Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 40
rU<a,VsiN(ÍASÍM!NN KK:
22480
JHoveunblnöit)
au(;lysin(;asímí\n er:
22480
JHoreimblnÖiD
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
Loðna finnst í Ólafsfirði:
Arni tvífyllti
sig þar um helgina
□ -----------------------------n
Loðnuskýrslan er birt á bls 3G
□ -----------------------------□
— ÞAÐ VAR haft samband við
mig frá Ólafsfirði og mér sagt að
það væri „Ioðnulegt“ f firðinum.
Ég ákvað að kanna máiið og ég
hef fengið tvisvar í bátinn núna
um helgina, sagði Eggert Gfsla-
son, skipstjóri og margfaldur
aflakóngur á loðnuskipinu Gfsla
Arna RE f samtali við Mbl. f gær-
kvöldi. Hann var þá að landa 520
tonnum af loðnu hjá SR á Siglu-
firði en aðeins nokkrum klukku-
tfmum áður hafði hann landað
400 tonnum hjá sömu verk-
smiðju.
Að sögn Eggerts virðist talsvert
vera af loðnu í Eyjafirði. Þetta er
falleg loðna og hún á ennþá eftir
viku í hrygningu. Þegar fréttirn-
ar bárust um loðnufundinn í
Eyjafirði lögðu margir bátar af
stað þangað, þar af nokkrir bátar,
sem hættir voru á veiðum vegna
Framhald á bls. 46
99
Ég vil ekki
vinna Spassky
á þennan hátt
— MÉR þykir þetta mjög
leiðinlegt, ég vil ekki vinna
einvfgið á þennan hátt, sagði
Vlastimil Hort frá Tékkó-
slóvakfu f viðtali við Morgun-
blaðið i gærkvöldi. Var Hort
greinilega sleginn yfir fréttun-
um um veikindi Spasskys og
endurtók f sífellu að hann
hefði engan áhuga á að sigra f
einvfginu með því að Spassky
veiktist.
— Ég vil tefla, en ég veit að
Spassky getur ekki setið við
skákborðið eftir aðeins eina
viku. Ég vona að honum batni
fljótt, þótt sjúkdómurinn hafi
sennilega skemmt fyrir hon-
um þetta einvfgi, þá vona ég að
hann geti fljótlega setzt að
skák einhvers staðar annars
staðar. í gær var hann heil-
brigður, nú er hann illa hald-
inn á sjúkrahúsi, ég skil þetta
ekki, sagði Hort, yppti öxlum
og fórnaði höndum.
Maður
drukknaði í
Hornsvík
SÍÐDEGIS á sunnudag varð
það slys f Hornsvfk, sem er
skammt austan við Stokksnes,
að litlum hráðbáti með þrem-
ur mönnum innanborðs
hvofldi. Einn mannanna, Jón
E. Ágústsson drukknaði, en
hinir tveir, Ásgeir Núpan og
Guðjón Jónsson, náðu til lands
þrekaðir mjög. Jón E. Ágústs-
son var 34 ára gamall, bifreiða-
eftirlitsmaður á Höfn í Horna-
Framhald á bls. 46
ORSAKIR OKUNNAR — Rannsóknarlögreglan f Reykjavfk hefur ekki ennþá getað kannað til hlftar
hvað olli brunanum f Bernhöftstorfunni á laugardaginn. Ástæðan er sú, að ekki hefur verið tekin
ákvörðun um brottflutning brunarústanna og á meðan svo er, getur lögreglan ekki gert sfnar
athuganir á staðnum. Það liggur þó Ijóst fyrir, að rafmagns var leitt f húsin, þannig að fkveikja þarf
ekki að hafa verið orsök brunans. Myndin sýnir hvernig umhorfs var á brunastað f gær.
Ljósm. Mbl. RÁX.
Fiskiskipaflotinn:
Aflaverðmætið jókst um tæp
60% eða 9,9 milljarða á s.L ári
Aflahlutir sjómanna jukust um 46% eða 2,9 milljarða
TALIÐ er að aflaverðmæti fs-
lenzka fiskiskipaflotans milli ár-
anna 1975 og 1976 hafi vaxið úr
16.7 f 26.6 milljarða kr. eða um
9.9 milljarða kr. sem eru tæp
60%. Skiptaverðmætið hækkar
meira en aflaverðmætið eða um
68% og byggist á lækkun
greiðslna f stofnfjársjóð. Afla-
hlutir hafa hins vegar hækkað
nokkru minna en aflaverðmætið,
eða um 46% og er það vegna
lækkunar á skiptaprósentunni.
Þetta kom m.a. fram f ræðu Mgtt-
hfasar Bjarnasonar sjávarútvegs-
ráðherra á sjávarútvegsráðstefn-
unni, sem haldin var f félags-
heimilinu á Hnffsdal s.l. sunnu-
dag.
Um 80 manns voru á sjávarút-
vegsráðstefnunni, sem hófst kl. 10
um morguninn og lauk kl. 17.30
síðdegis. í upphafi ráðstefnunnar
fluttu eftirtaldir erindi auk sjáv-
arútvegsráðherra: dr. Björn Dag-
bjartsson, dr. Jakob Magnússon,
Ingólfur Ingólfsson og Kristján
Ein víginu lokid — eða
því f restað um mánuð?
Skáksambandið byrjaó að taka niður útbúnað á Loftleiðum
„UM FRAMHALD einvfgisins er
ekkert hægt að segja á þessu s‘igi
málsins, en ljóst er að Spassky
mun ekki geta sinnt skákkeppni
næsta mánuðinn." Þannig segir f
fréttatilkynningu frá Skáksam-
bandi tslands, sem gefin var út í
gærkvöldi. Vegna veikinda
Spasskys hefur einvfgi hans við
Hort verið frestað og málið falið
dómnefnd þeirri, sem skipuð var
fyrir einvfgið, til umfjöllunar.
Mögulegt er að skákeinvfgi Horts
og Spasskys sé hér með lokið og
Spassky skorinn upp
vegna botnlangabólgu
BORIS Spassky, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, var í gær-
kvöldi skorinn upp á Land-
spítalanum og tekinn úr honum
botnlanginn. Kenndi Spassky
veikinda þegar að lokinni 12.
einvfgisskákinni á sunnudags-
kvöldið og var sóttur fyrir hann
næturlæknir þá um nóttina.
Um hádegi í gær var Spassky
svo fluttur á Landspítalann. Er
hann þar á eins manns stofu og
voru þau Marina Spassky, kona
hans, og Vasily Smyslov hjá
honum á sjúkrahúsinu mestan
tímann.
Það var greinilegt að lokinni
skákinni á sunnudaginn að
Spassky var ekki heill heilsu,
en fáa grunaði að hann væri svo
þjáður, sem síðar kom í ljós. í
fréttatilkynningu frá Skáksam-
bandinu, sem gefinn var út í
gærkvöldi, segir að Spassky
hafi gengist undir uppskurð og
hafi reynzt vera um bráða botn-
langabói^u að ræða, litlu hefði
mátt muna að botnlanginn
hefði sprungið. Segir í tilkynn-
ingunni að uppskurðurinn hafi
gengið að óskum.
að Hort verði úrskurðaður sigur-
vegari. Þá er einnig fyrir hendi sá
möguleiki að keppendur sættist á
að Ijúka einvfginu eftir mánuð,
en samkvæmt reglum FIDE um
slfk einvfgi á hver keppandi rétt á
að fresta þremur skákum vegna
veikinda og þýðir það f raun að
Spassky ætti að mæta við skák-
borðið á þriðjudaginn eftir viku.
Skáksambandsmenn byrja í dag
að taka niður útbúnað þann sem
settur var upp á Loftleiðahótelinu
fyrir einvígið. Verður sjónvarps-
kerfið fjarlægt, svo og lýsingin,
sem sérstaklega var sett upp fyrir
einvígið. Á morgun verður því
væntanlega fátt eitt eftir á Hótel
Loftleiðum, sem minnir á
einvígið, en um helgina á að hefj-
ast þar ráðstefna, sem ákveðin
var fyrir meira en ári siðan.
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambandsins, sagði i viðtali
við Morgunblaðið í gær að Skák-
sambandið hefði vísað þessu máli
til dómnefndar, sem skipuð var
fyrir einvigið. i henni eiga sæti
þeir Guðmundur Arnlaugsson,
Framhald á bls. 46
Meðalháseta-
hlutur 405
þús. kr.
Meðalhásetahlutur á vest-
firzku skuttogurunum er nú
405 þús. kr. á mánuði miðað
við að þeir afli svipað og á
sfðasta ári. Hins vegar er
meðalhásetahlutur á öllum
minni skuttogurum lands-
manna 359 þús. kr. á mánuði,
miðað við sama aflamagn og f
fyrra og verðlag nú. Orlof er
hér ekki reiknað með, en út-
haldsdagar taldir vera 330 tals-
ins.
- Framhald á bls. 38
Ragnarsson. Að erindunum lokn-
um svöruðu þessir sömu menn
fyrirspurnum fundarmanna, og
einnig sátu fyrir svörum þeir Ein-
ar B. Ingvarsson aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra, Jón I. Arn-
alds ráðuneytisstjóri, Halldór
Hermannsson skipstjóri og Þórð-
ur Eyþórsson fulltrúi.
1 ræðu sinni á ráðstefnunni
vitnaði Matthías Bjarnason sjáv-
arútvegsráðherra i skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar og sagði: „Eftir
hækkun skiptaverðmætis um ná-
lægt 68% og lækkun skiptapró-
sentu um 14.4% hækka aflahlutir
til sjómanna milli áranna
1975—1976 um 2.9 milljarða kr.
eða 46%. Ekki liggur ljóst fyrir
hver breyting hefur orðið á fjölda
sjómanna og þar með tekjum á
hvern sjómann.
Hins vegar má geta þess til sam-
anburðar, að kauptaxtar verka-
fólks og iðnaðarmanna hafa
hækkað um 26—27% og meðal
atvinnutekjur þeirra um 30%
Framhald á bls. 46
„Þjófur í Paradís”:
Borgardómur felldi
lögbannið úr gildi
DÓMUR var f gær kveðinn '_^>p f
borgardómi Reykjavfkur f máli,
sem Sigrfður Jónsdóttir og börn
hennar og Tómasar Jónssonar
höfðuðu til staðfestingar á lög-
banni, sem að þeirra beiðni var
sett á lestur sögunnar „Þjófur f
Paradfs" eftir Indriða G. Þor-
steinsson f útvarp fyrir nokkrum
mánuðum. Varð niðurstaða dóms-
ins sú, að Indriði G. Þorsteinsson
og Rfkisútvarpið var sýknað af
öllum kröfum og lögbannið úr
gildi fellt.
Dóm þennan kváðu upp
Guðmundur Jónsson borgar-
dómari, sem var dómsforseti, og
meðdómendurnir Jón Arnalds
lögfræðingur og Vésteinn Ólason
lektor. Málskostnaður var felldur
niður, en málsaðilar verða að
greiða lögfræðingum sinum
sjálfir kostnað við rekstur máls-
ins.
Lögfræðingur stefnenda var
Kristján Eiríksson hrl., lögfræð-
ingur Indriða G. Þorsteinssonar
var Hrafnkell Ásgeirsson hrl. og
lögfræðingur Ríkisútvarpsins var
Lúðvik Ingvarsson prófessor.