Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKT0BER 1977
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKT0BER 1977
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, simi 22480.
Hvað vill
BSRB?
Einn helzti þátturinn i
kröfugerð BSRB í þeirri
kjaradeilu opinberra starfs-
manna, sem nú stendur yfir,
er. að félagsmenn samtakanna
eigi kröfu á nokkurri leiðrétt-
ingu launakjara sinna til sam-
ræmis við launakjör á hinum
almenna vinnumarkaði, þar
sem opinberir starfsmenn eða
a.m.k ákveðinn hópur þeírra
hafi dregizt aftur úr starfshóp-
um á öðrum sviðum þjóðlífsins,
sem áþekk störf vinni Nú er
samanburður á launakjörum
alltaf erfiður Aðrir launþegar
vísa gjarnan, þegar slíkur sam-
anburður er til umræðu, til ým-
issa hlunninda, sem opinberir
starfsmenn njóta að þeirra mati
umfram aðra launþega og þá
ekki sízt til þess, að opinberir
starfsmenn njóti verðtryggðs
lífeyrissjóðs, sem ekki tíðkast á
hinum almenna vinnumarkaði.
Fjármálaráðherra, Matthias
Á Mathiesen, beitti sér fyrir
því, að Hagstofa Islands fram-
kvæmdi könnun á launakjörum
opinberra starfsmanna og al-
mennra launþega Að mati
ríkisstjórnarmnar leiddi þessi
könnun i Ijós, að opinberir
starfsmenn hefðu rök fyrir sínu
máli og sanngjarnt væri og
eðlilegt, að þeir fengju nokkra
leiðréttingu í yfirstandandi
kjarasamningum til þess að
þeir stæðu jafnfætis öðrum
launþegum í kjörum. Þessu
mati og þessari niðurstöðu hef-
ur ekki verið mótmælt af tals-
mönnum launþegasamtaka í
landinu og verður því að lita
svo á, að verkalýðshreyfingin
telji þessa leiðréttingu eðlilega
og muni ekki visa til hennar i
kröfugerð sinni í framtíðinni
í samræmi við þetta mat á
nauðsyn nokkurrar leiðrétting-
ar er Ijóst, að sáttatillaga sátta-
nefndar gerði ráð fyrir launa-
hækkunum til opinberra starfs-
manna umfram þær almennu
launahækkanir, sem samið var
um sl. sumar á hinum frjálsa
vinnumarkaði. Tilboð þau, sem
ríkið hefur gert í samningavið-
ræðum að undanförnu ganga
einnig lengra en almennu
samningarnir i sumar og sátta-
tillagan, sem felld var Þessar
umfram hækkanir koma fyrst
og fremst fram á miðbiki launa-
stigans, en það var einmitt i
þeim launaflokkum, sem BSRB
taldi mesta þörf á leiðréttingu
Sem dæmi um þessar umfram-
hækkanir skv. tilboðum rikis-
stjórnar má nefna, að ASÍ-
samningar voru í sumar taldir
jafngilda 26 — 27% launa-
hækkun í tilboði þvi, sem ríkis-
stjórnin hefur gert BSRB er
gert ráð fyrir að hækkun júli-
launa opinberra starfsmanna
frá maí-launum verði allt upp í
34%. Ef tekin eru t d laun í
15 launaflokki BSRB og metið
hvað hækkun þeirra frá mai
yrði mikil hinn 1 desember
n k kemur i Ijós, ef áætluð
9 3% hækkun vísitölu er reikn-
uð með, að hækkun til BSRB
nemur 56,2% Ef þessi 15
launaflokkur BSRB hefði hins
vegar á þessu tímabili fengið
þá hækkun, sem ASI samdi um
hefði hækkunin numið 40 3%
Ljóst er, að hér er mjög veru-
legur munur á I krónutölu
námu þessi laun í maí sl
124 765 krónum en mundu
nema 1 desember ef sam-
þykkt yrðu 194 882 krónur
Hækkunin nemur í krónutölu
rúmlega 70 þúsund krónum
Ef aðrir launaflokkar BSRB
eru metnir á sama hátt kemur i
Ijós, að mismunur á 5 launa-
flokki yrði BSRB í vil um 3 9
prósentustig miðað við ASÍ, i
8 launaflokki yrði mismunur-
inn 8.4 prósentustig BSRB i
vil, í 10 launaflokki 116 pró-
sentustig BSRB i vil, i 12
launaflokki 14 4 prósentustig
BSRB í vil, í 18 launaflokki
14.5 prósentustig BSRB í vil
og í 20 launaflokki 12 6 pró-
sentustig BSRB i vil
Það verður því ekki um villzt,
að launþegar sem taka laun
skv. miðbiki launastiga BSRB,
fá skv tilboði ríkísins mjög
verulegar launahækkanir um-
fram það, sem aðrir launþe'gar
fengu í sumar og er það gert til
þess að leiðrétta misræmi. sem
menn hafa orðið sammála um
að hafi skapazt Þegar þetta er
haft i huga er eðlilegt að spurt
sé í framhaldi af þvi að BSRB
hefur hafnað tilboði sem hefði
tryggt opinberum starfsmönn-
um svo verulegar kjarabætur:
hvað er það, sem BSRB vill?
Þeim hafa nú verið boðnir þeir
kjarasamningar, sem aðrír
launþegar i landinu samþykktu
fyrir nokkrum mánuðum og til
viðbótar hafa verið boðnar
kjarabætur til þeirra, sem taldir
voru eiga rétt á leiðréttingu
Hver er launastefna BSRB úr
þvi að sliku tilboði hefur verið
hafnað? Að hverju er stefnt?
Eðlilegt er að slíkar spurning-
ar vakni i Ijósi þess, að menn
eru væntanlega sammála um,
að með ASÍ-samningum var
teflt á tæpasta vað Raunar eru
margir þeirrar skoðunar, að
þeir hafi farið yfir strikið. Undir-
stöðuatvinnuvegir þjóðarinnar
eru reknir með tapi.
Tilboðið, sem BSRB hafnaði,
kallar á margra milljarða auka-
útgjöld fyrir ríkissjóð, sem úti-
lokað er að standa undir nema
með þvi að skera mjög veru-
lega niður þjónustu ríkisins við
þegnana eða hækka skatta
verulega, m.a. á meðlimum
BSRB sjálfum Á hvaða leið
erum við sem þjóð þegar 13
þúsund opinberii starfsmenn
eru komnir i verkfall vegna
þess, að þeir telja, að hér hafi
ekki verið nægilega vel boðið?
100 íslendingar bíða í New
York eftir að komast heim
Nær ekkert millilandaflug, en fíogid á fjóra staði innanlands í gærdag
UM EITT hundrar) Islendinjíar
hída nú í New York eftir aú kom-
ast til Islands. Fengu Flugleiðir
ekki skrifleKa staðfeslinRU á því í
fyrradaK. að þetta fólk fenRÍ að
l'ara í land hér ok fluKvélar
fenKju nauðsynleKa afKreiðslu til
að halda áfram. Yar því fallið frá
tveimur áætlunarferðum, sem
fljÚKa átti í K®r milli New York,
Keflavíkur ok Luxemborgar.. Er
óvíst hvenær fólk þetta kemst til
landsins, en vonazt var til að
lausn fenKÍst á þessu máli í daK-
Aðeins ein flugvél kom til
landsins á veKum FluKleiða, en
hins veKar var talsvert floKÍð
innanlands ok verður því ÍIukí
haldið áfram í daK- I fiær voru
floKnar þrjár l'erðir til Akure.vr-
ar, ein til Vestmannaeyja ok ein
til EKÍlsstaða. Að sÖKn Sveins
Sæmundssonar, hlaðafulltrúa
FluKleiða, fa'kkaði veruleKa á
hótelum í Reykjavík daKana f.vrir
verkfallið ok þá sérstakleKa á
Ilótel Loftleiðum, en þar eru að
jafnaði flestir útlendinKar. Hópar
IslendinKa eru um þessar mundir
í sólarferðum í S-Evrópu ok aörir
híða eftir að komast þangað.
Munu hvorki Flugleiðir né
ArnarfluK hafa leÍKufluR á veKum
ferðaskrifstofa fyrr en á föstu-
daK.
Ymsar ástæður eru fyrir því að
millilandaflufi er aðeins starfrækt
að litlu leyti. Meðal annars fer
vopnaleit ekki fram á Keflávíkur-
flugvelli, en slíkt er nauðsynlefit
að framkvæma á flufifarþefium á
leið til Evrópu og Bandaríkjanna.
Hins vegar geta flugvélar lent hér
á landi, en tollgæzla er í lágmarki
og farmur innsiglaður. Þá eru litl-
ar líkur taldar á að flugvélar, sem
lenda hér á landi, fái afgreidd
nauðsynleg gögn til að halda
áfram.
Aðeins ein flugvél lenti á Kefla-
víkurflugvelli í gær á vegum
Flugleiða eins og áður sagði. Kom
sú véí frá Glasgow og Kaup-
mannahöfn og voru með henni 96
Geysimikid álag á sjálfvirka símakerfinu:
Fólk bíður
tímunum
lang-
saman
eftir sambandi
GEYSIMIKIÐ álag var á sjálf-
virka símakerfinu í gær en í ga'r-
kvöldi var ekki vitaö um neinar
alvarlegar bilanir, að söfin
Gústafs Arnars yfirverkfræðings.
Það hefur því ekki reynt á það
enn hvort undanþágur verða
veittar ef bilanir verða á kerfinu
en Gústaf kvaðst frekar búast við
því að undanþágur yröu veittar
vegna þess hve símakerfið er mik-
ilvæKt í sambandi við öryggi
landsmanna.
A langlínustöðinni í Reykjavík
(02) og fjarskiptum við útlönd
(09) er aðeins öryggisgæzla og
engin önnur símtöl eru afgreidd
en þau sem varða öryggi fólks. Á
símstöðvum úti á landi er einnig
af-
öryggisgæzla og símtöl ekki
greidd nema í neyðartilvikum.
Af þessum sökum héfur verið
geysimikið álag ásjálfvirka síma-
kerfinu. Sagði Gústaf Arnar að
álagið hefði verið mælt annað
slagið í gær og það reynzt óvenju
mikið. þó ekki það mikið að leitt
hefði til bilana. Þegar þettá
ástand rikti mættu símnotendur
búast við að þurfa að bíða lang-
tímunum saman eftir sambandi ef
þeir ætluðu að hringja milli
landshluta.
Álag var einnig mjög mikið á
sjálfvirka kerfinu á höfuðborgar-
svæðinu i gær og þar var ekki
heldur vitað um neinar stórbilan-
ir.
farþegar. Gekk tollskoðun á
farangri farþega og áhafnar eðli-
lega fyrir sig. I dag'er væntanleg
flugvél frá London á vegum Flug-
leiða.
Starfsfólk Flugleiða á Kefla-
vikurflugvelli var í gær krafið um
sérstök skilríki starfsmanna i
hliðum lögreglunnar á Vellinum.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
hefur ekki verið fram á að þessir
passar væru sýndir í langan tíma
og margir starfsmenn höfðu þá
því ekki í fórum sínum í gær.
Kom þetta mjög flatt upp á starfs-
fólkið, sem ætlaði í gegnum hliðin
og komst aðeins hluti fólksins til
starfa sinna. Kom það þó minna
að sök en ella, þar sem fátt eitt
var að starfa hjá Flugleiðum á
Keflavikurflugvelli i gær.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
þurfti að aflýsa ráðstefnu, sem
vera átti á végum ullarkaup-
manna á Loftleiðahótelinu í vik-
unni, vegna verkfallsins. Var
ákveðið að ráðstefna þessi yrði i
staðinn haldin í Bandaríkjunum.
Þá sagði Sveinn Sæmundsson i
gær að siðustu dagana fyrir verk-
fallið hefði mikill fjöldi erlendra
ferðamanna hér á landi haldið af
landi brott vegna hins ótrygga
ástands i samgöngumálum. Mætti
segja að Loftleiðahótelið hefði
verið hálftómt i fyrrinótt og fáir
erlendir ferðamenn á hótelum í
borginni yfirleitt.
í gær voru farnar þrjár ferðir
til Akureyrar á vegum Flug-
félagsins og ein til Vestmanna-
eyja, Egilsstaða og Þingeyrar.
Flugumferðarstjórar á þessum
stöðum eru ekki í vcrkfalli BSRB
og var farþegum frá ísafirði og
Neskaupstað ekið til Þingeyrar og
Egilsstaða í veg íyrir vélarnar
þangað. I dag er áætlað að fljúga
á Akureyri, Egilsstaði og Vest-
mannaeyjar eins og í gær, að auki
er áætlað að fljúga á Sauðárkrók,
Isafjörð, Húsavik og Patreks-
fjörð. Sagöi Sveinn Sæmundsson
að ekki væri ljóst hvort vélarnar
fengju að lenda á þessum stöðum,
en á það yrði reynt í dag.
Aðspurður sagði Sveinn
Sæmundsson að leiguflug fyrir
ferðaskrifstofur væri ekki áætlað
fyrr en um helgina og vonuðust
menn til að verkfallið yrði leyst
þá. Magnús Gunnarsson hjá
Arnarflugi tjáði Morgunblaðinu í
gær, að á föstudaginn væri áætlað
t tUnr a
að Arnarflug færi með fulla vél
farþega til London og um helgina
væru síðan leiguflug til Palma á
Mallorka og til Kanaríeyja. Þang-
að til væri fyrirtækið ekki með
verkefni fyrir islenzka aðila,
þanníg að verkfallið kæmi ekki
verulega við rekstur fyrirtækisins
fyrr en þá.
Herjólfur
með mjólk
og farþega
til Eyja
UNDANÞÁGA var i gær veitt til
að Herjólfur gæti flutt farþega og
mjólk milli Þorlákshafnar og
Vestmannaeyja. Hins vegar má
skipiö ekki flytja neinar aðrar
vörur en mjólkina meðan á verk-
falli stendur. Þá voru í gær veitt-
ar undanþágur til starfsfólks
Sjálfsbjargar, félags fatlaðra,
Vinnuheimilisins að Reykjalundi
og Skálatúnsheimilisins í Mos-
fellssveit.
Það var ekkert verkfall I gær á Sólhakka, dagheimili fyrír born
starfsfólks á Landspftalanum. Ilnga fólkið lék þar við hvurn sinn
fingur, meðan flest önnur dagheimili og skólar voru lokuð vegna
verkfallsins.
Erill hjá kjaradeilunefnd:
Hjúkrunarnem-
ar skulu vinna
KJARADEILUNEFNl) starfar
stöðugt á meðan áverkfalli BSRB
stendur. 1 gær fékk nefndin hin
ýmsu vandamál til meðferðar og
afgreiddi hún þau. T.d. kom
beiðni til nefndarinnar um að
tollafgreidd vrðu tvenns konar
lyf, sem lífsnauðsynleg voru
sjúklingum og ekki voru til tollaf-
greidd. Gaf nefndin út tilkynn-
ingu um vinnuskyldu til þess að
l.vfin yrðu afgreidd.
Ilelzta vandamálið sem nefndin
fékk til meðferðar í gær var
vinnuskylda fyrir kennara Hjúkr-
unarsköla íslands. Vegna þess að
kennararnir höfðu hafið verkfall,
mynduðust miklir erfiðleikar þeg-
ar hjúkrunarnemar mættu ekki
til vinnu sinnar á spitölunum.
Höfðu kennararnir ályktað að þar
sem bóklegt nám félli niður ætti
hinn verklegi þáttur kennslunnar
einnig að gera það. Málið var síð-
an leyst með vinnuskyldu á hend-
, ur kennurum í hjúkrunarfræð-
um. Getur því hinn miklu fjöldi
hjúkrunarnema haldið áfram
störfum við spítalana.
Þá urðu nokkrir erfiðleikar við
hliðið inn á Keflavíkurflugvöll í
gær og vildi lögregla þar meina
mönnum inngöngu á vallarsvæð-
ið. Kjaradeilunefnd hafði úr-
ÁTVR lokuð
Afengis- og tóbaksverzlun ríkis-
ins er lokuð vegna verkfalls
BSRB.
skurðað að hliðarvarzlan væri
öryggiseftirlit og öryggiseftirlit
ætti að vera í lágmarki. Nefndin
úrskurðaði í gær að öryggiggæzla
við hliðið ætti að vera að því
marki, sem tíðkazt hefur. Hins
Verkfallsverð-
ir stöðvuðu
radarmælingar
lögreglunnar
VERKFALLSVERÐIR frá BSRB
stöðvuðu í gærmorgun lÖKreglu-
menn við radarmælingar og töldu
þa'rekkieigarétt á sér í verkfalli.
Það mun hins vegar vera skoðun
yfirstjórnar lögreglunnar að rad-
armælingarnar séu öryggisatriði,
en þa?r munu eigi að síður liggja
niðri meðan á verkfallinu stend-
ur.
Sá misskilningur hefur komið
fram, að lögreglan i Reykjavík
sinni ekki árekstrum, sem verða í
höfuðborginni, meðan á verkfalli
BSRB stendur. Hið rétta er, að
lögreglan fer i öll árekstra- og
slysaútköll og gerir þar allar
venjulegarathuganirog mælingar.
Hins vegar mun embætti lög-
reglustjörans ekki afgreiða frá
sér neinar skýrslur um þessa
árekstra fyrr en að loknu verk-
falli.
vegar sagði einn taismanna kjara-
deilunefndar að það væri ekki
hugmynd nefndarinnar að i verk-
falli ættu menn að leggja meira á
sig en endranær — vinnuskylda
öryggisgæzlumanna ætti að vera
aö því marki, sem verið hefði áð-
ur.
Þá má geta þess að hjá kjara-
deilunefnd var í gær talsvert mik-
ill erill. Fólk koni þar og kvaðst
ekki hafa fengið bein fyrirmæli
nefndarinnar um vinnuskyldu. i
fyrrakvöld var unnið fram á nótt
af starfsmönnum nefndarinnar,
þar sem landsbyggðin var látin
Framhald á bls. 30.
Frí hjá rúmlega
13 þúsund nemun
RUMLEGA 13 þúsund nemend-
ur i grunn- og forskólum í
Reykjavík fengu frí i skólanum
í gær vegna verkfalls BSRB.
Eru kennarar þeirra flestir í
verkfalli; en einhverjir eru þó i
Bandalagi háskólamanna. Dag-
heimili og leikskólar voru
sömuleiðis lokuð í Reykjavik í
gær og verða meðan á verkfall-
inu stendur.
Þó voru nokkrar undantekn-
ingar á þessu, þar sem dag-
heimili, sem rekin eru í tengsl-
um við Landspítalann og Borg-
arsjúkrahúsið, verða opin i
verkfallinu. Kjaradeilunefntí
úrskurðadi að fóstrur á þessujn
dagheimilum skyldu starfa í
verkfalli þar sem hjúkrunar-
fólk starfar að langmestu leyti
áfram með eölilegum hætti.
Háhyrningur og
handknattleiks-
menn fá synjun
HAHYRNINGSVEIÐIMENN
fögnuðu háhyrning suður af land-
inu I f.vrradag og hugðust þeir
flytja hann til Hollands í gær.
Sótlu þeir um undanþágu til að
flytja dýrið utan, en hún var ekki
veitt. Astæðan var sú, að ekki
þótti tr.vggt að vélin, sem ka*mi
hinfiað að sækja dýrið, kæmi
hingað tóm. Var háh.vrninKurinn
í sérstakri girðingu í Grindavík í
fiær.
Þá sóttu handknattleiksmenn
úr Val um undanþágu til að kom-
ast til Færeyja á fimmtudag, en
þeir eiga að leíka þar tvo leiki í
Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik um helgina. Var
Valsmönnum synjað um undan-
þáguna að svo komnu máli, en
verið er að kanna hvaða afleiðing-
ar það hefur í för með sér fyrir
íslenzkan handknattleik þurfi
Valsmenn að gefa leiki sfna í
keppninni vegna verkfallsins.
Í gærkvöldi áttu að fara fram
tveir leikir i 1. deild Íslandsmóts-
ins í handknattleik í Laugardals-
höllinni. Varð að fresta þeim báð-
Framhald á bls. 30.
SYNINGAR falla niður I Iðnó og Þjóðleikhúsinu meðan að verkfallinu
stendur, en þessi mynd var tekin á sviðinu I Iðnó f gær og það eru þeir
Tómas Zoéga, framkvæmdastjóri LR, og Jörundur Guðjónsson, leik-
sviðsst jóri, sem snúa saumavélunum og sviðsmvndin er úr Saumastof-
unni. (Ljósm. RAX).
Brunaverðir stöðva
leiksýningar LR
LEIKSYNINGAR verða ekki hjá
Leikfélagi Reykjavíkur i Iðnó
meðan á verkfallinu stendur.
Ástæðan er sú að í Iðnó er skylda,
samkvæmt 99. grein Brunamála-
samþykktár Reykjavfkur, að einn
brunavörður sé á hverri sýningu
félagsins í Iðnó. Leikarar hins
vegar eru ekki í BSRB og þvi ekki
i verkfalli frekar en aðrir starfs-
menn félagsins. Leikfélagið
reyndi aö fá undanþágu til að
brunavörður yrði áfram á leiksýn-
ingum í verkfallinu, en sú undan-
þága fékkst ekki. Tómas Zoéga,
framkvæmdastjóri LR, sagði i
gær að hann minntist þess ekki að
Leikfélagið hefði áður stöðvast
vegna verkfalls.
Þjóðleikhúsið verður einnig
lokað meðan á verkfallinu stend-
ur, en þar eru flestir starfsmenn i
BSRB. Einu leiksýningarnar, sem
verða í Reykjavík i verkfallinu
verða sýningar LR á „Blessuðu
barnaláni" i Austurbæjarbíói.
Sorphreinsun
nær óbreytt í
i
borginni
verkfallinu
SORPHREINSUN verður með
eðlilegum hætti í Re.vkjavík í
verkfallinu, en flestir starfsmenn
sorphreinsunardeildarinnar eru I
Dagsbrún, en ekki BSRB. Flestar
aðrar stofnanir á vegum borgar-
innar lömuðust verulega í verk-
fallinu í fiær og voru t.d. engar
strætisvagnaferðir. Var farið
fram á undanþáfiur vegna strætis-
vagna, en þeirri beiðni var synj-
að. Ilins vegar eru ferðir Land-
leiða milli Reykjavíkur og
Hafnarf jarðar með eðlilegum
hætti eins og aðrar sérleyfisferð-
Lágmarksvakt var hjá raf-
magns-, hita- og vatnsveitu
Reykjavikur i gær. Þórður Þor-
bjarnarson, borgarverkfræðing-
ur, var að því spurður í gærkvöldi
hvort unnið yrði við viðgerðir t.d.
ef heimtaug frá hitaveitu bilaði.
Sagói Þórður að slík tilfelli hefðu
ekki komið upp ennþá, en sagðist
álita að væru fyrirsjáanlegar
skemmdir vegna slíkra bilana,
yrði farið fram á undanþágu fyrir
viðgerðarmenn.
Mælingamenn við gatnagerð
hjá borginni eru i verkfalli og
tefur það mjög fyrir frantkvæmd-
um.'t.d. við malbikun Sætúnsins,
sem stendur yfir. Skipulagsstörf
hjá borginni tefjast verulega og
sömuleiðis mælingar fyrir nýjum
húsum og segja má að hjá flestum
stofnunum borgarinnar hafi að-
eins forstöðumenn unnið við
eignavörzlu í gær.