Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 4
4
■ (■% 5IMAK
jO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
wftle!d!rI
^BÍLALEIGA
H 2 1190 2 11 38
FERÐABILAR hf.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar
Klæðum og bólstrum
gömul húsgögn. Gott
úrval af áklæðum.
BÓLSTRUNí
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807,
Fyrirlestrar
um tæknimat
og þjóðfélags-
stefnu í HÍ
DR. JOSEPH L. STEVENS, priV
fessor virt llniversity of Vir{;inia
flutti s.l. fimmtudaK fvrsta fvrir-
lestur sinn í röi) fyrirlestra, sem
hann heldur á vegum verkfræöi-
skorar Háskóla tslands undir
heitinu „Technology Assessment
and scienee Policy".
í fyrirlestri sínum ræddi dr.
Stevens um samband tækninnar
viö ýmsa þætti þjöðfélagsins. Hélt
hann því m.a. fram, að tæknin
væri ekki orsök þeirra mein-
semda, sem komið hafa fram i
þjóðfélagsþróun nútímans, held-
ur væri það hið mikla skrifstofu-
bákn, sem upp hefur verið byggt.
í næsta fyrirlestri sínum mun
dr. Stevens ræða frekar tengsl
tækninnar við ýmsa þætti er
snerta hagkerfi, stjórnvöld og
einkarekstur. Enn fremur mun
hann ræða stjórnun og fjármögn-
un tæknilegra málaflokka og
dreifingu upplýsinga um tækni-
legan árangur. Fyrirlestrar dr.
Stevens verða dagana 11—14.
októbei' n.k. klukkan 17.00 dag-
lega i stofu 157 í húsi verkfræði-
skorar Háskóla íslands við
Hjarðarhaga 6. Aðgangur er öll-
um heimill.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1977
Ný ljóðabók Tómasar, ljóðaþýðing dr. Kristjáns Eldjárn
og ritgerðabók Laxness meðal jólabóka Helgafells:
„Vona að ég lifi ekki þá
stund er bókaútgáfan
verður niðurgreidd”
— segir Ragnar Jónsson í Smára
MARGT merkilegra hóka
kemur aö venju út hjá
Helgafelli á næstunni.
Reyndar er þegar getið um
D.vja ljóöahók eftir Tómas
Guðmundsson í fréttum en
af öðrum helztu hókum
Helgafells fyrir jólin má
nefna þýöingu dr. Krist-
jáns Eldjárns á Norður-
landstrómet Petters Dass,
þjóðarkvæði Norðmanna,
með myndskreytingu
Kjartans Guðjónssonar og
nýja ritgeröabók Halldórs
Laxness. Auk þess gefur
Helgafell nú út minninga-
bók Liv Ullmann, sem hef-
ur orðið metsölubók víða
um lönd, og skáldsögu eftir
Erni Snorrason, sem Ragn-
ar í Smára segir að sé bezta
frumsmíð er hann hafi
fengið í hendur um dag-
ana.
„Helgafell mun gefa út svipað
af bókum og undanfarin ár. Mað-
ur reynir að halda í horfinu með
útgáfuna meðan heilsa endist til
og vona aðeins að ég lifi ekki þá
stund að bókaútgáfan verði
greidd niður úr rikissjóði," sagði
Ragnar Jónsson i Smára, forstjóri
Helgafells, þegar blaðamaður
Morgunblaðsins leitaði hjá hon-
um frétta og barst þá talið einnig
á bókaútgáfu almennt.
Í framhaldi af þessum ummæl-
um var Ragnar spurður að því
hvort hann óttaðist það raunveru-
lega að til þess kæmi að íslenzk
bókaútgáfa þyrfti á opinberum
styrkjum að halda. „Það er ekki
gott að segja," svaraði Ragnar.
„Stór hluti útgátunnar er þegar
ríkisrekinn, og má t.d. benda á
Menningarsjóð og Ríkisútgáfu
námsbóka. Ég er þó ekki að lasta
almennt stuðning ríkisvaldsins,
því að hann getur verið góður og
nauðsynlegur þar sem hann 4 við,
eins og til að halda gangandi
starfsemi leikhúsanna og Sin-
fóníuhljómsveitarinnar. Það er
hrein fjarstæða að halda þvi fram
að stofnanir á borð við Sinfóníu-
hljómsveitina og leikhús skuli
bera sig heldur eigum við að ann-
ast þær með sömu umhyggju og
vita á hættuskeri. Ef við gerum
þaó ekki er andiegur doði þjóðar-
innar yfirvofandi.
„Það gilda önnur lögmál um
bókaútgáfuna. Hún er þarflegt
framtak frá efnahagslegu sjónar-
miði. Mestur hlutinn eða um 90%
gizka ég á er innlend vinna og
heilbrigð fjárfesting, umsetning í
heild skiptir hundruð milljóna og
i henni þar af leiðandi verulegur
gjaldeyrissparnaður. Stór hluti
þeirra bóka sem út koma eru
menntandi og hafa uppeldislegt
gildi, og bókin hefur það umfram
Málað á gler
Ný ljóðabók eftir Guðmund L. Friðfinnssön
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar hcfur gefið út Ijóðahókina IVIál-
að á gler cftir Guömund L. Frið-
finnsson, en Guðmundur cr áður
kunnastur f.vrir verk sín í lausu
máli og má minna á Hinu megin
við heiminn, seni úl kom 1958 og
treysti mjög sess Guðmundar á
skáidaþingi. Þessari nýju Ijóða-
bók er skipt í 2 kafla og heita þeir
Söleyjartrú og Oropinn og eilífð-
in. t hinum síðarnefnda eru sex
Ijöð, en þrjátíu í hinum fyrr-
nefnda. Anna María Guðmunds-
dóttir teiknaði myndir í bókina,
en Guöbrandur Magnússon geröi
káputeikningu. Bókin er 54 bls.
að stærð og um hana segir í um-
sögn forlagsins m.a.: „Me.ð þess-
ari fyrstu ljóðahók Guömundar L.
Friðfinnssonar birtist nýr flötur
UM ÞESSAH mundir er starfsemi
áhugaleikfélaga um allt land að
hefjast. Fyrsta frumsýning vetr-
arins verður að þessu sinni á
Akranesi n.k. fimmtudagskvöld
13. okt. kl. 21. hjá Skagaleik-
flokknum. Frumflutt verður á
sviði verk Sigurðar Róbertssonar,
„Höfuðbólið og hjáleigan". Þetta
leikverk Sigurðar er eitt af þeim
er komust í úrslit í samkeppni
sem efnt var til á Þjóðhátiðarár-
inu 1974.
á skáldskap hans: skáidhóndinn
horfir út um reynslugluggann og
melur gildi lífsstundanna... En
þau (Ijóöin) varpa einnig Ijósi á
ritstörf Guömundar L. Friófinns-
sonar í heild og skerpa þannig
drættina í svipmóti hans sem rit-
höfundar."
Þess má að lokum geta, að Guð-
mundur L. Friðfinnsson hefur
fengizt við allar höfuðgreinar
skáldskapar, skáldsögur, leikrit,
smásögur og nú ljóð, auk þess sem
hann hefur ritað ævisögu byggða
á samtölum, Sögu bóndans í
Hrauni, sem kom út 1961.
Guðmundur L. Friðfinnsson er
vaxinn úr jarðvegi íslenzkrar al-
þýðumenningar og hefur lengi
verið einn helzti fulltrúi þeirrar
bændamenningar, sem einkennt
Inntak verksins og grunnur er
sköpunarsagan, samskipti Drott-
ins allsherjar við Gabríel og Lúsi-
fer. Sköpun Adams og Evu og
tilvist þeirra í Paradís.
Hlutverk eru fimm talsins:
(Drottinn allsherjar) Þorvaldur
Þorvaldsson, (Gabriel) Anton
Ottesen, (Lúsifer) Pálmi Pílma-
son, (Eva) Vaka Haraldsdóttir,
(Adam) Jakob Þór Einarsson.
Lýsingu hannaði Magnús Axels-
son, ljóstæknir. Leikmynd hann-
Guðmundur L. Friðfinnsson
héfur íslenzkt þjóðfélag öldum
saman. Sjálfur hefur hann þannig
verið einn þeirra, sem tóku upp
merki skáldbónda eins og Guð-
mundar Friðjónssonar, svo að
dæmi sé nefnt. Guðmundur L.
Friðfinnsson hefur lengst af búið
á Egilsá í Skagafirði.
aði Vignir Johannsson. Haukur
Jóp Gunnarsson leikhúsfræðing-
ur setur þetta verk á svið.
Skagamenn telja mikinn feng
að veru Hauks og starfi hans hjá
félaginu. Eins og kunnugt er hef-
ur Haukur dvalist 6 ár erlendis
við nám i leikhúsfræðum, bæði í
Japan og Englandi. Mikil gróska
hefur verið í leiklistarlífi á Akra-
nesi undanfarið, og má nefna að á
síðasta leikári var sýnd „Þvotta-
kona Napoleons" og hið viðamikla
verkefni „Puntilla og Matti".
(fréttatilkynning).
íslenzkir
listamenn
sýna verk
sín í Dan-
mörku
NOKKRIR íslenzkir lista-
menn sýna um þessar
mundir verk sín í Dan-
mörku, nánar tiltekið í
Gallerie Gammel Strand í
Kaupmannahöfn. Hefur
sýningin stadiö yfir síöan
laust fyrir síðustu mánaöa-
mót og Iýkur henni 12.
október næstkomandi.
Listamenn þessir eru
Jóhannes Geir listmálari,
en hann hefur sýnt áður
erlendis, m.a. í Svíþjóð,
Moskvu og Kaupmanna-
höfn, og Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sem hefur
málað myndir á rekavið og
átt verk á sýningum víða
erlendis, s.s. í Þýzkalandi,
Englandi og Bandaríkjun-
um. Þá sýna þarna einnig
verk sín Sigrún Sverris-
dóttir, en hún sýnir vefn-
að, og Kristján Kristjáns-
son, listmálari, og hafa þau
tvö síðastnefndu tekið þátt
í sýningum hérlendis.
Skagaleikflokkurinn frumsýn-
ir Höfuðbólið og hjáleiguna
eftir Sigurð Róbertsson
Útvarp Reykjavlk
VEÐURFREGNUM verður útvarpað frá Veðurstof-
unni kl. 01.00, 07.00, 08.15, 10.10, 12.25, 16.15, 18.55 og
22.15 verkfallsdagana. Á sömu tímum verður útvarpað
tilkynningum frá tilkynningaskyldunni, lögreglu,
vitamálastjóra, almannavörnum, Slysavarnafélagi Is-
lands björgunarsveitum, svo og nauðsynlegar tilkynn-
ingar stjórnvalda varðandi öryggisvörslu og heilsu-
gæslu.