Morgunblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977
37
menni og vini, þegar mönnum er
kippt burtu úr lífinu fyrir aldur
fram, það skapast tóm sem erfitt
er að sætta sig við en samt má það
sætta sig við en samt má það vera
nokkur huggun og harmabót,
þegar sá látni hefur lokið giftu-
ríku lífsstarfi, látið gott af sér
leiða, komið upp mannvænlegum
barnahópi og skilað þjóðfelaginu
löngu og miklu starfi. Það er sá
bautasteinn , sem hver maður má
vera vel sæmdur af. Slíkum
mönnum er gott að hafa kynnst á
lifsleiðinni og væri betur, ef
ísland ætti fleiri slíka syni, þá
væri öðruvísi umhorfs í samfélagi
okkar og færri torleyst vandamál
við að etja.
Mig grunar, að hugur Kristjáns
hafi staðið til frekari menntunar
en Héraðsskóli Austurlands gat
veitt honum, til þess benti greind
hans og áhugi á skáldskap og
orðasöfnun sem og lifandi áhugi á
mörgum menningarmátum, en
skyldustörf munu hafa komið í
veg fyrir það.
Það var okkur hjónum ávallt
tilhlökkunarefni að sækja heim
Kristján og hans ágætu konu og
mæta hlýlegu viðmóti og sérstakri
gestrisni á vistlegu heimili þeirra
hjóna, sem mótað var af myndar-
skap, sem húsfreyjan átti ekki
minnstan þátt i.
Að lokum er skylt og ljúft að
minnast þeirrar kærleiksríku um-
önnunar, sem Kristján átti að
mæta í veikindum sínum af halfu
Aðalheiðar uns yfir lauk. Hún
stóð við hlið hans alla tið í blíðu
og stríðu af mikilli trúmennsku
og myndarbrag.
Um leið og Kristján
Þorsteinsson er kvaddur með
þökk fyrir löng og góð kynni,
sendum við hjónin eftirlifandi
eiginkonu, börnum og öðrum
vandamönnum samúðarkveðju
okkar. Það má vera þeim öllum
huggun í söknuði og sorg að minn-
ast hins mæta drengskapar-
manns.
Hermann Guðbrandsson.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rðtt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V.B.)
Ég, sem þessi minningarorð rita
hef fylgzt með hinni löngu bar-
áttu, sem vinur minn, Kristján
Þorsteinsson, hefur háð á nýliðn-
um vetri, og nú er til lykta leidd.
Ég bjóst við þvi, að dauðinn kæmi
langtum fyrr en raun varð á. En
lifsþróttur og lífsvilji lögðust á
eitt gegn ofurvaldi banvæns sjúk-
dóms lengi vel. Allt fram til
hinztu stundar talaði Kristján um
að komast heim til sín. Já, nú er
hann kominn heim, heim til
hinna eilífu bústaða.
Kynni okkar Kristjáns hófust
fyrir fáum árum. Hann vann þá
hjá Áfengis- og tóbaksverzlun
rikisins og hafði gert allt frá því
að hann brá búi á Stöðvarfirði.
Þann átti heima að Löndum, i
þeirri sveit þar sem hann fæddist
og ól aldur sinn allt til fimmtugs-
aldurs. Foreldrar Kristjáns voru
Guðlaug Guttormsdóttir (Vigfús-
sonar, prófasts þar) og Þorsteinn
Kristjánsson. Kristján ólst upp á
Löndum i hópi fimm systkina.
Var hann elztur þeirra. Nám
stundaði Kristján við Alþýðu-
skólann, á Eiðum skólaárin
1923—24 og 1924—25. Var þar þá
skólastjóri öðlingurinn Ás-
mundur Guðmundsson, síðar
biskup. Mátti segja um Ásmund,
að hann kæmi öllum til nokkurs
þroska. Kristján var góður náms-
maður og námið þarna, þótt ekki
væri það lengra varð honum nota-
drjúgt. Að skólanámi loknu tókst
Kristján á hendur kennslu einn
vetur við barnaskólann á Stöðvar-
firði.
Kristján kvæntist ungur, árið
1926, eftirlifandi konu sinni,
Aðalheiði Sigurðardóttur frá
Urðarteigi í Berufirði. Reyndist
hún manni sínum vel i löngu
hjónabandi, og ekki sizt nú undir
lokin. Þeim varð fjögurra barna
auðið, sem öll lifa og komizt hafa
vel af. Mun þeirra nánar getið af
öðrum, sem skrifa eftir Kristján
sáluga.
En hvað var það, sem mér
fannst einkenna Kristján öðru
fremur? Hann var ljóðelskur,
minnugur og unnandi fróðleiks.
Bar bókasafn hans þvi glöggt
vitni. Mér var jafnan mikil
ánægja að heimsækja þau hjón að
Kleppsvegi 118, en þar bjuggu
þau nokkur síðustu árin í vist-
legri ibúð. Alúð þeirra beggja er
minnisstæð. Þau kunnu vel að
taka á móti gestum. Já, það er
mikil hamingja að kynnast góðu
fólki.
Hér er kvaddur öðlingsmaður.
Það eru mín lokaorð.
Auðunn Bragi Sveinsson.
í Löndum, sem er ysta byggð í
Stöðvarfirði við fjarðarmynnið
austanvert, er sérkennilega
fallegt byggðarstæði i vel gróinni
hvylft undir skjólríku klettabelti,
en i suðaustri blasir við óravídd
hafsins.
Á þessum stað fæddist Kristján
Þorsteinsson og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum Guðlaugu
Guttormsdóttur frá Stöð og Þor-
steini Kristjánssyni útvegsbónda
í Löndum.
Frá bernsku kynntist Kristján
öllum hefðbundnum framleiðslu-
störfum til lands og sjávar, en
hugur hans mun snemma hafa
hneigst meira til starfanna við
sjóinn, enda var um langt árabil
stundaður sjór frá Löndum á
opnum bátum af atorku og
myndarskap.
Innan við tvítugs aldur fór
Kristján í Alþýðuskólann á
Eiðum og stundaði þar nám í tvo
vetur. Veturinn eftir að hann
lauk námi á Eiðum gjörðist hann
barnakennari í Stöðvarhreppi og
þótti hinum farnast vel í því
starfi. En skólakennsla varð þó
ekki ævistarf Kristjáns, þvi að
sjómennskan heillaði hann. Og þá
um vorið 1926 giftist hann eftir-
lifandi konu sinni, Aðalheiði Sig-
urðardóttur frá Urðarteigi við
Berufjörð, mikilli myndarkonu í
sjón og raun. Hófu þau búskap
sinn í Löndum og reistu sér svo
nýbýli i landi jarðarinnar, og
Kristján tók við formennsku á
opnum vélbát, sem bændurnir í
Löndum gjörðu út í félagi. Síðar
gjörði Kristján einn út bátinn og
var við sjósókn og formennsku
þar síðan mikið á þriðja áratug.
Árin, sem ég átti heima á
Stöðvarfirði, frá 1937 til 1954,
voru gjörðir út þar æði margir
trillubátar. Sjómannaval var þar
á þessum árum og formenn bát-
anna margir aflasælir og góðir
skipstjórnarmenn. Fiskimiðin út
af Stöðvarfirði eru óefað harður
en góður skóli til að læra
sjómennsku. Þar eru oft miklir
straumar og hér og hvar grunn-
sævi, sker og boðar að ógleymdri
Austfjarðaþokunni Þessar
aðstæður hlutu þegar eitthvað var
að veðri, að krefjast af for-
mönnunum sérstakrar fyrir-
hyggju og athygli til að koma bát
og mönnum heilum í höfn.
Ég dáðist oft að þeirri ótrúlegu
hæfni og öryggi sumra formann-
anna á Stöðvarfirði, sem eftir að
hafa verið á færum á reki úti á
hafinu í Í2 til 16 tíma stundum i
kolniðaþoku, stórstraum og
þungum sjó — tóku land i beinni
stefnu á miðjan fjörðinn.
Einn þessara ágætustu
formanna var Kristján í Löndum.
Hann var kappsamur fiskimaður,
en mjög athugull og fyrirhyggju-
samur formaður. Auk þess sem
hann mun hafa lært mikið af eig-
in reynslu á sjónum, þá naut hann
þess á yngri árum að vera á sjó
með sérstaklega hæfum og traust-
um foFmanni Sveini Björgólfs-
syni, sem um mörg ár var for-
maður á Landabátnum Framfara
áður en Kristján tók við
formennsku.
Kristján og Aðalheiður
eignuðust 4 börn, góða borgara,
sem öll eru gift og búsett á
Reykjavíkursvæðinu. Þegar börn-
in voru öll farin að heiman fluttu
þau hjónin einnig til Reykja-
vikur, þar sem þau áttu heima
siðan. Ekki efast ég um, að
Kristján og Aðalheiður hafa sakn-
að átthaganna fyrir austan, en
fyrir sunnan áttu þau líka marga
góða daga. Aðalheiður vann mikið
að handavinnu heima, en lítið
utan heimilisins og bjó manni
sínum alla tið hlýtt og gott
heimili, sem hann gat alltaf
hlakkað til að njóta að dagsverki
loknu. Samband þeirra hjóna var
sérstaklega innilegt. Ég minnist
þess sérstaklega að fyrir fáum
árum átti ég samfylgd með
Kristjáni og Aðalheiði i áætlunar-
bíl frá Egilsstöðum til Stöðvar-
fjarðar, þau voru þá að koma i
kynnisferð á gamlar slóðir. Það
fór ekki fram hjá mér hvað þau
voru innilega hamingjusöm að
eiga hvort annað, þar sem þau
héldust í hendur öðru hvoru og
gældu hvort við annað. Ég
viknaði ósjálfrátt og var þakk-
látur fyrir að fá að sjá þessa
fallegu svipmynd af sönnu hjóna-
bandi eftir nær fimmtíu ára
sambúð.
Fyrir slika samfylgd er mikið
að þakka.
Við hjónin vottum Aðalheiði og
börnunum okkar innilegustu
samúð.
Björn Stefánsson.
Æ Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Völundar gluggar
vandaðir gluggar
Vandaðir gluggar eru eitt aðalatriðið í hverju
húsi og auka verðmæti þess og ánægju þeirra,
sem í húsinu búa. Timburverzlunin Völundur
hefur 70 ára reynslu í smíði glugga. 1 dag
leggjum við megináherslu á smíði Carda-
hverfiglugga svo og venjulegra glugga samkv.
hinum nýja íslenska staðli. Cardagluggar hafa
marga kosti umfram aðra. Auðvelt er að opna
þá og loka. Hægt er að snúa þeim við, ef hreinsa
þarf þá eða mála. öryggislæsingar geta fylgt.
Hljóðeinangrun uppfyllir ströngustu reglur.
Bæðí vatns- og vindþéttir í lokaðri stöðu. Þá er
einnig hægt að fá smíðaðar veggjaeiningar með
Cardagluggum í, sem síðan má raða saman. Þar
sem Cardagluggum verðurekki viðkomið mælum
við með gluggum smíðuðum samkv. hinum
nýja íslenska staðli, með falsi 20x58 mm. Alla
glugga er hægt að fá grunnaða eða tvímálaða.
Einnig getum við smíðað þá úr gagnvarinni
furu eða oregonfuru.
t sérstökum tilfellum smfðum við einnig glugga
eftir sérteikningum.