Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 40

Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 40
u <;i,ysin<;asiminn kr: 22480 J«orflunbT«í>i,ö ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977 Hreinn kastaði 21,09 m I>riðji bezti árangur í heiminum á þessu ári HREINN Halldórsson setti nýtt, glæsilegt íslandsmet, er hann sigraði nokkra beztu kúluvarpara heims í kúluvarpi í Stokkhólmi i gærkvoldi. Hann varpaði kúlunni 21.09 metra en það er í fyrsta skipti sem hann kastar yfir 21 metra í móti og er hann einn af þremur mönnum í heiminum senp hafa kastað yfir 21 m. i ár. Á alþjóðamótinu í Stokkhólmi keppti Lilja Guðmundsdóttir í 800 m. hlaupi og sigraði hún á 2.08.47. „Það er lítið um þetta að segja, maður reynir að gera sitt bezta, engar yfirlýsingar, m æli stokkurinn verður að tala", sagði Hreinn Halldórsson í samtali við Morgunblaðið skömmu eftir mótið í gærkvöldi. Fyrra met Hreins var 20 70 m en met hans í gær var einnig vallarmet í Stokkhólmi og sló hann þar 21 metra met fyrrverandi heimsmeist- ara, bandaríkjamannsins Feur- bach's, sett fyrir 4 árum Kaströð Hreins var mjög góð, 20.65, 20.80 (nýtt íslandsmet) 20 57 og tvö köst kvaðst hann hafa átt ócjild, bæði á 21 metra linunni A mótinu í Stokkhólmi í gærkvöldi varð Wladyslaw Komer, meistarinn frá Montreol, nr 2 með 20 62, nr. 3 varð bandarikjamaðurinn Terry Al- britton, fyrrverandi heimsmeistari, með 20 1 9 Feuerbach varð nr 5 með 19 83 m Heimsmetið í kúluvarpi, 22 metra. á rússinn Anatoly Baris- hnikov, en um einn tugur kúluvarp- ara hefur kastað kúlunni yfir 21 metra frá upphafi Óvissa um 4,4 milljarða skreiðarsamning: Fara til Nígeríu til að reyna að fá samningnum framfylgt I FYRRAHAUST sömdu [slenzkir skreiðarútfl.vtjendur um sölu á 115 þúsund böllum af skreið til Nígeríu á þessu ári, og mun það magn allt hafa verið hengt upp á tslandi í vetur. Hins vegar hefur ekki gengið eins vel að fá samningnum framfylgt suður í Nígeríu og gert er ráð fyrir að fulltrúar seljenda haldi til Níger- íu eftir helgina til að reyna að ganga frá málunum en heildar- verðmæti samningsins mun vera um 4.4 milljarðar fsl. króna cif. eftir því sem Morgunblaðið hefur komizt næst. Bjarni Magnússon, fram- kvæmdastjóri íslenzku umhoðs- sölunnar, sagði í samtali viö Morg- unblaðið i gær, að gengið hefði verið frá þessum samningi á síð- asta ári og enn hefði ekki tekizt að ganga þannig frá málum, að óhætt væri að fara að skipa út skreið fyrir síðustu mánuði sið- asta árs, og það sem tilbúið væri af framleiðslu þessa árs, en alls hefði verið samið um sölu á 115 þúsund böllum til Nígeriu á þessu ári og þar sem engin svör hefðu borizt við fyrirspurnum til Níger- íu væri ekki annað sýnna en senda þyrfti menn þangað til að reyna að fá samningnum fram- fylgt, en hann sagðist búast við að allt yrði í lagi með samning Is- lendinga, það þyrfti aðeins að ýta á eftir í Nígeriu. Á síðasta ári sömdu Norðmenn við aðila i Nígeríu um sölu á 18 þúsund lestum af skreið þangað og átti sá samningur að staðfest- ast af rikisstjórninni þar. Samn- ingurinn var hins vegar aldrei staðfestur, og að lokum var Norð- mönnum aðeins leyft að selja 2700 tonn eða 15% af umsömdu magni til Nígeríu, meira heimil- uðu stjórnvöld þar i landi ekki. Á hinn bóginn er Morgunblaðinu ekki kunnugt um hvort stjórnvöld i Nígeriu hafa staðfest samning- inn við ísland eða hvort hér er aðeins um einhverja töf í kerfinu bar að ræða. Lokaða svæðið norð- ur af Þistilfirði opn- að til grálúðuveiða? Veiddum 1700 tonn af grálúðu í fyrra—óhætt að veiða 15000 tonn — ÞAÐ VIRÐIST vera mikið af grálúðu í djúpkantinum í lokaða hólfinu norður af Langanesi og Þistilfirði. „Sjálfur sé ég því ekk- ert til fyrirstöðu að hluti af lok- aða svæðinu verði opnaður til grá- lúðuveiða, þar sem grálúðan held- ur sig í miklu dýpri og kaldari sjó en þorskurinn, og hann kemur aldrei á þær slóðir sem grálúðan er á“ sagði Aðalsteinn Sigurðs- Sigrún með þrjár lestir af djúprækju DJÚPRÆKJUBÁTURINN Sigrún kom til Súðavíkur á sunnudagskvöld með 3 lestir af stórri og góðri djúprækju, en rækjuna fékk báturinn á lokaða svæðinu norður af Kögri, en leyfi fékkst til tilrauna- veiða á þessu svæði til mið- nættis í f.vrrinótt. Sigrún fékk rækjuaflann á ein- um sólarhring og fannst ekkert af seiðum eða smá fiski í aflanum. Þá var rækjan það hrein er hún kom upp á yfirborðið að lítið sem ekkert þurfti að þvo hana. Þar sem ekkert af seiðum eða smá- fiski kom upp með rækjuaflanum á þessum slóðum mun sjávarút- vegsráðuneytið nú vera að kanna hvort ekki eigi að opna þetta svæði til djúprækjuveiða. Núna eru greiddar 122 kr. fyrir kílóið af djúprækju og er verð- mæti aflans sem Sigrún kom með að landi því 366 þús. kr. fyrir utan 10% stofnfjársjóðsgjald sem bætist ofan á. son, fiskifræðingur, í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann er nú nýkominn úr grálúðuleiðangri á rannsóknarskipinu Hafþóri. I samtalinu við Morgunblaðið sagði Aðalsteinn. að víða úti fyrir Norðurlandi hefðu þeir rekizt á töluvert magn af grálúðu, og t.d. virtist vera mikið af grálúðu á linuslóðinni norður af Kolbeins- ey. Þá hefðu togararnir fengið góðan grálúðuafla úti af Stranda- grunni að undanförnu. „Það virð- ist þvi augljóst að grálúðustofn- inn fer vaxandi á ný,“ sagði hann. Aðalsteinn sagði, að síðustu ár hefði þessi stofn verið i nokkurri lægð, en það þyrfti engan að undra. Austur-Þjóðverjar hefðu veitt 25 þúsund lestir af grálúðu við Island árið 1974, og einnig Framhald á bls. 30. Eggjaverð frá 450-620 krónur kg. MORGUNBLAÐIÐ kannaði í gær hvað kíl- óiö af eggjum kostar nú í búðum, en eins og fram kom í Morgunblaðinu s.l. sunnudag, hafa eggjaframleiðendur nú auglýst heildsöluverð, 500 kr. á kg. I Hagkaup kostar kg. af eggj- um 450 kr., i Vörumarkaðinum voru væntanleg egg eftir til- kynninguna, en verðið var ekki ákveðið annþá. I Víði í Austurstræti kostar kg. 520 kr., hjá Sláturfélaginu í Hafn- arstræti 620 og hjá Aðal- strætisbúðinni kr. 520. Tvö alvarleg umferðarslys TVÖ mjög alvarleg umferðarslys hafa orðið á síðustu dögum, ann- að í Reykjavík en hitt i Hafnar- firði. Tveir menn iiggja stórslas- aðir á sjúkrahúsum eftir þessi slys. H valveiðikvóti Islend- inga nær óbreyttur „Engin hætta fyrir þá hvalstofna sem veitt er úr” segir Þórður Ásgeirsson, varaformaður Hvalveiðiráðsins „VlSINDAMENN eru allir sammála um það, að hvalveiði tslendinga sé það litil, að hún skapi enga hættu fyrir þá hval- stofna sem veitl er úr, og því ákvað Hvalveiðiráðstefnan á fundi i Astralíu fyrir skömmu, að veiðikvótinn yrði f stærstu dráttum óbreyttur fyrir næsta ár“, sagði Þórður Asgeirsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu, í samtali við Mbl. í gærkvöldi, en hann er varafor- maður Hvalveiðiráðsins er hann kom heim til tslands i gær af fundi ráðsins. Eina hreytingin var varðandi sand- reyði, þar var kvótinn lækkað- ur úr 132 í 84 hvali. Veiðikvót- inn á langreyði, fyrir Islend- inga, var ákveðinn s.l. ár tit 6 ára, af Hvalveiðiráðinu, ails 1524 hvalir eða 254 að meðal- tali á ári, en hámarksveiði á ári er 304. Samkvæmt upplýsing- um Þórðar þótti engin ástæða til þess að breyta þeirri ákvörð- un nú. Kvótinn fyrir hrefnuveiði á svæðinu, Austur-Grænland, Is- land og Jan Mayen var einnig ákveðinn óbreyttur, alls 320 hrefnur, en reiknað er með að Islendingar veiði 200 á móti Norðmönnum. Framhald á bls. 30. Geysiharður árekstur varð milli bifreiðar og bifhjóls, á mótum Hringbrautar og Hofsvallagötu, á ellefta tímanum á sunnudags- kvöld. Ökumaður bifhólsins, sem er 36 ára gamall, kastaðist af hjól- inu og stórslasaðist. Hann er brot- inn á báðum handleggjum, öðrum fæti og í andliti, auk fleiri meiðsla. Hann var með öryggis- hjálm á höfði og telja lögréglu- menn að það hafi bjargað lífi hans. Samkvæmt framburði vitna ók bifreiðin yfir gatnamótin á móti rauðu ljósi, en hún var á leið vestur Hringbraut. Ökumaður bifhjólsins var á leið norður Hofs- vallagötu. Ökumaður bifreiðar- innar kvaðst ekki viss í sinni sök um stöðu ljósa, þar sem hann kvaðst hafa talið að engin umferð- arljós væri á umræddum gatna- mótum. Areksturinn varð geysi- harður og hentist bíllinn úr stað og skemmdist allnokkuð og hjólið er ónýtt talið. Síðastlióinn föstudag lentu vörubifreið og fólksbifreið frá Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.