Morgunblaðið - 06.08.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGUST 1977
11
VIÐ
STJÓRNVÖL
BORGAR
félagsmálaráð fjallar um, hljóta
að vera viðkvæm persónuleg mál-
efni?
Sv.: Fjölbreytni í félagsmála-
starfi Reykjavíkurborgar er
ótrúlega mikil. Ég hefi í þessu
spjalli stiklað á stóru, staldrað við
einstaka þætti, en hlaupið yfir
aðra, þar sem mér skilst að viðtali
þessu sé stakkur skorinn. Félags-
málaaðstoðin er e.t.v. vandasam-
asti þátturinn i starfi Félagsmála-
stofnunar. Á slíkum málum þarf
að halda af ábyrgð og festu, út frá
fjárhagslegum sjónarmiðum, en
af manneskjulegum sjónarmiðum
gagnvart þeim, sem í raun þurfa á
aðstoð að halda, — og eiga laga-
legan og siðferðilegan rétt á
henni. Kynni min af starfsmönn-
um Félagsmálastofnunar gefa
ekki tilefni til annars en að ætla,
að i daglegum störfum sinum taki
þeir á viðfangsefnum sinum af
fullri ábyrgðartilfinningu.
En mestu varðar að stofnunin
annist jákvætt uppbyggingarstarf
i þágu þeirra, aldraðra og ann-
arra, er félagslegrar aðstoðar
þurfa við i einni eða annarri
mynd.
Mjög ánægjulegt samstarf hef-
ur tekizt við áhugamannasamtök
ýmis, sem gegna mikilvægu hlut-
verki á sviði félagsmála í borg-
inni, svo sem AA-samtökin í
áfengisvarnarmálum, og kvenfé-
lög safnaðanna hér í borg, sem
hafa lagt til frábæra starfskrafta,
er sjá um tómstundastörf elztu
borgaranna. Þannig vinna þessir
einstaklingar og fleiri i frjálsu
samstarfi með okkur við meðferð
úrlausnarefna.
Þau eru mörg dæmin, þar sem
atbeini Félagsmálastofnunar hef-
ur ráðið úrslitum um heill og
hamingju lítilla barna og heilla
fjölskyldna. Allt starf stofnunar-
innar er háð þeirri forskrift og
Nýr leikskóli við Suðurhóla f
Breiðholti III. A næstu lóð eru
hafnar framkvæmdir við nýtt
dagheimili. Annar sams konar
leikskóli og myndin sýnir var ný-
lega tekin f notkun við Öldusel f
Breiðholti II.
fyrirætlan, að hjálpa þeim, sem
hjálpar þurfa við ekki sizt til að
bjarga sér sjálfir, þegar og þar
sem þess er nokkur kostur.
% Atvinnumál borgarbúa
Sp: — Þú átt einnig sæti í borgar-
ráði. Hvaða mál eru þar efst á
baugi sem stendur?
Sv: Já, reyndar eru borgarráð-
störfin og ýmis nefndastörf þeim
tengd mikilvægust og timafrekust
af þeim verkefnum, sem ég fæst
við að vettvangi borgarmálanna.
Borgarráðsmálin er mjög marg-
vísleg og lúta að öllum þáttum i
daglegum rekstri borgarinnar.
Þar eru líka teknar þýðingar-
mestu, stefnumótandi ákvarðanir.
Skipulagsmál tóku drjúgan tíma í
vetur, þegar unnið var að nýju
aðalskipulagi. Það tel ég með
ánægjulegustu verkefnunum að
taka ákvarðanir sem leiða af sér
vöxt og uppbyggingu eins og
skipulag fyrir ný ibúðar- og iðnað-
arsvæði í Gufunesi og á Uflars-
fellssvæðinu. Sama máli gegnir
um lóðaúthlutanir, þó að þær séu
vandasamar i framkvæmd.
Af einstökum öðrum málum vil
ég þó sérstaklega nefna atvinnu-
málaskýrsluna, sem var lögð fram
fyrir skömmu. Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarstjóri hefur
haft mjög lofsvert frumkvæði i að
láta vinna þau gögn og hefja þar
með umræðu um málefni sem ef
til vill má segja að ráði úrslitum
um þá framtíðarþróun, sem við
óskum borginni og Reykvikingum
til handa. Það þarf að gera stör-
átak i atvinnumálum og örva
framleiðsluna. Við þrufum sem
allra fyrst að gera nýjar lóðir
byggingarhæfar fyrir fram-
léiðslufyrirtækin. Nokkrar stað-
reyndir tala sínu máli: Hér fer
meðaldur fólks stöðugt hækkandi,
fólksfjölgun er i lágmarki. Það er
uggvænlegt að sú atvinnugreinin,
sem mest vex er heilbrigðisþjón-
usta á sama tima og stórlega hef-
ur dregið úr fiskafla, sem landað
er til framleiðslustöðvanna. Sam-
kvæmt áætluðum tölum fyrir
1976 voru meðalbrúttótekjur á
framteljanda 1836 þús. á Isafirði,
1598 þús. á Akureyri, 1732 i Nes-
kaupstað, 1680 þús. i Vestmanna-
eyjum en 1458 þús. i Reykjavik,
sem er undir landsmeðaltali.
Þessi þróun verður aðeins skrifuð
á reikning þeirrar atvinnumála-
stefnu, sem rekin hefur verið á
landsmælikvarða undanfarin ár.
Nú er það hlutverk okkar, sem
ábyrgra stjórnenda borgarinnar,
að vekja athygli á staðreyndum og
hafa uppi viðvaranir um leið og
við viljum gjörbreyta þessari þr<ó-
un og ætlumst til samvinnu lands-
yfirvalda I þvi nauðsynjamáli.
sf.
Norræn menningar-
vika á Norðurlandi
Akureyri, 4. ágúst.
Norræn menningarvika verður haldin f 5 kaupstöðum á Norðurlandi dagana 13.—20. ágúst með styrk
frá Norræna menningarmálasjóðnum. Kaupstaðirnir eru: Akureyri, Dalvfk, Húsavfk, Ölafsfjörður og
Siglufjörður.
Hugmyndin að norrænni menn-
ingarviku á Norðurlandi kom
fram á fundi, sem formenn félags-
deilda Norræna félagsins á
Norðurlandi héldu með sér á
Akureyri í september s.l., en
þann fund sátu einnig Hjálmar
Ólafsson, formaður Norræna
félagsins á Islandi, og Jónas
Eysteinsson, framkvæmdastjóri
þess. Formennirnir sneru sér
fyrst til bæjarstjórna á Norður-
landi, sem tóku málinu vel, þann-
ig að kosin var samstarfsnefnd
ofannefndra kaupstaða til undir-
búnings málinu, skipuð einum
fulltrúa frá hverri bæjarstjórn og
öðrum fulltrúa félagsdeildar Nor-
ræna félagsins i hverjum kaup-
stað. Formaður nefndarinnar er
Bárður Halldórsson, en Olafur
Rafn Jónsson var ráðinn fram-
kvæmdastjóri.
Nefndin sótti fljótlega um styrk
frá Norræna menningarmála-
sjóðnum að upphæð 50 þús.
danskar krónur (1,6 millj. fsl. kr.)
og hlaut hann, en kaupstaðirnir
fimm leggja sameiginlega fram
jafnháa upphæð.
Kostnaðaráætlun menningar-
vikunnar hljóðar upp á tæpar 4
milljónir ísl. króna, og er ætlun
nefndarinnar að ná þeirri fjár-
hæð, sem á vantar, með sölu að-
göngumiða að samkomum og
skemmtunum. Greiðslugetan
leyfði ekki, að hingað kæmu fjöl-
mennir hópar, t.d. leikara eða
söngfólks, og hætta varð við að
sýna erlenda myndlist vegna
gífurlegs kostnaðar. Listamenn-
irnir, sem fram koma, fá að jafn-
aði ekki laun, en hins vegar fá
þeir, sem koma erlendis frá,
ókeypis far og uppihald.
Frá Danmörku kemur leik-
flokkurinn Smedjen með kabar-
ettsýningu, þjóðvísnasöngvarar
koma frá Noregi og Svíþjóð, jass-
trfó frá Svíþjóð (Lasse Verner)
og jass-kvartett frá Finnlandi
(Olli Ahvenlahti). Einnig verður
reynt að fá efni frá Álandseyjum
og Grænlandi, og óskað hefir ver-
ið eftir efni frá Færeyjum, en
svar hefir ekki borist við þeirri
beiðni. Einnig verður fslenskt
dagskrárefni, svo sem söngur
Kristjáns Jóhannssonar, sýning
Alþýðuleikhússins á Skollaleik,
brúðuleikhús og norðlensk mynd-
listarsýning. Dagskráin er ekki
fullmótuð, en verður bráðlega
prentuð og borin í hvert hús 1
kaupstöðunum fimm.
A Akureyri verða samkomur i
íþróttaskemmunni á hverju
kvöldi og útiskemmtanir, þegar
veður og aðstæður leyfa, en á
öðrum stöðum verða samkomur
2—3 kvöld. Dansleikir verða i lok-
in á flestum stöðunum. Hugmynd-
in er að fara fljúgandi með alla
listamennina til Grímseyjar til
skemmtanar og uppbyggingar
Grímseyingum og sigla sfðan aft-
ur til lands. Sv. P.
SKAGFJÖRÐ HF
Hólmsgata 4. Box 906.
sfmi 24120. Reykjavfk
heimaslmi söiumanns 11387.