Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
25
VERÐLAUNAHAFAR
UM helgina fór fram úrslitakeppnin f 3. deild Islandsmótsins f körfuknattleik og
fauk henni með sigri Vestmannaeyinga, sem þar með leika f 2. deild að ári. I
úrslitakeppninni sigruðu Vestmannaeyingarnir fyrst UMFS með 83 stigum gegn
80 og sfðan sigruðu þeir Tindastól frá Sauðárkróki með 72 stigum gegn S0.
Meðfylgjandi mynd tók Sigurgeir Jónasson af liði IV: Fremri röð frá vinstri:
Jóhann Pétur Andersen, þjálfari, Sigurður Davfðsson, Haraldur Júlfusson,
Hörður Þórðarson og Tómas Pálsson. Aftari röð frá vinstri: Geir Jón Þórðarson,
formaður IV, Friðfinnur Finnbogason, Páll Sveinsson, Haraldur Óskarsson,
Sigurður Guðmundsson og Bjarni Gunnarsson.
IR-ingar tóku við bikarnum eftir
sigur gegn Ármanni í baráttuleik
ÍR-ingar urðu fslands-
meistarar f körfuknattleik
1977, unnu Ármann í
sínum sfðasta leik með 109
stigum gegn 91 í miklum
baráttuleik, sem bar þess
greinilega vitni að um úr-
slitaleik væri að ræða því
að leikmenn beggja liða
gerðu sig seka um mörg
slæm mistök. Þetta er f 16.
sinn sem ÍR-ingar verða
íslandsmeistarar og
ábyggilega ekki sfðasta
skiptið.
Þorsteinn Hallgrímsson, þjálf-
ari ÍR, var að vonum ánægður
með titilinn og sagði hann i viðtali
við Mbl. að þetta hefði verið
dæmigerður úrslitaleikur, mikil
barátta hjá báðum liðum, en
sömuleiðis alltof mikið af
slæmum mistökum. „Ég spáði
þessum úrslitum I haust, en því
verður ekki neitað að þegar við
misstum 3 menn um áramótin
bjóst maður ekki við þessu. Mér
finnst þetta mót hafa verið jafn-
ara en oftast áður og því að vissu
leyti skemmtilegra, en hins vegar
hefur skipulagningin komið i veg
fyrir nægilega aðsókn vegna þes
einkanlega hve mótið er leikið á
mörgum stöðum og oft á sama
tímanum."
„Þess má geta að þetta verður
liklega síðasta keppnistímabilið
mitt í körfuknattleik, mér finnst
vera komið nóg.“
I því sambandi er rétt að geta
þess að þetta er í 9. sinn sem
Þorsteinn verður íslandsmeistari,
en auk þess hefur hann orðið
Danmerkurmeistari 4 sinnum.
ÍR-ingar náðu forystunni 4—2
strax i upphafi leiksins og á 5.
minútu höfðu þeir náð 5 stiga
forystu, 12—7, og skömmu síðar
var staðan orðin 18—11 en
Ármenningar voru ekki á því að
gefa sig og þeim tókst að jafna
20—20 á 12. mínútu. Það dugði
reyndar skammt því að ÍR-ingar
náðu forystunni strax aftur og
leiddu til leikhiés, og höfðu þá
yfir, 54—45.
Seinni hálfleikur var svo allur
ÍR-inganna og áttu Ármenningar
aldrei möguleika gegn baráttu-
glöðu ÍR-liði, þó að þeim tækist af
og til að minnka muninn nokkuð.
Minnsti munur i seinni hálfleik
var 9 stig um miðjan hálfleikinn,
71—80 og höfðu Ármenningar þá
náð að pressa tR-ingana stíft, en
þá fékk Jon Sigurðsson sína 5.
villu og þar með má segja að
möguleikar Ármanns hafi endan-
lega orðið að engu og ÍR-ingar
unnu yfirburðasigur 109—91.
Sigur ÍR-inga byggðist fyrst og
fremst á mikilli baráttu allra
liðsmanna og svo á góðum leik
þeirra Kristins Jörundssonar og
Þorsteins Hallgrímssonar, en auk
þess áttu þeir Jón Pálsson og
Kolbeinn Kristinsson góðan leik.
Af Ármenningum átti Atli
Arason beztan leik ásamt Jóni
Sigurðssyni og Birni
Christiansen.
Stigin fyrir ÍR skoruðu:
Kristinn Jörundsson 35, Kolbeinn
Kristinsson 22, Þorsteinn
Hallgrímsson 16, Jón Pálsson 15,
Agnar Friðriksson 11, Jón
Jörundsson 7, Steinn Logi Björns-
son og Stefán Kristjánsson 2 hvor.
Fyrir Ármann skoruðu: Atli
Arason 28, Jón Sigurðsson 19,
Björn Christiansen 16, Björn
Magnússon 9, Guðmundur Sig-
urðsson og Jón Björgvinsson 6
hvor, Hailgrimur Gunnarsson 4,
Erlendur Eysteinsson 2 og
Haraldur Hauksson 1 stig.
H.G.
lR — lslandsmeistari í körfuknattleik 1977. Efri röð frá vinstri: Þorsteinn Guðnason, Hólmsteinn Sigurðsson, Sigurður Gfslason, Jón
Jörundsson, Jón Pálsson, Stefán Kristjánsson, Agnar Friðriksson. Neðri röð frá vinstri: Kristinn Jörundsson, Kristján Sigurðsson,
Steinn Logi Bjarnason, Þorsteinn Hallgrfmsson og Kolbeinn Kristinsson.
KRISTINN Jörundsson var fyr-
irliði íslandsmeistaranna, IR,
og var einnig valinn bezti leik-
maður ársins af körfuknatt-
leikssambandinu auk þess sem
útgefendur „Körfunnar" völdu
hann „dýrmætasta" leikmann
keppnistímabilsins.
Kristinn: „Maður getur ekki
verið annað en ánægður með
þennan árangur, við ÍR-ingar
stefnum alltaf hátt og við ætl-
uðum okkur að vinna mótið
strax i upphafi,
en vissulega var
maður ekki allt-
af viss um að
það tækist. Ég
tel að við ÍR-
ingar getum
fyrst og fremst
þakkað þennan
árangur því hve
við höfum
marga leik-
reynda
einstaklinga en auðvitað höfum
við einnig æft vel, einkum eftir
áramótin.
Hvað val mitt varðar sem
bezti leikmaður keppnistíma-
bilsins lit ég á það sem viður-
kenningu, ekki eingöngu á
frammistöðu minni, heldur liðs-
ins í heild. Maður á aldrei betri
leik en félagarnir leyfa og
auðvitað leikur maður fyrir lið
sitt en ekki sjálfan sig, það
byggjast allar flokkaíþróttir á
samstarfi og það má segja að
allir leikmenn liðsins séu nauð-
synlegir hlekkir á þeirri keðju
sem tengir liðið saman og gerir
það að einni heild. Ég er að
sjálfsögðu mjög ánægður með
þennan mikla heiður sem mér
er sýndur og það að þetta kom
mér algjörlega á óvart spillir
auðvitað ekki ánægjunni.“
BJARNI Gunnar Sveinsson var
að þessi sinni stigahæsti leik-
maður mótsins, skoraði hvorki
meira né minna en 404 stig eða
28 að meðaltali, sem vissulega
er mjög gott.
Bjarni: „Ég þakka samherj-
um mínum þennan árangur,
maður skorar ekki meira af
stigum en samherjinn gefur
tækifæri til. Þegar leikið er
sem miðherji er
oft erfitt að
koma knettinum
inn á mann og
þá er það að
miklu leyti kom-
ið undir hæfi-
leikum samherj-
anna hvernig
það gengur.
Einnig ber að at-
huga eitt og það
er, að ef aðeins
er um að ræða
einn afgerandi miðherja
reynist andstæðingunum mun
auðveldara að dekka hann og
þeir geta þá frekar sleppt þeim
sem eru 'slakari, en við
stúdentar höfum mann sem
heitir Jón Héðinsson og hann
er leikmaður sem aldrei má lita
af og góð frammistaða hans hef-
ur gert það að verkum að meira
losnar um mig og ég fær því
fleiri tækifæri til að skora.“
JÖN Jörundsson
hlaut verðlaun
fyrir beztu vita-
hittnina 3. mótið
í röð, en auk
þess varð hann
Islandsmeistari
með liði sínu ÍR.
Jón: „Ég er
vissulega
ánægður með
þennan
árangur, bæði
minn og ekki
síður með Islandsmeistaratitil-
inn. Hvað minn árangur í vita-
hittninni snertir þá þakka ég
hann að mestu leyti tveimur
mönnum, þeim Einari Ólafs-
syni og Kent Finnegar, en þeir
þjálfuðu mig sérstaklega í
þessu atriði þegar ég var yngri,
en auk þess leggjum við IR-
ingar mikla áherzlu á öll skot
og vitahittni er þar ekki undan-
skilin, enda erum við með beztu
vitahittnina af öllum liðunum."
JÓN Otti Ólafsxon var af útgef-
endum „Körfunnar" valinn
bezti dómarinn á þessu
keppnistímabili.
Jón Otti: „Ég tel að þrátt fyr-
ir þessa útnefningu sé ég ekk-
ert betri en hinir, ég hef bara
verið meira í sviðsljósinu og
dæmt meir en flestir þeirra og
hef að sjálfsögðu notið þess. Þá
er ég einnig sannfærður um
það að við sem höfum leikið
körfuknattleik áður en við hóf-
um að dæma sé-
um betur undir
starfið búnir og
við þekkjum að
sjálfsögðu mjög
vel flest þau
brögð sem leik-
menn beita. Mér
finnst ákaflega
gaman að hafa
hlotið þennan
heiður, það sýn-
ir að menn hafa áhuga á
dómarastarfinu, fylgjast með
því og kunna að meta störf okk-
ar dómaranna, en lita ekki allt-
af á okkur sem eins konar
grýlur og kenna okkur um að
hafa ekki unnið þennan og
þennan leik. Ég tel einnig að
þetta hafi þau áhrif á dómara
að þeir reyni að bæta sig og
gera alltaf sitt bezta og það er
ákaflega ánægjuleg þróun að
mínu mati og nauðsynleg.“
Frá 1. apríl gilda ný afsláttarfargjöld, sem viö
köllum „almenn sérfargjöld”.
þau eru 25 - 40% lægri en venjuleg fargjöld og eru
eingöngu háð því skilyrði aó dvalartími erlendis sé
lágmark 8 dagar og hámark 21 dagur (í flestum
tilfellum).
„ Almenn sérfargjöld” gilda allt árið á flugleiðum frá
íslandi til 57 staða í Evrópu.
25-40%
LÆGRI FARGJÖLD
SEM GILDA
ALLTÁRIÐ
FLUCFÉLAC L0FTLEIDIR
LSLANDS