Morgunblaðið - 15.07.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15 JULI 1977
23
band við íslenzkar veiðarfæra-
verzlanir. I þvi sambandi mun
hann aðallega hafa haft viðskipti
við veiðarfæraverzlunina Verð-
andi, sem Jón Þorvarðarson, faðir
Guðmundar óperusöngvara, starf-
rækti í Hafnarstræti. Urðu þeir
Jón hinir mestu mátar.
Honum líkaði prýðilega við
skrifstofustjóra Fredriksens, Þor-
stein Sigurgeirsson, og þá ekki
siður við son hans, Garðar, sem
siðar varð sóknarprestur í Garða-
prestakalli og prófastur i Kjalar-
nesprófastsdæmi. Sérstaklega
varð hann hrifinn af hinni fögru
söngrödd sr. Garðars.
Á þessu tímabili iðkuðum við
Eide mjög skák og bridgespil. Þá
var spilaður „aksjón-bridge“, sem
hinn enski fiskikaupmaður mr.
Ward innleiddi á íslandi. Við
hann var kenndur hinn svonefndi
Ward-fiskur, sem hann keypti í
stórum stíl.
Samhliða spilamennsku og
skákiðkun æfðum við sund í
gömlu stundlaugunum. Hjóluðum
þangað á hverjum sunnudags-
morgni, syntum í lauginni og tók-
um kalt sturtubað á eftir. Þessu
héldum við áfram unz komið var
12 stiga frost.
Nokkru siðar fór Eide að verzla
i Varðarhúsinu við Kalkofnsveg.
Hélt hann þeirri verzlun áfram
unz Varðarhúsið var rifið. Þá setti
hann á stofn heildverzlunina
Hans Eide h.f. Þá hafði hann til
sölu ódýran nótupappír i mörgum
litum frá Jarlsberg verksmiðjun-
um í Noregi. Eftir að Actaprent-
smiðjan tók til starfa um 1920
höfðum við talsverð viðskipti við
hann viðvíkjandi þessari pappírs-
tegund.
Vorið 1917 fórum við Eide,
ásamt tveim öðrum, í eftirminni-
legan róður út á Svið í Faxaflóa.
Frá þeirri för er ýtarlega sagt i
viðtalsþætti í Minningarriti
Prentarafélagsins, sem gefið er út
af tilefni 80 ára afmælis félagsins.
Þegar þessar línur eru ritaðar,
mun ritið vera um þær mundir að
koma út, eða jafnvel þegar komið
út. Övíst er að við hefðum komizt
lifs af ef Eide hefði ekki verið
með í þeirri för.
Árið 1918 dvaldi Eide austur á
Fáskrúðsfirði. Það sumar fór ég
austur á land. Fyrsta ferð min
austur, eftir að ég settist að í
Reykjavik vorið 1911. Það talaðist
svo til milli okkar Eide, að ég
dveldi um tíma á Fáskrúðsfirði.
Þá var iðulega tekinn bridgeslag-
ur (þríkantur). Þriðji maðurinn í
spilamennskunni var frændi
Eide, Hans Stangeland. Stundum
var farið í siglingu út á fjörðinn.
Timinn leið fljótt. Rétt eftir komu
mína aftur til Reykjavíkur, skall
spánska veikin yfir. Þá sáust
varla aðrir á götum bæjarins en
börn og rosknir menn. Veikin
lagðist með þunga á miðaldra fók-
ið, fjölmargir urðu pestinni að
bráð.
Þegar bókin Bókagerðarmenn
kom út 1976, þar sem taldir eru
upp allir bókbindarar, prentarar,
ofsetprentarar og prentmynda-
smiðir, frá upphafi prentlistar á
Islandi, sé ég að einn af yngri
prenturunum er afkomandi Hans
Stangeland. Hann er sonarsonur
Hans Stangelands og því frændi
Eide. Hann heitir Haukur Már
Haraldsson. Faðir hans var Per
Stangeland, sonur Hans
Stangelands. Kjörfaðir hans er
Haraldur örn klæðskerameistari,
en móðir Hauks er Margrét, ekkja
Per Stangelands yngra, dóttir Sig-
hvats Brynjólfssonar, fyrsta toll-
þjóns i Reykjavik. Það var þvi við
afa hans sem ég spilaði oft austur
á Fáskrúðsfirði 1918.
30 október 1920 kvæntist Hans
Eide Guðrúnu Jónsdóttur frá
Seljamýri í Loðmundarfirði. Hún
var systir ísaks barnakennara i
Reykjavík, sem Isaksskóli er
kenndur við. Guðrún var aðeins
tveim árum yngri en Eide. i
föðurætt var frú Guðrún 14. liður
frá Þorsteini jökli. Þorsteinn bjó
á Brú á Jökuldal um aldamótin
1500, og er talinn búa þar, þegar
plágan mikla (bólan) gekk
1494—95. Þegar hann spurði til
plágunnar, flutti hann vestur á
öræfi, að svokallaðri Dyngju i
Arnardal, byggði þar bæ og bjó
þar í tvö ár. Hann hefur verið
minnugur sagna af Svartadauða
■frá 1402 og ef til vill haldið að
þessi plága væri hin sama, og þvi
ekki viijað biða örlaga af völdum
hennar.
Móðurætt frú Guðrúnar er rak-
in frá Bjarna Marteinssyni, sem
ættir Austfirðinga byrja á. Hún
var 15. liður frá Bjarna, sem var
stórbóndi á Ketilsstöðum og Eið-
um. Kona Bjarna var Ragnhildur,
dóttir Þorvarðs á Möðruvöllum í
Eyjafirði, Loftssonar hins ríka og
Margrétar Vigfúsdóttur Hólms.
Gifting þeirra bendir til þess, að
mannvirðing og jafnræði hafi þar
verið lögð að jöfnu, enda var tillit
tekið til slíks á þeim timum. Frú
Guðrún er látin fyrir nokkrum
árum.
Tengdasynir Eide eru þeir
Árni, ræðismaður Hollands,
Kristjánsson, Einarssonar for-
stjóra Dósaverksmiðjunnar og
Agúst, fulltrúi Bjarnason, Jóns-
sonar vigslubiskups.
Auk þess að vera ágætur
íslenzkumaður, var Hans Eide
einnig listagóður skrifari og mjög
vel drátthagur. Enn fremur
kynnti hann sér islenzka ljóða-
gerð. Þó mun hann ekki hafa gert
mikið að þvi að yrkja. Kunningi
hans einn, er hét Davíð, var sjó-
maður. Hann gaf mér eitt sinn
dráttmynd af honum, þar sem
hann sat við stýri og stefndi til
hafs með segl uppi. Þá gerði hann
eftirfarandi visu í orðastað
stúlku, sem hrifin var af Davíð:
„Davið stýrir knerri dýrum,
drjúpa tár min sölt.
Hann leit oft til mín augum
hýrum,
harla er fleytan völt.
Ekki man ég eftir að ég eignað-
ist fleiri visur eftir hann. Enda
var hann yfirleitt dulur á einka-
mál sín.
Þegar kom fram á þriðja áratug
aldarinnar, eftir að Arngrimur
fluttist til hans með alifluglarækt
sina, stunduðu þeir mjög útiveru,
þar á meðal langar fjallgöngur.
Framhald á bls. 21
Úlpur 3 nýjar gerðir verð frá 4.255.00.
Terylenebuxur frá kr. 2.400.00.
Gallabuxur frá kr. 2.270.00.
Skyrtur, bolir, leðurlíkijakkar kr. 5.500.00.
Sokkar kr. 1 50.00 ofl. ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22.
Geðdeild Landsprtalans
— (útboðsverk IV)
Tilboð óskast í að fullgera B,C,D og E álmur af
húsi Geðdeildar Landspítalans, Reykjavík.
Verktími er frá 1. september 1977 til 31.
desember 1979. Verkinu er skipt í fimm verk-
hluta. Verktaki tekur við húsinu tilbúnu undir
tréverk.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík, frá þriðjudeginum 19.
júlí 1 977 gegn 40.000,00 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
1 6. águst 1977, kl. 11:00 f.h.
JÖTUNN HF,—
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Vegna sumarleyfa 18. júlí — 12. ágúst verður
viðgerðarþjónusta sem hér segir
HEIMILISVIÐGERÐIR SÍMI 8-55-85
Óhjákvæmilegt er að draga úr þjónustu þennan
tíma en símaþjónustu og afgreiðslu verður
sinnt daglega frá kl. 8—1 2 fyrir hádegi
ALMENNAR VIÐGERÐIR SÍMI 8 56 56
Eins og undanfarin ár sjáum við um viðgerðir á
súgþurrkunarmótorum og öðrum bráðaviðgerð-
um eftir því sem við verður komið
JÖTUNN HF HÖFÐABAKKA 9
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Skóverzlun Péturs Andréssonar
Laugavegi 74, sími 17345.
Skóverzlunin Framnesvegi 2.