Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKT0BER 1977 29 ^jj VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 gera. En á sumum vinnustöðum er ekki flóafriður fyrir útvarpinu, einn vill hlusta á þessa eða hina síðdegissöguna, annar vill heyra alla poppþætti, sem hægt er og þannig glymur þetta í eyrum margra daglangt. Að þessu leytinu er því ágætt að þessari truflun, sem ég vil kalla, skuli linna, því það að hafa út- varpið glymjandi yfir sér á vinnu- stað finnst mér ekki góð notkun á þeim annars stundum ágæta fjöl- miðli. En ég endurtek, að hvildin er að mörgu leyti góð og ég er ein þeirra, sent hvíldinni verður feg- in ef hún ekki verður of Iöng. Útivinnandi kona." % Sólskinskvæði Og úr því verið er að tala um úlvarpið birtum við hér tvær vís- ur, sem ortar eru i tilefni sið- degissögunnar Ulfhildur, sem Hugrún skáldkona las i útvarp fyrir skömmu, en vísurnar sendi S.G.J. Med sól i hjarta og sól í fan«i og sólareldinn í hverri laug. Meó sólskinsbrosi hún sásl á gangi og sólargeisli frá henni flaug. Þú sólarfrænka frá sólarhæðum, hreið sólarljómann um viða byggó. meó sólskinshókum og sólskinskvæóum og sólarfeguró í trú og dyggó. Þessir hringdu 0 Enginn veit hvað átt hefur... Morgunhani: — Nú þegar verkfallið er komið til framkvæmda, verkfall- ið, sem margir hafa sjálfsagt beð- ið eftir að fá að gripa til, er ýmis- legt sem gengur úr skorðum eins og vænta mátti. Sennilega er ein mesta breytingin sú að hafa ekki útvarpið og mér dettur ósjálfrátt í hug orðtakið: enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Nú er oft kvartað og kveinað yfir útvarpsdagskránni og ég held að ég sé ekki saklaus þar, margt hef- ur manni leiðst i útvarpinu, en þar hefur einnig verið margt áhugavert að finna. En fyrir morgunhana eins og mig er verst að hafa ekki útvarpið á morgn- ana, það liggur við að maður verði að taka upp nýja iifnaðarhætti svona að morgni dags, svo bund- inn hefur maður verið af því að hafa rabb morgunþulanna yfir sér og lög þeirra, og velur hvor með sínum smekk, eins og.kunn- ugt er orðið. % Enginn póstur Maður sem hefur pósthólf á leigu i pósthúsinu í miðborg Reykjavíkur spurðist fyrir um það af hverju væri ekki hægt að nálgast póst i hólfunum þrátt fyrir verkfallið, þar lægi án efa póstur, sem hefði komið i hólfin fyrir helgi og menn hefðu ekki getað nálgást á mánudeginum. — Við borgum leigu fyrir hólfin og mér finnst ástæðulaust að meina okkur aðgang að þeim, til að athuga hvort sett hefur verið eitthvað í þau að kvöldi mánu- dagsins, sem er kannski verið að bíða eftir. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson A skákmóti i Ungverjalandi i fyrra kom þessi staða upp i skák þeirra Salamons og Bileks, sem hafði svart og átti leik. . • Bréfarusl í Breiðholti Vesturbæingur: — Ég þurfti á sunnudaginn var að fara í lyfjabúð og var sú eina opna i Reykjavik í Breið- holti. Þetta var í fögru veðri á sunnudagskvöldið og þarna ofan að er fallegt útsýni, sem hægt er að njóta, en ég hef aldreí komið þarna uppeftir áður. En það sem skemmdi mjög fyrir ánægju var ntikið bréfarusl við búðirnar. Þarna er semsé, auk lyfjabúðar- innar, banki, matvöruverzlun. sælgætissala og e.t.v. fleiri fyrir- tæki og mér fannst bréfaruslið svo yfirþyrmandi að lá við ógleði. Alls kyns umbúðir og búið var að .sulla úr gosdrýkkjaflöskum á rúð- ur og ég er viss um að þetta rusl allt var ekki aðeins frá þessari einu helgi. Því vildi ég spyrja hvort verzlanaeigendur þarna gætu ekki sameinazt um að láta sópa stéttina í kringum búðirnar, því þarna veður maður drasl upp í ökkla. Ekki sá ég heldur neinar ruslafötur utan dyra. Kunningi minn, sem býr í efra Breiðhólti, sagði að við verzlanamiðstöð þar hefði ástandið verið svona, en gjörbreytzt til batnaðar er fötur voru settar upp við stéttina þar. Mér fyndist að borgin ætti að koraa þarna fyrir ruslafötum og verzlanaeigendur að láta sópa og þrífa, þeir eru það margir að hægt er að skipta því á milli fyrir- tækjanna. 24. ... Rf3+ 25. Rxf3 (Eða 25. Bxf3 — e2+ 26. Dd4 — Bxd4 27. Hxd4 — Dfl mát) e2+ 26. Rd4 — exdl = D+ 27. Dxdl — Hel + ! Hvítur gafst upp. Eftir 28. Dxel — Bxd4 29. Df2 — Bxf2+ 30. Kxf2 — Dxg4 er staða hans von- laus. Ljósiö fer eitthvað í taugarnar á honuni? 83? SIG&A V/GGA % 'ÍILVERAW vfcwO/Wo Á/.ÍT4 Yllá vív/v<- m ALWlNm Vk £á LPtfKAOl Vff V/6 \<A0?\9, MGWlLW Yli/VJ. /ÝW&ÍKÝ&W 1lt AL& EWb QÚIN& V£RA‘ 0RAG\iÖLÍ 5ÍW T(J/VNAN KW OhI4 LÖ9PM Á VfR, Ijosm.: »* riöþjófur. Stjórn Bæjarleiða við opnun hins nýja húsnæðis í gær. Talið frá vinstri: Þorkell Þorkelsson, Ingvar Sigurðsson, Hákon Sumarliða- son, Hans Tómasson og Snorri Laxdal. Bilið milli kirkju og leigubilastöðv- ar ekki svo langt” Bæjarleiðir opna nýtt hús- næði fyrir þjónustustarfsemi LEIGUBILASTÖÐIN Bæjar- leiðir h.f. flutti nýlega form- iega með starfsemi sína í nýtt húsnæði að Langholtsvegi 115. Nýja húsnæðið er 320 fermetr- ar að sta>rð á þremur hæðum og hefur allt húsið verið tekið í notkun, efsta hæðin er leigð Fasteignasölunni Húsafelli og götuha'ð fyrirtækinu Tívolí en jarðha'ð hafa leigubílst jórarnir sjálfir til afnota fyrir þjónustu- starfsemi Bæjarleiða. Hús þelta er teiknað af Kjartani Sveinssyni, en verkfræðiteikn- ingar annaðist Indriði Indriða- son. Hjá Bæjarleiðum eru nú starfandi 160 bílstjórar og voru um tuttugu þeirra mættir á hlaðamannafundi sem stjórn Bæjarleiða boðaði til vegna opnunar hússins í gær. Stjórn Bæjarleiða h.f. skipa þeir Þorkell Þorkelsson, sem hefur annazt stjórnarforystu og framkvæmdastjórn allt frá stofnun hlutafélagsins, 15. jan. 1955, Hans Tómasson, Snorri Laxdal, Ingvar Sigurðsson og Hákon Sumarliðason. í ávarpi sem Þorkell Þorkels- son flutti i gær, sagði m.a.: Hlutafélagið Bæjarlej.ðir var stofnað 15. jan. 1955. Tilgangur félagsins var rekstur leigubif- reiðastöðvar í Reykjavík, sem hófst í litlum benzínskúr hér á þessum stað 23. apríl 'sama ár og er því Bifreiðastöðin Bæjar- leiðir samkvæmt framansögðu tæplega 23 ára. Fjöldi bifreiðastjóra var i upphafi 11, en eru nú 160. I dag er fastráðió starfsfólk stöðvar- innar níu starfsmenn. Allur tækjabúnaður hefur verið end- urnýjaður i nútima tæknihorf. Ennfremur sagði Þorkell að starfsemi Bæjarleiða byggðist á fleiru en daglegum þjónustu- störfum, félagslíf væri blóm- legt, staífsmannafélag, kvenfé- lag, lánasjóður. taflfélag og íþróttafélag. Sarna árið og Bæjarleiðir var stofnað fékk félagið leyfi til byggingar og fjárfestingar á húsnæði, sem ekki mátti kosta meira en 80 þús.kr. og reist var einnar hæðar timburhús, tekið i notkun árið 1956. Hefur starf- semi Bæjarleiða farið fram í þvi húsi þar til nú nýja húsnæð- ið er tekið í notkun. Er Þorkell Þorkelsson hafði lokið máli sinu tók séra Árelíus Nielsson sóknarprestur Lang- holtskirkju til máls, en hann blessaði starfsemi leigubíla- stöðvarinnar við stofnun henn- ar. Sagði séra Arelíus að hús- næði þetta væri hið fyrsta, sinn- ar tegundar. sem vigt væri af presti. Gat hann þess síðan að leigubílstjórar þessa fyrirtækis heföu sýnt af sér ntikinn dreng- skap, t.d. varðandi sumarleyfis- ferðir aldraðs fólks, sem þeir hefðu ekið án þess að þiggja fé fyrir. „Einn dagur hjá Drottni er dýr," ságði séra Arelius. „Og einn dagur hjá Bæjarleiðum er líka dýr. Bilið á milli kirkjunn ar og leigubifreiðástöðvar er ekki svo ýkja langt,.." Norskur tónlistarkennari til Stykkishólms í vetur Slykkishólmi. 6. októher. Tónlistarskólinn hér í Stykkis- hólmi er nýtekinn til starfa og er hann fullskipaður. Að honunt var ráðinn skólastjóri, Arne Björnhöj, norskur tónlistarkenn- ari. Með honum kennir Hafsteinn Sigurðsson, sem var starfandi við skólann í fyrra. Þá hefur skóla- stjórinn tekió að sér þjálfun Lúðrasveitar Stykkishólms. Fróllaritari. , wf/,/trz\v, 'yí AWdIÖJ/ ,&ARA UKK/ A9 MAWR VffF9/ , ALQRV Wl5T W ÖOKUWWR! SÍÁ, VaQ K $WI AYIALÍ6T, 40 ý£Kj04., 9-/6 %voHa 'rxulhilj<ss- ^ÍKT ýöíK?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.