Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 31 r Indland: Ram varnarmálaráð herra í stiórn Desais Nýju-Delhi — 28. marz — Reuter. JAGJIVAN Ram, leiðtogi stéttleys ingja á Indlandi, tók I dag sœti sem varnarmálaráðherra I stjóm Morarji Desais. Ram hafði áður neitað að starfa I stjóm sem Desai veitti for- stöðu, en eftir að hann breytti þeirri ákvörðun sinni horfir mun betur um stjómarsamstarf andstæðinga Indiru Gandhi Verkalýðsleiðtoginn George Femandes, sem er úr flokki sóslalista, verður samgöngumálaráð- herra, og flokksbróðir hans, Raj Narain, sem var mótframbjóðandi Indiru, verður fjölskyldu- og heil- brigðismálaráðherra I stjórninni. Enda þótt Janata-bandalagið hafi sigrað með yfirgnæfandi meirihluta í kosningum til neðri deildar indverska þingsins hefur Kongressflokkurinn enn tögl og hagldir í fjölmörgum héraðs- stjórnum, og telja stjórnmálaskýrend- ur, að Janata-bandalagið þurfi að styrkja stöðu sína til muna I mörgum héruðum í norðurhluta landsins áður en efnt verður til forsetakosninga I Indlandi sfðar á þessu ári. Það eru fulltrúar í héraðsstjórnunum og á þjóðþinginu, sem kjósa forsetann, en rfkisstjórnin mun leggja mikla áherzlu á að fá fulltrúa úr röðum sínum kjörinn forseta þar sem embættinu fylgja gífurleg völd samkvæmt stjórnarskránni, enda þótt sjaldgæft sé að þeim völdum sé beitt að ráði L.K. Jha ríkisstjóri f Kasmfr leysti upp héraðsþingið í gær eftir að for- sætisráðherra héraðsins, Sheikh Abdulllah, sagði af sér. Ástæðan fyrir afsögn ráðherrans er sú, að hann nýtur ekki lengur stuðnings Kongressflokks- ins, enda lýsti hann yfir fylgi við Janata-bandalagið eftir að úrslit þing- kosninganna lágu fyrir l sfðustu viku. Samtök í Póllandi um mannréttindi Varsjá, 28. marz. Reuter. UM HELGINA voru stofnuö f P6I- landi samtök til vamdar almennum mannréttindum, og var yfirlýsang um stofnunina birt I Varsji i laugardag undirrituS af 18 lögfr»8ingum, blaSamönnum og prestum. Segir t yfirlýsingunni aS „Hreyfing til vam- ar mannréttindum og almennum borgararétti" vilji samstarf viS pólsk yfirvöld, og viS ,,Varnarnefnd verka- manna", sem stofnuS var f júnf f fyrra eftir uppþot, er fylgdu f kjölfar fyrirhugaSra verSbækkana i mat- vælum. Einn undirskrifenda, blaðamaðurinn Leszek Moczulski, bendir á að verka- mannanefndin vinni aðeins að þvi að fá þó verkamenn, sem fangelsaðir voru eftir uppþotin I fyrra, leysta úr haldi, en mannréttindanefndin eigi að starfa áfram að verndun almennra réttinda, jafnvel eftir að mannréttindi fást virt i Póllandi. Ætlunin var að tilkynna stofnun sam- takanna á fundi með blaðamönnum I Varsjá á laugardag Höfðu forsvars- menn samtakanna boðið blaðamönn- um frá 15 dagblöðum og tlmaritum, en enginn þeirra mætti til fundarans í dag birtist svo ritstjórnargrein I Trybuna Ludu, málgagni kommúnista- flokksins, þar sem Jozef Barecki aðal- ritstjóri ræðst harkalega á samtökin. Segir hann samtökin fjandsamleg Pól- landi, og sakar stofnendur um blinda þjónkun við erlenda and-kommúnista Ritstjórinn segir að það sé I vestrænum rtkjum, en ekki Póllandi. sem mann- réttindi séu brotin, og heldur því fram að ummæli Jimmy Carters Bandarlkja- forseta um mannréttindi hafi valdið ýmsum öðrum vestrænum leiðtogum áhyggjum Andrei Sakharov: „Detente” hættulegt leiði það til uppgjafar Ósló, 27. marz NTB SOVÉZKI andófsmaðurinn Andrei Sakharov, sem hlaut FriSarverSlaun Nóbels áriS 1975. ræddi viS norska blaSamenn I Moskvu um helgina. SagSi hann þar meSal annars aS þótt vestræn rlki vildu draga úr spenn- unni I heiminum, mættu þau ekki þar meS gefast upp fyrir Sovétrlkjun- um og öSrum einræSisrlkjum. Sakharov ræddi við norsku frétta- mennina I Ibúð sinni I Moskvu I tilefni þess að hann er að semja 5.000 orða grein fyrir norsku Nóbelsverðlauna- nefndina Hefur nefndin leitað til allra núlifandi verðlaunahafa og farið fram á að þeir skrifi greinar um horfur á friði I heiminum, en greinar þessar verða gefnar út I bók I Noregi slðar á þessu ári. í viðtalinu sagði Sakharov: „j fram- lagi mlnu legg ég áherzlu á að heims- friðurinn velti að miklu leyti á því hvað verður um mannréttindi, og ég reyni að ræða það á hvern hátt vestræn ríki geti unnið að auknum mannréttindum I heiminum án þess að stofna sambúð- inni við önnur rlki I hættu. Mér er Ijós hve „detente" er þýðingarmikið, en Framhald á bls. 38 Indirs Gandhi Margaret Thatcher Oþekktur kafbátur við Norð- ur-Noreg Bodö, 28. marz. NTB. SKIP og flugvélar leituðu um helgina að óþekktum kafbát, sem sézt hefur á ferð í Tysfjord í Norður- Noregi. Norsk yfirvöld hafa lýst því yfir, að hér geti ekki verið um að ræða norskan kafbát eða kafbát vinveittri þjóð. Desai forsætisráðherra Indlands: „Þegar kona verð- ur djöfuUeg . . .” New York — 29. marz -— Reuter Í VIÐTALI bandarfska vikuritsins Time vi8 hinn nýja forsætisréð- herra Indands. Morarji Desai. kemur fram sú skoSun Desais, aS konur eigi ekki að hafa afskipti af stjómmálum. „ Yfirleitt eru eSlisþættir kvenna betri og mildari en karla, og yfir- leitt verSa þær ekki eins djöfulleg ar og karlmenn. En þegar kona verSur djöfulleg þá slær hún ötl met. Þar getur enginn karlmaSur orðið jafningi hennar," sagði Desai meSal annars I viStalinu. Hann segist á undanförnum árum hafa verið eindreginn stuðnings- maður kvenna I stjórnmálum og hafi enginn veitt konum sllkt brautar- gengi á því sviði sem hann Hins vegar hafi hann nú skipt um skoðun eftir að hafa fylgzt með forsætisráð- herraferli kvenna I Indlandi, israel og Sri Lanka Hann bætti við: „Og Thatcher verður alveg ems ef hún verður forsætisráðherra Bretlands. það getið þið verið viss um." Um Indiru Gandhi segir Desai „Ég get ekki sagt að hún sé alger djöfull I mannsmynd, og að I henni búi ekkert gott En hið góða hefur orðið undir og djöfullinn hefur yfir- höndina." „Ef þið spyrjið mig hverju hún hafi fengið áorkað á tíu árum (sem forsætisráðherra) þá veit ég ekki hvað það er Ég þyrfti frest til um- hugsunar" í viðtalinu segir Desai, að I stjórn- artið hans verði Indland áfram hlut- laust Ýmsir telji, að Indverjar séu hlynntir Sovét-Rússum, en sú skoð- un eigi ekki við rök að styðjast „Til dæmis tel ég að Kinverjar og Rússar séu ósættanlegir. en samt sem áður viljum við hafa jafnmikil samskipti við báða aðila, og það sama gildir um Bandartkjamenn." sagði Morarji Desai Golda Meir Sirimavo Bandaranaike Hjón ein i Kjöpsvik sáu kaf- bátinn skammt frá landi, og starfsmaður í Norcem- verksmiðjunni i Tysfjord sáu bátinn þar sem hann var með sjónpípuna ofansjávar rétt undan ströndinni við verksmiðjuna. Fleiri sjónarvottar hafa gefið sig fram. Haft var eftir Johan Jörgen Holst aðstoðarvarnarmálaráð- herra Noregs í dag, að mjög efitt væri að hafa upp á kafbát, sem væri í felum, og mætti heita úti- lokað að finna slík sjóför meðan þau héldu kyrru fyrir á djúpsævi. r Oskars- verðlaun veitt í nótt Los Angeles, 28. marz. Reuter. TALIÐ er líklegast að hnefaleikamyndin „Rocky“ og aðalleikarinn Sylvester Stallone, sem jafnframt er höfundur kvikmyndahand- ritsins, fái alls þrenn Ósk- arsverðlaun, sem úthlutað verður í nótt. Um 250 millj- ónir manna í 44 löndum munu horfa á beina sjón- varpsútsendingu frá verð- launaveitingunni. Aðrar myndir en ,,Rocky“ sem tilnefndar hafa verið í sambandi við Óskars-verðlaun að þessu sinni eru ,,Network“, „AU the President’s Men“, „Taxi Driver“ og „Bound for GIory“, sem gerð er eftir ævisögu vísnasöngvarans Woody Guthire. Þær leikkonur, sem helzt þykja koma til greina við verðlaunaveit- inguna, eru Liv Ullman fyrir leik sinn í „Augliti til auglitis” og Faye Dunaway fyrir hlutverk sitt I „Network". Greinargerd endurskoð- anda um bókhald Vængja MORGUNBLAÐINU hefur borizt frá stjóm Vængja h/f eftirfarandi greinargerð endurskoBanda um bók- hald Vængja h/f: Ég hef lokið endurskoðun á bókhaldi Vængja h.f. fyrir árið 1976, og samið ársreikninga sem hjálagt fylgja og áritað þá. án sérstakra athugasemda Bókhaldið er fært samkvæmt viður- kenndum bókhaldsreglum og endur- skoðun unnin samkvæmt venju um endurskoðun Það er mitt álit að reikningarnir gefi glögga mynd af rekstri ársins og efna- hag I árslok Það hefur ekki farið fram hjá mér að málefni félagsins hafa verið rædd á opinberum vettvangi og deildar meiningar um gerðir félagsstjórnar. Greinargerð þessa ber að skoða sem upplýsingar til stjórnar og hluthafa'um innri málefni félagsins. en ekki innlegg t umræðu á opinberum vettvangi. Athugasemdir mlnar bera þó með sér, að atriða er getið, sem ekki væri ástæða til að greina sérsfaklega. nema vegna þess að fyrrnefndar umræður hafa farið fram, og ef verða mætti til að eyða ágreiningi og treysta samheldni eigenda 1. Fyrirkomulag bókhalds er að stofni til traust og allgóð regla á færslu þess Bókhaldskerfi félagsins gerir ráð fyrir „lokaðri sjóðmeðferð" þ.e.a.s allir innkomnir peningar leggist á banka- reikning jafnóðum og allar útgreiðslur séu með ávlsunum gegn ákveðnu fylgiskjali. (Ég mæli eindregið með þessu fyrirkomulagi) Innkomnir pen- ingar, sem bókhaldið greinir, hafa verið lagðir á bankareikninga jafn- óðum. Grein er gerð fyrir útborgunum á sama hátt Engin dæmi eru um hinar svo- kölluðu „keðjuávisanir" eða óbókfærða meðferð fjármuna 2 Meðferð fjár I sambandi við kaup og sölu hlutabréfa, sé ég ekki ástæðu til að rekja, en vísa I þvi efni til fundargerða og efnahagsreikningsins. ásamt sundurliðum þeim, sem honum fylgja Ég tek ekki afstöðu til verðlagn- ingar hlutabréfa, eða þess hver selur hverjum, þar sem það snertir ekki reikningsskilin sem sllk Með bréfi við- skiptaráðuneytisins dags 16/7 1976 er félaginu heimilað að eiga allt að 30% af hlutabréfaeign félagsins. Bók- færð hafa verið kaup á eigin hluta- bréfum á árinu: a) að nafnverði kr. 2.600 000 fyrir kr 10 400 000 b) að nafnverði kr 900 000 fyrir kr. 900 000, samtals kr. 1 1 300 000 Ég hef kannað að hlutabréf þessi eru til staðar og framseld til félagsins. nema. a) Bréf keypt af Birni Sveinbjörns- syni að nafnverði kr 220 500, eru sögð glötuð og þannig framseld af Birni. b) Bréf að nafnverði kr. 900 000, sem stjórnin telur félagið eiga for- kaupsrétt að frá Hreini Haukssyni á nafnverði (Greitt hefur verið upp! þessi bréf Hreins kr, 200 000) 3. Félagið hefur annast milligöngu um kaup og sölu hlutabréfa einstakra hluthafa og lánað til þess fé, sbr efnahagsreikning Ég llt sve á að skylt sé samkvæmt skattalögum, að telja slíka fyrirgreiðslu. sem er I eðli sínu óviðkomandi rekstri félagsins, sem ráðstöfun á skattfrjálsum varasjóði, sem bókfærður var kr 1 1 5 900, og er þvl talinn I rekstrarreikningi til skatt- skyldra tekna með 20% álagi 4 Peningar I sjóði sbr efnahags- reikning kr 1 942 880, hef ég ekki kannað Hér er um að ræða frávik frá aðalreglu um að „peningar" séu aðeins á bankareikningum Bókhaldari upplýsir að fyrir liggi greiðslufylgiskjöl greidd I febrúar 1977, á móti þessum sjóði Innistæður og skuldir á bankareikn- ingum hef ég sannreynt 5 Kröfu á National Aero Ass Kr 3 1 25 500 hef ég ekki kannað 6 Tjónkrafa á Trvggingu h f , er áætluð af formanni stjórnar og bók- færð sbr. rekstrar- og efnahagsreikning kr 5 000.000 Kröfu þessa hef ég ekki kannað Skuld við Tryggingu h.f kr 5 933 214 er bókfærð sbr við- skiptareikning 7 Fengin veS: a) Handveð frá Ferðamiðstöðinni h.f. Veðskuldabréf kr 1.200 000 (3 ára) b) Handveð frá Ferðamiðstöðinni h.f. Veðskuldabréf kr 2 000 000 (6 ára) 8 Veðsetningar: a) TF-REI og TF-REG (ásamt tjón- bótum), eru veðsettar Landsbanka ís- lands og Irvin Trust Co , vegna erlendra lána $ 410.000 b) TF-RED er veðsett Balfour Williamsons Ltd vegna skuldar £ 29 062 80 c) Veðskuldabréf (skv lið 7a) kr 2 000.000 er veðsett að handveði til Skeljungs h f , ásamt tryggingavTxli kr 3 000 000 d) Víxileign (3 vislar) kr. 1 740 000 samþykkt af Bjarna Jónassýni. Vest- mannaeyjum, er veðsett að handveði til Landsbanka íslands Ég vænti þess að greinargerð þessi sé fullnægjandi, en er að s|álfsögðu reiðubúinn til að veita (rekari upplýs- ingar, ef óskað er Virðmgarfyllst Gunnar R. Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.