Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 28

Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGÚST 1977 MORödKí- KAFP/NO W’ 5 1 ___ i1 ls3T GRANI göslari Eigiím við ekki að bæta við hreiðrið? Hún er bara að tala við sjálfa sig, sújjamla. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Dönsku konurnar sigruðu f sfn- um flokki á fyrsta Evrðpu- meistaramðtinu, sem haldið var f Kaupmannahöfn árið 1948. Hlutu þær 9 vinninga af tíu mögulegum. Spilið f dag er frá leik þeirra við Finnland f mðti þessu. Suður gaf, allir utan hættu. Norður S. 63 H. ÁD9 T. KDG3 L. Á1042 Vestur Austur S. G97 S. D82 H.G32 H. K108764 T. A10972 T. 865 L. 96 L. 5 Suður S. ÁK1054 H. 5 T. 4 L. KDG873. Menning eða ómenning? „Ég ætla að notfæra mér það að hér ríkir vestrænt lýðræði, með málfrelsi, fundafrelsi, kosninga- rétti og verkfallsrétti og reyna að bera hönd fyrir höfuð mér. Það stendur í Dagblaðinu 27.7. að Dag- blaðið gnæfi himinhátt yfir hin blöðin í menningartilliti og hvergi komi ómenningin eins skýrt í ljós og hjá hinni frægu húsmóður f Velvakanda. Eg hef ekki nfðst á menningunni nema með því einu að hneykslast á of- beldisverkum kommúnismans og má hver lá mér sem vill. Eg er nú komin það til ára minna að ég man þegar þessir próflausu Marx- Leninistar komu og byrjuðu að boða hið kommúnistiska evangel- ium og sæluna í Rússíá. Þetta var al.lt svo froðufellandi og spekin svo mikil að það átti að þykja fínt að vera kommúnisti. Ég var að vísu læs og hafði gluggað svolítið i söguna, sem er ólygnust, og lét mig hafa það að vera kölluð heimsk og fáfróð. Rússland var lokað, þangað fengu ekki aðrir að koma nema þeir trúuðu sem í staðinn fyrir fríar ferðir predikuðu svo allt um sæl- una þar og unnu að því að koma kúgunarklafanum á þjóð sína, og svo varð þeim skammarlega mikið ágengt svo að mest höfðu þeir 10 þingmenn, og varð það heimsmet í hinum frjálsa heimi og er þann blett ekki hægt að þvo af afkom- endum Egils og Snorra. Tíminn leið og fréttir tóku að berast, réttarhöld Stalfns og svo fór Georg Orwell til Spánar og hélt að hann væri í frelsisstríði en það fór á annan veg, hann slapp nauðulega og félagar hans voru strádrepnir af kommúnistum auð- vitað. Það hefði verið gott fyrir okkur ef einhver af spekingunum hefði farið með og komist lífs af til þess, eins og Orwell, að geta sagt manni sannleikann um þessa helstefnu. Ég var svo heppin að ég gat talað við Stalfnista um allt þetta og svo kom fína ræðan hans Krjúsjeffs og varð það sá hvalreki fyrir mig að hann endist mér enn. Krúsjeff féll svo f sömu gryfjuna þegar hann réðist inn f Ungverja- land og keyrði hundruð þúsunda af fólki til Síberíu, þá sannaðist kenning mfn að alræðisvald öreig- anna er ekkert nema versta teg- und af einræði og allir sem hafa ótakmarkað vald verða eins og Stalín, og réttlaus almenningur er ekkert betur settur en skynlausar skepnurnar, sem í ofanálag sæta illri meðferð. Sagan sýnir það líka, að þótt mikið hafi verið ólæs- ið hjá Rússakeisara þá fundu bændurnir það að það gæti verið ónotalegt að vera réttlaus, skyn- laus skepna hjá Marx-Leninistum. Hörð lífsbarátta kennir nefnilega mönnum ýmsan gagnlegan fróð- leik. Alþýðan í Rússlandi barðist á móti Lenin og varð hungrið, sem alltaf fylgir Marxismanum, henni að falli. Mega menningarvitarnir vel vita það. Óska ég svo Dagblað- inu til lukku ef það ætlar að verja óhæfuverk kommúnismans en hefði heldur viljað láta Þjóðvilj- ann einan um það. Húsmóðir." 0 Ábending til íþróttafrétta- ritara Mbl. „Góðir íþróttafréttaritar- ar Mbl., mig langar að gefa ykkur nokkrar ábendingar og góð ráð. Þið hafið á undanförnum árum gefið leikmönnum 1. deildar eink- unn fyrir frammistöðu þeirra í Finnsku frúrnar sögðu 6 lauf á spil norðurs og suðurs, sem unnust auðveldlega. En á hinu borðinu tóku sagnirnar einkennilega stefnu (Danmörk norður-suður). Vestur Norður 1 T 2G 3 H! Austur Pass 1 H Pass Pass Pass Dobl Suður 1 L 1 S 3 S 3 S Nú var kallað á keppnisstjóra og skýrðar fyrir honum sagnir. En spilararnir gleymdu að segja frá dobli austurs, sem viðurkenndi sögn norðurs og hefðu viðúrlög þá átt að falla niður. Keppnisstjórinn úrskurðaði því eðlilega, að norður skyldi segja fullnægjandi sögn í sama lit og suður segja pass næst er að honum kæmi. En norður mátti einnig segja aðra sögn og skyldi suður þá ekki segja aftur. Norður misskildi þetta eða varð svo mikið um, að hún sagði 4 H en austur bjargaði þá dönskum með dobli sínu. Þar með gat norður sagt aftur og suður síðan einnig. Að lokum varð norður sagnhafi í sex gröndum, sem unnust þegar vestur lét tvo tígla í laufasalgi suðurs. En spil þetta kom ekki í veg fyrir, að dönsku konurnar sögðu og unnu fallega slemmu í næsta spili. RÉTTU MÉR HOND ÞINA Framhaldssaga eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi 14 að engar konur fá að koma inn f bænhúsið. — Já, en á það líka við, þegar brúðkaup fer fram? Brúðurin verður að minnsta kosti að fá að vera með? Ahmed hló. — Nei, hún er ekki með, þótt undarlegt megi virðast. Faðir brúðarinnar og brúðguminn fara fram til imanins, sem „vfgir“ þau. Brúðurin verður að sitja heima og biða. Þetta er auðvitað fá- ránlegt, en svona eru siðir múhameðstrúarmanna. Ætt- ingi minn að reyndar tvær kon- ur fyrir, svo að þær sjá sjálf- sagt um, að brúðurin hafi fé- I ufrcck ■»n — Þú MEINAR þetta ekki? Og nú ráðgerir þú að fara í hrúðkaup og lætur mig sitja heima með þessari... þessari konu föðurbróður þfns? — Já, hvað á ég að gera? Ég get væntanlega ekki einangrað mig frá ættingum mfnum? Ilverja eigum við þá að um- gangast? Anna varð hugsi um stund. — Nei, þú verður Ifklega að fara. En getum við ekki verið ein á morgun? Getum við þá ekki farið eitthvert f bílnum og baðað okkur eða fundið upp á einhverju öðru? — Jú, ég lofa þvf. Ahmed .tók rauða fesinn sinn (höfuðfat) úr töskunni og reyndi að Ifta út eins og rétttrú- aður múhameðstrúarmaður, þegar hann lagði af stað. Hann var reglulega leiður f skapi. XXX Um nóttina lágu Ahmed og Anna út af og töluðu saman. — Ileyrðu, Ahmed, sagði hún, — f morgun sagðir þú, að við þyrftum að eignast barn. En hvaða trúarbrögðum eiga börn- in okkar að tengjast, þegar þau stækka? — Ég hef ekki hugleitt það. En opinberlega verða þau vfst að teljast múhameðstrú- armenn. — Og ef við eignumst stúlku, þá á hún að alast upp f eldhús- inu og sfðan sitja heima á brúð- kaupsdaginn sinn. Nei, það samþykki ég ekki. — Já, en hvaða önnur trúar- brögð ættu þau að tileinka sér? Allir ættingjar mfnir eru mú- hameðstrúarmenn. Það eru nokkar þúsund kristnir menn hérna f Durban, en þeir eru allir úr hindúafjölskyldum. — En ég vildi óska, að börn- in okkar yrðu alín upp f krist- inni trú. Ég hef verið að hugsa um það í kvöld, hvílíkur regin- munur er á viðhorfi kristinna manna og múhameðstrúar- manna til konunnar. Hugsaðu bara um f jölkvænið. — Já, en ég einangrast alveg frá fjölskyldu minni, ef ég sný baki við múhameðstrúnni. Er- um við ekki þegar nógu ein- mana? Og hvar eiga börnin okkar auk þess að ganga f skóla? Það hlýtur að verða f skóla múhameðstrúarmanna. — En ef þau verða næstum hvft? Þá geta þau væntanlega gengið f skóla fyrir hvft börn? — Og lært að fyrirlfta föður sinn? Nei, þakka þér fyrir. Reyndar komast þau aldrei f skóla, sem ætlaður er hvftum börnum. Báðir foreldrarnir verða að koma, þegar innritun fer fram, segir f lögunum. Það er hannað að veita þeim inn- göngu f skðla hvftra harna, ef annað foreldrið er dökkt. — Jæja, er þessu f raun og veru þannig farið? Þetta hefðir þú getað sagt mér áður? Hún varð hugsi um stund. — Ahmed, við verðum vfst að fresta þvf um sinn að eignast barn. — Jæja þá, eins og þú vilt. Enn einu sinni var þögnin rofin. — Anna, þú skalt ekki halda, að allir ættingjar mfnir séu eins leiðinlegir og Abdal. — Nei, nei, það veit ég vel, enda hef ég hitt föður þinn. XXX Daginn eftir óku þau ein nið- ur á baðströndina. Sólin hellti níður geislum sfnum, og hitann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.