Morgunblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977
5
/
Olafur Bjömsson prófessor:
Eðlilegt að ræða fast-
setningu lágmarkslauna
„MÚR finnst eðlilegt að menn
ræði að minnsta kosti þann
möguleika að fastsetja lág-
markslaun, eins og nú er ofar-
lega á baugi I kröfum verka-
lýðsfélaganna og bæta með
þeim kjör þeirra sem vest eru
settir, en hins vegar tel ég að
almennt séu kröfur launþega-
samtakanna langt umfram það
sem er raunhæft. Það er
auðvitað óhugsandi að öll
grunnlaun I landinu hækki um
50% eða meir“. Þetta sagði
Ólafur Björnsson prófessor í
samtali við Morgunblaðið I gær
um þá kjarasamninga, sem nú
er unnið að.
„En ef ákveðin verða lág-
markslaun," sagði Ólafur,
„verður að gæta þess vandlega
að þau verði ekki sett með þeim
hætti að sá kaupmáttur sem
þau fela í sér eyðist allur í
verðbólgu.
Það eru fleiri atriði, sem þarf
að gæta að þegar settar eru svo
ósveigjanlegar reglur, sem lág-
markslaun myndu verða. Laun
skipta miklu máli fyrir afkomu
fólks, en það eru einnig önnur
atriði, sem skipta nokkru eins
og húsnæðiskjör.
Ef húsnæóiskjör manns, sem
hefur tiltölulega há laun, eru
léleg geta kjör hans reynst
verri en láglaunamanns, sem
býr við góð húsnæðiskjör.
Einnig þarf að taka tillit til
fólks, sem er heft að einhverju
leyti og á af þeim ástæðum
erfitt með að fá vinnu. Það gæti
verið bjarnargreiði fyrir það
fólk ef lágmarkslaun tíðkuðust
því þau gætu leitt til þess að
enn erfiðara verður fyrir þetta
fólk að fá atvinnu.
Það má einnig benda á áhrif
lágmarkslauna fyrir konur sem
ákveðið var að skyldu verða
þau sömu og fyrir karla, og um
það var enginn ágreiningur.
Eftir að þessi lágmarkslaun
voru sett hefur atvinnuleysi
meðal kvenna, þegar um það
hefur verið að ræða, orðið
meira en á meðal karla. Meira
að segja á kreppuárunum, þá
þekktist það varla að kona væri
atvinnulaus, en nú eru þær
fyrstar til að missa vinnuna. Ég
er ekki að andmæla því að lág-
markslaun séu sett, heldur að
benda á það aó alla gát verður
að hafa á.“
Aðspurður um fyrirkomulag
kjarasamninganna sagðist Ólaf-
ur telja það vera orðið úrelt og
úr tengslum við veruleikann
„Samningafyrirkomulagið er
arfur frá tímum þegar að-
stæður voru allt aðrar en nú.
Það er sniðið að aöstæðum eins
og þær voru fyrir 40 árum síðan
þegar Dagsbrún þráttaði við
vinnuveitendur um það hvort
tímakaupið ætti að vera 10 eða
15 aurum hærra, um skiptingu
arðsins á milli launþega og
vinnuveitenda. Nú er verið að
semja um kjör fyrir 70%
þjóðarinnar og rauntekjur
fremur en peningalaun. Nú er
beðið eftir gagntilboði frá at-
vinnurekendum en tveir þriðju
hlutar krafnanna eru utan
valdsviðs þeirra. Gagnstætt því
sem var í gamla daga, þá snertir
það atvinnurekendur lítið hvað
samið er um. Þeir sem selja á
innanlandsmarkað eru löghelg-
aðir með verðlagsreglum gagn-
vart verðbreytingum. Þeir sem
flytja út, hafa að vísu aðra
stöðu, en þar sem afkoma
þjóðarinnar veltur á gjaldeyris-
öflun þá ættu þeir að geta skrif-
að undir hvaða samninga sem
er vegna þess að ráðstafanir
hljóta að verða gerðar til að
tryggja hag útflutningsatvinnu-
veganna. Kringumstæðurnar
eru því allt aðrar nú en áður.“
Varðandi æskilega útkomu
kjarasamningana sagði Ólafur:
„Menn verða að gera sér
grein fyrir því hvað er til skipt-
anna. Það er aðallega með
þrennum hætti, sem hugsanlegt
er að veita kjarabætur. Það er i
fyrsta lagi samfara auknum
þjóðartekjum, en því er spáð að
aukning þeirra verði um 5% á
þessu ári. Þó að prósentu-
hækkunin, sem aukning þjóðar-
teknanna gerir mögulega sé
lág, þá er hún hærri en oft
áður.
í öðru lagi ef raunveruleg
kjarabót á að vera umfram
þjóðarframleiðslu, má hugsa
sér að taka lán erlendis til að
nota til greiðslu á því sem er
umfram það sem þjóðarfram-
leiðslan stendur undir. En um
þetta þarf ekki að ræða og
verkalýðshreyfingin hefur
skilning á því að þessi leið er
ófær.
í þriðja lagi kemur til greina
að auka neyzlu á kostnað fjár-
festingar, en ekki er vitað hve
langt er hægt að fara í því
efni.“
Ólafur kvað síðasta atriðið
mjög mikilvægt þvi að átökin í
dag væru ekki lengur átök um
hvernig skiptingin ætti að vera
á milli atvinnurekenda og laun-
þega heldur um það hvernig
skiptingin ætti að vera á milli
fjárfestingar og neyzlu og það
væri auðvitað inni á valdsviði
ríkisins.
„Hvað fjárfestingar snertir
þá hefur afstaðan verið sú sama
hjá öllum ríkisstjórnum, sem
setið hafa undanfarin 30 ár. A
það hefur verið lögð áhersla að
taka sem mest af-því sem er til
skipta í fjárfestingu einkaaðila
og ríkisins. Ef breyting á að
verða á þessu verða menn að
átta sig á því að samdráttur í
fjárfestingu getur valdið at-
vinnuleysi.
Varðandi samningana núna
finnst mér öðru fremur að
miklum tima sé eytt í ófram-
kvæmanleg viðfangsefni. Ég tel
það vera verk fyrir hagfræð-
inga ríkisins og aðila vinnu-
markaðarins að vinna að því að
breyting verði á þessu. Nú
Minna selst af
megrunarlyfjum
í jólamánuðinum
(JTTEKT á ávfsun megrunarlvfja
hefur leitt I Ijós, að verulega virð-
ist draga úr neyzlu megrunar-
lyfja í desembermánuði og styður
það þær grunsemdir, að fólk láti
Ifnurnar lönd og leið þegar jóla-
kræsingarnar eru annars vegar.
Að sögn Almars Grímssonar,
deildarstjóra í heilbrigðisráðu-
neytinu, var af sérstökum ástæð-
um gerð athugun á ávísunum
lækna á megrunarlyf. Voru teknir
þrír síðustu mánuðir siðastliðins
árs og einnig liggja fyrir niður-
stöður fyrir tvo fyrstu mánuði
þessa árs. Neyzlan er mæld I dag-
skömmtum miðað við 100 íbúa og
kom í ljós að i október sl. var
neyzlan 1.5 skammtar, 1.3
skammtar i nóvember en tæplega ;
einn skammtur i desember. í
janúar fór neyzlan aftur upp á við
eða í 1,2 skammta og jókst enn i
febrúar í 1,4 skammta.
Almar sagði, að frávikin í des-
ember bentu ótvirætt til þess að
fólki væri þá minna umhugað um
línurnar en endranær og að þessi
niðurstaða gæfi einnig tilefni til
að kanna frekar hvernig neyzlu-
venjur fólks á þessum lyfjum
væru á öðrum árstímum.
segja hagfræðingarnir að þeir
séu í samningunum aðeins sem
tæknimenn og að húsbændur
þeirra. sjái um að marka stefn-
una. En ég álit að þeir eigi að
gera þeim það ljóst hvað sé
framkvæmanlegt og hvað ekki.
Til dæmis verða hagfræðing-
arnir að benda á atriði eins og
þau að 30% kauphækkun getur
þýtt það að fjárfesting fari
niður i ekki neitt, og er því
fráleit“.
—En eiga íslendingar þá að
sætta sig við það að búa al-
mennt við lægri laun en gerist i
nágrannalöndunum?
„Þetta atriði, hvort ísland
eigi að vera eða sé láglaunaland
hefur borið á góma í samning-
unum og verkalýðssamtökin
hafa beitt þeirri röksemd að
þjóðartekjur á hvern íbúa séu
svipaðar hér og i Noregi og
Danmörku en iaunin séu lægri.
Auðvitð eiga þau heimtingu á
að fá greinargóð svör við þess-
ari spurningu.
Hins vegar ber að benda á
það að kaupsamanburður við
þessi lönd er gerður á grund-
velli timakaups, en ef heildar-
tekjur væru notaðar til viómið-
unar væri munurinn mun
minni. Vinnutíminn er vissu-
lega lengri hér, kannski vegna
þess að við höfum vanið okkur
á aðra starfshætti.
Þá verður að hafa i huga að
ísland er harðbýlla land en
Danmörk og Noregur; þvi eru
lakari kjör ef til vill óhjá-
kvæmileg. Það má nefna að
búvöruframleiðsla er dýrari
hér en í Danmörku vegna erfið-
ari landshátta og vegna þess
hve búvörur eru þungar á met-
um hjá láglaunafólki hefur
þetta þýðingu. Meira er einnig
tekið af óskiptu til fjárfestíng-
ar og opinberra þarfa hjá okk-
ur. Hins vegar eru beinir skatt-
ar af launum hærri þar.“
,,í þessu sambandi," sagði
Ólafur, „langar mig til að
benda á hugmynd, sem ég flutti
þingsályktunartillögu um. Hún
er þannig að ef aðilar vinnu-
markaðarins geta ekki náð sam-
komulagi þá ákveði launþegar
sjálfir sinn vinnutaxta, svipað
og leigubílstjórar og bæru svo
sjálfir ábyrgð á þvi hvort þeir
fengju vinnu og löguðu taxtann
eftir atvinnuástandi. Þessi húg-
mynd hefur verið rædd í
nágrannalöndunum, en hér
hefur hún fengið meiri undir-
tektir hjá vinnuveitendum en
launþegum“.
Fjölbreytt
úrval
fermingargjafa frá
hlinn
fullkomni
rekkjunautur
er útvarpsklukka frá SHARP sem
svæfir þig á kvöldin með ómum
góðrar tónlistar. Þegar þú er
kominn í draumalandið þá
slekkur rekkjunauturinn á út-
varpinu án þess þó, að sofna
sjálfur, því hann vekur þig aftur
að morgni.
Meö
hleðslutæki
og í leðurkápu.
Kr. 12.900,-
Hárrúllur
24 hárrúllur (4 stærðir)
þar af 10 litlar,
4 heit klips,
Mini krullupinnar.
Allir hlutir heitir.
Góðurspegill Ferðataska
Talva
m/ljósaborði
og strimli
Frábær vél, sem sameinar kosti
reiknivélar og tölvu. Kemst
auðveldlega i skjalatösku. Breidd
10 cm., þykkt 4,7 cm , lengd 18
cm„ þyngd 520 gr Leðurhylki,
hleðslutæki, bæði fyrir batteri og
rafmagn.
Ferðatæki
m/segulbandi
Ein beztu
ferðatækin á
markaðnum
Skóla-
tölvur
ávallt í fararbroddi