Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
41
félk í
fréttum
Hún mátti
ekki verða
leikkona
+ Þetta andlit kemur okkur
kunnuglega fyrir sjónir. Jú,
það er alveg rétt, þetta er
Mæja á Stormey. Réttu
nafni heitir hún Rose-Marie
Rosenback og á heima I
Falim, litlum bæ I Dölunum
í Svfþjóð. Sagan um Mæju
á Stormey nær yfir 57 ár og
við sáum Mæju bæði sem
unga stúlku og gamla
konu. Trúlega hafa margir
reynt að giska á hve gömul
hún er t raun og veru. Rose-
Marie Rosenback er 30 afa,
og segist vera ósköp venju-
leg stúlka. Hún vinnur
hluta úr degi á teiknistofu
er ekki gift en býr með
manni sem heitir Sune og
starfar sem aðstoðarmaður
fógeta. Þau eiga einn son,
Thomas, sem er 5 ára.
Rose-Marie Rosenback er
fædd og uppalin á Álands-
eyjum. Faðir hennar var
smiður og fjölskyldan var
fátæk. Hana dreymdi um
að verða leikkona en það
máttu foreldrar hennar ekki
heyra nefnt, það var engin
framtfð f þvf, og þá fóru
börnin eftir þvf sem foreldr-
arnir sögðu. Allir sem leika
f myndinni um Mæju á
Stormey eru áhugaleikarar
og þeir eru allir ættaðir frá
Álandseyjum. Það var f
byrjun árs 1975 sem byrjað
vara að taka myndina og þa
tók f allt 120 daga, stund-
um með löngum hléum á
milli. Henni var þó lokið
fyrir árslok. Fólkið bjó t
tjöldum á Stormey á meðan
á gerð myndarinnar stóð og
Rose-Marie Rosenback
segir að það hafi verð
yndislegur tfmi. Janne
heitir f veruleikanum Leif
Sundberg og er málari á
Álandseyjum. Rose-Marie
segir að erfiðast hafi verið
að fá nógu mörg börn til að
leika barnahópinn hennar.
Börnin stækka eftr þvf sem
á myndina Ifður og alltaf
þurfti að vera að skipta um
. T.d. leika 5 stúlkur elstu
dóttur hennar Marfu. Son-
ur hennar, Thomas, leikur
einn son hennar f mynd-
inni. „Ég á margt sameigin-
legt með Mæju á
Stormey," segir Rose-
Marie. „Við erum báðar
hlédrægar og ekki mikið
fyrir að trana okkur fram og
ég held að við hugsum
eins. Myndin um Mæju ó
Stormey hefur verið sýnd f
mörgum löndum og hefur
hlotið mikið lof. Rose-
Marie segir að hún hafi f
fyrstu haft dálftið gaman
af, þegar fólk sneri sér við á
götu og spurði hana hvort
hún væri virkilega Mæja á
Stormey, „En ég komst
fljótlega að þvf, að það er
best að vera bara venjuleg
óþekkt stúlka "
Spánarstjórn
hækkar kaup
Madrid, 25. marz Reuter
SPÆNSKA stjórnin tiikynnti í
dag meiriháttar hækkun á lág-
markslaunum og hækkun launa
opinberra starfsmanna og
hermanna f samræmi við
almenna verðþróun.
En stjórnin brást vonum
stjórnarandstöðunnar um að hún
myndi leysa upp hina valdamiklu
Þjóðhreyfingu, sem var eina
stjórnmálahreyfing sem leyfd var
á dögum einræöðisstjórnar
Francos.
Eftir 10 klukkustunda langan
fund tilkynnti atvinnumálaráð-
herrann að Iágmarkslaun myndu
hækka um 27,5% en þau hafa
haldist óbreytt í eitt ár.
Til þess að bæta upp almennar
verðhækkanir sem hafa verið um
20% á ári, lofaði stjórnin opinber-
um starfsmönnum og hermönnum
launahækkun frá næsta ári. Ekki
var tilgreint hve mikil hækkunin
ætti að verða.
Hermenn sem hafa aukastörf,
mega hins vegar ekki gegna
borgaralegum störfum eftir að
launahækkanirnar hafa komið til
framkvæmda.
Þjóðarhreyfingin, sem hefur
50.000 starfsmenn, er sterkasta
stjórnmálaafl á Spáni og stjórnar-
andstaðan óttast að hún muni
hafa mikil áhrif í kosningunum i
sumar í gegnum öll þau dagblöð
og útvarpsstöðvar sem hún hefur
yfir að ráða.
í tilkynningu frá rfkisstjórnar-
fundinum sagði aðeins að fallist
hefði verið á tillögur hreyfingar-
innar sjálfrar um breytta stööu
hennar. Nánar var ekki farið út í
þau atriöi.
Heilsuræktin
Heba
Nýtt námskeid í leikfimi
og megrun hefst 4. apríl.
Innritun er hafin í síma
42360. Pantiö tímanlega.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Hamborq
12 mannamatar-ogkaffistell
úr pólsku steintaui
Vegna sérstaklega góðra innkaupa getum við
boðið þessi stell á mjög góðu verði.
12 manna
matarstell
kr. 15.780,-
1 2 grunnir diskar
1 2 djúpir diskar
2 steikarföt
1 sósukanna
1 mjólkurkanna
3 áleggsdiskar
31 . stykki
Gerið góð kaup
12 manna
kaffistell
kr. 10.300,-
með
kaffikönnu
kr. 11.220,-
1 2 bollar
1 2 brauðdiskar
1 sykurkar
1 rjómakanna
1 kaffikanna
1 kökudiskur
40 stykki
bdsahöi
G LERVÖRU R
Sendum f póstkröfu um allt land