Morgunblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 48
(ÍLYSI.MÍASI.MINN ER:
22480
JíUrfliinWntnÍi
FIMMTUDAGUR 28 APRÍL 1977
Hraungos norð-
ur af Leirhnúk
HRAUNGOS var hafið 2.2 kílðmetra norður af Leirhnúk
þegar Morgunblaðið hafði samband við Almannavarna-
nefnd Mývatnsveitar um hálftvöleytið í nðtt. Þá var
flokkur manna nýkominn af svæðinu. Sagðist þeim svo
frá, að hraun rynni úr gígnum, aðalstraumurinn til
norðurs í áttina að Gjástykki og var hraunstraumurinn
orðinn 300 metra langur. Einnig töldu mennirnir sig sjá
eld í nyrzta af fjðrum gfgum um einn km. norður af
Leirhnúk, sem gufa kom úr í gær. Að sögn Héðins
Sverrissonar í almannavarnarnefnd Mývatnssveitar ætl-
uðu menn úr Mývatnssveit að kanna svæðið nánar f nðtt,
en það var erfiðleikum bundið vegna mikillar snjðkomu
og slæms skyggnis.
STÓRLEGA hafði dregið úr jarö-
hræringum á Mývatnssvæðinu
þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við stjórnstöð Almanna-
varnanefndar Mývatnssveitar um
miðnætti s.l. nótt. Almannavarna-
nefndin hafði þá skömmu áður
hætt við áform um að flytja konur
og börn frá Reykjahlíðarsvæðinu
þ.e. byggðinni norð-austur við
vatnið til Skútustaða hinum
að fyrst varð vart við jarðhrær-
ingar á mælum skjálftavaktar-
innar í Mývatnssveit, og um sama
leyti hófst jarðsig á Kröflu- og
Leirhnúkssvæði. Var stöðugur
órói á öllum mælum. Hann jókst
eftir því sem leið á daginn og
einnig fjölgaði jarðskjálftakipp-
um og þeir hörðnuðu. Mældust
Framhald á bls. 26
Þessi mynd var tekin f gosinu f Leirhnúk f desember 1975, en f gær opnuðust á þessari sömu sprungu
f jórir goshverir og seint f gærkvöldi töldu menn sig sjá glóð f þeim nyrzta. Aðalgosið f gærkvöldi er 1.2
kflómetrum norðar.
megin við vatnið, en áform voru
uppi um það í gærkvöldi, þegar
óróinn var mestur á Reykjahlíðar-
svæðinu. Á því svæði búa um 200
manns og viö Kröflu dvelst 151
maður, og var þeim ekki talin
hætta búin. Starfrækslu Kísil-
gúrverksmiðjunnar við Mývatn
var hætt um sexleytið i gærkvöldi
vegna jarðhræringanna.
Það var klukkan 13.17 í gærdag
Ferðaskrif-
stofurZoega
og Úrvals
sameinast
HORFUR eru á að Ferðaskrif-
stofa Zoega og Ferðaskrifsofan
Úrval muni sameinast fljót-
lega. Samningar eru það langt
komnir milli þeirra, að
einungis er eftir að ganga frá
formsatriðum.
Að sögn Geirs H. Zoéga mun
Ferðaskrifstofan Úrval yfir-
taka ýmis umboð sem ferða-
skrifstofa Zoega hefur haft,
m.a. umboð fyrir Thos. Cook,
sem er ein stærsta ferðaskrif-
stofa f heimi. Hefur Zoéga-
fjölskyldan haft umboð fyrir
Cook í yfir 100 ár.
Tóbaksreykingar bannaðar í
húsum til almenningsnota?
Stjórnarfrumvarp um ráðstafanir til að draga úr tóbaksreykingum
STJÓRNVÖLD hyggjast nú afla
sér heimilda um að leggja bann
við tóbaksreykingum í húsum,
sem eru til almenningsnota, og
jafnframt er f ráði að herða enn
bann við hvers konar auglýs-
ingum á tóbaki og tóbaks-
varningi. Kemur þetta fram í
stjórnarfrumvarpi um ráðstaf-
anir til að draga úr tóbaksreyk-
ingum, sem Matthfas Bjarnason
heilbrigðisráðherra mælti fyrir á
Alþingi í gær.
í fyrstu grein frumvarpsins er
lagt bann við hvers konar auglýs-
ingum á tóbaki og tóbaksvarningi.
Bannað er ennfremur að nota
neyzlu eða hvers konar meðferð
tóbaks og tóbaksvarnings í aug-
lýsingum eða upplýsingum um
annars konar vörur eða þjónustu.
Ráðherra er heimilt að leggja
bann við tóbaksreykingum í húsa-
kynnum, sem eru til almennings-
nota. Jafnan skal haft samráð við
hlutaðeigandi forráðamenn,
eigendur og stjórnendur, áður en
slíkt bann er sett, en ekki er það
skilyrði að þeir samþykki bannið.
Við veitingu heimildar til
rekstrar langferðabifreiða, flug-
véla, farþegaskipa, leigubifreiða
og hvers konar annarra farar-
tækja, sem rekin eru gegn gjald-
töku, er heimilt að setja skilyrði
um reykingabann að nokkru eða
öllu í farartækinu.
Ráðherra er heimilt að skipa
nefnd, sem fær það hlutverk að
annast framkvæmd þessara laga
svo og aðrar aðgerðir til þess að
hamla gegn tóbaksreykingum.
Ákveða skal á fjárlögum ár
hvert framlag úr ríkissjóði til
reykingavarna.
Fiskveiðasjóður lánar nú aðeins
helming kaupverðs í stað 2/3 áður
STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur
ákveðið þá breyttu lánareglur, að
f stað þess að lána allt að tveimur
þriðju kaupverðs, mun sjóðurinn
nú lána allt að helmingi. Sverrir
Júlfusson, forstjóri sjóðsins,
sagði f viðtali við Mbl. í gær, að
þessi ákvörðun hefði verið tekin
með tilliti til núverandi ástands f
fiskveiðimálum og þar sem milli
15 og 20 lánsumsóknir vegna
kaupa á loðnuskipum og togurum
erlendis frá, lægju fyrir og allt
útlit væri fyrir fleiri umsóknir.
Sem fyrr segir var hámarkslán-
veiting vegna kaupg á notuðum
eða nýjum skipum erlendis frá
2/3 hlutar kaupverðs, ef kaup-
andi gat sýnt fyllilega fram á, að
hann ætti möguleika á afgang-
inum. Nú verða kaupendur hins
vegar að geta sýnt fram á, að þeir
hafi til helming kaupverðsins og
hámarkslán úr Fiskveiðasjóði
geta þá numið helmingnum á
móti.
Vinnuveitendur fallast í megin:
atriðum á vfeitöluhugmyndir ASÍ
ÞRÁSKÁKIN, sem komin var
upp í samningaviðræðum aðila
vinnumarkaðarins um tilhögun
vísitölubóta á næsta samnings-
tfmabili, leystist f gær, er vinnu-
veitendur gerðu launþegum til-
boð, þar sem þeir féllust f megin-
atriðum á tvær hugmyndir ASt
með skilyrðum um ákveðin atriði.
Vinnuveitendur féllust á, að
áfengi og tóbak hyrfi úr grund-
velli kaupgjaldsvfsitölunnar og
að launaliður bóndans í verðlags-
grundvelli iandbúnaðarvara
hefði áhrif á verðlagsbætur. Þá
leggja vinnuveitendur áherzlu á
að þær leiðréttingar, sem gerðar
verða eftir á vegna kaupmáttar-
ryrnunar á biðtfma milli verð-
hækkana og útreiknings verðlags-
bótar, taki ekki til hækkana á
verði opinberrar vöru og þjón-
ustu, nema þvf aðeins að hækk-
unin verði innan 10 daga fyrir
útreikningsdag framfærsluvfsi-
tölunnar.
Svo sem áður hefur komið fram
í fréttum Morgunblaðsins hafa
vinnuveitendur verið tregir til
þess að ganga frá samkomulagi
um verðlagsbætur, sérstaklega al-
gjörri kaupmáttartryggingu, eins
og hugmyndir ASf-forystunnar
stefndu að, áður en ljóst yrði
hverjar kauphækkanir yrðu og
þar með hvaða kaupmátt ætti að
tryggja. Einn samninganefndar-
manna í hópi vinnuveitenda sagði
í viðtali við Morgunblaðið að það
hlyti að skipta máli, við ákvörðun
um tilhögun verðlagsbóta, hvort
tryggja ætti 5% kauphækkun eða
50% kauphækkun. Á hinn bóginn
hafa forystumenn ASÍ haldið því
fram, að ekki væri unnt að ræða
um kauplið samninganna áður en
menn kæmu sér saman um hvert
kerfi yrði látið ráða til tryggingar
kaupmætti. í þeirri stöðu, sem var
í samningunum í gær má því
segja að upp hafi verið komið
mikið þrátefli, sem erfitt virtist
að leysa. Það var mál samninga-
manna frá báðum aðilum í gær,
eftir að vinnuveitendur höfðu
svarað tillögum ASÍ sem þeir
gerðu, að nú opnuðust leiðir og
hreyfing kæmist á málin að nýju.
Er samninganefnd Alþýðusam-
bandsins hafði rætt tilboð vinnu-
veitenda sendi hún til baka
athugasemdir við það, en að þeim
fullnægðum eins og nefndin
Framhald á bls. 26
Hlaut 5 mánaða
f angelsi fyrir
smygl á hassi
DÓMUR var nýlega kveðinn
upp í Sakadómi í ávana- og
fíkniefnum f máli 25 ára
gamals manns, sem hafði gerst
sekur um innflutning á 3 kg af
hassi árið 1975. Hlaut maður-
inn 5 mánaða fangelsisdóm.
Hann var skipverji á milli-
landaskipi og tók að sér að
flytja fíkniefnin fyrir aðra, en
hins vegar átti hann ekkert af
efninu sjálfur.
Ennfremur var nýlega
kveðinn upp dómur í máli 6
manna, sem höfðu gerst sekir
um innflutning og dreifingu á
fíkniefnum á árinu 1973. Þrir
mannanna hlutu 3—4 mánaða
fangelsisdóma auk sekta, en
mál þriggja manna voru
afgreidd með sektum.
Arnar Guðmundsson fulltrúi
kvað upp dómana.