Morgunblaðið - 29.03.1977, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar IVIatthias Johannessen
Styrmir Gunnarsson
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingasjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 1010C
Auglýsingar Aðalstræti 6. simi 22480
Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasolu 60.00 kr. eintakið.
Hvað hefur atvinnurekst-
urinn gert til að geta
greitt hærra kaupgjald?
Undanfarnar vikur hefur mjög verið rætt um kröfugerð
verkalýðsfélaganna og áhrif hennar á afkomu atvinnuveg-
anna og þjóðarbúsins, ef hún nær fram að ganga En það eru til
fleiri hliðar á kjaramálunum en þær, sem snúa að launþega-
samtökunum og þeim kröfum, sem launþegar gera til hækkandi
launa. Hér er átt við það, sem að atvinnurekendum snýr og
hvernig atvinnureksturinn er í stakkinn bÍBnn til þess að taka á sig
kjarabætur. Um margra ára skeið voru það hefðbundin viðbrögð
hjá atvinnurekendum að lýsa þvíyfir við upphaf kjarasamninga,
að atvinnureksturinn gæti ekka staðið undir nokkrum kjarabótum
og skrifa nokkrum vikum síðar undir samninga um verulegar
kauphækkanir. Þetta var ekki traustvekjandi afstaða og dró úr
tiltrú almennings til atvinnurekenda. Á þessu hefur orðið veruleg
breyting hin síðari ár og engin vafi er á því, að yfirleitt er það vilji
atvinnurekenda að greiða starfsfólki sánu eins há laun og kostur
er, enda er það í þágu atvinnurekstursins sjálfs að landsmenn búi
við góð launakjör. Sú yfirlýsing Davlðs Schevings Thorsteins-
sonar, formanns Félags tslenzkra iðnrekenda, fyrir nokkrum
dögum, að iðnaðurinn sé tilbúinn til þess að greiða starfsfólki stnu
mun hærri laun, ef tilteknum skilyrðum um aðbúnað iðnaðarins
er fullnægt, er einnig til marks um ný viðhorf t röðum atvinnurek-
enda.
Nú þegar nýir og örlagartkir kjarasamningar standa fyrir dyrum
er ástæða til þess að beina athygli manna að málefnum atvinnu-
veganna og varpa fram nokkrum gagnrýnum spurningum. í
fyrsta lagi er það alveg Ijóst, að geysileg yfirvinna er unnin f
fjölmörgum atvinnugreinum. Þetta á bæði við um ýmsar fram-
leiðslugreinar, ekki sízt t fiskvinnslu en einnig um margar
þjónustugreinar. Kostnaður við yfirvinnu er margfaldur á við
dagvinnukaupið. Úr þvt að atvinnureksturinn hefur haft efni á þvt
að greiða svo mikinn yfirvinnukostnað, sem raun ber vitni um,
hlýtur sú spurning að vakna, hvort hægt sé með aukinni
hagræðingu og betra skipulagi á framleiðslunni, að draga úr
yfirvinnu en nota það fjármagn, sem á undanförnum árum hefur
farið t yfirvinnukostnað, til þess að hækka dagvinnukaupið
Sjálfsagt er hægt að færa fram ýmsar skýringar og röksemdir
gegn skoðunum af þessu tagi, ekki stzt t fiskvinnslu, þar sem afli
berst á land með mismunandi hætti, og kallar óhjákvæmilega á
mikla yfirvinnu. Hér er þó um að ræða þátt t kjarasamningunum,
sem full ástæða er til að taka til alvarlegrar umræðu.
í öðru lagi er vitað, að í atvinnulífinu er mjög mikið um
yfirborganir, þ.e.a.s. atvinnurekendur greiða starfsfólki stnu
verulega hærri laun en nemur gerðum kjarasamningum. Þessar
yfirborganir eru sjálfsagt mjög mismunandi eftir atvinnugreinum
og mismunandi útbreiddar, en kunnugir menn telja, að ekki sé
óalgengt, að yfirborganir nemi um 20—25% ofan á gerða
kjarasamninga. Úr þvt að sltkar yfirborganir eru jafn útbreiddar og
raun ber vitni um, ætti að vera Ijóst, að atvinnureksturinn hefur
talið sig færan um og sér í hag að greiða starfsfólki stnu mun
hærri laun í fjölmörgum tilvikum en nemur umsömdum taxta
launþegafélaganna.
í þriðja lagi má spyrja, hvort atvinnurekstrinum sé nægilega vel
stjórnað. Það getur ráðið maklu um afkomu og möguleika á að
greiða starfsfólki hærri laun, hvort fyrirtækjum er vel eða illa
stjórnað, starfsemi þeirra vel eða illa skipulögð.
í fjórða lagi er eðlilegt að spurt sé, hvort atvinnufyrirtækin hafi
reist sér hurðarás um öxl með of mikalli fjárfestingu á undan-
förnum árum. Rangar stjórnunarákvarðanir af þvt tagi geta átt
sinn þátt f því, að atvinnureksturinn geti ekki borgað nægilega
hátt kaupgjald Um leið og menn leggja út í of mikla og dýra
fjárfestingu, sem fyrirtæki þeirra ( raun og veru geta ekki staðið
undir, er auðvitað augljóst, að svigrúm fyrirtækjanna til þess að
greiða hærra kaupgjald er mun minna en ella væri. Þetta er einn
af þeim þáttum, sem áhrif hafa á kjör almennings t landinu. Hér
setja lánastofnanir ekki skilyrði um takmörkun fjárfestinga, eins
og víða er gert erlendis.
Allt eru þetta þættir t kjaramálunum, sem nauðsynlegt er að
ræða ( þeim kjarasamningum, sem framundan eru. Með sama
hætti og þess verður krafizt, að launþegasamtökin útskýri með
hvaða hætti þau ætla að ná fram þeirri 40—60% hækkun
kaupgjalds, sem þau hafa farið fram á, án þess að ný óðaverð-
bólgualda skelli yfir, sem fyrst og fremst komi niður á láglauna-
fólki, verður (jess einnig krafizt, að foravársmenn atvinnurekenda
geri grein fyrir þeim þáttum, sem hér hefur verið drepið á óg geri
grein fyrir því, hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að auka
svigrúm atvinnurekstursins til greiðslu hærra kaupgjalds og
hvaða aðgerðir eru t undirbúningi I atvinnurekstrinum f sama
skyni.
Nú er vetur úr bæ
Sumardag-
urinn fyrsti
„Þessu lýkur ekki fyrr en á sumar-
daginn fyrsta,” sagði Sigurður vara-
fréttastjóri við mig niðri f kaffistofu
Rlkisútvarpsins á Skúlagötunna hérna á
dögunum, og ég vona, að hann hafi
lög að mæla. þvl þetta er indælt strlð
sem háð er hér I salarkynnum Flug-
leiðamanna í Gylfaginningu Snorra
Sturlusonar segir svo: „Hvern dag, þá
er þeir (Einherjar) hafa klæzk. þá
hervæða þeir sik og ganga út I garðinn
ok berjask ok fellr hver annan; Þat er
leikr þeirra; ok er llðr at dögurðarmáli,
þá rlða þeir heim til Valhallar ok setj-
ask til drykkju svá sem hér segir:
Allir Einherjar
Óðins túnum I
höggvask
hverjan
dag;
val þeir kjósa
og rlða vigi frá
sitja meirr af sáttir saman "
Sama er að segja I skákinni. þar
verður mannfall svo uppi standa kóng-
arnir einir, en að kvöldi verða þeir
heilir aftur og geta hafið baráttu á ný
næsta dag árla
Kapparnir Spassky og Hort eru vlg-
reifir I dag Báðir hafa notað tlmann vel
og safnað kröftum Kristján forseti vor
hefur haldið þeim góða veislu úti á
Bessastöðum og mér kæmi ekki á
óvart þó á þá renni berseksgangur á
endasprettinum
Sennilega hafa þeir félagar farið
seint á fætur I morgun þvl hvorugur
var fáanlegur til að hefja strlðið fyrr en
klukkan fimm I eftirmiðdag Llklega
hafa þeir vanist (jeim ósið okkar Islend-
inga að liggja fram eftir á sunnudögum
og skreiðast ekki úr bólinu fyrr en að
afliðnum messutlma
Mér finnst prestar ættu að taka rögg
á sig undir stjórn biskups og drlfa I þvl
að reka fólk á fætur á sunnudags-
morgnum þó ekki væri til annars en að
útlendingar sæju að mannllf hér hefst
um svipað leyti á helgum dögum og
gengur og gerist I siðuðum löndum.
Þetta er hreinasta hörmung þegar mað-
ur fer út að spásséra um nluleytið á
sunnudögum að sjá ekki kvikindi,
nema þá helst nokkrar illa þefjandi
mannpersónur á Hlemmtorgi nýskriðn-
ar úr Hverfissteini betlandi aura fyrir
brennsluspritti.
Garnirnar gaula
Annars eru menn ekkert upplitsdjarf-
ir hér I dag Blaðamenn annaðhvort
timbraðir eða ekki búnir að ná sér eftir
slðustu skákina. sem endaði með
ósköpum eins og mönnum er I fersku
minni Mig minnir en er þó ekki alveg
viss um að rétt sé munað, að vinir
okkar hér á Loftleiðahótelinu hafi I
upphafi einvígisins haft orð á þvl að
bjóða okkur upp á almennilegan máls-
verð áður en yfir lyki og eru nú þegar
komið slðustu forvöð að gera alvöru úr
þvl Annars er ég hálfsmeykur um að
kokkayfirvöld séu hrædd um að við
séum eitthvað llkir Boloun þjóni Lúkas-
ar höfuðsmanns I sögunni af Svejk
dáta en um hann segir Jaroslav Hasek:
„Ég er alltaf hungraður, herra liðs-
foringi, sagði Baloun Ef einhver leifir
brauðbita. kaupi ég leifarnar fyrir vind-
linga og ekkert dugir Svona hef ég
alltaf verið Stundum finnst mér ég
vera orðinn nokkurn veginn saddur, en
ekki er þvl að heilsa Eftir andartak fara
garnirnar að gaula og maginn er gal-
tómur. Ef ég sé eitthvað ætilegt. fer
munnvatnið óðara að vætla út úr mér,
jafnvel þótt það séu engar kræsingar.
Mætti ég mildilegast biðja um tvöfald-
an matarskammt, helst vel úti látinn."
Þó við hérna séum flestir kviðdregnir
og illa útlltandi (nema þá helst hann
Bragi hjá Dagblaðinu) þá held ég að
við gerum okkur ánægða með einfald-
an matarskammt
Kannski hann Hilmar veitingastjóri
muni eftir okkur um kvöldmatarleytið
og sendi okkur hamborgara og kók.
sem væri betra en ekkert, þvl óneitan-
lega höfum við lagt fram drjúgan skerf
til að laða fólk hingað úteftir, og
dágóður sjóður hefur áreiðanlega
runnið i kassa Flugleiða fyrir okkar
tilstilli.
Ég mæti alltaf fyrstur á mótstað og
sýni óneitanlega mestan áhuga og
þessvegna væri ekki úr vegi að lauma
að mér svosem einsog einni rjómatertu
eða einhverju állka I kaupbæti.
Ég ætlaði að nefna þetta við hann
Svein blaðafulltrúa en hann sést varla
hér á vlgstöðvunum enda varla við þvi
að búast að hann blandi mikið geði við
venjulegt fólk, eftir að vera kominn I
forstjóraklassa
Þeir eru pólitlskir strákarnir hérna I
kringum mig og auðvitað er framsókn
enn efst á baugi enda ekki neinna
tiðinda að vænta annars staðar frá
Svefnlyf eða
brenndur
Bismark
Leikurinn er hafinn Augsýnilega eru
báðir taugaóstyrkir Spassky gefur
Hort eitthvað gott uppl sig og Hort
kveikir I vindli, reynir að vera rólegur
en undir niðri leynir sér ekki spenn-
ingurinn og nervusltetið
Hingað eru komnir feðgar, þeir Ingi
R. og Árni sonur hans, og þess vegna
er ég undir öruggri leiðsögn um allar
skýringar.
Var þeð svefnpilla eða brenndur
Bismark sem Spassky gaukaði að Hort
áður en slagurinn hófst?
Ég vona að við rithöfundar og blaða-
menn verðum lausir við þann rumpu-
lýð sem lagt hefur undir sig vistarveru
okkar á stundum Hingað hafa læðst
inn svo tröllheimskir gasprarar að
manni hefur legið við ógleði
Raunar ætti að setja utan á dyrnar:
Nem szabat. sem þýðir aðgangur
bannaður á annaðhvort ungversku eða
tékknesku
Hingað er komið margt fyrirfólk og
nóg að starfa hjá Braga Sæmundur á
Vlsi er mættur með unga dömu, senni-
lega einkaritara eða teiknidömu. Þeir
apa allt eftir okkur Moggamönnum
þeirá litlu blöðunum
Spassky hefur pantað far til Sviss á
morgun, ekki til að tefla því danski
Larsen hljóp I skarðið fyrir hann á
mótinu þar sem þeir tefla þeir Guð-
mundur og Friðrik
Nú raular Hort:
Á veg hins vinar horfna
sú vonarstjarna skln
að eignast endurfundi
við ástir, róstur vín.
En þessa vlsu kvað sjálfboðaliðinn I
bókinna um dátann Svejk Uppskiptaaf-
brigði spánska leiksins kemur upp.
eitthvert tilbrigði sem Hort hefur teflt
áður.
Ég hef trú á þvi að þeir Spassky og
Hort eigi eftir að koma hingað aftur og
dvelja hér vað ástir, skákróstur og ef til
vill vln.
Helgi Ólafs-
son stjarna
1 1 leikjum er lokið og Sigurður
varafréttastjóri segir að 8 leikir séu
ótefldir
Helgi Ólafsson gerir mikla lukku I
„guðseiginlandi" og segja slðustu frétt-
ir að hann hafi gert jafntefli við gömlu
kempuna Rehsevsky, sem á árunum
tefldi við Botvinnik um heimsmeistara-
titilinn. Efnispiltur hann Helgi, enda á
hann kyn til þess Nú vantar mig
nauðsynlega teiknara Mér finnst ekk-
ert varið I þessar Ijósmyndir, þær eiga
ekki við minn stll.
Nú er fjölmennt hér I blaðamanna-
kamersinu eða stjórnarherberginu
einsog Loftleiðamenn kalla þessa
kompu
Hér er diskúterað hvort Hort hafi
ekki teflt þessa skák við einhvern Ivkov
og unnið. Kannski það verði Tékkó
sem stendur uppi með pálmann I
höndunum
Hort púar slgaravindil og ber sig fjári
mannalega Einhverjir flugfreyjuvinir
eru að súpa útlendan bjór innl sal og
hafa hátt, sennilega einhver fyllerls-
heemspeki að minnsta kosti er þaðekki
skák sem þeir eru að spjalla um.
Nú er heima Þeir eru komnir útúr
teórlunni eftir 1 2 leik og allt I óvissu
Skoðun Sigga Sig um sumardaginn
fyrsta sem lokadag. er þegar komin I
endurskoðun og einhver minntist á að
setja málið I nefnd.
Hilmar veitingastjóri gengur um sali
með dularfullan svip og hefur ekki
minnst á miðdaginn flna Á hinn bóg-
inn vorum við Bragi á einu máli um að
engir fengju aðgang þar, ef til kemur.
nema þeir sem hafa bréf uppá, að þeir
séu næstum hálfvitar I skák. Algjört
skilyrði er að ekki verði minnst á tafl-
mennsku yfir borðum.
í Vtkingasalnum
Eins og ég hef oft sagt áður þá æsist
leikurinn og berst vftt Um húsið Mar-
geir Moggaskýrari er kominn upp á
senu í sjálfum Vlkingasalnum að skýra
fyrir þá sem styzt eru komnir. Til þess
að komast í hóp víkinga þarf að fara
útá hlað og þræða tröðina I átt að
aðalbækistöðvum Loftleiða
Það eru ekki ýkja mörg ár sfðan ég
vann mig upp í símaskrána en nú er
svo komið að ég hef fengið birta eftir
mig grein í SKÁK og lengra verður
varla komist f taflkúnstinni hérlendis.
Fyrir hina fjölmörgu lesendur mfna,
leyfi ég mér að benda á 1 1. tölublað
támaritsins Skákar arþ sem viðruð er
gömul hugmynd um áframhald á stór-
virkjum skákfþróttarinnar á íslandi
Nóg um það
Klukkan er sjö og ekkert verulegt
mannfall á skákborðinu í Kristsalsaln-
um. Engar áreiðanlegar fréttir hafa bor-
izt úr Vfkingasalnum. Miklar vangavelt-
ur hér í blaðamannaherberginu og
ýmsar hugmyndir og heimspólitfskar
vangaveltur varðandi lokaeinvfgið. Nú
er klukkan að halla f átta og enn standa
báðir uppi og Hort hefur aðeins lakari
tíma en enginn er fáanlegur til að spá
um úrslit. Ingvar Ásmunds vill heldur
hafa svörtu stöðuna og sama segir
Gunnar Eyþórsson. 20. leikurinn er f
seilingarfjarlægð.
Hér ganga um sali fulltrúar utanrfkis-
og menntamála. Enginn ráðherra sést
en þó er það ekki að marka, þvf
mannfjöldinn er slfkur að erfitt er að
þekkja einstaka menn jafnvel þótt þeir
hafi ráðherratign.
c-3 eða c-4 that is the question eins
og Hamlet prins sagði forðum. Þetta
seiglast f áttina og heldur hallar á
tékkneska björninn án þess ég vilji
nokkru spá.
Hefur
Spassky grip
Spassky hefur grip, segir einhver
spekingurínn hér inni. Ég leit aðeins
inn I Kristalsalinn og verð að gera
játningu. Mér hafa orðið á alvarleg
mistök. Spassky er aftur kominn I
græna vestið með tiglunum og er þess-
vegna til alls vls. Hort llður ekki vel og
þó þorir enginn að taka af skarið og
spá.
Á barnum er áfengisfnykur I loftinu,
en fjallaloft I Víkingasalnum og þar eru
þeir Skúli tónskáld og mágur hans
Gunnar endurskoðandi
Sigurður varafréttastjóri segir að
þetta llti betur út en um daginn
Mikil kaffidrykkja en lltið meðlæti.
„Hann bltur ekkert gras með þessu,"
segir Ingvar Ásmundsson og enginn
veit hver þessi „hann" er Samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum að
svarta staðan sé betri og menn reyna
að gera grein fyrir atkvæðum slnum
„Hvltur hefur ekkert mótspil". „Svartur
hefur frjálsari stöðu," segir annar. Ég
hitti hér á ganginum verðandi flokks-
bróður minn, Pál Heiðar, og með hon-
um íhaldsmanninn Harald Blöndal,
systurson Sveins Ben , sem ólyginn
sagði mér á dögunum að væri einn af
fyrstu blaðastrákunum hér I borg
Hann ku hafa selt VIsi aS dagblaði
ásamt Valdimar (Silla og Valda) og þeir
sennilega einu mennirnir sem upplifað
hafa hinn svokallaða „american
dream". Blaðsölustrákurinn sem verð-
ur stórveldi Nú er friðurinn úti hérna I
blaðamannaherberginu. hingað komn-
ir óvinir Rússa og þá er ekki að sökum
að spyrja. Spassky kominn með koltap-
að. Hort hefur vinninginn eða að
minnsta kosti heldur jöfnu Engin nöfn
nefnd.
Jói Jóns er kominn I sendiherrastöð-
ina og þá gengur alltaf betur Ég meina
fréttaflutningurinn gengur betur fyrir
sig.
Hrókur Finnur átta og hrókur Einar
einn.
Spenningurinn I algleymingi Raf-
magnsneistar fljúga um loftið og nokk-
urn veginn víst að annar hvor vinnur.
Ó, hver grefillinn Jafnteflislykt fer
um loftið og hetjurnar báðar afar móð-
ar Ætli þeir fái að vinna fyrir matnum
slnum I nótt þeir Alster og Smyslov?
Ingi R er kominn neðan úr sjónvarpi
og segir jafnteflið liggja I loftinu þó
svartur hafi kannski obbolltið betur
Ætlar spáin hans Sigga Sig að rætast?
Báðir hafa nægan tlma. Og enn
skellur skömmin yfir. Jafntefli.
Spassky er gjörsamlega útkeyrður og
við borð liggur að Marina þurfi að
styðja hann innl lyftuna Aumingja
maðurinn að fara svona með sig Nú
veit enginn hvenær þessi ósköp taka
enda Sigurður Sigurðsson segist vera
á förum til Finnlands til aðfylgjast með
málum Norðurlandaráðs og hafi harn
góða ferð b.
eftir
Björn
Bjarman