Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977
45
rTFTi
it u f i \ $)
I I I Í) 'I R
f ,'JU ~
\ VELVAKANDI
. SVARAR í SÍMA
p0100 KL. 10— 11
1 FRÁ MÁNUDEGI
hér á landi sem annars staðar
fyrirfinnast menn, sem telja sig
hafa „patent-Iausnir" á lífinu og
tilverunni.
Eitt er þó víst og það er það, að
engin þessara lausna hefur dugað
til að samstilla alla jarðarbúa.
Hvað trúarbrögðum og kenn-
ingum Marx og félaga viðvíkur þá
virðast þau ekki megnug að leysa
öll vandamál I mannlegum sam-
skiptum.
Vottar jehóva telja sig vita allt
um það, sem spiritistar og margir
aðrir eru að leita að og rannsaka.
Þeir, sem allt vita, þurfa líklega
einskis að leita. Það virðast engin
takmörk fyrir þvl hverju menn
geta slegið fram sem óhagganleg-
um sannleika.
Umdeilður þjóðhöfðingi I Afr-
íku er sagður trúa á karlinn I
tunglinu.
Vottar Jehóva halda, að jörðin
og mannkynið séu sex þúsund ára
og að íslenzkur blóðmör sé stór-
hættulegur fyrir sálarheill
mannsins.
Er ekki kominn tími til að mað-
urinn öðlist trú á sjálfan sig eða
erum við eins vonlaus og sumir
vilja vera láta. Vonandi ekki.
Með þökk fyrir birtingu.
Þórhallur Sigmundsson."
% Börn og
tóbakskaup
Guðrún Eirfksdóttir
skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég hef aldrei sent þér línu fyrr,
en nú langar mig til að leggja orð
I belg, þar sem mikið hefur verið
rætt og ritað um tóbaksnotkun
landsmanna. Mikil herferð hefur
verið farin gegn reykingum og
þær algjörlega fordæmdar, en
betur má ef duga skal.
Mig langar til að fá svar við
þeirri spurningu hvort leyfilegt
sé að selja börnum undir sextán
ára aldri sígarettur eða annað tób-
ak og eldspýtur. Ef það er rétt,
sem ég held, að það sé óleyfilegt,
hvers vegna I ósköpunum getur
þá hvaða barn sem er farið inn I
hvaða búð og sjoppu, sem því
dettur í hug, og keypt þessa vöru.
Hvaða viðurlög eru við því að
selja börnum þessa vöru?
Frá mínum bæjardyrum séð
liggur þarna einhver mesta hætt-
an í leyni fyrir unga fólkinu, sem
ekki fær leyfi til að reykja heima
hjá sér, en getur farið út i sjoppu
og reykt þar í ró og næði. Kaup-
mennirnir þéna, því að þarna er
uppsprettan.
Annaðhvort er nú að afnema
þessi lög strax og lofa þessu
óvandaða fólki að halda áfram að
þéna á þessari iðju sinni eða taka
hraustlega f taumana og láta þá,
sem brjóta lögin, sæta ábyrgð.
Máske væri öruggasta leiðin að
láta tóbakseinkasöluna eina um
að selja sigarettur og tóbak. Þá
bæri þessi herferð gegn reyking-
um kannski árangur. Þá yrði
áreiðanlega mörgum mannslífum
bjargað og sjúkráhúskosnaður
lækkaði að mun.
Ég vona svo innilega, að unga
fólkið f landinu eigi eftir að
styrkjast og eflast f baráttunni
fyrir þessu mikla þjóðþrifamáli.
Með beztu kveðju,
Guðrún Eirfksdóttir."
Þessir hringdu . . .
% Á slóðum
Engströms
Sjónvarpsáhorfandi:
„Mikil lifandis undur eru þeir
leiðinlegir þessir sænsku þættir
um gamlar slóðir Alberts Eng-
ströms, sem sýndir hafa verið á
sunnudagskvöldum undanfarið.
Telur sjónvarpið sér bera skyldu
til að kaupa alla þætti, sem á
einhvern hátt snerta Island? Eng-
ström var skemmtilegur rithöf-
undur, um það er ekki deilt, og
ekki var hann þá sfðri teiknari.
En það, sem sýnt er í þessum
þáttum, er engan veginn neitt
nýtt eða spennandi fyrir tslend-
inga. Slóðir Engströms hér á landi
voru kunnar áður en hann ferðað-
ist um þær. Þar við bætist að ekki
er einu sinni gaman að sjá þetta
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á meistaramóti Leningrad í ár
kom þessi staða upp i skák þeirra
Safarovs, sem hafði hvitt og átti
leik, og Bukhmans:
22. He6! — Dd4 (Eða 22. . . . Dd8
23. Hxf6 o.s.frv. 22. ... Bxg5 gekk
heldur ekki vegna 23. Bc3+ —
Bf6 24. Bxf6+ — Hxf6 25. He8
mát) 23. Dxf6 + ! og svartur gafst
upp, þvi að eftir 23. ... Hxf6 24.
He8+ verður hann mát og eftir
23. .. . Dxf6 24. Hxf6 — Hxf6 25.
Bc3 er staða hans auðvitað ger-
samlega vonlaus.
Skákmeistari Leningrad 1977
er Faibisovich.
fagra landslag í þáttunum, nema
fólk sé svo heppið að eiga litsjón-
varp.“
£ Um andatrú.
Asgeir Guðmundsson
hringdi og bað fyrir eftirfarandi:
„Um andatrú heitir smágrein i
Velvakanda 28. júní. Ég vil vin-
samlegast benda greinarhöfundi
á orðin „dæmið ekki“.
Þá tel ég hann samkvæmt
nefndri grein heyra til þeirra, er
eiga fyrirgefningu skilið vegna
þess að þeir vita ekki hvað þeir
gera.“
% Skemmtilegur
útvarpsmaður.
Þá hringdi útvarps-
hlustandi og kvaðst vilja taka
undir með Ernu Magnúsdóttur í
Velvakanda s.l. miðvikudag. „Ég
vil þakka Svavari Gests fyrir þátt-
inn hans á laugardögum. Hann er
löngu kunnur sem skemmtilegur
útvarpsmaður og þar hefur engin
breyting á orðið. Margar af þess-
um gömlu plötum, sem hann leik-
ur, koma alltof sjaldan í útvarpið.
Haltu áfram Svavar, og láttu enga
ófrægingarherferð á þig fá.“
HÖGNI HREKKVÍSI
Á nú ad sýna diplómatahæfileikana?
H ÚSBY GGEJNDUR-Ei nangrunarplast
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæöiö frá
mánudegi-föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
stað, viðskiptamönnum
að kostnaöarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
við flestra hæfi
SUMARHÚS
Að innan algjörlega fullbúin: Setustofa, borðstofa, 2 svefnherbergi,
eldhús, baðherbergi m. vatnsklósetti og sturtu, allt full innréttað með
öllum húsgögnum.
Að utan klætt með áli og byggt á stálgrind.
Lengd 7.5 metrar til 10 metrar. Breidd 3 metrar.
Þyngd frá 1 500 kg til 2200 kg.
Auðvelt að flytja með vörubil hvert á land sem er.
Verð frá 1.8000—2.980.000
Húsin eru til afgreiðslu strax.
Hentug fyrir Starfsmannafélög
Hentug fyrir Veiðihús og Verktakahús,
jafnt og einstaklinga.
Gísli Jónsson & Co. hf.
Sundaborg 41 — Sími 86644
CUMBERLANDI