Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 19 Brak úr Pan Am-þotunni á Tenerife. Podgorny ræddi við Joshua Nkomo, leiðtoga hreyfingarinnar ZAPU ( Rhódesfu, Sam Nujoma, leiðtoga hreyfingarinnar SWAPO f Suðvestur-Afríku, og Olivcr Tambo, leiðtoga Afrfska þjóðar- ráðsins (ANC) f Suður-Afrfku. í sameiginlegri yfirlýsingu sem var birt eftir viðræðurnar sagði að Podgorny hefði ítrekað stuðn- ing Rússa við þjóðir þessara landa i baráttu þeirra „fyrir frelsi, sjálf- stæði og jafnrétti." í yfirlýsingunni sagði að Rússar teldu „útrýmingu sfðustu leifa ný- lendustefnu og kynþáttastefnu eitt mikilvægasta viðfangsefnið i heiminum." Fundur Podgornys með blökku- mannaleiðtogum allra þeirra landa sem hvítir menn ráða í sunnanverðri Afrfku virtist Svíar færa út Stokkhólmi, 28. marz. NTB. SÆNSKA stjórnin bar f dag frumvarp um útfærslu sænsku fiskveiðilögsögunnar úr 12 mil- um út að miðifnum Svfþjóðar og annarra landa. Þar sem miðlínur gilda ekki verða teknar upp viðræður við hlutaðeigandi ríki. Stjórnin ákveður hvenær útfærslan tekur gildi og til hvaða svæða hún nái segir í frumvarpinu. Larry Walker, 29 ára gamall starfsmaður hjólbarðafyrirtækis f Los Angeies, sem komst lffs af úr slysinu. Hann brenndist mikið. Phyllis kona hans komst einnig lffs af. Frakkar fá nýja stjórn París, 28. marz. Reuter. RAYMOND Barre forsætisráð- herra baðst lausnar fyrir sig og stjórn sfna f kvöid, en Valery Giscard d’Estaing forseti fól hon- um að mynda nýja stjórn til að fara með völdin fram að þing- kosningunum sem fara fram eftir eitt ár. Giscard d’Easting gaf f skyn að nokkrir valdamiklir ráðherrar fráfarandi stjórnar fengju ekki sæti f nýju stjórninni sem verður skipuð 15 ráðherrum i stað 18 sem áttu sæti f gömlu stjórninni. Forsetinn hefur kennt sigur- vegaranum í borgarstjórakosning- unum í París, gaullistaleiðtogan- um Jacques Chirac, um vaxandi ágreining stjórnarflokkanna — gaullista, óháðra lýðveldissinna og miðflokksmanna. Hann sagði að ágreiningurinn hefði valdið stjórninni „töluverðu tjóni” og hvatti til einingar stjórnarflokkanna. Meðal þeirra ráðherra sem hætta eða fá ný embætti verða líklega Michel Poniatowski innanríkisráðherra og Jean Lecanuet, leiðtogi Mið- flokksins, sem báðir hafa oft deilt við gaullista. Forsetinn sagði að Barre mundi mynda nýju stjórn- ina á morgun, en tók ekki fram hvort ráðherralistinn yrði birtur strax. beggja flugvélanna væru fundnir og að flugfélögin hefðu fallizt á að senda þá til Washington til rann- sóknar. Bandaríska stjórnin sendi 40 sérfræðinga og Pan Am sendi sérstaka nefnd til að taka þátt í rannsókninni. Podgorny lofar svörtum aðstoð NIKOLAI Podgorny, forseti Sovétrfkjanna, ræddi f dag við þrjá leiðtoga blökkumanna f Lusaka og lýsti yfir stuðningi við tiiraunir þeirra til að binda enda á stjórn hvftra manna f Rhódesíu, Suðvestur-Afríku og Suður- Afrfku. undirstrika víðtæk áhrif Rússa i þessum heimshluta. í fylgd með Podgorny er nefnd herforingja sem greinilega á að ræða við leiðtoga blökkumanna um leiðir til að magna skærustríð- ið í Rhódesiu og Suðvestur- Afriku. - Hafði KLM-þot- an ekki fengið flugtaksheimild? Framhald af bls. 1. Prado sagði á blaðamannafundi. Starfsmaður flugturnsins sagði eftir slysið að skyggni hefði verið slæmt, en forseti IATA sagði á blaðamannafundinum, að ef skyggni hefði verið slæmt hefðu engar flugvélar átt að fá að fara frá Tenerife. Oyarzabal landstjóri sagði að í rannsókninni yrði að koma f ljós hvort KLM hefði fengið leyfi til flugtaks og hvort Pan Am-þotan hefði beygt út af flugbrautinni inn í hliðarbraut eins og henni var fyrirskipað áður en KLM- þotan rakst á hana. Starfsmenn Tenerife-flugvallar segja að risaþotur hafi notað flug- brautina til þess að koma sér í flugtaksstöðu þar sem hliðar- brautirnar séu of litlar fyrir svo stórar flugvélar. Aðspurður um þetta sagði landstjórinn að það væri rikisleyndarmál. Frá því var skýrt á blaðamanna- fundinum að engin ratsjá væri á Tenerife-flugvelli til að fylgjast með flugvélum á flugvellinum. Talsmaður KLM sagði að þetta væri mikilsvert atriði úr þvi að ekki væri hægt að fylgjast með flugvélum úr flugturninum ef skyggni væri slæmt. Forstjóri IATA sagði að engar opinberar upplýsingar lægju fyrir um skyggni á flugvellinum í gær. Flugvélarnar lentu á Tenerife vegna sprengjutilræðis á aðal- flugvelli Kanaríeyja I Las Palmas. Vinstrisamtök sem hafa bækistöð i Alsir og berjast fyrir sjálfstæði Kanarieyja segjast bera ábyrgð á sprengingunni. Flugumsjónarmenn á Spáni hafa barizt í átta mánuði fyrir bættum tækjabúnaði og betri vinnuskilyrðum og aðeins unnið reglum samkvæmt. Spænskur embættismaður sagði hins vegar blaðamönnum að það hefði ekkert haft að segja í sambandi við slys- ið. Hann sagði að vinna við flug- turninn á Los Rodeos-flugvelli á Tenerife hefði verið með eðlileg- um hætti. Lögreglan segir að 95% lika sem fundust í brakinu hafi verið óþekkjanleg. Líkin liggja í röðum í einu flugskýlinu og líkkistur gegn þeim. Opinber rannsókn slyssins fer fram með leynd en niðurstöður hennar verða birtar eins fljótt og unnt er. Flugvöllurinn var lokaður allri umferð í dag og umkringdur mönnum úr þjóðvarðliðinu. Far- angur og eigur farþeganna lágu á við og dreif á 400 metra breiðu svæði umhverfis flugvélabrakið. Embættismenn segja að flugriti Pan Am-þotunnar hafi fundizt. Nefnd skipuð fulltrúum Pan Am, KLM og hollenzkum, bandarísk- um og spænskum embættismönn- um kom saman til fundar í dag til að rannsaka orsök slyssins. Seinna var haft eftir áreiðan- legum heimildum að flugritar Mestu flugslys sögunnar Madrid 28 marz — Reuter. MESTA flugslys sögunnar þar til slysiS varS I gœr I Santa Cruz é Kanarleyjum. var8 1974 þegar 346 manns fórust I grennd við Parfs þegar hurB a8 farang- ursrými losnaSi af DC-10 flugvél Turkish Arilines. AnnaS mesta flugslys ð Spðni ðtti sér einnig Sta8 ( Santa Cruz 1972, þegar 155 manns létu Itfi8 er Convair 990 þota frð spðnska flugfélaginu Spantax fórst I flugtaki. Fórnarlömbin voru vestur- þýzkir ferSamenn, sem voru ð heimleiS úr skemmtisigl- ingu. Ekki er langt slðan að 1 76 manns fórust þegar júgó- slavnesk flugvét af gerðinni DC-9 rakst I lofti á Trident- þotu frá British Airways skammt frá Zagreb. Brezka flugvélin var I áætlunarflugi til Istanbul en júgóslavneska vélin var að flytja Vestur- Þjóðverja úr sumarleyfi i Split til Kölnar. Þetta var I septem- ber 1976 Meir en 100 manns fórust I Santa Cruz I Bólivlu I októ- ber slðastliðnum þegar Boeing 707 vöruflutninga- þota með þriggja manna áhöfn brotlenti á aðalgötu borgarinnar. Þeir sem fórust auk áhafnarinnar voru vegfar- endur. í september 1976 fórust 154 með Boeing 727 frá Turkish Airlines. sem lenti á fjalli við tyrknesku borgina Isparta [ janúar 1973 fórtist 176 pllagrlmar með Boeing 707 farþegaflugvél Royal Jordan Airlines, sem fórst I lendingu I Kano I Nlgerlu Flugvélin var að koma frá Mekka Meðal annarra meiriháttar flugslysa má nefna: • 20 ágúst 1 975 — Tékk- nesk llyushin 62 flugvél fórst I lendingu á Damskusflugvelli og með henni 126 farþegar og áhöfn. 0 3 ágúst 1975 — Boeing 707 fórst I fjöllum nálægt Agadir og með henni 188 manns Farþegarnir voru marokkanskir verkamenn á leið heim frá Frakklandi en flugvélin tilheyrði Royal Air Maroc. 0 4 aprll 1975 — Stærsta þota veraldar, C-5A Galaxy, eign bandarlska flughersins, fórst I grennd við Sigon skömmu eftir flugtak og með henni 155 manns Flugvélin var að flytja börn frá Vietnam • 27 aprll 1974 — 118 manns fórust með llyushin 18 flugvél sovézka flug- félagsins Aeroflot skömmu eftir flugtak frá Leningrad Var flugvélin I innanlands- flugi. 9 4. desember 1974 — DC-8 frá Martin-air I Hollandi brotlenti I fjallshllð I aðflugi að Bandaranaikeflugvelli á Sri Lanka og fórst með henni 191 maður Farþegarnir voru að koma úr pllagrlmsferð frá Mekka. • 14. ágúst 1972 — Tridentþota frá British European Airways fórst nokkrum mlnútum eftir flug- tak frá Heathrowflugvelli I London og með henni 118 manns. • 18. júnl 1972 — llyushin 62 frá austur-þýzka flugfélaginu Interflug fórst með 1 56 manns innanborðs við Könings-Wusterhausen • 21 mal 1972 — Antonov 10 flugvél frá Aero- flot fórst I Ukralnu og með henni 108 manns samkvæmt áreiðanlegum heimildum • 5 marz 1972 — DC-8 frá Alitalia fórst með 115 mönnum nálægt Palermo á 25 ára afmælisdegi flug- félagsins • 15. marz 1972 — 1 12 fórust þegar Caravelle þota frá danska flugfélaginu Sterling Airways fórst I Omanfjöllum • 30. júll 1971 — Allir ■ 1 62 farþegarnir og áhöfn um borð I Boeing 727 þotu jap- anska flugfélagsins All Nippon Airways fórust þegar hún rakst I flugi á F-86 Sabre orrustuþotu yfir Shizkuishi. Flugmaður orrustuvélarinnar komst af. • 3 júll 1970 — Cometþota brezka flug- félagsins Dan Air fórst I fjöll- um á Spáni. 112 Bretar fór- ust með henni ^ 16 marz 1969 — Sam- tals fórust 15 manns þegar venezúelsk DC-9 þota brot- lenti skömmu eftir flugtak frá Maracaibo. 65 þeirra sem fórust voru á jörðu niðri • 20. aprll 1968 — Boeing 707 frá South African Airways fórst nærri Windheok og með henni 1 22. 9 20. aprll 1 967 — Aðeins fjórir komust af þegar eld- ingu laust I Britannia flugvél frá svissneska flugfélaginu Globe Air yfir Kýpur 126 týndu llfi. • 5 marz 1966 — 124 fórust með Boeing 707 flug- vél brezka flugfélagsins BOAC sem brotlenti I Fuji- fjalli I Japan. 0 3. febrúar 1966 — Japönsk farþegaflugvél fórst I Tokyoflóa og allir um borð, 1 33. fórust 0 24 janúar 1 966 — 1 17 fórust með Boeing 707 frá Air India, sem rakst á Mont Blanc f^ 20 mal 1965 — Aðeins sex af 127 komust af er Boeing 720 frá Pakistan International Airlines fórst I eyðimörkinni nálægt Kairo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.