Morgunblaðið - 05.07.1977, Side 32
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLl 1977
fclk í
fréttum
+ Siglingakappinn Bob Magoon æfir sig þessa dagana af fullum krafti úti fyrir Miami, á þessum bát,
sem er 36 feta langur. Magoon og þrfr félagar hans ætla að gera tilraun til að setja heimsmet I siglingu
yfir Atlandshafið frá Rota á Spáni til Newport I USA — með 40 hnúta jafnaðarhraða. Gamla
heimsmetið setti farþegaskipið „United States“ árið 1952.
+ Það var Elton John
sem fékk hin eftirsóttu
Ivor Novello verðlaun í
ár. Verðlaunin eru veitt
fyrir „besta framlag til
tónlistar“ í Englandi.
Afhendingin fór fram á
Grosvenor hótelinu og
þar mættu allir helstu
höfðingjar f poppheim-
inum. Hljómsveitin
Brotherhood of Man
fékk sérstök alþjóða-
verðlaun fyrir lagið
„Save all your kisses for
me.“
Þessi mynd er tekin á vaxmyndasafni Madame
Tussaud í London. Það er verið að laga hárgreiðsl-
una á Philip prinsi. Vaxmyndirnar af þeim Elísa-
betu drottningu, Philip og elstu börnum þeirra
Charles ríkisarfa og Önnu prinsessu, voru gerðar
fyrir 25 árum, eða um það leiti sem Elísabet varð
drottning.
+ Fólk stóð á önd-
inni á Candlestick
leikvanginum í San
Francisco meðan
þessi línudansari
gekk eftir lfnu, sem
strengd var þvers-
um yfir leikvang-
inn, 200 metra. Mað-
urinn sem afrekaði
þetta er enginn
unglingur. Hann er
72 ára og heitir Karl
Wallenda. Það tók
hann 15 mfnútur að
fara eftir Ifnunni.
Hann hefur 58 ára
reynslu í ifnudansi.
Tilkynning
til eigenda
Ford-bifreiða
Bifreiðaverkstæði okkar verður lokað vegna
sumarleyfa frá 18. júlí til 2. ágúst n.k.
Ford umbodið
Sveinn Egilsson
Skeifunni 1 7.
R0NS0N HEFUR
FLUTT VIÐGERÐA-
ÞJÓNUSTUNA
YFIR GÖTUNA
Til þess að geta veitt yður enn betri þjónustu,
höfum við flutt viðgerðarþjónustu fyrir:
RONSON kveikjara, rakvélar, þurrkur
RIMA mínútugrill, raftæki
AROMATIC kaffikönnur
WINCHESTER skotfæri
SHAKESPEARE veiðihjól, veiðarfæri
í rúmgott húsnæði að Vesturgötu 17 — aðeins
nokkur skref frá skrifstofum okkar.
Verið velkomin.
ONSON
Viðgeröarþjónustan
Vesturgötu 17, sími 11988.
jæ *■ vc
LEGO