Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 37 Aukning f ramleiðslu — eina leiðin til raun- hæf ra k jarabóta — sagði Davíð Sch. Thorsteinsson í ræðu á ársþingi iðnrekenda Margt athyglisvert kemur í ljós þegar borin eru saman árin 1975 og 1976, en það eru aðeins tvær staðreyndir sem ég ætla að gera að umræðuefni hér. Viðskipta- kjarabati Hin fyrri er batinn á viðskipta- kjörum, það er að segja: út- flutningsvörur okkar hækkuðu meira á heimsmarkaðinum en þær vörur, sem við kaupum til landsins. Nauðsynlegt er að við gerum okkur grein fyrir því, að þessi hagstæða þróun skapaðist ekki fyrir okkar eigin atbeina og því rangt að þakka okkur sjálfum þann bata, sem vissulega hefur orðið á efnahagslifinu undanfar- ið. Ennfremur þarf að hafa i huga, að viðskiptakjörin i heild eru enn ekki orðin jafn hagstæð og þau voru á árinu 1974. Þess vegna er óraunhæft að búast við sama kaupmætti launa og var I nokkra daga á árinu 1974, vegna við- skiptakjarabatans eins. Ég geri þetta að umræðuefni hér, vegna þess, að mér finnst eins og þessar einföldu staðreynd- ir hafi týnst í öllu því moldviðri, sem þyrlað hefur verið upp i um- ræðum um efnahagsmál hér á landi undanfarið. Aukning iðnaðar tvisvar sinnum meiri Siðari staðreyndin er sú, að framleiðsluverðmæti iðnaðar jókst tvisvar sinnum meira en velta þjóðfélagsins, þ.e. þjóðar- tekjur, á árinu 1976. Raunar er þetta ekkert nýtt. Til dæmis stendur i nýútkominni skýrslu Þjóðhagsstofnunar: „Aukning iðnaðarframleiðslu hefur verið langt umfram aukningu þjóðarframleiðslu á tímabilinu 1969 til 1976“. Mismununin staðreynd Það var mikill fengur að því fyrir iðnaðinn þegar skýrsla Þjóð- hagsstofnunar um hag iðnaðar kom út fyrir skömmu. Þar er að finna á einum stað fjölmargar staðreyndir um islenskt efnahags- lif. Þær upplýsingar, sem þar koma fram, staðfesta þann mikla mun, sem er á starfsskilyrðum iðnaðar samanborið við aðra höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar. I skýrslunni kemur fram að: — iðnaðurinn greiðir að meðal- tali 30% (eða */4) hærri vexti en hinir höfuðatvinnuvegirnir, — hlutur iðnaðar i útlánum bankakerfisins minnkaði úr 13% árið 1970 í 9,4% árið 1976. — Framlög til iðnaðar eru aðeins 0,6% af fjárlögum 1977, en hins vegar eru framlög til sjávar- útvegs 2,1% og til landbúnaðar 5,1%: — iðnaðurinn greiðir 3,5% launaskatt, en landbúnaður og fiskveiðar greiða engan launa- skatt, — Heimilt er með lögum að leggja 3 sinnum hærra aðstöðu- gjald á iðnað en fiskveiðar. Reykjavíkurborg notar heimild þessa á þann hátt, að aðstöðugjald á iðnað er 5 sinnum hærra en á fiskveiðar, — vélar, húsnæði og annar búnaður iðnaðarins I dag er mun dýrari en erlendra keppinauta, vegna þeirra háu gjalda, sem lögð hafa verið á framleiðslutæki iðnaðarins o.s.frv., o.s.frv. Þessi ósanngjarna mismunun skekkir grundvöll gengis- skráningarinnar og gerir það að verkum.að ómögulegt er að skrá gengi krónunnar rétt. Röng gengisskráning skerðir sam- keppnishæfni iðnaðarins, dregur úr útflutningi, eykur erlenda skuldasöfnun og heldur niðri lifs- kjörum á tslandi. Þrátt fyrir þennan aðbúnað er athyglisvert að vöxtur iðnaðar- framleiðslu hefur verið „langt umfram aukningu þjóðarfram- leiðslu undanfarin ár“, svo aftur sé vísað til skýrslu Þjóðhagsstofn- unar. Mér er spurn, hver hefði vöxtur hans orðið, ef hann hefði t.d. fengið að njóta sömu starfs- skilyrða og útlendingar njóta á tslandi? Hversu miklu betri væru lifskjör hér á landi i dag, ef svo hefði verið? Aukning fram- leiðslu er eina leiðin til raun- hæfra kjarabóta Ég vil við þetta tækifæri þakka skilning og drengilegan stuðning samtaka iðnverkafólks i þeirri Davið Sch. Thorsteinsson. baráttu sem við höfum háð fyrir bættum starfsskilyrðum iðnaðar- ins. Forystumenn þeirra gera sér ljóst, að eina leiðin til raunveru- legra kjarabóta er aukning fram- leiðslu og framleiðni. Þeir hafa skilið, að frumskilyrði þess, að iðnaðurinn geti greitt starfsfólki sínu sómasamleg laun er, að hann búi við sambærilega starfsaðstöðu og keppinautar hans. Ég veit að aðrir leiðtogar laun- þega skilja þessa staðreynd og i þeim samningum, sem framund- an eru, vona ég að okkur takist sameiginlega að koma i veg fyrir að þjóðarógæfan — hið ónauðsyn- lega allsherjarverkfall i fyrra — endurtaki sig. Ég segi ónauðsyn- legt verkfall vegna þess, að það hafði I raun og veru engin áhrif á sjálfa kjarasamningana. Það minnkaði þjóðarframleiðsluna — minnkaði það sem til skiptanna var — og dró úr getu atvinnu- veganna til að greiða hærri laun. Auk þess skaðaði tekjumissirinn i verkfallinu beint allt það fólk, sem þátt tók í því. Við hljótum að geta leyst þessi mál I sameiningu með friðsamleg- um hætti; snúið frekar bökum saman til að auka framleiðsluna i landinu — byggja upp, I stað þess að rifa niður —. Ég fullyrði að engin deila stendur um það milli atvinnu- rekenda og launþega að lifskjör þurfa að batna á tslandi. Ég vil nota þetta tækifæri til að lýsa þvi yfir, að íslenskir iðn- rekendur eru reiðubúnir að greiða starfsfólki sínu verulega hærri laun, ef iðnaðinum verða búin sömu starfsskilyrði og keppi- nautar hans búa við. Vörn iðnaðarins hingað til gegn óeðlilegum starfsskilyrðum hefur verið að halda niðri launum starfsmanna sinna. Þetta verður að breytast. Starfsfólk iðnaðarins má ekki vera láglaunafólk, það er hvorugum aðilanum til góðs. Aðgerðir stjórnvalda sfðan 1974 Haustið 1974 fór stjórn F.t.I. þess formlega á leit við ríkis- stjórn Islands, að sótt yrði um framlengingu á aðlögunartíman- um að EFTA og samningnum við EBE. Stjórn félagsins nefndi margar ástæður fyrir þessari málaleitan sinni, m.a.: 1. Framkvæmd loforða rfkis- stjórnar tslands frá nóvember 1967. 2. Gengi krónunnar hefði verið skekkt með tilfærslum og styrkjum til þeirra greina at- vinnulífsins, sem gengi krónunn- ar er einkum miðað við. 3. Fjárfestingakostnaður íslenskra iðnfyrirtækja væri mun meiri en erlendra iðnfyrirtækja, m.a. vegna þess að ennþá væri greiddur um 20% innflutnings- skattur af vélum og tækjum til iðnaðar. I framhaldi af þessari málaleit- an fóru fram allmiklar viðræður við ríkisstjórnina, sem lauk með þvi að: 1. Felldur var niður að hálfu söluskattur f tolli af helstu vélum til iðnaðar, þ. 1. janúar 1975. 2. Framlag ríkissjóðs til Ut- flutningsmiðstöðvar iðnaðar- ins var hækkað um 2 milljónir króna á árinu 1975, eða úr 10 milljónum i 12 milljónir. Miðað við verðgildi hefur framlagið hins vegar farið minnkandi ár hvert og er nú 15 milljónir. 3. Rikisstjórnin lýsti þvi yfir , að eitt af grundvallarstefnumál- um hennar væri að: „ekki yrði gripið til neinna aðgerða, er skekktu gengisskráninguna og að leiðrétt yrðu þau atriði í efnahagskerfinu, sem röskuðu réttum grunni gengisins." 4. Rikisstjórnin ákvað að láta gera úttekt á stöðu fram- leiðsluiðnaðarins með sérstöku tilliti til hvað áhrif EFTA aðild hefði haft. Það sem gerst hefur i málefnum iðnaðarins siðan þessi yfirlýsing var gefin, er einkum eftirfarandi: 1) Um áramótin, eða heilum sjö árum eftir að við gengum í EFTA, var loks felldur niður að fullu söluskattur i tolli af vélum. 2) Þessa dagana er verið að ganga frá reglum miðað við 1. janúar 1977 um niðurfellingu, eða endurgreiðslu, aðflutningsgjalda, hverju nafni sem þau nefnast, af öllum vélum, vélahlutum, varahlutum, hráefnum og efni- vörum iðnaðarins og er það vissulega þakkarvert. Tollarnál iðnaðarins eru þó engan veginn komin I viðunandi horf. Við búum enn við há gjöld af byggingarefni eða allt til ársins 1980, þegar umsömdum að- lögunartima lýkur. Breytingin á vaxtakjörum, sem tók gildi fyrir nokkrum dögum er skref I þá átt, að leiðrétta þann mismun, sem rikt hefur á þessu sviði — lítið skref að vísu — en þó skref í rétta átt iðnaðinum til hagsbóta. I byrjun febrúar skipaði iðnaðarráðherra nefnd, er: „hafi það hlutverk að bera saman starfsaðstöðu innlends iðnaðar og iðnaðar i samkeppnis- löndum okkar annars vegar og annarra höfuðatvinnuvega hérlendis hins vegar, og koma með tillögur um löggjafar- og framkvæmdaatriði, sem í Ijós kemur að nauðsynlegar verða til að jafna starfsaðstöðu íslensks iðnaðar." Ég bind miklar vonir við störf þessarar nefndar, sérstaklega vegna þess að ég veit að meiri- hluti er fyrir hendi innan ríkis- stjórnarinnar og á Alþingi til að framkvæma tillögur hennar. Þau atriði sem ég nefndi úr skýrslu Þjóðhagsstofnunar svo og ofangreind nefndarskipan sýna svo að ekki verður lengur um deilt, að enn er ekki búið að koma aðbúnaðarmálum iðnaðarins I það horf, sem hefði þurft að vera þegar 1970 er aðlögun að fríverslun hófst. Til dæmis má nefna, að enda þótt það sé eitt af grundvallar- stefnumálum núverandi rikis- stjórnar, „að leiðrétta þau atriði i efnahagskerfinu, sem raska réttum grunni gengisins", svo vitnað sé í orð háttvirts forsætis- ráðherra, er þvi miður enn óra- langt i land að þvi takmarki verði náð. Ég vil líka nefna virðisauka- skatt i stað söluskatts, en virðis- aukaskatti hafði verið komið á í öllum samkeppnislöndum okkar, áður en við gengum í EFTA. Um virðisaukaskatt er búið að ræða árum saman og eru flestir sammála um að nauðsynlegt sé að taka upp virðisaukaskatt, eða söluskatt með virðisaukaskatts- sniði, til að jafna samkeppnisað- stöðu innlendra atvinnuvega við erlenda keppinauta bæði hér- lendis og erlendis. Islensk stjórnvöld hafa þó enn ekki tekið afstöðu til málsins. Þau hafa ekki einu sinni tekið afstöðu til „jöfnunargjalds" kerfisins, sem vinnuveitendur lögðu til fyrir ári slðan að yrði tekið upp til bráðabirgða, þar til virðisauka- skattskerfi yrði komið á hérlendis. 1 skýrslu fjármálaráðuneytisins um virðisaukaskatt segir, að þótt ákveðið væri að taka upp slíkt kerfi I dag, yrði það ekki komið til framkvæmda fyrr en I fyrsta lagi 1980, eða þegar umsömdum aðlög- unartima lýkur. Framlenging á aðlögunartíma fslenskra stjórnvalda að fríverslun Þessi dæmi og ótal mörg önnur tel ég sýna ljóslega, að þegar við tölum um framlengingu aðlögunartíma, erum við ekki að tala um framlengingu fyrir iðnaðinn, heldur um fram- lengingu á aðlögunartima íslenskra stjórnvalda að fríverslun. Eðlilegt er að islensk stjórnvöld þurfi lengri tima en 10 ár til að „taka upp gjörbreytt búskaparlag á Islandi", eins og einn alþingis- maðurinn orðaði það á Alþingi árið 1970, og því er framlenging svo nauðsynleg fyrir islensk stjórnvöld. Hverjum hugsandi manni er ljóst, að auðvitað getur aðlögun iðnaðarins að friverslun ekki hafist í raun, fyrr en aðlögun stjórnvalda er vel á veg komin. Þegar ég tala um seinagang og mismunun er ég ekki að álasa einstökum ráðamönnum þjóðar- innar. Margir áhrifamenn, bæði stjórnmálamenn og embættis- menn, skilja nauðsyn gjörbreytts búskaparlags, en breytingarnar á ■ ■ ■ ■ ■ I HEpölII stimplar, slífar og hringir Ford 4-6-8 strokka benzín og díesel vélar Opel Austln Mini Peugout Bedford Pontiac B.M.W. Rambler Buick Range Rover Chevrolet Renault 4-6-8 strokka Saab Chrysler Scania Vabis Citroen Scout Datsun benzín Simca og díesel Sunbeam Dodge — Plymouth Tékkneskar Fiat bifreiðar Lada — Moskvitch Toyota Landrover Vauxhall benzín og díesel Volga Mazda Volkswagen Mercedes Benz Volvo benzin benzín og diesel og díesel ■ I ÞJÓNSSON&CO Skeilan 17 efnahagskerfinu eru svo marg- þættar og róttækar, að þótt fullur skilningur hafi verið fyrir hendi hjá þessum aðilum, hafa þessi mál ekki komist lengra áfram, en raun ber vitni. Nú, þegar skýrsla Þjóðhags- stofnunar liggur fyrir og staðfest- ing þar með fengin á þeirri mis- Framhald á bls. 34 HÖGGDEYFAURVAL FJAÐRIR KÚPLINGSDISKAR KÚPLINGSPRESSUR SPINDILKÚLUR STÝRISENDAR VIFTUREIMAR KVEIKJUHLUTIR FLEST í RAFKERFIÐ HELLA aðalluktir, lukta- gler, luktaspeglar og margs konar rafmagns- vörur BOSCH luktiro.fi. S.E.V. MARCHALL lukt- ir CIBIE luktir. LJÓSASAMLOKUR BÍLAPERUR allar gerðir RAFMAGNSVÍR FLAUTUR 6—24 volt ÞURRKUMÓTOR 6—24v ÞURRKUBLÖO ÞURRKUARMAR BREMSUBORÐAR BREMSUKLOSSAR ÚTVARPSSTENGUR HÁTALARAR SPEGLAR í úrvali MOTTUR HJÓLKOPPAR FELGUHRINGIR AURHLÍFAR MÆLAR alls konar ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM HOSUR HOSUKLEMMUR RÚÐUSPRAUTUR FELGULYKLAR LOFTPUMPUR STÝRISHLÍFAR KRÓMLISTAR BENSÍNLOK TJAKKAR 1V2—30T VERKSTÆÐISTJAKKAR FARANGURSGRINDUR BÖGGLABÖND ÞOKULJÓS SMURSPRAUTUR PÚSTRÖRAKLEMMUR RAFKERTI LOFTFLAUTUR BENZÍNSÍUR EIRRÖR+ FITTINGS BRETTAKRÓM VERKFÆRI SLÍPIPAPPÍR VATNSDÆLUR ÞVOTTAKÚSTAR BARNAÖRYGGIS STÓLAR BARNABÍLBELTI BÍLBELTI HNAKKAPÚÐAR ÖSKUBAKKAR MÆLITÆKI f. rafgeyma SWEBA sænskir úrvals rafgeymar ISOPON OG P-38 beztu viðgerða- og fylliefnin PLASTI-KOTE spray lökkin til blettunar o.fl. Athugið allt úrvalið l^^naust h.t Síðumúla 7—9 Sími 82722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.