Morgunblaðið - 06.08.1977, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hellissandur Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6741 og afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100 Jfttargpiii&Iafeife Bakari Bakari óskast og aðstoðarmaður. Gunnarsbakarí Keflav/k Sími: 92-1695 Kennara vantar að grunnskólanum að Eyrarbakka. Húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar veita skólastjóri í síma: 99-31 1 7 og formaður skólanefndar í síma: 99-31 75.
Bakari Bakari óskast nú þegar í Álfheimabakarí. Upplýsingar í síma 36280 eða á staðn- um. Iðnfyrirtæki óskar eftir að ráða Viðskiptafræðing eða mann með góða starfsreynslu á sviði viðskipta. Um er að ræða bókhaldsstarf og gerð áætlana ásamt umsjón innheimtu og dag- legra fjármála. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast leggið inn umsókn merkta, Starf — 4330 á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 15. þ.m. Öllum umsóknum verður svarað.
Laus staða Starf hagsýslustjóra Reykjavíkurborgar er laust til umsóknar. Starfið veitist frá 1 nóvember n.k. Launakjör eru samkv. kjarasamningum við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir lok þessa mánaðar. 3. ágúst 1977, Borgarstjórinn í Reykjavík.
Keflavík Starf húsvarðar við íþróttahús ungmenna- félags Keflavíkur er laust til umsóknar. Upplýsingar veitir Haukur Hafsteinsson í síma: 1561 og 2062. UMFK.
Launadeild fjármálaráðu- neytisins óskar að ráða starfsfólk til launaútreikn- ings, síma- og afgreiðslustarfa og undir- búnings skýrsluvélavinnslu. Vélritunarkunnátta er ekki nauðsynleg. Laun samkvæmt kjarasamningum fjár- málaráðherra, B.S.R.B. og Félags starfs- manna stjórnarráðsins. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist launadeildinni fyrir 1 0. ágúst. Laundadeild fjármálaráðuneytisins Sölvhólsgötu 7.
Fulltrúi framkvæmdastjóra Vel þekkt heildsölufyrirtæki í Reykjavík vill ráða ungan og dugandi starfskraft strax, í starf fulltrúa framkvæmdastjóra. Lifandi og skemmtilegt framtíðarstarf. Góð enskukunnátta algjört skilyrði. Upplýsingar sendist blaðinu fyrir 15. ágúst merkt: „Fulltrúi — 6783".
Skipstjóri óskast til að vera með nýjan 40 lesta bát. Eignaraðild í boði. Þeir sem hafa áhuga sendi svar til Mbl. merkt: „Skipstjóri — 4328" eða hringi í síma 29040 Reykjavik.
Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða bygginga- verkfræðing eða bygginatæknifræðing til starfa við Línudeild. Laun eru skv. kjarasamningum ríkisstarfs- manna. Upplýsingar um starfið gefur starfs- mannastjóri. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116 Reykjavík
Skrifstofustörf Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða skrifstofufólk nú þegar. Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun æskileg. Laun akv. kjarasamningum ríkisstarfs- manna. Upplýsingar um störfin gefur starfs- mannastjóri. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116 REYKJAVÍK
Starfskraftur óskast Hálfs dags vinna á skrifstofu. Vélritunar- kunnátta og þekking á almennum skrif- stofurstörfum nauðsynleg. Upplýsingar ekki gefnar í síma Keflavík h.f., Keflavík.
Kristófer Péturs-
son frá Stóru-
Borg — Níræður
Sagt hefur verið, að úr Húna-
vatnssýslu hafi fyrr á tíð komið
fleiri menntamenn en úr öðrum
sýslum iandsins. Þetta mun hafa
verið rannsakað. Hver orsökin er,
veit ég ekki. Þó er víst, að frama-
girni Húnvetninga hefur verið
nokkur og að þeir hafa sótt mjög
fram í þjóðlifinu. Fræg eru þau
ummæli Jónasar frá Hriflu, skóla-
stjóra Samvinnuskólans, aó hann
hafi aldrei komizt i kynni við
heimskan Húnvetning.
Hér skal farið nokkrum orðum
um sjálflærðan listasmið og lista-
mann úr Húnaþingi, sem fyllir
hinn níunda tug æviára hinn 6.
ág. i ár. Maðurinn er Kristófer frá
Stóru-Borg í Víðidal. Hann er son-
ur Péturs stórbónda og athafna-
manns á Stóru-Borg og seinni
konu hans Elísabetar Guðmunds-
dóttur, prófasts á Melstað Vigfús-
sonar. Faðir Péturs var Kristófer
Finnbogason. Var kona hans
Helga, dóttir Péturs Ottesens
sýslumanns á Svignaskarði.
Kristófer Finnbogason var bók-
bindari: hefur handlagni hans
erfst til sonarsonarins, sem hér
eru nokkur skil gerð.
Kristófer var við nám í bænda-
skólanum á Hólum veturinn
1904— 1095. Arið eftir lézt Pétur
faðir Kristófers og.tók hann þá
við búsforráðum á Stóru-Borg
með móður sinni, þá aðeins 19 ára
að aldri. Hinn 12. maí kvæntist
Kristófer æskuunnustu sinni,
Steinvöru Sigríði Jakobsdóttur
frá Sigríðarstöðum í Vesturhópi.
Hófu þau búskap á Stóru-Borg, en
fluttust þaðan til Borðeyrar, þar
sem Kristófer vann við verzlun
Tang & Riis. En því miður varð
sambúðin ekki löng, því að hinn
18. desember 1914 lést Steinvör
eftir langvinnan sjúkleika. Flutt-
ist Kristófer þá á Litlu-Borg til
Guðmundar bróður síns.
Kristófer kvæntist öðru sinni
hinn 9. maí 1918 Guðríði Emilíu
Helgadóttur hjúkrunarkonu frá
Litla-Osi í Miðfirði og bjuggu þau
á Litlu-Borg i 28 ár. Þau eignuð-
ust sex börn. Elzta barnið misstu
þau þriggja mánaða gamalt, en á
lífi eru: Margrét Aðalheiður, gift
Þorgrimi Jónssyni stórbónda á
Kúludalsá í Innri-Akraneshreppi,
Pétur, bifvélavirki í Hvalfirði,
Steinvör Sigriður, gift sr. Guð-
mundi Guðmundssyni á Utskál-
um, Ragnhildur Jakobína, gift
Jóni Ágústssyni rafvirkja i
Reykjavik, og Þórður úrsmiða-
meistari, Reykjavík, kvæntur
Huldu Sigurbjörnsdóttur. Þá ólu
þau hjónin upp tvo systursyni
Emilíu, Þórð og Guðmund Guð-
mundssyni. Eru þeir báðir kvænt-
ir og búsettir i Garði.
Kristófer var mjög hjálpsamur
við sveitunga sína og leituðu
margir til hans með viðgerðir og
lagfæringar á ýmiss konar hlut-
um. Var því jafnan mjög gest-
kvæmt á heimili þeirra hjóna óg
gestrisni mikil. Einnig kunni
Kristófer frá mörgu að segja, því
að hann var vel lesinn, minnugur
og hafði góða frásagnarhæfileika.
Hann lét sér umhugað um, að
börn hans hlytu einhverja mennt-
un og studdi þau á þeim vettvangi
sem hann frekast mátti, þrátt fyr-
ir lítil efni. Á hans búskaparárum
voru erfiðir tímar og hann enginn
fjáraflamaður. Hann var í eðli
sínu afar greiðugur og vildi helzt
gefa það sem hann gerði fyrir
nágranna sina og sveitunga. Ófáa
silfurmuni mun hann hafa gefið
vinum og kunningjum.
Á þeim árum, er Kristófer bjó
að Litlu-Borg vann hann mikið
fyrir sóknarkirkju sína, Breiða-
bólstaðarkirkju í Vesturhópi. Út-
vegaði hann kirkjunni altaris-
töflu að utan og gaf sjálfur mik-
inn hluta kostnaðarins. Einnig
gaf hann kirkjunni vandað orgel I
minningu fyrri konu sinnar. Þá
var hann um langt skeið með-
hjálpari kirkjunnar og formaður
sóknarnefndar.
Veturinn 1945—46 var mjög
eriður bændum norðanlands
vegna mæðiveikinnar. Var fjár-
stofn Kristófers þá orðinn aðeins
12 ær. Þegar svo var komið, hvatti
Þorgrimur tengdasonur hans
hann mjög til að koma suður og
segja skilið við búskaparbaslið.
Seldi Kristófer þá jörðina og
fluttu þau hjónin vorið 1946 suð-
ur að Kúludalsá, þar sem þau
fengu eigið húsnæði. Þarna lifði
Kristófer sin beztu æviár, því að
þar gat hann gefið sig einvörð-
ungu að silfursmíði, sem er hans
hjartans mál, en eins og áður hef-
ur komið fram í þessari grein, var
hann lítt hneigður til búskapar.
Kristófer missti konu sína 26.
febrúar 1954. Var það honum
mikið áfall. En eftir lát hennar og
raunar æ siðan hefur hann notið
mikillar umhyggjusemi og frá-
bærrar aðhlynningar dóttur sinn-
ar og tengdasonar á Kúludalsá.
Emilía, siðari kona Kristófers,
lærði hjúkrun hjá Steingrími
lækni Matthiassyni á Akureyri.
Einnig var hún lærð nuddkona:
Naut hún þar kennslu Soffiu
Sigurjónsdóttur frá Laxamýri,
sem menntazt hafði í þeirri grein
i Kaupmannahöfn. Emilía var
gáfuð kona og mjög vel ritfær.
Hún skrifaði dagbók um öll sín
hjúkrunarstörf.
Árið 1971 varð Kristófer fyrir
þeirri raun að missa sjónina.
Læknisaðgerð var þá gerð á aug-
um hans og fékk hann nokkra
sjón, en samt ekki það góða, að
hann gæti stundað silfursmíðar
sínar. Að eigin ósk gerðist hann
þá vistmaður á dvalarheimili aldr-
aóra á Akranesi, þar sem hann
hefur dvalizt sfðustu árin.
Kristófer er landskunnur lista-
maður á silfursmiði. Væri nú ekki