Morgunblaðið - 11.10.1977, Side 1

Morgunblaðið - 11.10.1977, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 224. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. sprengjutilræðuin, auk annarra glæpa. Þessar aðgeröir lögreglunnar eiga sér staö samtímis því sem stjórn Suarezar og stjórnarand- staöan sitja á stööugum fundum til að ná bráðabirgðasamkomuiagi um iausn efnahagsmála og ann- arra aðkallandi vandamála. en stefnt er að því að slíkt samkomu- lag gildi þar til hægt verður aö leggja fram drög að nvrri stjórn- arskrá. Lögreglan hefur ekki viljaö skýra frá handtökunum og til- drögum þeirra að öðru leyti en því að þæi' hafi átt sér stað. en vist er talið að nokkrir hafi verið handteknir í sambandi við morðin á Ueeta-Barreneehea, forseta hér- Friðarverðlaun Nóbels komu í hlut Amnesty International iVIadrid. 10. oktúher. Routor. Mariead Corrigan (lengst til vinstri) og Betty Williams ræða við Elísabetu drottningu um borð f Britaniu þegar hin síðasttalda heimsðtti Norður-írland nýlega. (AP-símamynd). SPÆNSKA lögreglan handtók um helgina 30 öfgamenn, sem grunaðir eru um hrvðjuverka- starfsemi. Östaðfestar fregnir herma að 12 hinna handteknu séu félagar i hinni dularfullu skæru- liðahreyfingu hægri öfgamanna, sem nefnir sig „Andkommúníska postulabandalagið". sem hótað hefur að ráða Adolfo Suarez for- sætisráðherra af dögum. en 18 eru sagðir vera úr vinstri öfga- hópnum Grapo. sem á undan- förnu ári hefur staðið fyrir fjöl- mörgum mannránum og 30 hægri- og vinstri sinnaðir öfgamenn handteknir á Spáni og leiðtoga friðarhreyfingarinnar á N-írlandi 99 Tek við verðlaununum fyr- frið” ir hönd allra sem — sagði Mairead Corrigan þegar henni bárust tiðindin aðsstjórnarinnar í Baskalandi, og tveimur lífvörðum hans, sem framin voru um helgina. Suarez forsætisráðherra og leið- togar stjórnarandstöðunnar skýrðu í gær frá fyrirhuguðum ráðstöfunum til að leysa brýnasta efnahagsvandann. Þessar ráðstaf- anir fela meðal annars í sér verð- lagseftirlit og 20% þak á launa- hækkanir á næstu 12 mánuðum. Osló, 10. október. Reuter. FRIÐARVERÐLAUN Nóbels voru í dag veitt samtökun- um Amnesty International og tveimur írskum konum, sem mjöfí hafa beitt sér fyrir því að virkja almenning á Norður-trlandi í þágu friðar. t greinargerð Nóbels- nefndar norska stórþingsins er rökstuðningurinn á þá leið að Amnesty International séu veitt verðlaunin fyrir baráttu undanfarinna 16 ára fyrir réttindum „samvizku- fanga“ og gegn pyntingum og dauðarefsingu. Betty Williams og Mairead Corrigan hljóta verðlaunin fyrir að skipuleggja víðtæka og almenna hreyfingu í þá átt að koma á friði og binda endi á 8 ára látlaus átök milli öfgasinnaðra mótmælenda og kaþólikka á Norður- trlandi. ,,Ég tek við þessum verðlaunum I því að koma á friði, og fyrir hönd fyrir hönd allra þeirra um víða þeirra fjölmörgu, sem hafa þjáðst veröld, sem þrá frið og vinna að | og verið fangelsaðir fyrir viöleitni ísraelsmenn sitja við sinn keip Sameinuðu þjóðunum. 10. uktóber. AP. MOSHE Dayan utanríkisráðherra ísraels lagði í dag fram uppkast að samningi um frið í Miðaustur- löndum. 1 uppkastinu er gert ráð Bhutto ákærður: 99 99 Skipulögð spilling og ógnarstjórn Islamabad. 10. uktóber. Keuter. ZULFIKAR Ali Bhutto, fyrrum forsætisráðherra Pakistans, var í dag stefnt fyrir hæstarétt lands- ins. Hann er ákærður fyrir „skipulagða spillingu og ógnar- stjórn“. í ræðu fyrir réttinum komst hinn opinberi saksóknari Framhald á bls. 26 fyrir áframhaldandi yfirráðum tsraelsmanna vfir vinstribakka Jórdanár og Gaza-svæðinu. Þá gerir tillaga Dayans ráð fyrir sér- stökum öryggisráðstöfunum við upptök Jórdanárinnar í Líbanon. svo og að siglingar Ísraelsmanna á öllum alþjóðlegum skipaleiðum verði tryggðar. A fundi með fréttamönnum i New York í dag vísaði Dayan á bug þeirri kröfu að Palestínu- menn fengju sérstakt landssvæði til eignar og ábúðar, um leið og hann áréttaði fyrri yfirlýsingar israelsstjórnar um að PLO ætti ekkert erindi að samningaborð- inu á fyrirhugaðri Genfarráð- stefnu. Kvað Dayan þátttöku PLO í ráðstefnunni ekki koma til greina enda þótt samtökin hyrfu frá stefnu sinni um tortímingu ísraelsrikis. Bandariska vikuritið News- week skýrir frá því um helgina að Yassir Arafat, leiðtogi PLO, hafi Framhald á blf. 26 sina til að koma á friði," sagði Mairead Corrigan tárfellandi þeg- ar henni bárust tíðindin í Belfast í dag. Betty Williams, sem stödd var í Lundúnum er henni var tilkvnnt um verðlaunaveitinguna, varð að orði: „Við höfum ekki verið að þessu nema 14 mánuði, en aðrir hafa reynt að stuðla að friði árum saman. En vissulega höfum við beitt okkur af alefli, og kannski eigum við þetta bara skilið." Andrei Sakharov, einn helzti leiðtogi baráttumanna fyrir mannréttindum, fagnaði í dag verðlaunaveitingunni að heimili sínu í Moskvu. Sakharov voru veitt friðarverðlaunin fyrir tveimur árum, og taldi hann Amnesty International samtökin vel að verðlaununum komin, þar sem þau hefðu með „ótrauðri bar- áttu fyrir mannréttindum" gífur- leg áhrif á almenningsálitið f heiminum. Friðarverðlaunum Nóbels var ekki úthlutað í fyrra, en i greinar- gerð Nóbelsnefndarinnar segir að Martin Ennals, framkvæmda- stjóri Amnest.v International, lýsti yfir undrun og fögnuði for- vígismanna samtakanna vegna verðlaunaveitingarinnar. Núver- andi formaður samtakanna er sænskur blaðamaður, Thomas Hammerberg. (AP-símamynd). verðlaunin til írsku kvennanna séu veitt fyrir árið 1976, en Amnesty International hlýtur Framhald á bls. 26 Ræningjunum send „mikilvæg orðsending Bonn. 10. oklóhur. AF. SKÝRT var frá því í Bonn í dag, að v-þýzk stjórnvöld hefðu sent hryðjuverkamönn- unum, sem enn halda Hanns- Martin Sehleyer I gíslingu, mikilvæga orðsendingu. Var orðsendingin sögð geta haft úrslitaþýðingu, en ekki fékkst nánar upplýst í hverju hún væri fólgin. Var svissneska lögfræðingn- um Denis Payot falið að koma skilaboðunum áleiðis til mann- ræningjanna, en hann hefur gegnt hlutverki milligöngu- manns í samningaumleitunum milli v-þýzku stjórnarinnar og mannræningjanna. Krafa mannræningjanna. sem eru í slagtogi með Baader- Meinhofhryðjuverkahópnum, er að 11 félagar þeirra verði látnir lausir úr fangelsum í Vestur-Þýzkalandi og þeir Framhald á bls. 26 Brezkir sjómenn krefjast gagngerrar endurskoðun- ar á fiskveiðistefnu EBE Lundúnuni. 10. októher. Einkaskeyti AP til IVIorgunhlaðsins. ÞRENN helztu samtök brezka sjómanna hafa óskað eftir fundi með James Callaghan for- sætisráðherra hiö bráð- asta þar eð þeir telja brýna nauðsyn bera til að fiskveiðistefna Efna- hagsbandalagsins verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Hafa Landssamtök fiskimanna, Brezka fiskimannasambandið og Skozka fiskimanna- samandið sent Calla- ghan sameiginlega orð- sendingu þar sem óskað er eftir fundi með hon- um um málið, helzt eigi síðar en 19. þessa mánaðar. Ráðherranefnd Efna- hagsbandalagsins kem- ur saman til fundar 24.—25. október. og er búizt við því að þar verði gerðar breytingar á fiskveióistefnu banda- lagsins, sem hug^anlega muni hafa mikil áhrif á framtíð fiskveiða á aðildarrikjum banda- lagsins, og eru likur á að áhrifanna muni gæta í margar kynslóðir, eins og það er orðað i orð- sendingu sjómannasam- takanna. Brezkir sjómenn hafa sívaxandi áhyggjur af því hve mörgum fiski- skipum er lagt. Þróunin hefur orðið til þess að magna enn atvinnuleys- ið í fiskiðnaði og skyld- um atvinnugreinum, að því er fram kemur í orð- sendingunni, og siðasta dæmið um hið alvarlega ástand er að fyrir rúmri viku var brezkum togur- um vísað af fiskimiðum i Barentshafi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.