Morgunblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1977 KENNETH nokkur Koch, drengjalegur, fimmtugur prófessor við Colombia háskólann f Bandarfkjunum hefur sérstætt lag á því að hafa uppi á skáldum á ólfklegustu stöðum. Fyrir nfu árum tók hann upp á því að fara í barnaskóla og tala þar við nemendur í elzta bekk. Afraksturinn varð ljóðabókin „Wishers, Lies and Dreams“, safn Ijóða eftir hina ungu nemendur og ritgerð eftir Koch um Ijóða- gerð. I fyrravor ákvað Koch að bregða sér á áður óþekktar slóðir og kanna skaldhæfileika annars hóps —gamla fólksins. Koch varð sjálfur dálítið vantrúaður, þegar hann horfði yfir fyrsta kennslu- bekkinn á elliheimilinu. Tuttugu og fimm nemendur, flestir komu inn í hjólastólum og eins og Koch orðaði það, var þetta „gamalt. veikt, þreytt fólk sem leið í 11 a.“ Margir voru blindir eða heyrnar- daufir, sumir dottuðu í stólum sinum eða virtust vera sofandi. Koch segir er hann rifjar þetta upp: „I fjórar vikur eða meira sögðu flestir við öllu sem ég spurði: „Ég man það ekki“ eða ,,Ég hef ekkert að segja.“ En smátt og smátt fór að koma glæta í þetta og svörun tók að gera vart við sig hjá fólkinu. Og nú er árangurinn að koma í ljós því að útgáfufyrirtækið Random House hefur sent á markaðinn bók með ljóðum gamla fólksins sem heitir „I never told any- body“. Þar er einnig ritgerð eftir Koch um samvinnu hans og nemendanna og lýsing á því hvaða tökum hann tók kennsluna. Koch hefur trú á því að þetta fordæmi muni ef til vill verða til að beina athygli manna að því að Miriam Sullivan 91 árs fer með nýtt Ijóð eftir sig fyrir Kenneth Koch. gamalt fólk hafi oft þörf fyrir að tjá sig í ljóði og geti uppörvun og hvatning haft mikil og jákvæð áhrif. í lauslegri þýðingu fara svo hér á eftir þrjú ljóðanna í bókinni: Ég sagði það aldrei neinutn Ég sit og hugsa með mér hvort margir bjóði mér upp í dans f kvöld. Ég hugsa með mér: ætti ég að dansa? Kannski verður ekki hlegið að mér og ég mun skemmta mér. Sporin hafa ekki breytzt nein ósköp. Ég gæti enn spriklað með fótunum — vænti ég — Og kannski tekur einhver eftir mér — og sér að fæturnir eru á iði — og skilur bendinguna um að ég hefði gaman af þvf að dansa. Margareth Whittaker 50 ára. Kyrrð Hljóðasta nóttin sem ég minnist var þegar ég fór út á bát að veiða fisk. Ég og vinur minn vorum á leið út í árabát til að renna fyrir fisk. Við veiddum töluvert af fiski. Stjörnunar skinu, hafið var kyrrt. Vindurinn lét ekki á sér kræla. Við vorum hljóðir og fiskurinn var að taka. Leory Burton, 62 ára. Kall Eitthvað mjúkt og milt rennur um fingur þér tekur f hönd þér og leiðir þig áleiðis að einhverju sem er meira... hefðirðu aðeins vit á að fylgja þvf. Nadya Catalfano 94 ára. Áskorendaeinvígin Úrslit einvíganna Einvígi þeirra Horts og Spasskys lauk 19. apríl s.l. með sigri þess siðarnefnda, sem hlaut 8,5 vinning á móti 7,5 vinníngi Horts eftir 16 skákir. Þar með lauk síðasta einvíginu af fjórum sem staðið hafa frá 26. febrúar eða um 7 vikur. hinum einvígjunum lauk þann- ig að Portisch vann Larsen, Polugajevsky vann Mecking og Kortsnoj vann Petrosjan. Þeir sem tefla næst verða því þeir Spassky — Portisch og Korts- noj — Polugajevsky. Fyrir- hugað er að þeir hefji sín ein- vígi í júní n.k. Óvíst er hvar þau verða haldin því nú verða þau „boðin út„ ef svo má segja og hverju og einu skáksambandi innan FIDE heimilt að sækja um að halda þau. Skákmeistar- arnir hafa þar mikið að segja; hvort þeir eru ánægðir með landið, svo sem veðurfar og aðr- ar aðstæður og síðast en ekki sízt verðlaunin. Sigurvegar- arnir tefla síðan í október og að Iokum mun væntanlega sjálft lokaeinvígið um heims- meistaratiltilinn hefjast snemma á næsta ári. Eftir er að ákveða fyrirkomulag á því ein- vígi, þ.e. fjölda skáka, en það átti að fkveða í þessum mánuði. f næstu lotu, þ.e. fjögurra manna keppninni, eiga kepp- endur að tefla 16 skákir að við- bættum aukaskákum verði þeir jafnir, á sama hátt og hér var gert, en í þriðju lotunni milli hinna tveggja síðustu tefla keppendur 20 skákir að við- bættum aukaskákum. Ágreiningur um reglurnar Að loknum þessum síðustu einvígjum hafa menn velt fyrir sér þeim reglum sem um þau gilda og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra og óneitanlega komið í ljós ýmsir agnúar, sem virðist mega sníða af. Alþjóða- skáksambandið stendur alltaf frammi fyrir þeim vanda þegar skipuleggja á þessar keppnir hvort notast eigi við skákmót með öllum keppendum saman frekar en einvigi eins og nú voru haldin. Þeir, sem eru fylgjandi áskorendamótum eins og áður tíðkaðist, segja þau vera skemmtilegri; skákirnar verði betri og allir áskor- endurnir mætist í sömu keppni og sá bezti verði áskorandinn. Ahangendur einvígjanna full- yrða hins vegar að þau séu bezta leiðin til að kanna styrk- leika tveggja áskorenda sem taki af skarið hvor þeirra sé betri í einvígi og þýðingarmikið sé að hafa ekki „þriðja" aðila þar viðkomandi sem hafi áhrif eins og í skákmóti margra. Einn kosturinn við einvígin, segja áhangendur þeirra, er sá, að hægt er að halda þau í mismun- andi löndum og á þann veg stuðlað að útbreiðslu og kynn- ingu skákiþróttarinnar o.s.frv. Síðasta Áskorendaskákmótið var haldið i Curacao 1962. Þátt- takendur voru Petrosjan, Geller, Keres, Fischer, Korts- noj, Benkö, Filip og Tal og réðust úrslitin svona upptalið, Petrosjan sigurvegari o.s.frv. Strax eftir þetta mót ásakaði Fischer sovézku skákmennina um að vinna saman í mótinu þannig að þeir gerðu jafntefli innbyrðis en tefldu alltaf til vinnings á móti öðrum og á þann hátt kæmu í veg fyrir að aðrir en sovézkir skákmenn hlytu heimsmeistaratitilinn. Lengi á eftir neitaði Fischer að taka þátt í mótum á vegum FIDE í mótmælaskyni. Má segja að hinn nýi siður hafi verið tekinn upp mikið vegna þessarar gagnrýni. I janúar- blaði bandaríska skákblaðsins 1977, Chess Life & Review, er viðtal við Kortsnoj þar sem hann fullyrðir að slík samvinna hafi átt sér stað, en hún hafi verið á milli þeirra Petrosjans, Gellers og Keresar og beinst að þeim tveimur, þ.e. Kortsnoj sjálfum og Fischer. Kortsnoj telur sig hafa borið skaða af þessu samkomualgi sem hann fer ekki beint lofsamlegum orðum um. Hverju er hægt að breyta? Ljóst er af reynslu þeirri sem fékkst af þessum keppnis- reglum hér á landi að úrbóta er þörf hvað varðar regluna um að tefla sífellt tvær skákir í viðbót verði keppendur jafnir. Svo makalaus er þessi regla að grípa varð í taumana og brjóta hana, þó svo slíkt samræmist ekki aðalfundarsamykkt FIDE og í raun brot á þeirri sam- þykkt. Einfaldast virðist að varpa hlutkesti strax að lokn- um 12 skákum verði keppendur jafnir og skipta verðlaunum á milli þeirra til jafns, en sá er vinnur hlutkestið heldur áfram keppni. Matsatriði er hins vegar hvort tefla eigi 8, 10 eða 12 skákir. Og hvernig tefldu meistararnir? Mörgum finnast þessi fjögur einvigi hafa borið vott um of eftir GUNNAR GUNNARSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.