Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
29
Jafntefli í
tíunda sinn
Hvltt: Vlastimil Hort
Svart: Boris Spassky
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Ba4 (I 10. skákinni lék
Hort hér 4. Bxc6 og sigraði. Hann
hefur þó ekki búist við að koma
að tómum kofanum hjá Spassky
öðru sinni) Rf6, 5. 0-0 — Be7, 6.
Bxc6 — (Mun algengara er 6.
Hel, en Hort vill ekki gefa
Spassky kost á að tefla Breyer
afbrigðið sem hann gjörþekkir 6.
Hel — 0-0, 7. c3 — d6, 8. h3 — b5,
9. Bb3 — Rb8) dxc6, 7. d3 (Aðrir
möguleikar í stöðunni eru 7. Del
— Rc3 og Hel, 7. d3 miðar m.a. að
þvi að svara 7.. .Bg4 með 8. Rbd2)
Rd7, 8. Rbd2 (í skákinni Kura-
jica — Smejkal Wijk aan Zee
1976 reyndi hvítur hér 8. d4?!,
en fékk iakari stöðu eftir 8...
exd4, 9. Rxd4 — 0-0, 10. Rc3 —
Re5, 11. b3 — Bc5, 12. Rce2 —•
Dh4!) 0-0, 9. Rc4 — f6, 10. Rha4
— Rc5, 11, Df3 (í skák þeirra
Karpovs og Petrosjans í
sovézku deildakeppninni 1975
var hér samið um jafntefli
eftir 11. Rf5 — Bxf5, 12. exf5 —
Dd5, 13. Dg4 — e4, 14. Re3 —
De5, 15. Rc4 — Dd5) Re6! (Jafn-
ar taflið. Eftir ll...He8 hefði
hvítur e.t.v. tima til að byggja upp
sókn á kóngsvæng með 12. Re3 og
13. Ref5) 12. Rf5 (12. Dg3? geng-
ur auðvitað ekki vegna 12.. ,Rd4
og svartur vinnur a.m.k. peð)
Rd4, 13. Rxd4 — Dxd4,
(13. ..exd4 var auðvitað lakara
vegna 14. Dg3 með hótuninni 15.
Bf4) 14. Be3 — Dd8, (Minnugur
10. skákarinnar hefur Spassky
ekki viljað veikja peðastöðu sina
á drottningarvæng með 14.. .Dd7,
15. h3 — b5?!)
15. Ra5!? (Markmiðið með
þessum undarlega riddaraleik
virðist vera að halda biskup
svarts á c8 og e.t.v. lokka svart til
að veikja sig með b7 — b6 siðar)
Bb4, 16. Rb3 — Bd6, 17. De2
(Eftir 17. Dg3 kemur 17.. ,f5
sterklega til greina) De7, 18. f3
(18. f4 — exf4, 19. Bxf4 — Bxf4,
20. Dxf4 — Dd6 leiðir heldur ekki
til neins fyrir hvít) a5, 19. a4 —
Be6, 20. Rd2 — Bc5, 21. Df2 —
Bxe3, 22. Dxe3 — Db4! (Hörku-
leikur sem heldur hvitum við efn-
ið) 23. b3 — llfd8, 24. Hfcl —
Hd7, 25. Rfl — b6 (Svartur stend-
ur nú örlítið betur vegna virkari
stöðu sinnar) 26. Rg3 — Dd4, 27.
Dxd4 — Hxd4, 28. Re2 — Hd7, 29.
Kf2 — c5, 30. Rc3 — Hf8, 31. Hel
— g5 (Svartur þreifar fyrir sér,
en hvíta staðan reynist of traust)
32. g3 — Hg7, 33. He3 — Kf7, 34.
Hhl — Hfg8, 35. lleel — h5,
36. Rdl — h4, 37. Re3 (Eftir 37.
g4 getur hvítur aðeins beðið eftir
þvi að svartur brjótist I gegn á
drottningarvæng) Hh7, 38. Rg2
— Bh3, 39. Re3 — Be6, 40. Rg2
Jafntefli.
eftir
Margeir
Pétursson
Djörf taflmennska
Larsens dugði ekki
gegn Lajos Portisch
UNGVERSKI Stórmeistarinn
Lajos Portisch tryggði sér sigur í
einvigi sínu við Bent Larsen með
þvi að sigra i 10. einvígisskákinni,
sem tefld var á laugardag. Þrátt
fyrir að munurinn á milli kepp-
enda væri talsvert mikill, 6'/i —
3V4, var einvígið þó alls ekki án
spennu, því báðir keppendur
frömdu oft furðuleg mistök i hita
leiksins. Frammistaða Larsens
hlýtur að valda talsverðum von-
brigðum eftir sigur hans á milli-
svæðamótinu í Biel, en snarpur
skákstill hans virðist njóta sín
betur i mótum en einvígjum.
Lajos Portisch hefur verið meðal
sterkustu stórmeistara i heimi um
árabil, en hann hefur þó aldrei á
skákferli sínum náð eins langt og
núna. Við skulum nú líta á 10.
einvigisskákina, en óneitanlega
virðist Larsen hafa teflt hana tals-
vert undir styrkleika.
Hvftt: Lajos Portisch
Svart: Bent Larsen.
Kðngsindversk vörn
1. Rf3 — g6, 2. c4 — Bg7, 3. d4 —
Rf6, 4. g3 — 0-0, 5. Bg2 — d6, 6.
Rc3 — c6, 7. 0-0 — Bf5!? (Larsen
heldur mjög upp á þennan leik.
Hugmyndin er að hindra e2 — e4
hjá hvitum með því að leika sjálf-
ur Rf6 — e4) 8. Rh4! — Bd7?!
(Þessi leikur bætir ekki stöðu
svarts. 1 einni af einvigisskákum
þeirra Botvinniks og Smyslovs
1957 lék sá siðarnefndi hér 8...
Be6. Framhaldið varð: 9. d5 —
exd5, 10. cxd5 — Bd7, 11. Be3 —
Ra6, 12. Bd4 — Da5 með aðeins
betra tafli fyrir hvit) 9. e4 — e5,
10. Rf3 — He8, 11. h3 — Ra6, 12.
Hel — exd4, 13. Rxd4 (Nú er
komin upp þekkt gerð af stöðum i
4. g3 afbrigðinu i Kóngsind-
verskri vörn. Svartur á þó hér i
talsvert meiri erfiðleikum en
venjulega vegna slæmrar stöðu
biskupsins á d7 sem gerir peðið á
d6 að enn meiri veikleika) Db6?!,
(Betra var 13... Rc5. T.d. 14. Bf4
— Re6, 15. Bxd6? — Rxd4, 16.
Dxd4 — Rxe4! eða 14. Rxe6 —
Bxe6, 15. b3 — Rh5. Bezt er senni-
lega 14. Rb3 og svartur á við ein-
hverja erfiðleika að etja) 14. Rb3
— Had8, 15. Be3 — c5? (Eftir
þennan leik er staða svarts töpuð.
Eini möguleikinn var 15... Dc7
þó að hvítur geti þá valið um að
viðhaldspressunni með 16. Dc2 og
17. Hadl eða að skipta upp i mun
betra endatafl með 16. Bf4 —
Be6, 17. c5 — Bxb3, 18. cxd6 —
Bxdl, 19. dxc7 — Rxc7, 20. Bxc7
— Hc8, 21. e5! — Rd7, 22. Bd6 —
• b c d • fgh
16. Bg5! — (Nú kemst svartur
ekki hjá skiptamunstapi) Be6,
(Eftir 16... h6, 17. Bxf6 — Bxf6,
18. Rd5 tapar svartur manni) 17.
Df3 — Rd7, 18. Bxd8 — IIxd8, 19.
Rd5 — Bxd5, 20. exd5 — Bxb2,
21. Habl — Bg7, 22. Rd2 — Da5
(eða 22. . . Dc7, 23. He7) 23. Hxb7!
— Dxd2, 24. He7 — f5, 25. Hbxd7
— Hxd7, 26. Hxd7 — Dxa2, 27.
De3 — Dal +, 28. Kh2 — De5, 29.
Dxe5 — Bxe5, 30. f4 og svartur
gafst upp. Það verður þvi Lajos
Portisch sem mætir Hort eða
Spassky I fjórðungsúrslitum
áskorendaeinvígjanna.
Tiðindalhii
skák á Ítalíu
EKKI dró til tiðinda i 10. einvigis-
skák þeirra Petrosjans og
Korchnois sem var tefld á laugar-
dag. Höfðu menn þó búist við að
Petrosjan, sem hafði hvitt og er
nú einum vinningi undir, mundi
láta sverfa til stáls. Skákáhuga-
menn urðu þvi fyrir talsverðum
vonbrigðum, er samið var í 15.
leik i daufri skák.
Reyndar herma fregnir frá
Ítalíu þar sem einvigið fer fram
að Korchnoi líti út fyrir að vera
fullur sjálfstrausts á meðan
Petrosjan gangi eirðarlaus um
gólf.
Hvftt: Tigran Petrosjan
Svart: Viktor Korchnoi
Drottningarindversk vörn
1. d4 — e6, 2. c4 — Rf6, 3. Rf3 —
b6, 4. g3 — Bb7, 5. Bg2 — Be7, 6.
0-0 — 0-0, 7. Rc3 — Re4, 8. Dc2 —
Rxc3, 9. Dxc3 — Be4 (Þessi leik-
ur var talsvert vinsæll hér áður
fyrr, en nú er 9... c5 algengara
sbr. 9. einvigisskák Polugaevskys
og Meckings). 10. Bf4 — Rc6, 11.
Hfdl — d5, 12. Re5, (12. cxdð —
Dxd5, 13. Rel? er svörtum i hag
eftir 13... Bb4!) Rxe5, 13. Bxe5
— Bxg2, 14. Kxg2 — c6, 15. Hacl.
Hér bauð Petrosjan jafntefli, sem
Korchnoi þáði.
Petrosjan
fékk frest
ELLEFTU skák Petrosjans og
Kortsnojs, sem tefla átti í gær var
frestað samkvæmt ósk
Petrosjans. Sagðist hann ekki
vera við góða heilsu og verður
skákin tefld á miðvikudaginn ef
Petrosjan braggast. Staðan f ein-
viginu er nú þannig að Kortsnoj
hefur 5V4 vinning, en Petrosjan,
sem er fyrrverandi héimsmeist-
ari, er með 4V4 vinning.
Heitt f kolun-
um í Lucerne
TÍUNDA einvlgisskák þeirra
Meckings og Polugaevskys var
tefld á laugardag, en sem kunn-
ugt er baó Polugaevsky um frest-
un vegna höfuðverkjar á miðviku-
dag. Vmsir halda þvi þó fram að
um höfuðverkinn einan hafi ekki
verið að ræða, heldur hafi Poluga-
evsky viljað kynna sér gang mála
á Ítalíu þar sem þeir Petrosjan og
Korchnoi eigast við. Sagt er að ef
Petrosjan tapi þá tapi Poluga-
evsky einnig því hann vill ekki
eiga yfir höfði sér taugastrið eins
og nú geisar á Italíu.
Annars dró mjög til tfðinda í 10.
skák Meckings og Polugaevskys
eftir að skákin hafði farið i bið.
Þegar Mecking var i miklu tima-
hraki varð Polugaevsky það á að
fella einn af mönnunum á borð-
inu án þess að rétta hann við f
sínum eigin tima. Mecking taldi
þetta að sjálfsögðu freklegan
dónaskap og kvartaði við dómar-
ann, en sá þorði ekki að taka
afstöðu. Polugaevsky sá þó að sér
og bauð jafntefli í stöðu sem var
talin talsvert betri á hann. Meck-
ing þáði boóið, en kærði þó skák-
ina.
Hvftt: Henrique Mccking
Svart: Lev Polugaevsky
Drottningarindversk vörn
1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — b6, 3. g3 —
Bb7, 4. Bg2 — e6, 5. 0-0 — Be7, 6.
Rc3 — 0-0, 7. d4 — Re4, 8. Bd2 (t
níundu skákinni lék Polugaevsky
hér 8. Dc2 sem leióir til einfald-
ara tafls) — Bf6, 9. Dc2 — Rxd2,
10. Dxd2 — d6, (Eftir 10.. . d5, 11.
Re5! stendur hvítur betur) 11. e4
— Rd7, 12. d5 — Re5!? (Athyglis-
verð nýjung. I skák þeirra
Framhald á bls. 38
Staðan nú
gjörbreytt
í einvíginu
HVORKI Hort né Spassky komust
í rauninni neitt áleiðis í skák
þeirra i fyrrakvöld og eðlileg
niðurstaða varð því jafntefli. Það
var heimsmeistarinn fyrrverandi,
Boris Spassky, sem bauð það og
Hort gat varla annað en sagt já
takk. Hafði Hort hvítt í skákinni,
en fór rólega í sakirnar og undir
lok skákarinnar hafði hann
þrengra tafl og heldur lakara ef
eitthvað var.
Mikill mann-
fjöldi fylgdist
með skákinni á
sunnudaginn,
sennilega fleiri
en nokkru sinni
fyrr i þessu ein-
vigi. Áhorf-
endur hafa trú-
lega verið eitthvað á áttunda
hundraðið, en uppselt varð á
skömmum tíma. Var þá gripið til
þess ráðs að opna Vikingasalinn
fyrir skákgesti og var skákin
skýrð þar fyrir á annað hundrað
manns.
Skákin var tiltölulega róleg, en
þó mikil undiralda i henni.
Byrjunin mun vera kennd við
Ruy Lopes og gjarnan kölluð
spánski leikurinn. Hafa tékknesk-
ir skákmenn talsvert notað þessa
byrjun, þannig að hún hefur
varla komið Spassky á óvart.
Hvorugur skákmannanna náði
afgerandi frumkvæði í skákinni,
en Spassky tókst þó að ná heldur
rýmri stöðu. Jafntefli var samið i
39. leik eins og áður sagði.
Er Spassky gekk út úr skák-
salnum strax og pappírar höfðu
verið undirritaðir, var þar greini-
lega þreyttur maður á ferð. Er
hann beið eftir lyftunni studdi
hann sig upp við vegginn og
grúðfi andlitið i höndum sér. Þar
fór greinilega þjáður maður, en
að hann væri eins illa haldinn og
síðar kom í ljós grunaði ekki þá er
með fylgdust. Næturlæknir var
sóttur til Spasskys skömmu siðar
og undir hádegi í gær var hann
fluttur á sjúkrahús. Var hann þar
til rannsóknar og dró heldur af
honum en hitt er leið á daginn.
Þau Marina Spassky og Smyslov
voru hjá Spassky síðari hluta dags
í gær.
Staðan i einvíginu hefur nú
gjörbreytzt. Hvað gerist næstu
daga er ekki gott að segja, en
trúlega verður bið á að næsta
skák verði tefld.
Ekkert sparkað undir borðum
Það var margt spjallað á Loft-
leiðum meðan skákmennirnir
sátu að tafli i gær. Skákin þótti
heldur róleg svo menn gátu rætt
um heima og geima án þess að
eiga á hættu að missa af nokkrum
stórviðburðum. Ingvar Ásmunds-
son sagði frá þvi, að á einhverju
móti í Bandaríkjunum hefðu
skákmennirnir óspart sparkað
hvor í annan undir borðið og þeir
Kortsnoj og Petrosjan háó svip-
aða baráttu undir borði í frægu
einvígi þeirra 1974. Það var ekki
laust við að menn vildu að eitt-
hvað slíkt gerðist á Loftleiðum.
Svo hefur þó ekki verið, endaþeir
Hort og Spassky sannir iþrótta-
menn.
Hort ku ætla að vera að minnsta
kosti eina viku hér á landi eftir að
einviginu lýkur og hefur falazt
eftir þvi við unga, snoppufríða
stúlku að hún aki honum um í
nágrenni Reykjavíkur, e.t.v. Þing-
vallahringinn og sýni honum
sögustaði. Kannski fær Hort tíma
til annars en skáklistar meðan
Spassky jafnar sig af veik-
indunum.
Hort mætti til skákarinnar á
sunnudaginn á tilsettum tima og
stikaði stórum. Hampaði hann
stórum eldspýtnastokk, með
vindlapakka upp á vasann. Bauð
hann Spassky af rausn sinni eld-
spýtu og fyllti reyndar stokk þess
síðarnefnda, sem var af venju-
legri stærð. Síðan hófst taflíð og
tíunda jafnteflið var samið eftir
39 leiki, aðeins tvisvar hefur skák
i einviginu lokið með sigri.
Spassky vann þriðju skákina,
Hort þá elleftu. Gunnar Gunnars-
son aðstoðardómari sagði í lok
skákarinnar að þetta hefði verið
augljóst jafntefli allan tímann, en
það má auðvitað ekki hafa það
eftir Gunnari.
Baldur Möller og Guðmundur
Arnlaugsson ræðast við á Loft-
leiðum á sunnudaginn. Eru þeir I
dómnefnd þeirri, sem skipuð var
fyrir einvfgið og þarf nú að skera
úr um hvað gerist. Er Guðmundur
Arnlaugsson formaður nefndar-
innar.
eftir
Ágúst I.
Jónsson
„Spassky hafði
rýmra, en hvað
gat hann gert?”
EINS og menn voru ósammála
um jafnteflið, sem samið var 111.
skákinni á þriðjudaginn fyrir
viku, voru menn almennt sam-
mála um að ekkert hefði verið I
stöðunni eftir 39 leiki á sunnu-
daginn, annað en jafntefli.
Við spjölluðum stutta stund við
dr. Vladislav Alster að lokinni
skákinni og sagði hann að skákin
hefði verið baráttuskák, þar sem
hvorugur hefði gefið neitt eftir.
Þegar reynt hefði verið til þraut-
ar hefði eðlilegt jafntefli verið
samið.
— Það er mikið rétt, Spassky
hafði rýmra tafl undir lokin, —
en hvað gat hann gert? sagði dr.
Alster. — Ef hann reyndi að
sprengja eitthvað upp, t.d. að
skipta upp á öllum hrókunum,
stóð hann eftir með verri stöðu.
En að það hefði dugað Hort til
sigurs er ég vantrúaður á. Það var
ekkert i þessu annað en jafntefli.
Þetta var athyglisverð skák og
það er mjög sjaldgæft að sjá öll
peðin 16 standa eftir á borðinu
eftir 39 leiki, sagði dr. Vladislav
Alster.