Morgunblaðið - 06.08.1977, Side 31

Morgunblaðið - 06.08.1977, Side 31
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGUST 1977 31 TÍMASEÐILL MÍ LAUGARDAGUR 6. ágúst: Kl. 13.30: 400 metra grind karla, kúluvarp karla, hástökk kvenna spjótkast kvenna Kl. 13.45: 200 metra hlaup karla 1. riðill Kl. 13.50: 200 metra hlaup karla 2. riðill Kl. 14.00: 200 metra hlaup kvenna 1. riðill Kl. 14.05: 200 metra hlaup kvenna 2. riðill Kl. 14.10: 5000 metra hlaup, kúluvarp kvenna Kl. 14.20: Hástökk karla Kl. 14.30: Langstökk karla, spjótkast karla Kl. 14 45: 100 metra grind kvenna Kl. 14.55: 200 metra hlaup karla, úrslit Kl. 15.00: 200 metra hlaup kvenna — úrslit Kl. 15.05: 800 metra hlaup karla — 2 riðlar Kl. 15.15: 800 metra hlaup kvenna — 2 riðlar Kl. 15.25: 4x100 metra boðhlaup kvenna Kl. 15.30: 4x100 metra boðhlaup karla SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST Kl. 13.00: Stangarstökk, sleggjukast Kl. 14.00: 100 metra hlaup kvenna 1. riðill, þrlstökk, kringlukast karla. 14.05: 100 metra hlaup kvenna 2. riðill Kl. 14.10: 100 metra hlaup karla 1. riðill Kl. 14.15: 100 metra hlaup karla 2. riðill Kl. 14.20: 100 metra hlaup karla 3. riðill Kl. 14.30: 1500 metra hlaup kvenna Kl. 14.45: 1500 metra hlaup karla — 2 riðlar Kl. 15.10: 400 metra hlaup kvenna 1. riðill Kl. 15.15: 400 metra hlaup kvenna 2. riðill, langstökk kvenna Kl. 15.25: 100 metra hlaup karla, úrslit Kl. 15.35: 110 metra grindahlaup, kringlukast kvenna Kl. 15.50: 400 metra hlaup karla 1. riðill Kl. 15.55: 400 metra hlaup karla 2. riðill Kl. 16.00: 400 metra hlaup karla 3. riðill Kl. 16.15: 4x400 metra boðhlaup kvenna Kl. 16.25: 4x400 metra boðhlaup karla , VILMUNDUR Vilhjálmsson spretthlaupari úr KR, er Ifklegur sigur- vegari f 100, 200 og 400 metra hlaupum á Meistaramóti Islands. Hann verður einnig í boðhlaupssveitum KR og á þvf möguleika á fimm lslandsmeistaratitlum. Fimmtánda um- ferfl íslands- mótsins í dag VALUR - ÞÓR, ÍBK - VÍKINGUR, ÍA - FRAM, UBK - FH í DAG, laugardaginn 6. ágúst fara fram fjórir leikir i 1. deildar keppni Islandsmótsins i knatt- spyrnu. Eru leikir þessir i 15. umferð og dregur þvi senn að leikslokum í þessu skemmtilega og tvísýna móti. Segja má að úr þessu séu allir leikir úrslitaleikir að einhverju marki, en þó má ætla að baráttan verði aðeins á toppnum það sem eftir er. Staða KR og Þórs er orðín það vonlítil, að það myndi ganga næst krafta- verki ef liðin héldu sér uppi. Leikirnir i dag verða milli Vals — Þórs, ÍBK — Víkings, ÍA — Fram og UBK — FH, og mun athygli sennilega fyrst og fremst beinast að viðureign IBK og Vík- , ings, en bæði þessi lið verða að vinna leikinn í dag, til þess að eiga möguleika á að blanda sér i baráttuna á toppnum. Leikur Vals og Þórs fer fram á Laugardalsvellinum og hefst kl. 14.00. Öhætt er að bóka Valsmenn fyrirfram sem sigurvegara í leik þessum, en þegar liðin mættust fyrr i sumar á Akureyri sigraði Valur i hörkuleik með tveimur mörkum gegn engu. Leikur ÍBK og Vikings fer fram i Keflavik og hefst kl. 14.00. Þarna má búast við hörkuleik, þar sem lið þessi eru sennilega mjög svipuð að styrkleika. Er lið- 1 in mættust i fyrri umferðinni urðu úrslit þau að Víkingar sigr- uðu 1—0, og má búast við að Keflvikingar hafi hug á að gjalda þeim rauðan belg fyrir gráan i dag. Leikur ÍA j>g Fram fer fram á Akranesi og einnig þar má búast við tvísýnum leik. Framarar eru til alls líklegir og hafa verið í mikilli sókn að undanförnu. Ur- slit i leik liðanna í fyrri umferð- inni urðu 2—1 sigur Skagamanna. A Kópavogsvelli leika svo kl. 16.00 í dag lið UBK og FH og þar verður örugglega hið sama uppi á teningnum og i hinum leikjunum — ekkert eftir gefið. UBK sigraði i fyrri leik liðanna 2—0. Auk leikjanna í 1. deild verður nóg annað um að vera á knatt- spyrnusviðinu um helgina. 12. umferð 2. deildar keppninnar hófst í gærkvöldi með leik Reynis frá Sandgerði og Reykjavikur — Þróttar og í dag verða fjórir leikir í deildinni — eftirtaldir: Árskógs- völlur kl. 16.00: Reynir A — Sel- foss; Kaplakrikavöllur kl. 14.00: Haukar — ÍBÍ; Akureyrarvöllur kl. 16.00: KA — Þróttur Neskaup- stað, og Laugardalsvöllur kl. 17.00: Ármann — Völsungur. Þá verða einnig fjölmargir leikir i 3. deildar keppninni og nokkrir leikir i yngri flokkunum HÖRKUKEPPNI SPÁÐ í FLESTUM GREINUM MJÖG góð þátttaka er í meistara- móti Islands í frjálsum íþróttum sem fram fer á Laugardalsvellin- um nú um helgina. Skráóir þátt- takendur eru um 140 talsins, tölu- vert fieiri en á meistaramótum undanfarinna ára, og eins og gef- ur að skilja er nær allt bezta frjálsfþróttafólk landsins meðal keppenda. Má búast við að keppni verði tvfsýnni og skemmtilegri en oftast áður, og þó einkum og sér I lagi f þeim greinum sem hvað skemmtilegastar eru á að horfa fyrir áhorfendur, þ.e. millivega- lengdahlaupin. Árangur fslenzks frjálsíþrótta- fólks hefur verið mjög góður í sumar, en hingað til hefur áhuga- fólki um iþróttina ekki gefizt mörg tækifæri til þess að sjá það í keppni. Iþróttafólkið hefur verið VETRARSTARF Tennis- og Badmin- tonfélags Reykjavikur hefst 1. sept- ember n.k. I hffjsi félagsins, GnoSa- vogi 1. Að vanda verður starfsemi félagsins fjölbreytt I vetur og má nefna t.d. samæfingar keppnisfólks, sem nú verða tvisvar til fjórum sinn- um I viku, úthalds- og þrekæfingar, unglingatlma. badmintonmót og fl. Stærstur hluti félagsmanna hefur þó ekki æft badminton sem keppnis- á faraldsfæti í sumar og er það fyrst nú sem flest er komið heim. Þó vantar hlaupadrottninguna Lilju Guðmundsdóttur i milli- vegalengdahlaupinu, en hún dvel- ur í Svíþjóð og kemst ekki til mótsins. Spretthlaupin Skráðir keppendur í 100 metra hlaupi eru 16, í 200 metra hlaupi 12 og í 400 metra hlaupi 14. I öllum þessum greinum er Vil- mundur Vilhjálmsson, KR, likleg- ur sigurvegari, en Vilmundur hef- ur i sumar jafnað metið i 100 metra hlaupi, og bætt metið í 200 metra hlaupi, auk þess sem hann hefur náð ágætum árangri í 400 metra hlaupinu. Ætla má hins vegar að hörð barátta verði um annað sætið í þessum greinum milli Armenninganna Sigurðar Iþrótt heldur iðkað (þróttina fremur sér til ánægju og heilsubótar, og hefur verið mjög mikil eftirspurn eftir einkatlmum á undanförnum ár- um. Nú er tlmaleigan hafin hjá félaginu og hafa félagsmenn forgang fram að 20. ágúst. Tekið er á móti greiðslu og pöntunum I húsi TBR. alla virka daga frá kl. 20 til 22. Sigurðssonar og Magnúsar Jóns- sonar, Björns Blöndal og Hilmars Pálssonar HVÍ i 100 metra og 200 metra hlaupum og Björns Blönd- als, Gunnars Páls og Þorvalds Þórssonar i 400 metra hlaupinu. I boðhlaupinu eru svo skráðar þrjár sveitir, og kann svo að fara að Vilmundur Vilhjálmsson hljóti meistaratitla í þeim. A hann tvi- mælalaust góða möguleika á fimm meistaratitlum á mótinu. Millivegalengdahlaupin Gífurlega mikil þátttaka er í millivegalengdahlaupunum og eru 20 skráðir til leiks i 800 metra hlaupi og 21 í 1500 metra hlaupi. Er sannarlega af það sem áður var, er aðeins örfáir keppendur voru i þessum greinum. Og i báð- um greinunum má búast við hörkukeppni. Koma þar væntan- lega mest við sögu Borgfirðingur- inn Jón Diðriksson og Ir-ingarnir Gunnar Páll Jóakimsson og Agúst Ásgeirsson. Er ekki ólíklegt að nærri íslandsmetinu i 800 metra hlaupi verið höggvið, og einnig er líklegt að góður árangur náist í 1500 metra hlaupinu. Hvér sigur- vegarinn verður í hlaupunum er hins vegar ógerningur um að spá. Langhlaup Atta keppendur eru skráðir i 5000 metra hlaup og einnig i 3000 metra hindrunarhlaup sem fram fer á mánudagskvöldið. Sigfús Jónsson, Islandsmethafi í 5000 metra hlaupi, má teljast nær ör- uggur sigurvegari í sinni grein, en spennandi verður að fylgjast með viðureign þeirra Ágústs Þor- steinssonar, UMSB, og Sigurðar Sigmundssonar, FH, en báðir eru þeir ungir hlauparar í mikilli framför. Erfitt er hins vegar að geta sér til um sigurvegara í 3000 metra hindrunarhlaupi, þar sem Agúst Asgeirsson, íslandsmet- hafi, er ekki skráður til leiks í þeirri grein. Grindahlaup 8 keppendur eru skráðir i 110 metra grindahlaup og 3 í 400 metra grindahlaup. I fyrrnefndri greininni er líklegt að baráttan um Islandsmeistaratitilinn standi milli Jóns Sævars Þórðarsonar og Björns Blöndal, en Þorvaldur Þórsson ætti að vera nokkuð ör- uggur um sigur i síðarnefndu greininni. Stökk í hástökki verða 10 keppendur, í langstökki 11, í stangarstökki 7 og 8 í þristökki. Búast má Við harðri keppni í hástökkinu og eiga þar a.m.k. þrír stökkvarar jafna möguleika, þeir Elías Sveinsson, Hafsteinn Jóhannes- son og Guðmundur R. Guðmunds- son. I langstökkinu er Friðrik Þór væntanlega öruggur sigurvegari, en spurningin fremur um hvort honum tekst að hnekkja Islands- metinu. I stangarstökki má mikið vera ef Elias sigrar ekki, en þar sem Friðrik Þór keppir sennilega ekki í þristökki er erfitt að geta sér til um sigurvegarann. Köstin Skráðir keppendur i kúluvarpi eru 9, i kringlukasti 9, i spjótkasti 12, og 3 í sleggjukasti. Aliir sterku mennirnir verða með að þessu sinni, og mun athyglin bein- ast sérstaklega að Hreini Hall- dórssyni í kúluvarpinu, að venju, og baráttu Erlends Valdimarsson- ar og Óskars Jakobssonar i kringlukastinu. Erlend má svo bóka sem sigurvegara i sleggju- kasti og Óskar í spjótkasti. Kvennagreinar Ágæt þátttaka er i flestum kvennagreinunum, mest i 800 metra hlaupi, þar sem 17 stúlkur eru skráðar til leiks. Ef að líkum lætur mun Ingunn Einarsdóttir verða atkvæðamest i kvenna- keppninni, og á hún góða mögu- leika á a.m.k. fimm Islandsmeist- aratitlum. Laugardalsvöllur — I. deild í dag kl. 2 leika VALUR — ÞÓR Valur. VETRARSTARF TBR HEFST SENN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.