Morgunblaðið - 05.07.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1977
5
Ríkið neitar að f ella niður
tolla og söluskatt af vélum
til graskögglaverksmiðjanna
Hvað er þá samkeppnisiðnaður, segir landnámsstjóri
Graskögglaverksmiðjan ÍFlatey áMýrum, A-Skaftafellssýslu.
FORSVARSMENN grasköggla-
verksmiðjanna f landinu hafa ný-
verið óskað eftir að fá feilda nið-
ur tolla og söluskatta af vélum,
tækjum og varahlutum f gras-
kögglaverksmiðjurnar og er það
gert með tilvfsan f heimildar-
ákvæði fjárlaga og tollskrárlaga
þar sem rfkisstjórninni er heimil-
að að fella niður eða endurgreiða
sölugjald af vélum og tækjum,
vélahlutum og varahiutum til
samkeppnisiðnaðar. Var f þessu
sambandi óskað eftir niðurfell-
ingu á tollum og söluskatti af
nýjum þurrkara til verksmiðj-
unnar á Stórólfsvöllum við Hvofs-
völl en þurrkarinn kostaði 45
milljónir króna og þar af rann 9,1
milljón til rfkissjóðs f tollum og
söluskatti. Fjármálaráðuneytið
hefur nú svarað þessari beiðni
neitandi.
Þorsteinn Geirsson, skrifstofu-
stjóri fjármálaráðuneytisins,
sagði í samtali við blaðið, að
starfsmenn ráðuneytisins hefðu
ekki litið á graskögglafrmleiðsl-
una sem samkeppnisiðnað f skiln-
ingi fyrrnefndra laga enda væri í
þeim tekið fram, að þar væri átt
við iðngreinar sem framleiða iðn-
aðarvörur sem falla undir tolla-
lækkunarákvæði friverzlunar-
samninga Islands við EFTA og
EBE við innflutning til íslands.
Engir tollar væru hins vegar á
fóðurbæti en það væri ekki vegna
friverzlunarsamninga heldur til
að auðvelda landbúnaðinum að
starfa. Almennt sagði Þorsteinn
að tollar á vélum til landbúnaðar
og sjávarútvegs væru lágir. Fjár-
málaráðuneytið samþykkti að
'veita Stórólfsvallabúinu nokkurn
frest á greiðslu tolla og söluskatts
af fyrrnefndum þurrkara. — Þó
Beðið um
hlífðarföt
og tjöld
tO Zambíu
Iljálparstofnun kirkjunnar
barst nýlega hjálparbeiðni frá
Lútherska heimssambandinu um
aðstoð við flóttafólk f Zambfu og
Botswana, sem býr við mjög bág-
ar aðstæður. Er einkum tekið
fram að skortur á fatnaði og
hlífðarfötum, tjöldum og teppum
sé tilfinnanlegur. Hefur hjálpar-
starfið þegar verið skipulagt í
samvinnu við alþjóðlegar
hjálparstofnanir og rfkisstjórnir
viðkomandi landa.
Ákveðið var að flutningaflugvél
færi frá Norðurlöndum hlaðin
hjálpargögnum 13. júni s.l. til
Lusaka i Zambiu og Francistown í
Botswana. Um dreifingu hjálpar-
gagnanna mun Hjálparstofnun
kirkjunnar í Zambiu sjá um
(Christian refugee service) og
starfslið Lútherska heimssam-
bandsins í Francistown. Við þetta
má bæta að innan sjónmáls eru
áform um byggingu bráðabirgða-
skóla.
Hjálparstofnun kirkjunnar hér
á landi hefur þegar sent til verk-
efnis þessa kr. 500 þúsund, og
hefur jafnframt opnað gíróreikn-
ing stofnunarinnar nr. 20005 til
þess að þeir íslendingar sem eitt-
hvað vildu láta af hendi rakna til
þessa hrjáða flóttafólks geti kom-
iö framlögum sinum á framfæri.
Jafnframt má koma framlögum á
skrifstofu Hjálparstofnunar
kirkjunnar, Klapparstig 27,
Reykjavík, eða til sóknarpresta
um land allt.
svo að þessi beiðni hafi veríð af-
greidd með þessum hætti, þá er
nauðsynlegt að undirstrika að ein
tollafgreiðsla segir ekkert til um
hver afstaða stjórnvalda kann að
vera i framtíðinni, sagði Þor-
steinn að lokum.
Árni Jónsson, landnámsstjóri,
sagði að forsvarsmenn gras-
kögglaverksmiðjanna hefðu
ákveðið að láta reyna á þessi
heimildarákvæði, þvf ef innlend
graskögglaframleiðsla væri ekki
samkeppnisiðnaður við erlenda
framleiðslu þá mætti spyrja hvað
værisamkeppnisiðnaður. Innlend
graskögglaframleiðsla þyrfti nú
að keppa við tollfrjálsan og jafn-
vel niðurgreiddan fóðurbæti er-
lendis frá. Sagði Árni að gras-
kögglaverksmiðjurnar greiddu
árlega milljónir í svokölluð sölu-
gjöld og einkum væri það sölu-
skattur en tollar væru yfirleitt
lágir af þessum vélum og tækjum.
— Vegna þessara sölugjalda nær
verð á mörgum varahlutum til
verksmiðjanna fast að þvi að tvö-
faldast f innkaupi og ég get nefnt
að nú i vor voru keyptir tveir
vagnar til einnar verksmiðjunnar
fyrir 2,5 milljónir og þar af rann
rúm 1 milljón í rikissjóð i tollum
og söluskatti. Graskögglafram-
leiðslan hér er í erfiðri sam-
keppnisaðstöðu og niðurfelling á
þessum gjöldum væri ein leiðin
til að jafna aðstöðu þeirrar fram-
leiðslu gagnvart innflutningi fóð
urbætis, sagði Árni.
Þess má geta, að á sl. sumri
framleiddu graskögglaverksmiðj-
urnar alls um 7600 tonn og af þvi
seldust ekki um 100». tonn. Nem-
ur verðmæti þessara 1000 tonna
milli 38 og 40 milljóna króna og
verða þessir kögglar boðnir til
sölu i haust.
Sumarlitirnir frá Mary Quant eru komnir
Nú eru sumarlitirnir frá Mary komnir i naglalökkum, varalitum og augnskuggum.
Þegar Mary Quant kynnir sumarlitina — þá hafa þeir alltaf vakið geysimikla athygli
enda ekki til nema ein Mary —
Mary Quant.
Spyrjið um sumarlitina frá Mary Quant i nœstu snyrtivöruverzlun —þú sérð ekki eftir því
HeildsöiubirgMir Björn Pétursson og co. h.f„
Laugavegi 66. sfmi 28155.