Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 2

Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977 Þorskurinn gengur á land: Fengu þorsk í net í vatni í Kaldbaksvík „JÚ VIÐ fonKum þursk f vatninu, þegar við áttum von á að fá siiung í netin,“ sagði Agúst Einarsson, viðskiptafræðingur hjá L.I.U., en hann lagði fyrir nokkrum diigum, ásamt Jóni Olafssyni haffræðingi, silunganet f vatn í Kaldhaksvík á Ströndum, og þegar þeir félagar drðgu upp netið var þorskur f ásamt nokkrum silungum. Skrifstofustjóri verðlagsst jóra: Athuganir eftir helgi „Þetta er nú fyrsta skrefið að aug- lýsa taxtana, en ég reikna með þvf, að við förum að gera athuganir í málinu eftir helgi“, sagði Gunnar Þorsteinsson, skrifstofustjóri verðlagsstjóra, f samtali við Mbl. í gær, en verðlagsstjóri hefur nú birt f Lögbirtingablaðinu og dag- blöðum ákvörðun verðlagsnefndar um hámarksverð hverrar seldrar vinnustundar málmiðnaðarmanna og bifvélavirkja og rafvirkja. Að sögn Gunnars höfðu síðdegis í gær engar kvartanir borizt til verðlagsskrifstofunnar vegna þeirra taxta, sem Samband málm og skipasmiðja og Landsamband íslenzkra rafverktaka hafa gefið út. Ágúst sagði i samtali við Mbl. í gær, að svo hagaði til þarna, að vatnið næði fram undir sjó og osinn stuttur, og eftir því sem Jón Olafsson segði, væri þarna selta við botn vatnsins, þó það væri alveg ferskt við yfirborðið. „I fyrsta sinn, sem við lögðum netið þá fengum við 2 þorska, i annað skiptið voru þeir þrír og í það þriðja fengum við átta þorska,“ sagði Ágúst. Kvað hann þorskana hafa verið fremur litla, sennilega eins árs gamla, enda væri vitað að ungvið- ið héldi sig mikið inni á fjörðum og víkum á þessum slóðum. Hins vegar sagðist Ágúst ekki vita til þess að þorskur hefði veiðzt í vatninu áður, en sagnir væru um að sfld hefði gengið þarna inn fyrr á árum. Þjóðhátfð Vestmannaeyinga hófst f gær f Herjólfsdal að viðstöddu miklu fjölmenni. Þetta er í fyrsta sinn frá því fyrir eldgos sem hátfðin er haldin f dalnum og sýnir myndin, sem Sigurgeir tók, tjaldborg Eyjamanna. Júlíus Geirmundsson aflaði fyrir 100 millj. kr. á 45 dðgum Á 45 dögum eða frá 16. júní til 1. ágúst s.l. landaði skut- togarinn Júlíus Geir- mundsson 1063.5 lestum á Fræðslustjórar funda í Reykjavik Fræðslustjórar höfuðborga Norðurlandanna héldu árlegan fund sinn f Reykjavfk 2.—4. ágúst. A þessum fundum, sem haldnir eru f höfuðborgunum til skiptis,, flytja fræðslustjórarnir skýrslur um það sem gerst hdfur í skóla- málum frá sfðasta fundi og einnig er skipt á gögnum varðandi skóla- mál. Á hverjum fundi er svo eitt um- ræðuefni brotið til mergjar og á fundinum hér var rætt um náms- aðgreiningu. Andri Isaksson pró- fessor flutti þar um framsöguer- indi. Fundinn sátu 11 fræðslustjórar og aðstoðarmenn þeirra. Þeir sátu boð menntamálaráðherra og einn- ig höfðu borgarstjóri og fræðslu- ráð Reykjavíkur boð inni- fyrir fræðslustjórana. Isafirði, að því er Birgir Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Gunnvarar h.f. sem á togarann, tjáði Mbl. í gær. Heildaraflaverðmæti þessara rösklega 1000 tonna var rétt tæpar 100 milljónir króna eða nánar til- tekið 99.1 millj. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. hefur aflað sér mun enginn íslenzkur togari fyrr og síðar hafa náð jafn miklu aflaverðmæti á ekki lengri tima. Eðlilega er hlutur hvers og eins á. togurunum mjög hár, eftir svona mikla aflahrotu, en þess ber jafn- framt að geta að vinnuálag á mönnum er mikið á meðan hrotan stendur yfir. Birgir Valdimarsson sagði þegar Mbl. ræddi við hann, að það væri heldur ekki alltaf sem togararnir öfluðu þetta vel, en hann kvað háseta á skipinu hafa nú að meðaltaii um 2000 kr. á hvert tonn. Þannig mun háseta- hluturinn á Júlíusi Geirmundssyni vera um 2 milljónir króna eftir umrætt 45 daga úthald. Viðtal við Hermann Skúlason, skipstjóra á Júlíusi Geirmunds- syni, er í opnu blaðsins í dag. Mjög sáttur við úthlut- un síldveiðileyfanna — segir Kristján Ragnarsson MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við Kristján Ragnars- son, formann Landssambands fsl. útvegsmanna, og leitaði álits hans á fyrirkomulagi því sem við verð- ur haft f haust við úthlutun sfld- veiðileyfa. Kristján Ragnarsson svaraði þvf til, að hann væri mjög sáttur við þessa afgreiðslu sjávar- útvegsráðuneytisins, enda væri „Er alls ekki eins góð og af er látið” PERSÓNULEGA finnst mér gert allt of mikið úr þessum árangri hjá mér og ég er alls ekki eins gó8 og af er látíS." Þetta voru orð Guðlaugar Þor- steinsdóttur, sem er nýkomin frá Finnlandi þar sem hún varSi titil sinn: „Norðurlandameistari kvenna I skák," en þessi keppni er haldin á tveggja ára fresti. Guðlaug er 16 ára og stundar nám við Menntaskólann I Reykjavlk, er búin með einn bekk. Morgun- blaðið ræddi litillega við Guðlaugu, og inntí hana m.a. eftir hvernig mótið hefði verið „Þetta var ágætt Rætt við Guðlaugu Þorsteinsdóttur GuSlaug Þorsteinsdóttir, Norðurlandameistarí kvenna I skák. Ljósmyndir: Friðþjófur. mót, það tóku tíu konur þátt i þvl, og flestar þeirra voru frá Finnlandi, mótið tók sjö daga fyrir mig, en lengur fyrir aðrar. Reyndar fannst mér það ekki al- veg nógu vel skipulagt, en það kom ekki að sök. Þær sem erfiðast var að tefla við voru tvær 14 ára stelpur. báðar frá Svlþjóð, þær Siv Bengts- son og Pia Cramling, en við þrjár vorum yngstar." Guðlaug sagðist hafa lært að tefla þegar hún var fimm ára, en er hún var tiu ára fór áhuginn að vakna. Aðspurð sagði hún að enginn i fjöl- skyldunni væri með skákáráttu, faðir hennar tefldi nokkuð, en ekkert meira en gerist og gengur. „Ég er alls ekki með skákáráttu, eins og sumir skákmenn, þetta er einungis áhugamál hjá mér og ég held að þetta verði aldrei annað en „hliðarhobby" Ég er einnig að læra á píanó i Tónlistarskóla Kópavogs, er búin að vera að því síðastliðin sjö ár, og maður hefur ekki tima til alls " Blaðamaður innti Guðlaugu eftir þvi hvað hún æfði sig mikið og hvort hún tefldi daglega „Ég stunda engar reglulegar skákæfingar, tefli þegar mér dettur það i hug, þó að i raun ætti ég að taka eina skák Guðlaug við komuna frá Finnlandi daglega, en ég geri það samt sem áður ekki Ég les ekki mikið heldur, aðallega fyrir mót og þess háttar, heima er timaritið Skák keypt, en ekkert annað " Guðlaug sagði að vinkonur henn- ar hefðu engan sérstakan áhuga á skák, og að þetta áhugamál kæmi sama og ekkert niður á náminu. Talið barst að taflmennsku á (s- landi og Skáksambandi íslands og vildi blaðamaður fá skoðun Guð- laugar á þvl „Hér er mikill áhugi ríkjandi og það má segja að Skák- sambandið starfi ágætlega, alltaf einhver mót í gangi, það eru ekki margar konur sem æfa skák, ég veit ekki af hverju því þær geta alveg eins teflt og karlmenn, ætli þær gefi sér nokkuð tíma til þess ." Framhald á bls 18. hún í meginatriðum ( samræm við samþykkt aðalfundar Lands sambands fsl. útvegsmanna fyrrahaust. Hins vegar sagði Kristján ac vissulega gætti óánægju hjt mörgum vegna þessa úthlutunar fyrirkomulags, þar sem nú vær sá háttur viðhafður að stóru bát arnir, sem fengið hefðu síldveiði leyfi tvö s.l. ár, fengju ekki at veiða síld í haust. Þeir væru nú é loðnu og allir vonuðu að þeir fisk uðu vel. Karl prins að fá’ann ÞEGAR Morgunblaðið hafði samband við veiði- húsið að Teigi í Vopna- firði um kvöldmatarleit- ið í gær sagði eiginkona Brians Booth að vitað væri að Karl prins væri búinn að fá nokkra laxa, en hún sagðist ekki vita hve marga, þar sem veiðimennirnir væru ekki enn komnir í hús. Kvað hún veður hafa verið slæmt þar til um miðjan dag í gær, að birti til, og þá hefði mönnum farið að ganga betur að ná laxinum. Sýnir í gallerí Suðurgötu 7 1 DAG, laugardag, opnar Hreinn Friðfinnsson málverkasýningu í gallerý Suðurgötu 7. Sýning Hreins stendur til 17. ágúst og er opin frá kl. 16 til 22 virka daga og frá kl. 14 til 22 á laugardögum og sunnudögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.