Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
13
Osta- og smjörsalan rekur verzlun f húsnæði sfnu vfð Snorrabraut.
árið áður en örlítill samdráttur
varð i neyzlu mjólkur, sem senni-
lega stafáði fyrst og fremst af
sölustöðvuninni vegna verkfalls-
ins á siðastliðnum vetri. Gat Ósk-
ar þess, að þegar lögð væri saman
neyzla á nýmjólk, súrmjólk,
yogurt og undanrennu, þá kæmi í
hlut hvers íbúa af þessum vörum
232 litrar á siðastliðnu ári en það
er 6.5 ltr. minna en árið á undan. í
Noregi er meðalneyzlan 192 ltr.
en í Svíþjóð 174 ltr.
Á fundinum kom fram að niður-
greiðslur hafa lækkað hlutfalls-
lega á smjöri á siðustu árum og
hafa aldrei verið lægri en nú frá
1963, en niðurgreiðslum á ostum
var hætt í marz í fyrra. Sala á
ostum hefur aukizt nokkuð það
sem af er þessu ári og bæði hefur
Osta- og smjörsalan komið fram
með ýmsar nýjar ostategundir og
ætlunin er að setja ýmsar nýjar
umbúðir á markaðinn. Sú breyt-
ing hefur orðið á sölu osta frá
fyrirtækinu að áður var ostinum
að miklum hluta pakkað í verzlun-
um en nú er um helmingurinn
seldur pakkaður og verðmerktur
frá Osta- og smjörsölunni. í hús-
næði sínu við Snorrabraut rekur
Osta- og smjörsalan verzlun og
kemur þangað jafnan fjöldi fólks,
að sögn Óskars, og þá ekki sizt i
þeim erindum að kynna sér hvaða
ostar og aðrar mjólkurvörur eru á
boðstólum. Sala verzlunarinnar
var á sl. ári um 60 milljónir króna.
Utflutningur mjólkurvara var
mjög lítill á síðastliðnu ári. Sam-
tals voru fluttar út 317 lestir af
ostum til Bandaríkjanna, en þar
fæst mun hærra verð fyrir osta en
á Evrópumörkuðum. Lögð hefur
verið áherzla á að framleiða
Óðalsost en það verð, sem nú fæst
fyrir hann á Bandaríkjamarkaði,
er um 60% af innanlandsverðinu
hér. Sagði Óskar, að verulegar
líkur væru til að verðið hækkaði
ef framleiðslan hér yrði jafnari
og tryggt væri að útflutningur til
Bandaríkjanna gæti orðið jafn frá
mánuði til mánaðar. Þá voru á sl.
ári flutt út 100 tonna af undan-
rennudufti, sem eins og áður hef-
ur komið fram fékkst mjög lágt
verð fyrir. Af öðrum mjólkurvör-
um voru fluttar út 342 lestir af
kaseini en það eru mjólkurefni,
sem notuð eru til iðnaðar.
Á ársfundi Osta- og smjörsöl-
unnar kom fram að fullgerðar
teikningar eru nú fyrir hendi af
væntanlegri dreifingarmiðstöð
O.S.S. á Bæjarhálsi í Reykjavík og
er lóðin, sem fyrirtækið fékk út-
hlutað á árinu 1972, byggingar-
hæf. í byggingarsjóði eru nú tæp-
ar 57 milljónir kr, en Óskar tók
fram, að algjörlega væri óráðið
hvenær hafizt yrði handa um
framkvæmdir við bygginguna.
Hún hefur verið starfandi við
Þjóðleikhúsið allt frá opnun
þess og leikið þar fjölda hlut-
verka svo og í útvarpi og sjón-
varpi og á síðari árum tekið að
setja leiki á svið.
Hallmundur Kristinsson,
leikmyndateiknarinn, hefur
þegar unnið að nokkrum verk-
efnum hjá L.A. og vaxið með
hverju og einu.
Marinó Þorsteinsson, sem nú
ræðst í það stórvirki að fara
með hlutverk Willie Lomans
sölumanns, hefur lengi komið
við sögu L.A. og bíða örugglega
margir spenntir eftir að sjá
hyernig honum og leikflokkn-
um öllum farnast í glímunni við
þetta fræga verk.
Sjóleiðin til
Bagdad á Ólafsfirði
Að undanförnu hefur Leikfé-
lag Ólafsfjarðar sýnt sjón-
leikinn „Sjóleiðin til Bagdad"
eftir Jökul Jakobsson.
sprang
Eftír
Arnn Johnsen
Leikstjóri og leikmynda-
teiknari er Kristinn G.
Jóhannsson en hann leikstýrði
einnig síðasta verki félagsins,
„Tobacco Road“, sem meðal
annars var sýnt i Iðnó á leik-
viku landsbyggðarinnar s.l. vor.
Leikarar i Sjóleiðinni eru Jón
Ólafsson, Elín Haraldsdóttir,
Helga P. Brynjólfsdóttir, Helga
Kristinsdóttir, Jóhann Freyr
Pálsson, Grétar Magnússon og
Guðbjörn Arngrimsson.
„Sjóleiðin til Bagdad" er 17.
verkefni L.Ó. en félagið var
stofnað 1961 en núverandi for-
maður félagsins er Grétar
Magnússon.
Myndin var tekin á æfingu leikritsins Sölumaður deyr hjá Leik-
féiagi Akureyrar, en það eru ieikararnir Jóhann ögmundsson og
Marinó Þorsteinsson sem eru þarna að æfa hlutverk sfn.
Kammermúsikklúbb-
urinn 20 ára - Afmælis-
tónleikar 1 dag
Kammermúsikklúbburinn er 20 ára,
var stofnaður i érsbyrjun 1957.
Næstkomandi þriðjudag verður af
þvi tilefni efnt til afmælistónleika í
Bústaðakirkju. þar sem Márkl-
strengjakvartettinn og kvartett
Reykjavikur Ensemble leika.
Tilgangur með stofnun klúbbsins var
að fylla upp i eyðu sem var i tónlistar-
lífinu, þ.e hér var ekki um stöðugan
og markvissan flutning á Kammer-
músik að ræða. Ætlunin var að fylla
upp í skarðið milli einleiks og hljóm-
sveitartónleika
Stofnendur voru Haukur Gröndal
framkvæmdastjóri, Ingólfur Ásmunds-
son skrifstofustjóri, Ragnar Jónsson
forstjóri,. prófessor Magnús Magnús-
son og Guðmundur W Vilhjálmsson
lögfræðingur.
Ráðgjafar og aðalstuðningsmenn
klúbbsins voru Árni Kristjánsson og
Björn Ólafsson
Tónleikaferill klúbbsins hófst með
því að Trío Tónlistarskólans, Árni
Kristjánsson, Björn Ólafsson og Einar
Vigfússon, flutti Trio Opus 97 eftir
Beethoven, Erkihertogatríoið, i sam-
komusal Melaskólans
Tónleikar klúbbsins hafa verið
haldnir á ýmsum stöðum i Reykjavik
auk Melaskólans. svo sem Hagaskóla,
Neskirkju, Fóstbræðraheimilinu og
Norræna húsinu, en að undanförnu
hefur klúbburinn iðulega notið góð-
vildar forráðamanrta Bústaðakirkju.
Undir stjórn Björns Ólafssonar voru
allir Brandenborgarkonsertar Bach að
einum fráskildum fluttir á vegum
klúbbsins, en með tilkomu Kammer-
sveitarinnar hefur Kammermúsikklúbb-
urinn hætt flutningi tónverka fyrir
Kammerhljómsveitir.
Kammermúsikklúbburinn hefur að
mestu byggt starfsemi sína á íslenzk-
um tónlistarmönnum og hafa margir
þeirra fengið sina fyrstu reynzlu i opin-
berum flutningi kammertónlistar á veg-
um hans, en auk þess hefur klúbburinn
boðið félögum sínum á tónleika mikilla
erlendra tónlistarmanna.
Einn þáttur í starfsemi Kammer-
músíkklúbbsins er markviss kynning á
flokkum tónverka og má þar nefna auk
Brandenborgarkonserta, sem áður
voru nefndir, Sellosvitur Bach, en þær
allar hefur Erling Blöndal "Bengtson
flutt þrisvar og allar flautu sónötur
Bach, sem Manuela Wiesler hefur flutt
hjá klúbbnum.
Nú stendur yfir flutningur á öllum
strengjakvatettum Beethoven og hóf
MÁRKL-kvartettinn frá býzkalandi
þann flutning Gert var ráð fyrir að
annar þýzkur strengjakvatett. Sinn-
hofer, kæmi nú í vor til klúbbsins til að
halda þessum flutningi áfram, en af þvi
getur ekki orðið, en i stað þess kemur
sá kvartett í oktober Flutningi
Beethoven strengjakvartetta lýkur svo
vonð 19 78 Framhald á bls. 38
Nú eru liöin 60 ár frá því Mjólkurfélag Reykjavíkur hóf
þjónustu viö íslenskan landbúnaö sem sjálfstæö samtök bænda.
MRSundahöfn
Fóðurvöruframleiðsla og afgreiðsla á fóðri.
MR Brautryðjendur tankvæðingar
fóðurflutninga. Hófu einnig
snemma flutning á lausu korni
með skipum. Það er vinnu-
hagræðing til verðlækkunar.
MR fóðurblanda
er íslensk foöurblanda
MR fóðrið er ætíð nýmalaðog bland-
að. í M R fóðrinu eru íslensk
eggjahvítuefni úr okkar ágæta
fiskimjöli og grasmjöli.
MR fóður er ávalt fyrirliggjandi.
MR fóður breytist ekki frá einni
blöndu til annarar. Fóðrið
er framleitt í blöndunarvélum frá
BÚHLER A.b. í Sviss. Vélarnar
eru taldar einar bestu og
nákvæmustu fóðurblöndunar-
vélar sem nú eru framleiddar í
heiminum. Þær vigta og blanda
hráefnin í fóðurblöndurnar
af mikilli nákvæmni sem er eitt
frumskilyrði þess að fóður-
blandan verði góð.
Fóórid sem
•n kúafóður
sauöfjárblanda
^ hænsnafóöur
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sundahöfn sími 822 25