Morgunblaðið - 07.04.1977, Page 12
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍI. 1977
Félagar ú Svifflugfélaginu að
smíða sér svifflugu á árunum
fyrir stríð. Fremst eru bræðurn-
ir Geir og Indriði Baldurssynir,
Jón Dan lengst til hægri og til
vinstri Kristinn Árnason úr
Hafnarfirði og Helgi Filipusson.
Þessi brot úr sprengikúlum loftvarnabyssna féllu yfir Reykjavík í
skothríðinni 1. apríl 1 941, og fundust í miðbænum. Það þyngsta
er 1 1 5 gr. að þyngd.
hann sá 2ja hreyfla flugvél
skammt norðan við Vífilfellið, í
tæplega 100 m hæð. Ifyrstu tók
hann að velta fyrir sér hvort Bret-
arnir gætu verið komnir með
Bristol Blenheim vélar. En meðan
hann var að hugleiða þetta og var
kominn út úr bilnum, flaug vélin
rétt norðan við hann. Og hann sá
greiniiega svarta krossinn á hlið-
inni og hakakrossinn á stefninu.
Einnig vélbyssurnar tvær, sem
stóðu út úr flugvélinni og var
annarri beint í átt til hans. Agnar
kvaðst hafa verið fljótur að koma
sér i skjói við bílinn, þegar hann
sá hvers kyns var. Ekki var gott
að vita hvað gæti hent, enda var
það þessi flugvél, sem áður fluag
lágt yfir Ölfusárbrú og svaraði
skothrið Bretanna. En Agnari var
ekki til setunnar boðið, þegar
þýzka fiugvélin var fiogin hjá, þvi
hann var formaður loftvarna-
nefndar og snarsneri við og
brenndi í bæinn.
Þýzku flugvélarnar komu frá
Stafangri í Noregi og telur Agnar
að hver vél hefði sennilega ekki
getað borið meira en eina 250 kg
sprengju á þessari leið. En slík
sprengja hefði auðvitað getað
eyðilagt hús, þar sem hún kom
niður. Hins vegar hefðu þær get-
að borið fjölda af ikveikju-
sprengjum og þær voru hættuleg-
ar. Ekki kom til þess að sprengj-
um væri varpað niður hér á
Suðurlandi. En þýzkar flugvélar
gerðu, sem kunnugt er, síðar skot-
árásir á strandferðaskipið Súðina
og á Seyðisf jörð, og víðar.
Flugvélin, sem sagt var frá í
upphafi þessarar greinar, var
fjögurra hreyfla þýzk Focke-
Wuif-Kurier sprengju- og könn-
anarflugvél. Hún birtist laust eft-
ir kl. 10 þennan sunnudagsmorg-
un, sveimaði góða stund yfir
Reykjavik, en hvarf siðan-í suður-
átt. Brezka setuliðið skaut á hana
úr loftvarnabyssum, en ekkert
skot hæfði þó að nokkur þeirra
færu all-nærri, segir I Morgun-
blaðinu. Brezkar flugvélar hófu
sig til flugs af flugvelli nálægt
borginni, og sást síðast til þýzku
vélarinnar við Vestmannaeyjar
með 3 brezkar á eftir sér. Er þess
getið að hún hafi klukkustundu
áður flogið hjá Vestmannaeyjum
á leið til Reykjavikur og hefði þá
verið hægt að hringja og aðvara
þaðan.
Loftárásar-hættumerki var ekki
gefið fyrr en flugvélin hafði
sveimað góða stund yfir bænum
og farið var að skjóta úr loft-
varnabyssum. Hættumerki með
simhringingu kom svo ekki fyrr
en mínútu eftir að gefið hafði
verið merki með loftvarnalúðr-
um, segir i Morgunblaðinu, sem
hafði til sýnis í glugga sinum
mörg kúlnabrot úr loftvarna-
byssu, allt upp í 115 gr. að þyngd,
sem fundizt höfðu víðs vegar um
bæinn úr loftvarnakúlum Bret-
anna. Kona ein á Njálsgötu 17
stóð á ganginum undir þakglugga,
þegar sprengjubrot kom fljúg-
andi inn um gluggann og munaði
ekki nema hársbreidd að hún yrði
fyrir þvi.
Þetta var þriðja heimsókn
þýzkra flugvéla, sem Reykviking-
ar fengu. En hvað um kveðjur
þýzku flugmannanna til íslenzku
svifflugmannánna, sem sögur
fóru af? Agnar Kofoed Hansen
segir þær vera hreinan uppspuna.
Hann hafi sjálfur verið mikið á
Sandskeiði og hafi nú borið sig
saman við aðra sem þar voru, og
örugglega hafi það aldrei gerzt að
þýzkir flugmenn veifuðu eða
hentu bréfi niður þar. Og hvað
söguna um flugmanninn, sem
skaut sér inn í Jósefsdal snertir,
þá sé svigrúmið þar of litið til að
svo stór flugvél hefði getað sveim-
að þar. Kannski hefðu verið þar
möguleikar fyrir litla svifflugu.
En þýzku flugvélarnar flugu lágt
yfir Sandskeiðið í báðum leiðum,
segir hann, eins og eðlilegt er, ef
iitið er á landakortið. Þær komu
að landinu milli Vestmannaeyja
og lands og vegurinn yfir
Hellisheiði var þá visst kennileiti
til að fljúga eftir yfir f jöllin.
Varðmenn í
Landakotsturni
1 fréttinni í Morgunblaðinu er
frá því sagt að fólk hafi leitað i
loftvarnabyrgi, þó borið hafi á því
að það hafi leitað úr byrgjunum
áður en merki var gefið um að
hættan væri liðin hjá. Og þess er
getið að þennan sunnudagsmorg-
un hefði lögregla bæjarins nýlega
verið búin að ljúka loftvarnaæf-
ingu, er hin þýzka flugvél birtist
yfir bænum og hjálparsveitir á
nokkrum stöðum voru einnig að
æfingu um svipað leyti. Hefði því
átt að ganga greiðlegar að koma
fólki i byrgin.
Þetta virðist aiveg einstök
heppni. Og það þótti Bretunum
lika, að þvi er Agnar segir. —
Þeir héldu að ég hlyti að vera i
beinu sambandi við „mina menn“
i Þýzkalandi, því ég hafði tvisvar
eða þrisvar sinnum fyrirskipað á
föstudagskvöldi loftvarnaæfingu
á sunnudagsmorgni, þegar svo
þýzkar flugvélar komu, sagði
hann. En ég hafði lært veður-
fræði, verið i tvö ár í námi hjá
Jóni Eyþórssyni áður en ég fór út
til flugnáms og það var auðvelt
fyrir mig sem sæmilegan flug-
mann og veðurspámann að vita
hvenær væru hagstæð skilyrði
fyrir þýzku flugvélarnar að fljúga
þessa löngu leið til Islands. Þetta
skildi Bretinn ekki og var tor-
trygginn.
— Ekki bætti heldur úr skák,
að það kom fyrir að við gáfum
borgurunum merki um hættu áð-
ur en Bretar höfðu gert sér grein
fyrir þvi hvað um var að vera,
þegar þýzkar flugvélar komu inn
yfir, heldur Agnar áfram. En
þannig stóð á því, að við höfðum
komið fyrir aðvörunarkerfi upp í
Landakotsturni og ég fékk leyfi
Meuienbergs biskups til að hafa
alltaf menn á vakt i turninum. Ef
þeir sæju eitthvað, sem gæti bent
til þess að hætta væri á ferðum,
máttu þeir umsvifalaust setja
sírenuna i gang og gefa hættu
merki. Og til þess valdi ég eiau
sérfræðingana, sem íslendingar
áttu á sviði flugmála, strákana úr
Svifflugfélaginu. Þeir þekktu
hverja flugvélategund og voru
mjög áhugaeamir. 1 fyrstu skipt-
ust þrir á, höfðu 8 tima vaktir,
það voru þeir Björn Jónseon,
deildarstjóri, sem seinna varð yf-
irflugumferðaretjóri, siðan fram-
kvæmdastjóri flugöryggisþjónust-
unnar, þá starfsmaður Alþjóða-
flugmálastofnunarinnar í 7 ár,
um tíma hjá Loftleiðum og er svo
nú yfirmaður alþjóðadeildarinnar
hér hjá okkur. Annar var Leifur-
Grímsson, síðar skipasmiður, og
loks Hörður Jónsson, efnaverk-
fræðingur. Siðar bættust í hópinn
Ásbjörn Magnússon, auglýsinga-
stjóri hjá Loftleiðum, Helgi
Filippusson, stórkaupmaður og
Halldór Sigurjónsson, sem lengi
var yfirflugvirki hjá Loftleiðum.
Þýsku svifflugurnar á Sandskeiði 1 938