Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1977 Prófkjör Alþýðu flokksins í Reykjavík: Eggert G. í 1. og 2. sætið Sigurður E. í 1.-3. sætið „EG hef ákveöiö aö gefa kost á mér í I. og 2. sæti í prófkjöri Alþýöuflokksins í Reykjavik fyrir næstu alþingiskosninsar og veröa þannig viö áskorunum of> meö- mælum um aö vera í kjöri," saíiöi Egnert G. Þorsteinsson alþinjiis- maöur i samtali viö Mbl. í gær- kviildi en fyrir nokkrum döf>um kom þaö fram í Mbl. aö Benedikt Gröndal mun bjóöa sif< fram í 1. sætiö á listanum. Þá haföi Morgunblaöiö einnifi samband viö Sigurö E. Guömundsson og spuröi hann um ákviiröun í framboös- málum. „Éji reikna fastlesa meö þvi aö gefa kost á mér í 1.—3. sæti og verða þanniíí aö beiöni fjiilmargra flokkssystkyna minna," sagöi Siguröur. Morgunblaðsmenn rákust á þessa sérstæðu flutninga er þeir voru á ferð í Ifafnarfirði. Hér er verið að flytja 30 tonna eikarbát frá skipasmiðastöðinni Básum f Hafnarfirði. Er stöðin í norðurhluta bæjarins og verður því að flytja bátana á bfl um bæinn til sjósetningar. Þessi bátur fer til Hvammstanga, eigendur eru þeir Friðrík Friðriksson og Sigurður B. Karlsson. Er báturinn búinn til alhliða veiða og er stærsti bátur sem Básar hafa smfðað. Hjá stöðinni vinna frá 6—10 manns og framundan er smfði 22 tonna eikarbáts fyrir útgerðarmann í Vestmannaeyjum. (Ljósm. Friðþjófur) Frumvarp til fjárlaga: © INNLENT Óbreytt fiskverð YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur undanfarið haft almenna fiskverðið til með- ferðar og lauk störfum f gærdag. Var ákveðið að lágmarksverð fyrir næsta tfmabil eða tii ára- móta skyldi vera hið sama og gilti fram til 30. september n.k. Þessi ákvörðun var tekin með atkvæðum oddamanns og fulltrúa kaupenda en fulltrúar seljenda greiddu atkvæði gegn þessari verðákvörðun. I yfirnefndinni áttu sæti Jón, Sigurðsson, þjóð- hagsstjóri, sem var oddamaóur, Arni Benediktsson og Eyjólfur Is- feld Eyjólfsson, fulltrúar kaup- enda, og Kristján Ragnarsson og Ingólfur Ingólfsson, fulltrúar seljenda. Innan verðlagsráðsins er nú verið að byrja á því að fjalla um veró á loðnu og fleiri fisktegund- um en nýtt verð á að liggja fyrir 15. október n.k. Fjármagn tll vegagerðar hækkar um 70 pr ósent Verður 9,6 milljarðar króna á komandi ári — Tekna aflað með hækkun bensínskatts, hækkuðu ríkissjóðsframlagi og lántökum IIEILDA RKOSTNAÐUR vegna vegagerðar er áætlaður 9.6 milljarðar króna f frumvarpi til fjáriaga fyrir árið 1978, sem lagt var fram á Alþingi f gær. Er það 3,9 milljarða kr. hækkun frá fjár- lögum yfirstandandi árs, eða 70% Aætlun þessi er allverulega hærri en gildandi vegaáætlun, enda gert ráð fyrir þvf að leggja fyrir Alþingi endurskoðaða vegaáætl- un komandi árs á þessu hausti, f samræmi við yfirlýsingu rfkis- st jórnarinnar þar um frá 28. marz sl. — I frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir 15 króna hækkun benzfngjalds og hliðstæðri hækk- un þungaskatts í fjáröflunar- skyni til vegagerðar. Um það efni segir í athugasemdum með frum- varpinu: Með tilliti til þess að allt þetta fé, og reyndar meira, renn- ur til þess að bæta þjónustuna við vegfarendur, þ.e. allan almenn- ing, er ekki skynsamlegt að Ifta á þessa gjaldtöku sem tilefni verð- bótahækkunar á laun.“ Eftirfarandi yfirlit sýnir í gróf- um dráttum sundurliðun heildar- kostnaðar og fjármögnun vega- gerðar, samkvæmt fjárlögum 1977, vegaáætlun 1977—80 og framlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir komandi ár. Nf h.vRRÍnRar Viðhald Annað Fjárlög '77: m.kr. 2.988 1.904 758 Vegaávtlun '78: m.kr. 3.180 2.683 1.137 Fjárlög '78: m.kr. 5.200 3.000 1.404 Heildarútgjöld Fastir tekjustofnar Framlag rfkissjððs Lántökur 5.650 3.271 779 1.600 7.000 4.300 900 1.800 9.604 6.100 1.304 2.200 Fjármögnun alls 5.650 7-000 9.604 Framhald á bls 18. Verkföllin í sveitarfélögunum: Viðræður fóru fram mjög viða í gærdag Sveitarstjómarverkföll ekki eins viðtæk og talið var SAMNINGAVIÐRÆÐUR áttu sér stað raeira eða minna alls staðar á landinu í gær, þar sem verkföll írskur fiskkaupmaður kannar möguleika á fiskkaupum frá íslandi tRSKUR fiskkaupmaður og hankamaður komu hingað til lands í fyrradag að kanna möguleika á kaupum á fiski héðan. Attu þeir viðræður við fulltrúa Landssamhands fslenzkra útvegsmanna, Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna og Samband íslenzkra fiskframleiðenda og kynntu sér möguleikana á fiskkaupum, en vegna verkfalls opin- berra starfsmanna urðu þeir að fara samdægurs heim aftur, en kváðust koma aftur innan hálfs mánaðar til frekari viðræðna. Ágúst Einarsson hjá LÍU sagði Mbl. að Írunum John Doran, for- stjóra John Doran Exports Ltd. i New Ross, og Michael Pender frá Guínnes Mahon Bank i Dublin hefðu verið kynnt verð á þeim mörkuðum erlendis, sem islenzk skip selja á. Hefðu þeir sýnt mest- an áhuga á þorski og ýsu og eftir því sem Ágúst sagði fyrst og fremst með hráefni fyrir írsk frystihús í huga, en hugsanlega einnig einhvern útflutning á óunnum fiski til Bretlands í fram- tiðinni. „Þeim er alla vega ljóst, hvað þeir þurfa að borga til að vera samkeppnisfærir við þýzka, belgíska og danska markaðinn,“ sagði Ágúst. „Og þeir ætla að kanna sín mál betur heima fyrir, en verðið á brezka markaðnum kom einnig til tals.“ Arni Finnbjörnsson hjá SH sagði, að írarnir hefðu fyrst og fremst verið að kynna sér aðstæð- ur hér, sem þeir hefðu greinilega verið ókunnir með öllu. „Þeir spurðu um einn og annan fisk og fannst mér þeir hafa mestan áhuga á freðfisk og þá grálúðu,“ sagði Árni, „en um hugsanlegt verð eða magn var ekkert rætt.“ sveitarstjórnarmanna stóðu yfir. Erfitt var þó að gera sér grein fyrir þvf, hvar viðræður voru lengst komnar, en eins og getið var í Morgunblaðinu í gær höfðu samningar tekizt á fjörum stöð- um og hafði atkvæðagreiðsla far- ið fram um samningana. Þessir slaðir voru Akranes, Akureyri, Vestmannaeyjar og Seltjarnar- nes. Talning atkvæða fór fram i þremur fyrstnefndu kaupstöðun- um, en henni var frestað á Sel- tjarnarnesi þar til í dag. Verkfall rlkisstarfsmanna náði uni land allt, en hins vegar voru verkföli sveitarstjórnarmanna miklum mun strjalli, en menn hefðu i raun mátt búast við. Ástæða þess er aö víða eru ekki starfsmannafélög og þar sem þannig háttar var ekkert verkfall og því full vinna á sveitarstjórn- arskrifstofum og öðrum stofnun- um sveitarféiaganna. Sem dæmi má nefna að sveitarstjórnarstarfs- mannaverkföll voru ekki í Grindavík, Sandgerði, Njarðvík- um, Borgarnesi og hvergi á Snæ- fellsnesi. Þá var hvergi slíkt verk- fall á Vestfjörðum, nema á Isa- firði og hvergi á Austurlandi, nema í Neskaupstað. A Suður- landi er eitt starfsmannafélag sveitarstjórnarmanna og náði verkfall þeirra til helztu þéttbýl- iskjarna, en utan við þá voru ekki verkföll. Á Norðurlandi voru verkföll á Akureyri, Sauðárkróki, Siglufirði og Húsavík, en engin verkföll voru á öðrum stöðum nyrðra, t.d. hvorki á Dalvík né Ölafsfirði. Víða, þar sem verkföll voru, hafa verklegar framkvæmdir vérið boðnar út og eru i höndum einka- aðila. Allar slíkar framkvæmdir halda áfram þrátt fyrir verkfall sveitarstjórnarmanna á stöðun- um. Segja má að verkföllin hafi orð- ið tilfinnanlegust í þeim kaup- stöðum, þar sem strætisvagnar eru og barnaheimili. Stöðvun slíkra þjónustufyrirtækja kemur mest viö fólkið. Smygl fannst í Brúarfossi TOLLGÆZLAN fékk fregnir af því á mánudaginn að smyglað áfengi úr m.s. Brúarfossi gengi kaupum og sölum á Isafirði, en þangað hafði skipið komið um helgina. Þar sem þessum fregnum bar saman við fregnir frá Rifi á Snæ- Framhald á hls 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.