Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
WRíkisfyrir-
tækjum verði
komið í hendur
einstaklinga**
Rætt við Friðrik Sóphusson, formann
Sambands ungra sjálfstœðismanna, og
Vilhjálm Egilsson, starfsmann nefndar
þeirrar, sem á vegum SUS kannaði
ríkisumsvifin
UmHORP
Umsjón Einar K. Guðfinnsson
„Eru ungir sjálfstæðismenn
að verða byltingarsinnar,"
sagði maður sem lesið hafði
blaðið „Báknið burt“, er hefur
að geyma hugmyndir ungra
sjálfstæðismanna um samdrátt
í ríkisbúskapnum. Það er líka
ýmislegt til í því þar sem hug-
myndir ungra sjálfstæðis-
manna eru nýstárlegar. Ekki
er heldur ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur, heldur
sjálft ríkiskerfið — báknið.
„Báknið burt“, hið umrædda
blað, er afrakstur mikillar
vinnu og athugana. Á þingi
SUS í Grindavík í september
1975 var útþensla ríkis-
báknsins gagnrýnd harðlega
og ályktað um að niðurskurður
ríkisútgjalda væri eitt alvar-
legasta og brýnasta verkefnið
sem ríkisstjórninni bæri að
framkvæma. Þeim tilmælum
var einnig beint til stjórnar
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna að hún gerði úttekt á
ríkisbúskapnum og legði fram
tillögur um samdrátt hans.
í framhaldi af því skipaði
stjórn SUS þriggja manna
nefnd til að vinna að fram-
kvæmd málsins. 1 nefndinni
áttu sæti Þorsteinn Pálsson rit-
stjóri, formaður, Baldur
Guðlaugsson framkvæmda-
stjóri og dr. Þráinn Eggertsson
lektor. Síðast liðið sumar vann
Vilhjálmur Egilsson viðskipta-
fræðinemi með nefndinni og
skilaði ftarlegri greinargerð
um ýmsa þætti málsins. Auk
þessarar blaðaútgáfu sem SUS
og Heimdallur standa saman
að hafa verið haldnir fundir á
ýmsum stöðum á landinu þar
sem málin hafa verið skýrð.
Fleiri fundir eru fyrirhugaðir
á næstunni. í næsta mánuði
efna ungir sjálfstæðismenn til
ráðstefnu um efnið, þar sem
stefnan verður mörkuð í ein-
stökum atriðum.
Til þess að fræðast betur um
„Báknið burt“ og það sem
blaðið flytur sneri UMHORF
sér til þeirra Friðriks Sóphus-
sonar, formanns Sambands
ungra sjálfstæðismanna og
Vilhjálms Egilssonar,
viðskiptafræðinema, sem var
starfsmaður nefndarinnar, er
vann að úttekt á ríkisbúskapn-
um.
Framhald vald-
dreifingarhugmynda
Friðrik: Af fjölmörgum
verkefnum, sem blasa hvar-
vetna við, velja ungir sjálf-
stæðismenn þetta. Hvers
vegna?
„Ungir sjálfstæðismenn
hafa alla tið kappkostað að
móta sjálfir sína stefnu og val-
ið þau verkefni sem þeir telja
þurfa úrlausnar á hverjum
tima.
Segja má að hugmyndir
okkar um samdrátt í ríkis-
búskapnum séu unnar í beinu
framhaldi af stefnumótun
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna i valddreifingarmálum,
en þær hugmyndir sem SUS
markaði í þeim voru gefnar út
í bók fyrir landsfund Sjálf-
stæðisflokksins árið ????.
Tilgangurinn með valddreif-
ingunni í þjóðfélaginu er að
auka frelsi og framtak ein-
staklinga og félaga þeirra með
því að stjórnmálalegar ákvarð-
anir séu teknar eins nærri ein-
staklingnum og unnt er.
Þannig geta þeir öðlast meiri
áhrif á aðstöðu sína, lífshætti
og umhverfi.
í sama anda eru tillögur
okkar um nýskipan einkafram-
taks sem litu dagsins ljós árið
1975 og vöktu þá nokkra at-
hygli. Loks má nefna andóf
okkar gegn pólitísku út-
hlutunarkerfi sem birtist
meðal annars í kommissara-
kerfi Framkvæmdastofnunar
ríkisins.
Við höfum trú á þvi að hægt
sé að snúa þróuninni við og
draga saman ríkisbúskapinn.
Málið snýst um pólitiskan vilja
og kjark."
Margháttuð
athugun
Vilhjalmur nú varst þú
starfsmaður nefndarinnar. í
hverju var þitt starf einkum
fólgið?
„Ég reyndi einkum að rann-
saka ríkisfyrirtæki annars
vegar og fjárfestingar hins
vegar. í sambandi við rikis-
fyrirtækin reyndi ég einkum
að komast að því hvaða
ástæður og rök hefðu legið- að
baki stofnun þeirrá og hvort
þau rök sem notuð voru til að
réttlæta afskipti ríkisins af
framleiðslustarfseminni væru
enn í fullu gildi.
Síðan reyndi ég að leggja
niður fyrir mér hvort eitthvað
annað gæti réttlætt rikisrekst-
urinn, eða hvort breyta ætti
núverandi skipan.
Þá reyndi ég að gera mér
grein fyrir almennum
ástæðum fyrir þátttöku ríkisns
i framleiðslustarfseminni hér
á landi og þeim stjórnunarlegu
og almennu vandamáium sem
slíkri þátttöku fylgja.
í sambandi við fjárfestingar-
málin reyndi ég að gera mér
grein fyrir skipulagi þeirra og
lagði þá áherslu á athugun á
byggðastefnunni svo nefndu. í
þessu sambandi velti ég þeirri
spurningu fyrir mér, hver
væri grundvöllur ákvörðunar-
töku við fjárfestingar og hvað
væri til úrbóta.
Rfkis-
fyrirtæki
burt
í „Báknið burt“ er komið inn
á fjölmörg atriði. En á hvað
leggur þú mesta áherslu?
„í fyrsta lagi að koma nokkr-
um fyrirtækjum, sem nú eru i
eigu ríkisins, í hendurnar á
einstaklingum. Þeirra á meðal
Landssmiðjunni, Ríkisprent-
sSmiðjunni Gutenberg, Lyfja-
verslun ríkisins, Skipaútgerð
ríkisins, Síldarverksmiðjum
rikisinS, Sigló-síld og Bifreiða-
eftirlitinu.
I öðru lagi að ríkið selji
hlutabréf þau sem það á í
ýmsum fyrirtækjum.
í þriðja lagi að einkarekstri
verði skapað það umhverfi
sem nauðsynlegt er til að hann
geti dafnað. Þar á ég við breyt-
ingar á lánveitingum, hluta-
félagslöggjöf, skattalöggjöf,
verðlagsmálum og gengis-
málum.
í fjórða lagi legg ég áherslu
á að eitthvert vit fáist í fjár-
festingarmálin. Að gerðar séu
kröfur um að þeir er láni og
taki lán geri sér grein fyrir
hagkvæmum fjárfestingum.
Ennfremur að eitthvert eftirlit
sé haft með þeim sem þiggja fé
að láni úr opinberum sjóðum.
Loks er það auðvitað höfuð-
nauðsyn að pólitískar skoðanir
stjórnenda fyrirtækja séu ekki
látnar ráða á nokkurn hátt
hvort þeir fái lán eða ekki.
Sjúkdómur læknaður
með nýrri sýkingu
Miklar umræður hafa farið
fram um ríkisumsvifin undan-
farna daga og vikur. í þeim
hefur talsvert borið á því að
Sjálfstæðisflokknum hefur
verið kennt um mestan hluta
rikisbáknsins og sagt að því
farist sjálfstæðismönnum ekki
að tala um samdrátt í ríkis-
búskapnum. Hvað vilt þú segja
um þetta Vilhjálmur?
„Að sjálfsögðu getur Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki firrt sig
allri ábyrgð af bákninu, þar
sem hann hefur setið svo lengi
i rikisstjórn sem raun ber
vitni. Hins vegar er Sjálf-
stæðisflokkurinn flokkur ein-
staklingsfrelsis og einkafram-
taks. Hann sýndi það i um-
skiptunum, sem urðu eftir
1960 er Viðreisnarstjórnin tók
við völdum, að hann vill koma
hér á heilbrigðu efnahagslífi.
Það sem gerst hefur á
síðustu árum er að stjórnmála-
menn hafa reynt að ráða niður-
lögum verðbólgunnar á kostn-
að markaðskerfisins. Reynt að
lækna sjúkdóminn með því að
sýkja sjúklinginn nýjum sjúk-
dómi. En lækningin hefur bara
ekki tekist betur en svo að
sjúklingurinn situr uppi með
báðar pestirnar og sér ekki
fyrir endann á veikindunum.
Sjálfstæðisflokkurinn h^ur
nú í þessari rikisstjórn reynt
að hverfa frá þessari stefnu.
Má benda á að rikisstjórnin
hefur ákveðið og það jafnvel á
þessu þingi að leggja fram
frumvarp að breyttri verðlags-
löggjöf, sem miðar að frjálsri
verðmyndun. Einnig má
minna á samræmingu í fjár-
festingarlánakjörum.
En það er mjög mikilvægt að
sífellt sé ýtt á og barátta okkar
ungra sjálfstæðismanna
gegnir ekki síst þvi hlutverki
að hvetja forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins til að láta ekki
deigan síga í baráttunni við
báknflokkana til vinstri.
Þeir tóku þátt I umræðunum, talið frá vinstri:
Friðrik Sóphusson, Einar K. Guðfinnsson, sem
stjórnaði umræðunum, og Vilhjálmur Egils-
son.
— Slagverks-
tónleikar . . .
Framhald af bis. 15
lagsins eigi þar nokkurn hlut að.
Þessi aðferð er á vissan hátt
skemmtileg fyrir hljóðfæraleikar-
ann, en um leið og lagið missir
gildi sitt, er ekkert eftir sem heit-
ir tónsmið. öll tónskáld
improvisera og sum þeirra voru
snillingar á þvi sviði.
Hver er þá munurinn á að
improvisera á staðnum og að
fremja þessa íþrótt heima hjá sér,
rita hugmyndirnar niður og gefa
þær svo út. Meginmunurinn ligg-
ur i þvi að greining tónhugmynda
er mjög vandasamt verk, eins og
allir þeir vita sem reynt hafa að
búa til lag og rita það niður. Það
tekur langan tima að þjálfa grein-
ingar- og rithæfni manna á sviði
tónlistar, rétt eins og á öðrum
sviðum og til gamans mætti segja
að improvisering sé með líkum
formerkjum og ræðumennska,
sem ekki þýðir það sama og að
vera skáld eða rithöfundur. Marg-
ir hafa fjallað um þessa titt-
nefndu impróvisation og telja
hana í flestum tilfellum fölsun,
vegna þess að improvisator hefur
í raun og veru æft þennan leik
sinn við tiltekin lög og getur sem
bezt nýtt þessa þjálfun sina við öll
þau lög, sem byggð eru upp á
líkan hátt, sem aftur vísar til
þeirrar staðreyndar, að jassinn
hefur að mestu haldið sig við
gömlu lögin (sungin og leikin).
Þetta raus er ekki sett á blað til að
gera litið úr þeirri listgrein að
improvisera, heldur til að reyna
að skýra viðhorf tónlistarmanna
til þess munar sem er á því leika
sér frjáls, i stað þess að aga hugs-
un sína og gangast undir stranga
þjálfun til að öðlast hæfni í grein-
ingu og ritun. Þessi munur kom
mjög ljóslega fram á tónleikum
Askels Mássonar, þar sem í verk-
um hans skiptust á samdir og
improviseraðir kaflar. Flutt voru
fjögur verk eftir hann og fyrir
undirritaðan var það verk sem
hann kallar Vatnsdropinn heil-
steyptast og á köflum skemmti-
legt. Það sem teljast verður áber-
andi í vinnutækni Áskels er hvað
mikið vantar upp á að hann hafi
vald á lagferli tóna og verður
þessi vöntun meira áberandi
vegna hæfni hans i meðferð hryn-
hugmynda.
Áskell Másson er talent, sem
vex upp í umhverfi popptónlistar,
en sakir hæfileika leitar á stærri
svið og er nú í námi til að öðlast
þjálun í ritun hugmynda sinna.
Væntanlega tekst honum i fram-
tíðinni að ná þvi marki, sem hann
hefur sett sér, að verða gott tón-
skáld.
Jón Ásg.
- Hver á sér
fegra
föðurland? . . .
Framhald af bls. 14
ekki skilja orð mln á þann veg, aS
svo nefnd skemmtitónlist fyrir börn
eigi ekki rétt á sér, þvert á móti, en
þaS sjálftekna einræSisvald og fyrir-
litning á svonefndri „klassiskri" tón-
list sem einkennir málflutning þeirra
sem hafa staSiS fyrir umræSu um
tónlistarflutning undanfariS er ein-
mitt sönnun þess hve einlitt uppeldi
getur gert menn einsýna. Smekkur
fyrir tónlist er ekki eitthvaS sem
menn fæSast meS, hann er afleiSing
þjálfunar og mótast val manna oftast
af áSur fenginni reynsiu, þ.e. aS sá
sem, t.d. er alinn upp viS
„harmonikkutónlist" og hefur ekki,
siSar meir, lagt sig sérstaklega eftir
annarri tónlist. hefur I flestum tilfell-
um sérstakt yndi af upprifjun sllkrar
tónlistar. Lengi býr aS fyrstu gerS og
trúaSur á gildi tónlistar m.a. til upp-
eldis og mótunar þá gefur nýafstaSiS
söngmót fyrirheit um bjarta og fagra
tfma og trú á tilvist fagurrar tónlistar
I landinu.
AlKíLÝSINCASÍMINN EH:
22480
JRsrjyunfolahií)