skrýtin
kýr," sagði ung og lagleg
stúlka úr höfðuborginni, ,.en
hvers vegna hefur hún eng-
in horn?”
..Sjáið þér til," sagði bónd-
inn „Sumar kýr eru fæddar
hornlausar og sumar missa
þau, og á sumum tegundum
er ekki gert ráð fyrir neinum
hornum. ÞaSr eru margar
ástæðurnar fyrir þvi, að
sumar kýr hafa ekki horn.
En ástæðan fyrir þvi að þessi
hefur ekki horn, er sú, að
þetta er ekki kýr. Þetta er
hestur."
Frá versluninni Jenný
Skólavörðustíg
Þar sem verslunin hættir verða vörur okkar
seldar með miklum afslætti meðan birgðir
endast.
NAMSKEIÐ
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefst nýtt námskeið mánudaginn 21.
marz.
NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEÐAL ANNARS UM
EFTIRFARANDI ATRIÐI:
# Grundvallaratriði næringarfræði.
# Innkaup, vörulýsingar, auglýsingar.
# Ráðleggingar, sem heilbrigðisyfirvöld margra þjóða hafa birt, um
æskilegar breytingar á mataræði, til að fyrirbyggja sjúkdóma..
# Fæðuval, gerð matseðla, matreiðsluaðferðir, tilbúning ýmissa rétta
(sýnikennsla) með tilliti til áðurnefndra ráðlegginga.
# Mismunandi framreiðsluaðferðir, dúka og skreyta borð fyrir mis-
munandi tækifæri.
# Hvað mðurstöður nýjustu visindalegra rannsókna hafa að segja um
offitu og megrunarfæði. MUNIÐ að rangar megrunaraðferðir eru
mjög skaðlegar og geta valdið varaniegu heilsutjóni.
VEIZT ÞÚ AÐ GÓÐ NÆRING HEFUR ÁHRIF Á:
# Andlegan, líkamlegan og félagslegan þroska allt frá frumbérnsku.
# Mótstöðuafl gegn sjúkdómum og andlegu álagi.
# Líkamsþyngd þina, en hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki og
margir fleiri sjúkdómar eru langtum algengari meðal þeirra, sem
eru of feitir.
Aðeins rétt nærður einstaklingur getur vænst besta árangurs í námi,
leik og starfi.
Upplýsingar og innritun i síma 44247 eftir kl. 8 á kvöldin.
Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisfræðingur.
y
)