Morgunblaðið - 06.08.1977, Síða 13

Morgunblaðið - 06.08.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977 13 • •• SJO „Það versta við þetta land er aS þaS er ekki hægt að vinna kosningar án olíufélaganna og ekki hægt aS stjórna landinu vegna olíufélaganna". Þetta sagði Franklin D. Roosvelt einhvern tíma eftir 1930 og lýsir hann vafalaust einu af vandamálum bandarískra stjórnmála. Átta af fimmtán stærstu fyrirtækjunum í Bandaríkjunum eru olíufélög. Þau starfa þó ekki eingöngu við olíuviðskipti heldur hafa mikil umsvif í öðrum greinum orkumála eins og kolavinnslu og beizlun kjarnorku, auk lyfja- og plastiðnaðar. OKufélögunum hefur tekizt að skapa sér einstaka stöðu innan bandarfska samfélagsins sem áhrifamikil efnahagsöfl, pólitfskur þrýstihópur, nokkurs konar annað utanrfkisráðu- neyti. Fimm stærstu olíufélaganna í Banda- ríkjunum, Exxon, Gulf, Texaco, Mobil og Chevron, ásamt evrópsku félögun- um tveimur, brezk-hollenzka Shell og brezka BP, hafa mestan hluta þessarar aldar stjórnað upp á eindæmi ollumál- um heimsins, án þess að neyzlulönd eða framleiðslulönd hafi haft teljandi áhrif þar á. Finir vinir Þessi olíufélög hafa fengið viður- nefnið ..Systurnar sjö'. Þær halda þvl fram að á milli þeirra sé hörð sam- keppni, og I fljótu bragði virðist svo vera Auglýsingastriðið virðist vera i algleymingi og benzínstöðvar sýnast berjast um hvern bita. En sannleikurinn er hins vegar sá að ef eitt olíufélag hefur sett tlgrisdýr I tankinn hjá sér þá gildir hið sama um hín. Félögin skiptast nefnilega á ben- zíni og ollum eins og þeim hentar Mismunurinn á milli framboðins varn- ings oliufélaganna er nártast enginn, þó svo að þau reyni að halda hinu gacjnstæða fram. I olluframleiðslurlkjunum starfa oliu- félögin saman eins og flnum vinum sæmir. í Kuwait starfa BP og Gulf saman. í Abu Dhabi starfar BP hins vegar með Shell, Exxon og Mobil og I íran hafa allar systurnar sjö með sér náið samstarf. Ef að yfirvöld ganga hart að einu félagi kemur annað þvl til aðstoðar. Ef bann er sett á eitt eða fleiri félög, vinna öll félögin saman að þvi að brjóta bannið I stað þess að berjast um bita þess bannfærða Fyrstu áratugi þessarar aldar var bar- áttan hins vegar hörð á milli ollufélag- anna Þá var markmiðið að gera út af við þann veikasta Friður komst ekki á fyrr en Esso (nú Exxon), sem var I eigu Rockefellers, varð Ijóst að keppinaut- arnir voru orðnir svo stórir að ekki yrði hægt að ryðja þeim úr vegi með verð- strlði Leynisamningar Olfa fannst I fyrsta sinn I smábænum Titusville, á milli New York og Chica- go. Nokkrum árum slðar tókst ungum bókara, John D. Rockefeller, að eign- ast olluhreinsunarstöð I grenndinni. Hann varð brátt vlða hataður fyrir starfsaðferðir sínar, sem fólu I sér með- al annars leynisamkomulög og undir- boð. Þeir olluleitarmenn, sem ekki unnu með honum voru fljótt knésettir Fyrirtækið, sem þá hét Standard Oil, óx hratt og varð brátt slíkt stórveldi að almenningsálitið krafðist aðgerða gegn því. Árið 1 890 barði forseti Bandarikj- anna I gegnum þingið lögin gegn hringamyndunum. Lögunum var hins vegar ekki beitt gegn Standard Oil fyrr en árið 1911, þegar fyrirtækjasam- steypan var brotin niður I 38 fyrirtæki, sem skyldu starfa sjálfstætt og óháð hvort öðru (þó að Rockefellerfjölskyld- an héldi stórum hluta hlutabréfa I fyrir- tækjunum). Esso varð stærsta fyrirtækið, annað varð sfðar meir að Mobil og hið þriðja að Chevron Mellon fjölskyldan, sem réði yfir stærsta kola- og stálfyrirtæki Bandarlkjanna, stofnaði Gulf. í Texas, þar sem miklar oliulindir fundust óx Texaco úr grasi Rússnesk olía Um sama leyti uxu evrópsku ollufé- lögin hratt og rákust brátt á hagsmuni bandarlsku félaganna. Esso ákvað að gera út af við Shell með undirboðum En Shell hafði aðgang að ódýrri rúss- neskri ollu frá fyrirtæki, sem það átti ásamt tveim bræðrum Alfred Nobel, þess sænska föður dýnamitsins. Rúss- nesk olla tók að vella yfir evrópsa markaðinn og brátt voru Rússar farnir að framleiða 15% allrar ollu, sem notuð var I heiminum. Eftir byltinguna var fyrirtækið þjóð- nýtt, en Esso tók áhættuna af þvl að kaupa kröfur Nobels bræðra fyrir 1 1,5 milljónir dollara árið 1920 og tapaði þeim að sjálfsögðu öllum og þá var sett bann á rússneska ollu. Þegar Winston Churchill var flota- málaráðherra Bretlands, 1914, keypti hann persneskt félag, sem hlaut nafnið British Petroleum (BP). Brezka ríkið hefur upp frá því átt meitihluta I félag- inu. Þegar veldi Tyrkja I Mið- Austurlöndum leið undir lok gerði BP sér hagstæða samninga við hina nýju herskara, sem voru fremar veikir stjórnendur Einn sllkur samningur var gerður i írak árið 1 925 og átti hann að gilda til ársins 2000. Gagnstætt öllum spádómum varð mikið offramboð á ollu milli 1920 og 30. Risarnir Esso, Shell og BP gerðu sér Ijóst að áframhaldandi strlð yrði þeim öllum banvænt. Fundur F Skotlandi Stjórnendur olludélaganna héldu fyrsta leynifund sinn I veiðikastala I Skotlandi árið 1928 og samkomulag- ið, sem þar var gert, varð ekki þekkt fyrr en 24 árum siðar eða 1952. Mikilvægasta atriði þess var að félögin urðu að láta sér nægja þann hluta markaðarins sem þau þá réðu yfir og auka viðskipti sln aðeins innan þess hlutfalls. Samkomulag varð einnig á milli ollu- félaganna um að miða olíuverð ávallt við það verð sem hún hafði við Mexi- kóflóa (Texas) og bæta svo við flutn- ingskostnaði eins og hann hefði orðið þaðan. Þetta kom I veg fyrir samkeppni ódýrrar ollu frá Mið-Austurlöndum við bandarlska ollu. Mismuninn hirtu ollu- félögin sjálf. Örfáir forstjórar ollufélaga stjórnuðu þannig að meira eða minna leyti olíu- framleiðslunni i heiminum og ákváðu verðið. Farmi þeirra sumra endaði þó á miður skemmtilegan hátt. Forstjóri Essó var ásakaður um leynisamninga og brot gegn lögunum um hringa- myndun og var rekinn Forstjóri Shell var látinn fara fyrir að hafa haft of náið samband við leiðtoga nazista. Texaco forstjórinn féll I ónáð eftir að hafa sent francosinnum ollufarma I miðju borgarastríðinu. Gutlbragðið „Gullbragðið" svonefnda átti eftir að hafa mikil áhrif á þróun olluiðnaðarins Þar sem litið var á greiðslur til olluland- anna sem skattgreiðslur, urðu þær frá- dregnar tekjuskatti heima I Bandarlkj- unum Þetta gerði það að verkum að ollufé- lögin lögðu áherzlu á að ná inn tekjun- um á framleiðslustiginu Fjöldi benzín- stöðva spratt upp og verðsamkeppni varð óþörf Bragðið leysti einnig erfiðan utan- rikispólitískan hnút fyrir Bandarikin. Það gerði mögulegt að halda konungs- fjölskyldu Saudi-Arabiu og öðrum drottnurum Mið-Austurlanda, með miklum fjárgreiðslum. Áður höfðu ollu- félögin með valdaaðstöðu sinni haldið niðri hráolluverðinu En eftir að hafa fundið upp „gullbragðið" reyndist það óþarfi. NorðursjávaroKa Eftir 1 960 urðu ollufélögin fyrir nýj- um erfiðleikum, meðal annars með stofnun Opec, samtaka olluútflutnings- ríkja. Meiri hætta stafaði þeim i fyrstu af nýjum ollufélögum, sem u:;u upp I einstökum löndum, eins og rlkisfyrir- tækinu ENI á ítallu og OK I Svíþjóð. Þessi fyrirtæki áttu engar ollulindir heldur keyptu umframollu, sem farin var að fljóta um heimsmarkaðinn. Smá ollufélög spruttu einnig upp I Banda- rikjunum. En systurnar sjö héldu þó 70% af olíuframleiðslunni utan Banda- rlkjanna og Austur-Evrópu Þegar þær fundu oliu I Alaska og Norðursjó fóru þær sér hægt Olluverð var ennþá of lágt til að það borgaði sig að hefja framleiðslu á þessum stöðum, þar sem aðstæður hækkuðu fram- leiðslukostnaðinn. BP sýndi þó meiri óþolinmæði og vildi hraða olíuvinnslu I Alaska, þar sem félagið réði yfir fáum lindum I Mið-Austurlöndum Náttúruverndar- mönnum tókst þó að tefja fyrir því að framkvæmdir hæfust og er því haldið fram að BP hafi grunað Exxon um að hafa leynilega veitt náttúruverndarsam- tökum fé. Ollukreppan 1973—74 virtist I fyrstu hafa alvarlegar afleiðingar fyrir systurnar sjö. Ollulöndin tóku olluverð- ákvarðanir 1 eigin hendur og þjóðnýttu flestar ollulindir ollufélaganna En I raun höfðu þessar aðgerðir engin áhrif á hagnað félaganna. Mestur hagnaður Ef litið á hráolluvinnslustig fram- leiðslunnar þá kemur I Ijós að hagnað- ur ollufélaganna af því hefur minnkað úr 80 bandarískum sentum á hverja tunnu árið 1961 I 25 sent árið 1975. Tekjur af öllum framleiðslustigum hafa hins vegar vaxið úr 5.70 dollurum I 8.20 dollara á hverja tunnu (1 59 litra) að meðaltali. Um leið uxu tekjur olíu- landanna af hverri tunnu úr 0.76 I 10.10 dollara Samkvæmt nýlegri at- hugun tlmaritsins Fortune hefur ollu- iðnaðurinn haft mestan hagnað allra iðngreina I Bandarlkjunum árin 1966 til 1976 Olluflögin halda þvi fram að hagnað- urinn sé of lltill til að fjármagna nýjar fjárfestingar En hvað hæft er I þvi veltur á hvaða viðmiðun er notuð Fáar greinar hafa nefnilega getað fjáfest jafn mikið af eigin fé og olluiðnaðurinn. Ollufélögin hafa verið ásökuð um að fela hagnað til að komast hjá skatt- greiðslum, með mismunandi verðlagn- ingu á olluförmum til dótturfyrirtækja i Framhald á bls. 25 Helga Ingólfsdóttir og Camilla Söderberg á æfingu. Ljósm. Öl.K.M. Síðustu sumartónleikarnir í Skálholti: Verk fyrir blokk- flautu og sembal Um næstu helgi verða síðustu tónleikarnir á „Sumartónleikum i Skálholtskirkju 1977“. Er þetta fjórða helgin sem haldnir verða sumartónleikar í kirkjunni. Tón- leikar þessir eru- á laugardögum og sunnudögum kl. 4, og hefur aðsókn verið mjög góð. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Að þessu sinni verða flutt verk frá 17. og 18. öld fyrir blokkflautu og sembal. Flytjendur eru Cam- illa Söderberg blokkflautuleikari og Helga Ingólfsdóttir sembal- leikari. Á efnisskrá þeirra eru verk eftir G. Frescöbaldi, W. Byrd, G.P. Telémann, J.v.Eyck, J.P. Rameau og A. Vivaldi. Messað er i Skálholtskrikju á sunnudag að tónleikum loknum kl. 17.15. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKSSJÓÐS: Yfirgengi miðað við 1966 2. flokkur 1967 1. flokkur 1967 2. flokkur 1968 1. flokkur 1 968 2. flokkur 1 969 1. flokkur 1 970 1. flokkur 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. flokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur VERÐSKULDABRÉF: Kaupgengi innlausnarverð pr. kr. 100.- Seðlab. 1746.37 16.6% 1640.23 36.1% 1629.78 25.8% 1424.06 16.1% 1339.66 15.4% 1000.43 15.5% 919.85 35.4% 675.76 15.4% 638.53 34.2% 556.69 15.3% 478.14 371.51 343.42 238.51 195.00 148.81 141.39 1 14.84 106.64 Kaupgengi pr. kr. 100 - 1 árs fasteignatryggð veðskuldabréf með 12 — 18% vöxtum. 75.00—80.00 (ca) 2ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 12 — 18% vöxtum. 64.00—70.00 (ca) 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 1 9% vöxtum. 63.00—64.00 (ca) 4ra ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 19% vöxtum. 58.00—59.00 (ca) 5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 1 9% vöxtum. 54.00—55.00 (ca) Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100.- 1977 2. flokkur Nýtt útboð 100.00 — dagvextir HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: 1973 — B 1973 — C 1974 — D HLUTABRÉF: Hafskip HF fslenskur Markaður hf. Sölugengi pr. kr. 100.- 359.51 (10% afföll) 313.29 (10% afföll) 271.86 (10% afföll) Kauptilboð óskast Kauptilboð óskast PJÁRPffflnGRRráM ÍftAADS VERÐBRÉFAMARKAÐUR Lækjargötu 12 - R (Iðnaðarbankahúsinu) Simi20580. Opiðfrá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.