Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 22

Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 Heildarloðnuaflinn orðinn 544 þúsund lestir um helgina SAMKVÆMT skýrslum Fiskifél- ags fslands hafði 81 skip fengið einhvern afla s.l. laugardags- kvöld. Vikuaflinn var samtals 26.344 lestir, og heildaraflinn frá byrjun vertíðar samtals 544.663 lestir. Á sama tíma f fyrra var heildaraflinn samtals 326.530 lestir og þá höfðu 76 skip fengið afla. Aflahæstu skipin i vikulokin voru: 1. Sigurður RE 4 — 20.324 lestir. Skipstjórar Kristbjörn Árnason og Haraldur Ágústsson. 2. Börkur NK 122 — 18.390 lestir. Skipstjórar Magni Kristjánsson og Sigurjón Valdimarsson. 3. Guðmundur RE 29 — 17.958 lestir. Skipstjórar Páll Guð- mundsson og Hrólfur Gunnars- son. ‘ Loðnu hefur verið landað á 23 stöðum og mest á eftirtöldum stöðurfi: Lestir 1. Vestmannaeyjum 90.656 2. Seyðisfirði 57.720 3. Neskaupsstað 43.292 Meðfylgjandi er skýrsla yfir Hákon ÞH 10.510 Huginn VE 10.451 Þórður Jónass. EA 10.017 Helga Guðmundsd. BA 9.873 Hrafn GK 9.797 Guðm. Jónsson GK 9.557 Skarðsvík SH 9.544 Bjarni Ólafss. AK 9.210 Kap II VE 8.895 Helga II RE 8.652 Óskar Halldórss. RE 8.411 Stapavík SI 8.380 Sæbjörg VE 7.557 Svanur RE 7.175 ísleifurVE 7.133 Magnús NK 6.410 HelgaRE 6.114 Skírnir AK 5.877 Keflvíkingur KE 5.716 Gunnar Jónss. VE 5.622 Hilmir KE 5.553 Freyja RE 5.468 Húnaröst AR 5.322 Náttfari ÞH 5.285 Ársæll Sigurðss. GK 5.274 Flosi IS 5.205 Hrafn Sveinb.s. GK 5.106 Ársæll KE 4.904 Vörður ÞH 4.873 Skógey SF 4.843 afla báta og skýrsla um löndunar- Dagfari ÞH 4.770 hafnir. Víkurberg GK 4.557 Sigurður RE 20.324 Sigurbjörg OF 4.461 Börkur NK 18.390 Vonin KE 4.340 Guðmundur RE 17.958 Sæberg SU 4.270 Gísli Árni RE 16.614 FaxiGK 3.948 Grindvíkingur GK 14.518 Andvari VE 3.656 Pétur Jónsson RE 14.226 Árni Magnúss. AR 3.425 Súlan EA 13.894 Arnarnes HF 3.405 örn KE 12.818 Kári Sólm.s. RE 3.300 Hilmir SU 12.766 Ólafur Magnúss. EA 3.102 Eldborg GK 12.538 Þorkatla II GK 2.586 Rauðsey AK 12.462 Bára GK 2.577 Loftur Baldvinss. EA 12.272 GeirGoði GK 2.489 Fífill GK 12.016 Bylgja VE 2.342 Albert GK 11.705 Sóley AR 2.297 Gullberg VE 11.138 Víkingur AK 2.112 Jón Finnsson GK 10.946 Arnar AR 2.022 Árni Sigurður AK 10.608 Bergur VE 2.016 Árni Sig. AK 10608 Hamravík KE 1.934 Ásberg RE 10.572 Framhald á bls. 38 Önnur aðferð við út- hlutun síldveiðileyfa EINS OG Morgunblaðið skýrði frá f sfðustu viku þá hefur Haf- rannsóknastofnunin lagt til við sjávarútvegsráðuneytið að leyfa veiði á 25 þúsund lestum af síld f haust. Undanfarin tvö ár, eða frá þvf að sfldveiðar hófust á ný við Suðausturland, hefur ákveðnum kvóta verið úthlutað á hvert skip, sem sótt hefur um leyfi til veið- Iskov væntanleg- ur til Islands ISKOV, sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna, er væntanlegur til íslands einhverntíma á næstunni og er jafnvel búist við honum í apríl n.k. Upphaflega var ráðgert að Iskov kæmi hingað í þessum mánuði en, sú áætlun breyttist vegna anna hjá ráðherranum I viðræðum um fiskveiðilögsögu- mál /■ við Efnahagsbandalag Evrópu og Norðmenn. Á sjávarútvegsráðstefnunni, sem haldin var í Hnífsdal á sunnudag, kom það fram hjá Matthíasi Bjarnasyni sjávarút- vegsráðherra, að á meðan Iskov dvelur á íslandi mun hann undir- rita samning Sovétríkjanna og Is- lands um fiskverndun og fiskileit. anna og hafa færri fengið leyfi en viljað hafa. Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra sagði á sjávarút- vegsráðstefnunni í Hnífsdal s.l. sunnudag, að sami háttur yrði hafður á I haust. Hins vegar sagði ráðherra, að hann hefði hug á, að önnur skip en verið hefðu fengju leyfi til veiðanna í haust. Flest þeirra stóru nótaskipa, sem feng- ið hefðu leyfi til veiðanna s.l. 2 ár, hefðu nú möguleika á að stunda sumarloðnu og jafnvel koimunna- veiðar. Með því að veita öðrum skipum leyfi til sildveiðajina myndi ásókn i þorskstofninn minnka að vissu marki, því ef- laust myndu mörg þessara skipa stunda þorskveiðar ef þau fengju ekki síldveiðileyfið. t gær voru sýningaraðilar að leggja sfðustu hönd á undirbúning sýningarbásanna. (Ljósm. Mbl. Rax.). W Islenzk mat- vælakynning opnuðí dag KYNNING á fslenzkum mat- vælum hefst f dag f húsi iðnaðarins við Hallveigarstfg og verður hún opnuð kl. 14.00. Aðgangur er ókeypis. Kynning þessi verður sfðan opin daglega milli kl. 12 á hádegi til kl. 22 til sunnudags og gefst fólki kostur á að kynna sér framleiðslu inn- lendra fyrirtækja á sviði mat- vælaframleiðslu og bragða á týmsum framleiðsluvörum. Það er íslenzk iðnkynning, sem stendur fyrir þessari mat- vælakynningu og sagði Pétur Sveinbjarnarson, framkvæmda- stjóri iðnkynningar, að þetta væri fyrsta matvælakynning hérlendis og kvaðst vona að eftir þetta brautryðjendastarf myndu fleiri slíkar matvæia- kynningar fylgja í kjölfarið. 26 fyrirtæki kynna framleiðslu- vörur sinar í 15 sýningardeild- um og eru tvær sérkynningar, 6 lagmetisframleiðendur standa sameiginlega að vörukynningu og 7 sælgætisframleiðendur kynna framleiðslu sína. Þau matvæli, sem kynnt verða, eru: kjöt, ostar, smjör, mjólk, ís, lag- meti, brauð og kökur, súpur, kex, smjörlíki, drykkjarvörur, sælgæti og sultur. Eins og fyrr segir gefst gestum færi á að bragða á fram- leiðsluvörum flestra fyrirtækj- anna og nokkur fyrirtæki munu bjóða vörur sínar á sérstöku kynningarverði. Þá er einnig unnt að fá uppskriftir og á hverjum degi verður gesta- happdrætti og dreginn út einn vinningur. í dag verða 300 lítr- ar af Tropicana í verðlaun, en það er ársneyzla 4 manna fjöl- skyldu. Á matvælakynningunni verða sérstakir dagar helgaðir einstökum matvælategundum, á morgun lagmeti, á fimmtu- daginn sælgæti, föstudag mjölk og brauð, laugardag kjöt og sunnudag gosdrykkir og aðrar drykkjarvörur, en til gamans má geta þess að ársneysla á hvert mahnsbarn af gosdrykkj- um er um 67 lltrar. Þess má einnig geta að fyrirtækin eru mjög misjafnlega gömul, hin elstu frá 1926, en hin yngstu stofnuð á s.l. ári, 13 fyrir 1950 og 13 eftir 1950 en sumar greinar matvælaiðnaðarins eru mun eldri. Pétur Sveinbjarnar- son sagði að takmark þessarar matvælakynningar væri að fólk kæmi og kynntist íslenskum matvælaiðnaði og að enginn færi svangur út. Vestfirdir: Heimilað að veiða ÍOOO tonn af hörpudiski © INNLENT Á ÞESSU ári er gert ráð fyrir að 1000 lestir af hörpudiski verði veiddar á Vestfjörðum, en þessar veiðar hafa að mestu legið niðri þar f nokkur ár, nema hvað eitt- hvert magn hefur verið unnið á Bfldudal og Patreksfirði. Haf- rannsóknastofnunin mun fyrir nokkru hafa lagt til við Sjávarút- vegsráðuneytið að það heimilaði veiði á 500 lestum af hörpudiski f tsafjarðardjúpi, og á 500 lestum annars staðar á Vestf jörðum eða f Arnarfirði, Dýrafirði og Tálkna- firði. Fjórir bátar hafa nú fengið leyfi til hörpudisksveiða frá ísa- firði, eru þrír bátanna á vegum niðursuðuverksmiðju O.N. Olsen og 1 á vegum Rækjustöðvarinnar. Verksmiðja O.N.Olsen hefur nú fest kaup á mjög fullkominni hörpudisksvinnsluvél frá Skot- landi og kostaði vélin um 20 milljónir króna. í samtali við Morgunblaðið sagði Theódor Norðquist, fram- kvæmdastjóri verksmiðjunnar, að vinnsla með vélinni ætti að hefj- ast í dag og I gærkvöldi kom full trúi framleiðanda i Skotlandi til aó fylgjast með vélinni I byrjun. Hörpudisksvélin er mjög afkasta- mikil og getur unnið 4 tonn af hörpudisk upp úr sjó á klukku- stund. Sagði Theódór að það væri nauðsynlegt fyrir fyrirtækið að fá aukinn kvóta ef vélin ætti að bera sig og kvað hann sig ekki skilja hvers vegna annað fyrirtæki á ísafirði hefði fengið leyfi til vinnslu. Þar ætti að handskera hörpudiskinn, en menn hefðu gef- ist upp á þeirri aðgerð vegna mik- ils kostnaðar fyrir nokkrum ár- um. Fyrsti samninga- fundurinn á morgun Ríkissáttasemjari Torfi Hjartarson hefur boðað samn- inganefndir Alþýðusambands ís- lands og Vinnuveitendasambands Islands til fyrsta samninga- fundarins um kaup og kjör klukk- an 14 á morgun að Hótel Loftleið- um. Að sögn Torfa verður þetta mjög fjölmennur fundur en i samninganefnd ASÍ munu vera 37 manns og 27 manns í samn- inganefnd VSÍ. Þá mun nýskipuð sáttanefnd verða á fundinum en Torfi Hjartarson er formaður hennar. Áformað er í dag að nokkrir aðilar úr- hvorri samninganefnd hittist hjá sáttasemjara til undir- búnings samningagerðinni. Grindavíkurhöfn: Tveimur mönn- um bjargað á síðustu stundu Grindavík, 28. marz. TVEIR menn duttu f höfnina um helgina en báðum var fyrir snar- ræði bjargað á sfðustu stundu. Aðfararnótt laugardagsins féll ungur maður í höfnina af þilfari báts. Skipverjar á nærstöddum bát, Fjölni GK, urðu varir við þetta og gátu þeir náð manninum upp. Hann hefur alveg náð sér. I gærkvöldi datt svo fullorðinn maður í höfnina. Fyrir tilviljun heyrðu skipverjar á Jóhannesi Gunnari GK þegar maðurinn hrópaði á hjálp og gátu þeir náð honum úr höfninni. Maðurinn var orðinn mjög kaldur og liggur hann nú á sjúkrahúsinu í Kefla- vík. — Guðfinnur. Keppni í lands- liðsflokki hefst á fimmtudaginn KEPPNIN f landsliðsflokki á skákþingi íslands hefst á fimmtu- daginn, en 12 skákmenn keppa í þessum flokki. Flest stig þeirra hefur Helgi Ólafsson hlotið, eða 2440, en Islandsmeistarinn frá í fyrra, Haukur Angantýsson, er með 2390 stig. Haukur hefur Iftið teflt sfðan á sfðasta skákþingi, enda verið til sjós á ísafold, sem gerð er út frá Danmörku. Aðrir þátttakendur i landsliðs- flokki Skákþingsins að þessu sinni verða eftirtaldir, stig þeirra innan sviga: Jón L. Árnason (2385), Björgvin Víglundsson (2370). Margeir Pétursson (2340), Júlíus Friðjónsson (2320), Björn Þorsteinsson (2300), Kristján Guðmundsson (2300), Ásgeir Þ. Árnason (2285), Gunnar Gunnarsson Gunnar Finnlaugsson (2225) og Þröstur Bergmann (2215). Flugverndarfélagið: Kvikmyndasýning og aðalfundur SfÐASTI fræðslufundur Fugla- verndarfélags islands á þessum vetri verSur haldinn I Norræna húsinu miðvikudaginn 30. marz og hefst hann kl. 20.30. Sýndar verða kvikmyndir af fugla- Iffi. — Disney-mynd um sjaldgæfa fugla og aldauSa, og mynd um fugla- Iff f skógum Frakklands. A8 kvikmyndasýningunni lokinni verSur haldinn aSalfundur Fugla- verndarfélags Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.