Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 12

Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 Frá lögreglunni: Lýst eftir vitnum SLYSARANNSÓKNARDEILD lögreglunnar hefur beöið Morgunblaðió að auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrsl- um: Á timabilinu frá 8.— 11. marz s.I. er talið að einhver hafi ekið á bifreiðina R-20534, Renault- fólksbifr., árg. 1968, þar sem hún stóð á Rauðalæk gegnt húsi nr. 6. Skemmdir: Vinstra afturaur- bretti og afturhöggvari dælduð og skemmd og afturljósker brotin. Sunnud. 20. marz. Ekið á bifreiðina R-106, Ford Cortina, árg. 1971, brúna að lit þar sem hún stóð á horni Öldugötu og Brekkustígs átímabilinu kl. 19.00 kvöldið áður til kl. 07.00 um morguninn þ. 20. Skemmdir: Vinstra framaurbretti dældað og var rauður litur I ákomustað, væntanlega af tjónvaldi. Mánud. 21. marz. Ekið á bifreið- ina R-5449, Fiat-fólksb., árg. 1967, hvíta að lit, þar sem hún stóð á Freyjugötu á móts við hún nr. 1. á tímabilinu kl. 19.00 kvöldið áður til kl. 08.30 að mörgni þess 21. Skemmdir: Vinstri hurð öll dæld- uð og var grænn litur á ákomu- stað. Fyrirlestur um stjórnsýslulög- gjöf í Danmörku Dr. Juris Niels Eilschou Holm, skrifstofustjóri í danska dóms- málaráðuneytinu, heldur fyrir- lestur á vegum lagadeildar Háskóla íslands um undirbúning að setningu almennrar stjórn- sýslulöggjafar 1 Danmörku. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 103 í Lögbergi, húsi laga- deildar, kl. 11 árdegis þriðjudag- inn 29. marz 1977. öllum er heimill aðgangur. Nú eru liðin 60 ár frá því Mjólkurfélag Reykjavíkur hóf þjónustu við íslenskan landbúnað sem sjálfstæð samtök bænda. MR Laugavegi 164 Þar eru MR búðirnar Á götuhæð sími 11125 Girðingaefni, túngirðinganet, lóðanet, járn- staurar, álstaurar, tréstaurar, pappasaumurog þaksaumur. Garðyrkjuáhöld, og verkfæri alls konar. MR grasfræblöndur MR skrúð- garðablöndur, óblandað grasfræ, grænfóður fræ, sáðbygg og sáðhafrar. Á 2.hæð símar 24339 og 24355 Á 3.hæð sími 11125 Matvörur, sælgæti, gosdrykkir, hreinlætis- vörur, snyrtivörur, búsáhöld, vefnaðarvörur ofl. Skrifstofa. Tekið við fóðurpöntunum og pönt- unum til MR búðanna ef óskað er. MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR Laugavegur sími 111 25 \ Ostaneyzla stóð 1 stað — 7,3 kg af smjöri og 5,9 kg af osti á hvert mannsbarn í fyrra —OSTA- og smjörsalan hefur á sfðustu árum kynnt sérstaklega matreiðslu osta og árangur þeirrar kynningar hefur orðið mjög góður. Þannig hefur ostasala tvöfaldazt á um 6 árum eða úr um þremur kflóum f tæplega sex kfló f fyrra. Auknar ferðir fólks til útlanda hafa lfka haft áhrif á matarvenjur, en ostaneyzla hér á iandi er þó aðeins um helmingur af neyzlunni vfða erlendis, sagði Óskar H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Osta- og smjörsölunnar sf. á blaðamannafundi, sem haldinn var að ioknum ársfundi fyrirtækisins. Fram kom hjá Óskari, að nokkur aukning varð f smjörsölunni á sl. ári eða 6.8% en ostaneyzla landsmanna stóð f stað f fyrra miðað við árið 1975. Meðalney/la á fbúa af smjöri á árinu reyndist vera 7.3 kg en af ostum 5,9 kg. Heildarsala Osta- og smjörsöl- unnar á árinu 1976 nam 2.6 mill- jörðum og jókst salan milli ára um tæpar 450 milljónir eða 20.7%. Á árinu varð heildarfram- leiðsla smjörs 1834 lestir og jókst um 314 lestir. Verulegur sam- dráttur varð i framleiðslu 45% osts, en heildarframleiðsla 30 og 45% osta nam 1595 lestum, það var 379 lestum minna en árið 1975. Sölukostnaður Osta- og smjörsölunnar, sem sér um ið selja um 70% af allri smjör- og ostaframleiðslu i landinu, nam 2.7% af veltu fyrirtækisins, ef kostnaður við ýmsa þjónustu- starfsemi er dreginn frá útgjöld- um. Endurgreiðsla til mjólkurbú- anna af umboðslaunum nam 86.4 milljónum króna. Hjá Óskari kom fram, að inn- vegin mjólk til mjólkursamlag- anna 1976 reyndist 0.4% meiri en Frá ársfundi Osta- og smjörsölunnar. Óskar H. Gunnarsson f ræðustól. Osta- og smjörsalan er sameignarfyrirtæki Sambands fslenzkra sam- vinnufélaga og Mjélkursamsölunnar í Reykjavfk. LEIKLIST VIÐ EYJAFJÖRÐ Sölumaöur deyr á Akureyri Sölumaður deyr, leikrit Art- hurs Miller, var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar fyrir skömmu. Leikstjóri er Herdis Þorvaldsdóttir leikkona frá Þjóðleikhúsinu.sem um þessar mundir starfar sem gestur hjá L.A. Þýðingin er Skúla Skúla- sbnar með nokkrum leiðrétt- ingum Gisla Jónssonar og leik- stjórans. Leikmynd er eftir Hallmund Kristinsson. í hlut- verkum eru: Marinó Þorsteins- son — Willie, Sigurveig Jóns- dóttir — Linda, Þórir Stein- grímsson — Biff, Aðalsteinn Bergdal — Happy, Gestur E. Jónasson — Bernard, Jóhann Ögmundsson — Charley, Saga Jónsdóttir — Konan, Jón Kristinsson — Ben frændi, Guðmundur Rúnar Heiðarsson — Howard, Áslaug Ásgeirs- dóttir — Jenny, Ása Jóhannes- dóttir — Miss Forsyte. Ljósum stýrir Árni Valur Viggósson. Aðstoðarmaður leikstjóra er Saga Jónsdóttir. Arthur Miller er einn þekkt- asti og virtasti leikrita- höfundur þessarar aldar. Eftir hann liggja verk á borð við Allir synir minir (1947), Sölu- maður deyr (1948), I deiglunni (1953), Horft af brúnni (1955). Öll þessi verk hafa verið flutt hér á landi og eru vel þekkt. Kristinn G. Jóhannsson leikstjóri Sjóleiðarinnar á Ólafsfirði. Sölumaður deyr er það verka Millers sem hvað mestrar frægðar nýtur og er nú þegar orðið fastur liður i bókmennta- efni því sem lesið er við banda- ríska skóla. Almenningsvin- sældir leiksins eiga rót sína að rekja ekki hvað sízt til þess að hann fjallar um efni sem flestir samtímamenn kannast við af eigin raun — miðstéttar- manninn, sem alla ævi hefur verið talin trú um, og sjálfur ástundað þá sjálfsblekkingu, að sigurvon, auður og frægð bíði hans á næsta leiti en vaknar síðan upp við það allt í einu, að æviárin eru orðin sextíu og af- rek ævinnar harla smá. Leikstjórann Herdísi Þor- valdsdóttur þarf ekki að kynna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.