Morgunblaðið - 05.07.1977, Síða 19

Morgunblaðið - 05.07.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977 19 Framhald af bls. 36 — Starfshættir Antonsson (S) sagðist ósam- mála flutningsmanni tillög- unnar því t.d. þegar um tíma- bundin verkefni væri að ræða þá fengist meira samhengi inn í störfin vegna þekkingar nefndarmanna og svo framveg- is. Nú ef ástæða þætti til þá gæti borgarstjórn gripið inn í, en hann ítrekaði að til að treysta samstarf um verkefni væri yfirleitt bezt að sama nefndin sæi um verkið meðan yfir stæði. Siðan flutti Markús Örn frávfsunartillögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins svohljóðandi: „Fastanefndir og ráð, sem starfa samkvæmt samþykktum borgarstjórnar, eru kjörin af henni til ákveðins kjörtímabils I senn. Borgarráð og aðrar nefndir, sem starfa beint i um- boði borgarstjórnar, tilnefna eða kjósa í stjórnir og undir- nefndir til að sinna tilteknum verkefnum. Borgarstjórn telur eðlilegt, að umboð fulltrúa Reykjavikurborgar, sem þann- ig starfa, miðist fyrst og fremst við timalengd verkefna. Eðli málsins samkvæmt getur þó borgarráð eða aðrar fasta- nefndir borgarstjórnar tekið skipan undirnefnda til endur- skoðunar hvenær sem er. Við upphaf kjörtimabils borgar- stjórnar má einnig fella umboð allra þessara aðila úr gildi og kjósa aðra í staðinn. Með hlið- sjón af þessu telur borgar- stjórn fram komna tillögu óþarfa ef horft er til trygginga lýðræðislegra vinnubragða og vísar henni þvi frá“. Frá- visunartillagan var samþykkt. 4.29t)7 Það var þó annað sem ég ætlaði að gera að umtalsefni. Það er hin skringilega meðferð í fjölmiðlum á orðum eins og herdeild, her- fylki, höfuðsmaður og fleiri slík- um, sem aldrei er að vita hvað merkja. Raunar geta þau merkt eitt í dag og annað á morgun. Þó eru þetta stærðareiningar og starfsheiti. Hjá þýðendum fjöl- miðla getur t.d. hersveit ýmist þýtt sveit með innan við 100 manns, ellegar sveit með alit upp i 100 þúsund manns, og allt þar á milli. Fyrr má nú rota en dauð- rota. Höfuðsmaður er eftirlætis- titill allra þýðenda á herforingja, en getur merkt hvað sem vera skal: liðþjálfi, kafteinn, ofursti verólækkun á hjólbördum - ótrúlegt tilboó, sem enginn ætti aó hafna - pantió strax Framhjólamynstur 1100 x 20/16 - 56.300 1000 x 20/14 - 52.600 900 x 20/14 - 47. 700 825 x 20/12 -36.600 JÖFUR HF. Afturhjólamynstur 1100 x 20/16 - 57.800 1000 x 20/14 - 54.500 900 x 20/14 - 49.200 825 x 20/14 - 39.600 AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SÍMI 42600 Sigurvin Ellasson, Skinnastað: Blaðamennska og hermennska Það er ekki laust við að dugleg- um, ungum blaðamönnum séu stundum mislagðar hendur í þýð- ingum. Flest er þetta þó vel menntað fólk. Hvað eftir annað hefur undirritaður hnotið t.d. um það, að sumir þýðendur fyrir fjöl- miðla þekkja varla aðra merkingu í enska orðinu aggressive en árásargjarn. Kemur það stundum skoplega út. Séð hef ég það borið upp á einkar vel siðað fólk, hjúkr- unarkonu í öðru tilviki, diplómat í hinu, að þau væru árásargjörn, þegar þýðandinn var bersýnilega að glíma við að þýða orðið agressive. En þetta orð hefur einnig aðra merkingu í ensku, nfl. harðduglegur, fylginn sér o.s.frv. Eftir því sem næst verður komist eru flestir þessir „árásargjörnu" þýðendur fremur ungir að árum. Nú, þvi má bæta við að ráðs- maður á stórheimili, slíkur sem Hudson I sjónvarpsþættinum Húsbændur og hjúum (þ.e. butler) hefur á íslensku frá því á miðöldum verið kallaður kjallara- meistari, m.a. af þvl að honum einum var trúað fyrir lyklinum að vinkjallaranum. Enska heitið (butler) er dregið af sömu hug- mynd, úr frönsku. o.s.frv. Textaþýðendur sjónvarps og kvikmyndahúsa róa á sama báti og blaðamenn. Sama sést á bókum, þýddum af þekktum þýð- endum, eins og Hersteini Páls- syni, Andrési Kristjánssyni og fleirum. Að vfsu erum við ekki lengur hernaðarþjóð, þótt ekkert skuli fullyrt að óþörfu um friðsemina. Friðsemi væri þó engin afsökun fyrir þvi, að við gætum ekki þýtt fréttaskeyti á skynsamlegan hátt. Stríðsfréttir, stríðsbókmenntir og herforingjar eru alltaf ofarlega á baugi, hvort sem okkur geðjast það vel eða ekki. Sveitaskipting i her virðist vera alþjóðleg að stofni til, sömuleiðis foringjastig. Einhvern tima þegar ég var að glugga í ísienska orða- bók, 1963, ritstýrða af Árna Böðv- arssyni, sá ég að hann og sam- starfsmenn hans höfðu í orðabók- inni skilgreint helstu sveitaskipt- ingu og foringjastig í her. Það er einnig alls staðar gert i góðum erlendum orðabókum. Það er þvi ekki mikil afsökun fyrir ruglinu í fréttamönnum og öðrum þýðend- um á því góða landi, 1 slandi. Eftirfarandi skrá er tekin sam- an með hjálp Islenskrar orðabók- ar, 1963, Webster’s Seventh New Dictionary, 1969, og Concise Oxford Dictionary, 1964, með hopi af Enclop. Britannica og nokkrum orðabókum úr öðrum málum. Að sjálfsögðu er þetta aðeins stofn- inn i hinni alþjóðlegu skiptingu, sem alls staðar mun i höfuðatr- iðum eins. Ensku heitin eru notuð sem grundvöllur og miðað við fót- göngulið. Sveitir: Section( squad)/riðill( 10—20 menn) Platoon/herflokkur (2 eða fleiri riðlar) Company/hundraðsveit (um 200 manns) Troop/hundraðsveit riddaraliðs eða skriðdrekaliðs (breskt?) Battalion/hersveit (5 hundraðsveitir. um 1000 manns) Regiment/herfylki (3 hersveitir, 3000 manns Brigade/stórfylki (2 eða fleiri herfylki) Skv. Britannicu eru bretar eitt- hvað sér á báti i heitum á foringj- um í flugher og sveitum i stór- skotaliði, en það mun teljast bresk sérviska. Bæði sveitir og foringjar munu samsvara áður- nefndri skiptingu. íslensku heitin á sveitum eru öll tekin eftir ís- lenskri orðabók Árna Böðvarsson- ar, nema hundraðsveit fyrir company og troop, þar sem orða- bók Árna leggur ekkert til mál- anna. Company mun samsvara centuria hjá rómverjum fornu, en i latneskum þýðingum var það oft Foringjar Corporal/undirliðþjálfi. Sergeant/liðþjálfi Lieutenant/lautinant Captain/höfuðsmaður, kafteinn þýtt með hundraðsveit (sbr. hundraðshöfðingi í Nýja testa- mentinu), enda þótt sjaldnast væru hundrað hermenn i þeirri sveit, nema kannski öndverðu. Detachments kalla enskir flokka með ótilteknum fjölda her- manna, sem ekki fer eftir neinni hefðbundinni skiptingu. Væri ekki orðið liðsveitir, sem oft er tautað í útvarpi, nothæft yfir það? vörubifreióastjórar Division/herdeild (mörg herfylki, 10—25 þús. manns) Lt. colonel/undirofursti Colonel/ofursti Brigadier/yfirofursti Major-generai/hershöfðingi 3.stigs Army Corps/her (2 eða fleiri herdeildir) Army/her Lt. general/hershöfðingi 2. stigs General/yfirhershöfðingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.