Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 23

Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977 23 ‘+ Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir GÚSTAF E. PÁLSSON lést að heimili sfnu 30. júlf. Bálför hans hefur farið fram. Kristfn Guðmundsdóttir, böm og tengdaböm. + JÓN EYJÓLFSSON. Otrataig 14 lést i Landakotsspitala 4. ágúst. Guðrún AuSunsdóttir. + Eiginmaður minn, INGVARÁRNASON Bjalla, Landsveit, lézt að heimili slnu, 3. ágúst. Málf rfður Ámadóttir + Sonur minn og bróðir okkar ÞORBJÖRN AÐALBJÖRNSSON Skólavörðustig 24 A. er látinn Þorbjörg Grfmsdóttir og systkini. + Útför KRISTÍNAR E. VÍGLUNDSDÓTTUR, Norðurbrún 1, ferframfrá Fossvogskirkju, mánudaginn 8 þ.m. kl 13 30 e.h Óskar Magnússon. Jóhanna Óskarsdóttir. Vilbogi Magnússon. Rósa Viggósdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR frá Iðunnarstöðum. Lundareykjadal Gunnþóra Þórðardóttir Friðrik Sveinsson Elfas M. Þórðarson Hrefna Danfelsdóttir barnaböm og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför KJARTANS SVEINSSONAR, fyrrverandi skjalavarðar. Jóhanna Sigurgeirsdóttir, Sveinn Kjartansson og barnaböm. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEINGRÍMUR JÓN GUÐJÓNSSON. fyrrv. umsjónarm. Landspftalans, Bárugötu 6, Reykjavík, verður jarðsunginn, frá Dómkirkjunni, mánudaginn 8. ágúst kl 1 3.30. Þeir sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti Slysavarnafélag íslands njóta þess. Margrét Hjartardóttir, Jón M. Steingrímsson, Guðrún H. Marinósdóttir, Helgi H. Steingrímsson, Valgerður Halldórsdóttir, Þorsteinn Steingrfmsson,' Anna Þorgrfmsdóttir, Guðjón Steingrfmsson, Björg Þorsteinsdóttir og barnaböm. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, EYJÓLFS KRISTINSSONAR. skipstjóre. Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir Jóhannes Sævar Magnússon, Ólafur Hermann Eyjólfsson Guðrún Jónsdóttir. Þórunn Marta Eyjólfsdóttir Guðmundur Andrésson. Eyrún Sigurbjörg Eyjólfsdóttir Jón Alfonsson. Inga Marfa Eyjólfsdóttir Sigurður Hallur Stefánsson og barnaböm. Mœögur kvaddar: Sigþrúður Sveinsdótt- ir, Steinsholti og Sigríður Eiríksdóttir Við Nonni vinur minn sátum und- ir Markagarðinum og virtum fyrir okkur tilveruna, sem var sannar- lega furðuleg og forvitnileg i aug- um fimm ára snáða og varð flest að athugunarefni. Markagarður- inn greindi milli jarðanna sem foreldrar okkar sátu, Steinsholts og Bala. Feður okkar voru i að- dráttaferð í Reykjavík eins og gerðist á haustin og vorum við langeygir eftir heimkomu þeirra og fannst timinn lengi að liða, rétt eins og á aðfangadag. Þá verðum við þess varir að austurhiminninn er orðinn dökk- ur og dimmur, við virtum þetta vandlega fyrir okkur um leið og beygurinn óx með okkur. Aður en varði höfðum við tekið á rás heim i Steinsholt til Sigþrúðar móður Nonna. Henni var greinilega brugðið, en hún tók okkur í fangið og sagði: Jæja strákar mínir. Þið er- uð eitthvað bangnir og það eru víst fleiri, en þetta fer allt vel með Guðs hjálp/ Þetta er hún Katla að byrja að gjósa. Fimm ára snáðar gera sér ekki grein fyrir alvöru slíks atburðar, þeir skynjuðu hinsvegar traustið og öryggið í fangi Sigþrúðar. Þess vegna gengu þeir aftur upp á Markagarðinn, léttir í spori og horfðu stórum augum á hinar undarlegu blikur á hausthimnin- um 1918. „Jæja, strákar minir“ átti Sig- þrúóur oft eftir að segja við okk- ur, líka þegar við vorum orðnir gráir og nokkuð gamlaðir. Af hennar munni var þetta eðlilegt ávarp, sem fyllti okkur sömu til- finningum og i bernsku í því fólst hlýja, myndugleiki og skilningur sem lýstu upp og yljuðu hinar ýmsu aðstæður sem iifið færði okkur í. Minningar hrannast fram frá björtum bernskuárum. Sunnudagur og messað á Stóra Núpi. Steinsholtsfólkið lét sig sjaldan vanta til kirkju og fór jafnan ríðandi. Það voru löngum góðir hestar en enginn hefur jafn- azt á við Bleik Sigþrúðar í minn- ingu minni. Sér í lagi þegar hún sat hestinn sinn, vel klædd og höfðingleg. Fátt hef ég séð til- komumeira en þegar þeyst var úr hlaði á sumardegi úr Steinsholti og Sigþrúður fremst á Bleik sin- um reistum og fjörmiklum en lét þó fullkomlega að hennar stjórn. En Sigþrúður var ekki aðeins glæsileg, hún var flestum hjálp- samari og traustari. önnur lítil minning læðist fram. Beitarhús Bala og Steinsholts lágu alllangt frá bæjunum. Eitt kvöld kom pabbi ekki heim á venjulegum tima og veðrið var að versna. Ég va sendur niður I Steinsholt til að kanna hvort gegningamenn þar væru komnir heim. Sigþrúður sagði svo vera og ég sagði mömmu frá því. Það leið enn nokkur stund og mamma var orðin mjög óróleg. Þá var bankað, inn kom Sigþrúður og sagói okkur frá þvi að hún hefði beðið Eirik bónda sinn og pilta hans að fara og svipast eftir pabba. Þetta fór allt vel og er ekki merkilegur atburður í sjálfu sér, en þvi segi ég frá þessu hér, að mér finnst þetta lýsa Sigþrúði vel. Hún átti létt með að skilja vanda- mál annarra og tók myndarlega á til hjálpar — og ég minnist þess glöggt rúmri hálfri öld siðar hve okkur létti öllum, er Sigþrúður stóð á baðstofugóifinu i Bala og fyllti bæinn með myndarskap sín- um, umhyggju og skilningi. Slikar minningar veit ég að margir eiga frá viðskiptum sinum við Sig- þrúði og reyndar Steinholtsheim- ilið allt. Það eru trúi ég margir sem vildu taka undir orð móður minn- ar aldinnar, er hún sem oftar ræddi um árin i Bala, og þá jafn- an meó nokkrrri eftirsjá; „Hún var mér mikill styrkur og stoð hún Sigþrúður. Það var svo einstaklega gott að leita til henn- ar ekki aðeins um heimilisnauð- synjar, heldur i hinum ýmsu til- vikum lifsins" Það fór nú svo að fluttumst frá Bala, en tengsl fjölskyldnanna hafa þó ekki rofnað. Fleiri ættlið- ir okkar fólks hafa heimsótt og dvalizt að Steinsholti, enda alltaf gott þangað að koma. Fyrir það og allt annað vil ég þakka Sigþrúði í Steinsholti sem nú er öll. Sigþrúður Sigþrúður Sveinsdóttir var fædd að Syðra Langholti i Hruna- mannahrepp 10. maí 1885. Hún ólst upp í glöðum systkinahóp við gott atlæti, enda hafa öll systkin- anna skilið eftir sig mikiðdags- verk og flest náð háum aldri. Sóp- ar að þeim systkinum og er kært mjög með þeim, eftir iifa enn bræðurnir Ágúst í Ásum og Kristján i Geirakoti. Sigþrúður fluttist i Eystri- hreppinn að Steinsholti er hún giftist Eiriki Loftsyni bónda þar. Eirikur og Sigþrúður voru ólik um margt en einstakalega samval- in. Þvi er æviverk þeirra slíkt sem það er. Eiríkur var allra manna kappsamastur og kátur svo að hversdagsleikinn rofnaði þar sem hann var nærri. Hún var hægari, dulari en fróð og skemmtileg i viðræðu. Ég átti margar ógleymanlegar stundir, er þau hjónin rifjuðu upp fornar sagnir og gréindu frá lifsháttum fyrr á árum. Það var því löngun mikil gestagleði í Steinsholti, og ekki spillti það að orgel kom snemma á bæinn Og gjarnan var safnazt þar saman og sungið. Söngfólk hefur verið með afbrigð- um gott i Steinsholti enda burða- rásar í sönglífi hreppsins, ekki sizt í kirkjukórnum. Ekki voru þau Eiríkur og Sig- þrúður siður samvalin til starfa. Það er nefnilega engin tilviljun að bú þeirra gaf fljótt góðar af- urðir og þau urðu vel bjargálna, þrátt fyrir mikinn höfðingsskap, gjafmildi og hjálpsemi. Það var búió við rausn í Steinsholti og er enn. Sigþrúður í Steinsholti var aldamótamaður. Hún varð gripin af þeim hugsjónum sem þá kveiktu í ungu fólki og sá eldur logaði með henni alla tíð. Hún var ræktunarkona, þau hjón ræktuðu mörð sina og þau ræktuðu sitt fólk. Það varð þeim mikið gleði- efni að börn þeirra öll settust að i heimabyggðinni. Bræðurnir allir, Jón, Sveinn og Loftur, búa nú í Steinsholti ásamt systrunum Guð- björgu og Sigriði, sem lézt í vetur. Margrét, yngsta dóttirin, er hús- freyja i Geldingaholti, i næsta nágrenni Steinsholts. Systkinahópurinn frá Steins- holti ber í verkum sinum vitni þeirrar heimanfylgu sem þau þágu í föðurgarði. En fleiri urðu aðnjótandi þessa ræktunarstarfs. Ötaldir eru þeir sem áttu sér skjól hjá Sigþrúði, skyldir sem óskyldir, á einhverj- um tima lífs síns og hafa nær allir haldið sterkum tengslum við Steinshlotsheimilið. Eirikur i Steinsholti lézt fyrir nokkrum árum og nú kveðjum við Sigþrúði. Miklu dagsverki er lok- ið og hún hafði lengi hlakkað til hvíldarinnar og var hennar albú- in. Sigþrúður var trúuð kona og lifði I samfélagi við Guð sinn sem gaf henni lífið og hefur nú kallað hana til sin. Fyrir hönd fólksins mins alls vil ég að leiðarlokum þakka Sigþrúði samverustundirnar, styrk og stuðning allan. Við biðjum henni blessunar Guðs og vottum allri fjölskyldu hennar innilegustu samúð. Guðmundur Magnússon. 1 fámennum sveitarfélögum, þar sem flest fólkið býr venjulega ævilangt á sama stað verða sam- skipti þess nánari en þar sem mannfjöldi er meiri og tækifærin Sigriður til samskipta við fleira fólk eru auðveldari. 1 Gnúpverjahreppi hefur mér ævinlega fundizt sveit- in vera ein fjölskylda, svo samofið er lif fólksins, að gleði þess og vandamál snerta venjulega alla, þannig að ef einum hlekkist á þá liða allir. Á þessu ári, sem nú er rúmlega hálfnað, hefur sú alvara borið að höndum, að tvær mæógur • frá Steinsholti hafa horfið af lifssvið- inu, svo að þar er nú skarð fyrir skildi, svo að þeim sem eftir lifa þykir nú dauflegra en áður. Sigriður, elzta dóttir þeirra Steinsholtshjóna, Eiriks og Sig- þrúóar, lézt i febrúar siðastliðn- um. Hún fæddist 8. júní 1917 og ólst upp í foreldrahúsum og þar átti hún heima nær óslitið til hinztu stundar. Sigriður var falleg stúlka og glaðvær, sem gott var að vera með. Mér er minnis- stætt hve hláturmild hún var og hvaó gleði hennar var sannfær- andi. Hún ólst upp í stórum systkinahópi, þar sem hver studdi annan. Þar var oft sungið við vinnuna svo að ég man eftir að hafa komið í fjósdyrnar og heyrt fjórraddaðan söiig óma á móti mér. Sigríður, eins og hin systkini hennar, var um skeið góður liðs- maður i ungmennafélagi sveitar- innar og tók þátt i störfum þess, bæði á leiksviði, sem henni fórst vel, og i sönglífi þvi, sem félaginu jafnan fylgdi. Þó var henni jafn- vel eiginlegast að standa að baki annarra, svo að þeir gætu notið sin, þvi sat hún oft heima og gætti heimilisins er aðrir lyftu sér upp. Þannig fannst mér dagfar hennar lýsa sér bezt. Á ungum aldri kenndi hún heilsubilunar, sem hún átti æ siðan við að striða og læknum tókst aldrei að vinna full- an sigur á, svo að nú er ævi henn- ar öll, þegar hún er tæplega sextug að aldri. Þeir einir, sem verið hafa henni nákunnugir vita hve mjög þetta hindraði hamingju hennar og lifs- nautn alla. Um nokkurra ára bil vann hún sem matráðskona við heimavistarbarnaskólann að Ás- um. Þar vann hún starf sem var mjög við hennar hæfi. Þar nutu sin vel hæfileikar hennar og börn- in áttu þar hauk i horni, en hún átti alltaf samleið með æskufólki. Sigriður eignaðist son, Þóri Haraldsson, sem ólst upp með henni á heimili hennar I Steins- Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.