Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1977 5 margt annað að hún heldur verð- mæti sínu um aldir." ,,Mér þykir hins vegar illt til þess að hugsa að af hverri bók skuli maður þurfa að rétta rikis- valdinu um þúsund krónur í sölu- skatt. Eg hef nú fengizt við bóka- útgáfu næstum hálfa öld og það hefir alltaf verið helzta vandamál- ið aö finna eina, tvær eða þrjár bækur til að standa undir útgáf- unni að öðru leyti og min reynsla er sú að um 70% bókanna seljast ekki fyrir kostnaði. Samt hefur verið haldið áfram, því að það er með bókaútgáfuná eins og áfengi og eiturlyf, að þegar menn eru eini sinni byrjaðir er erfitt að hætta." Talið berst að samskiptum fjöl- miðla og bókaútgefenda. ,,Ég tel mig geta fullyrt," sagði þá Ragn- ar, ,,að ef dagblöðin sérstaklega væru ekki svo- velviljuð bókaút- gáfunni sem raun ber vitni, þá væri óhugsandi að halda úti bóka- útgáfu í þeim mæli sem hér er gert. Þó maður auðvitað bölvi við og við ritdómi, sem birtist, þá er stuðningur dagblaðanna ómetan- legur." Ragnar var þá béðinn um að segja lítið eitt frá útgáfubókum Helgafells í ár. ,,Já, á þessu ári koma út hjá Helgafelli um 15 bækur, og eru þær ýmist komnar út eða koma út á næstunni. Skal ég nefna nokkrar sérstaklega og þá fyrst nýtt ljóðasafn eftir Tömas Guðmundsson — Heim til þín, ísland. Ljóðabók frá Tómasi er auðvitað stórkostlegur við- burður en ég hef átt þess kost að lesa þessa bók þrisvar og álít að Tómas hafi aldrei ort betur en í þessari bók. Halldór Laxness Sú bók sem ég er þó ef til vil hreyknastur af er ný á Norður- landstrómet Petters Dass, sem uppi var 1647—1708 og mun yfir- leítt vera talinn höfuðskáld Norð- manna allar götur frá miðöldum og fram á 19. öld, eins og segir í bókakynningu. Þar segir enn- fremur: Þetta álit á hann mest að þakka kvæðabálkinum mikla, Norðurlandstórmet, sem hann er sagður hafa verið tuttugu ár að yrkja. Kvæðið er einskonar þjóðarkvæði Norðmanna. Við Is- lendingar eigum ekkert verk, sem samsvari þessari stórfenglegu lands- og þjóðlifslýsingu. Hins vegar fer ekki hjá því, að heimur Dr. Kristján Eldjárn kvæðisins minni oss stöðugt á eig- ið líf og sögu.' Fleira gerir kvæðið kunnuglegt. Eins og þýðandi bendir á í formála eigum við til hliðstæðan skáldskaparstíl frá sama tima, til dæmis í skáldskap Bjarna Gissurarsonar og verald- legum kvæðum séra Hallgrims. Það eru lýsingar daglegs lifs, ýmist raunsæi eða skrautlegar ýkjur, strangar umvandanir eða galsafenginn húmor. . ,Dr. Kristján Eldjárn hefur snúið kvæðinu á íslenzku af orðsnilld og fræðimannslegri þekkingu. Kristján Guðjónsson, hstmálari hefur gert bókarskreytingu, sem áreiðanlega ber af flestu, sem vér eígum að venjast í þessari grein.“ Tómas Guómundsson Rétt fyrir jólin kemur einnig út ný ritgerðabók eftir Halldór Lax- ness. Þarna eru komnar ýmsar greinar, sem hafa birzt að undan- förnu en að auki eru i bókinni nýir kaflar, sem Ragnar kvað Halldór vera að vinna að um þess- ar mundir. Ragnar gat þess einnig að fyrir hvatningu frá Halldóri Laxness og Þorsteini Stephenssen hefði nú verið ráðist í að gefa út leikritaþýðingar Árna Guðnason- ar magisters, eins afkastamesta og vandvirkasta leikritaþýðanda hér á landi en eftir hann lægju í kringum 40 þýðingar. Kæmi fyrsta bindið af þessari útgáfu nú út fyrir þessi jól i takmörkuðu upplagi. „Þá vil ég sérstaklega geta um efnilegan nýiiða. Erni Snorrason, sem skrifað hefur skáldsögu sem hann nefnir Óttar, og þetta er bezta frumsmíð sem ég hef fengið til útgáfu fyrr og síðar," sagði Ragnar ennfremur. Þarna segir frá íslendingi sem er í þann veg- inn að hverfa heim eftir margra ára dvöl í Frakklandi, og um skáldsögu þessa segir í bókar- kápu, að þetta sé mjög tímabær og athyglisverð saga, sem fjalli um nútímalegt viðhorf og nútima hátterni í samræmi við þaó. En jafnframt um hverfandi merking þess að vera Islendingur í heimi, þar sem öll gildi virðast lögð að jöfnu. Af öðrum útgáfubókum gat Ragnar um endurminningabók Liv Ullmann — Umbreytingin, en bók þessarar mikilhæfu leikkonu hefur trjónað á metsölulistum víða um lönd. Ólöf Eldjárn hefur þýtt bókina. Einnig kemur út hjá Helgafelli önnur kunn endur- minningabók en íslenzk i fyllsta máta. Þetta er endurútgáfa á bók Theódórs Friðrikssonar — 1 ver- um, sem Gils Guðmundsson las upp i útvarpinu sem framhalds- sögu ekki alls fyrir löngu. Þá er að nefna nokkrar ljóða- bækur, m.a. eftir Sigfús Daðason og Hjört Pálsson og ennfremur skáldsögu eftir Egil Egilsson kennara, sem Ragnar kvað vera all berorða og eftir Einar Guð- mundsson, kunnan þjóðsagna- safnara, sem nú sendir frá sér fyrstu skáldsögu sína á sjötugs- aldri, fallega og rómantíska sögu af Suðurlandi, að sögn Ragnars, og Einar hefur gefið nafnið ,,í föðurgarði fyrrum". Barmmerkjahappdraetti Iðnkynningar í Reykjavík Barmmerki þau sem Iönkynn- ing í Re.vkjavík dreiföi til verzl- unar- og iönverkafólks í Re.vkja- vík voru númeruö og giltu sem happdrættismiöi. Nú hefur verið dregiö í þessu happdrætti og komu vinningar á eftirfarandi númer. Happdra'tti verslunarfólks: 1. 3241 Mokkakápa/frakki frá Gráfeldi hf. 2. 3535 Stockholm sjónvarpsstóll frá Módel húsgögn. 3. 2648 5 manna tjald með himni ifrá Belgjagerðinni. Happdrætti iönverkafólks: 1. 1194 Mokkakápa/frakki frá Gráfeldi hf. 2. 553 Stockholm sjónvarpstóll frá Módel húsgögn. 3. 2303 5 manna tjald með himni frá Belgjageröinni Nokkrir vinningar hafa verið sóttir, en þ.eir, sem hafa barm- merki með einhverjum af ofan- töldum númerum, geta snúið sér til Iðnkynningar í Reykjavík, Hallveigarstíg 1, sími 24473, f.vrir 20. október n.k. I frétt frá Iönkynningu í Reykjavík segir að barmmerkjum hafi verið dreift í Reykjavik og verðmæti vinninga sé um kr. 450.000.—. Jakki m/hettu Jakki kr.48.430- kr. 3.340,- Barnahúfa simi: 27211 Mokka KAPUR - FRAKKAR - JAKKAR íslensk skinn • íslensk hönnun íslensk framleiðsla Austurstræti 10 Myndirnar sýna tvær af fjölmörgum tegundum, sem við getum boöið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.