Morgunblaðið - 12.10.1977, Síða 3

Morgunblaðið - 12.10.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTOBER 1977 3 Lögreglumenn á Keflavíkurfiugvelli takmarka aðgang að flugvellinum upp á sitt einsdæmi Hef mótmœlt ákvörðuninni, segir lögreglustjóri Keflavíkurflugvallar Biðraðir mvnduðust við hlið Keflavfkurflugvallar f gær og á mesta annatfmanum urðu biðraðirnar langar. „VIÐ erum aðeins að fram- kvæma lágmarks öryggisgæslu, inn um þetta hlið fer enginn nema með gild aðgangsskilriki að Vellinum. sögðu Benedikt Þórhallsson yfirlögregluþjónn og Kristján Kristjánsson, lög- regluþjónn, í aðalhliði Kefla- víkurflugvallar er Morgun- blaðsmenn litu þar við i gær. Höfðu myndast langar biðraðir fyrr um daginn er starfsfólk ýmissa fyrirtækja kom til vinnu sinnar, en þeir lögreglu- menn stöðvuðu hvert fararta*ki og spurðu menn um framan- greind skilríki. I athugun Mbl. f gær kom í Ijós að framkvæmd hliðvörslunnar var ákveðin af lögregluþjónunum sjálfum. Hefur yfirmaður þeirra mót- mælt ákvörðun undirmanna sinna. Benedikt sagði, að Kefla- víkurflugvöllur væri öryggis- svæði og þar sem þeim lög- regluþjónum hefði verið skipað að framkvæma lágmarks- öryggisgæslu á Vellinum þá hefði verið ákveðið að enginn færi inn um hlið vallarins nema viðkomandi hefði gild aðgangs- skilriki. Sagði Benedikt, að mörgum hefði verið snúið til baka. Margir hverjir átta sig ekki á þessum viðbrögðum okk- ar og bera þessi skilríki því ekki á sér i dag frekar en aðra daga, sagði Benedikt. Hann sagði að venjulega væru gerðar „stikkprufur" öðru hverju hvort menn bæru þessi skilríki á sér og hvort þau væru gild. í gær tóku hliðverðir í sina vörzlu mörg skilríki sem voru útrunnin, en Benedikt kvað menn trassa að endurnýja þau þar sent eftirlit væri ekki ýkja strangt. Við blaðamenn létum reyna á hvort við fengjum að fara inn á Keflavíkurflugvöll. Lögreglu- þjónar spurðu okkur um skil- riki og þegar við sýndum blaða- Lögreglumaður við eitt hliðanna á Keflavíkur- flugvelli athugar að- gangsvegabréf vegfar- enda (Ljósm. Friðþjóf- ur) mannaskírteini, þá var sagt að þetta væru ekki næg skilríki. Þið verðið að hafa sérstök að- gangsskilriki að Keflavíkur- flugvelli til þess að við getum hleypt ykkur inn fyrir hliðið, sögðu lögregluþjönarnir. Að sögn Benedikts Þórhalls- sonar er ekkert eftir lit haft með ferðum út af Keflavíkur- flugvelli. Ekki ákvörðun ráðuneytis Varðandi starfsaðgerðir lög- regluþjónanna í hliðum Kefla- vikurflugvallar sneri Morgun- blaðið sér til Páls Asgeirs Tryggvasonar deildarstjóra varnarmáladeildar utanrikis- ráðuneytisins en málefni Kefla- víkurflugvallar heyra undir það ráðuneyti. Páll sagði að fyr- irmæli hefðu ekki verið send frá ráðuneytinu um frant- kvæmd hliðvörzlu á Keflavíkur- flugvelli. Við höfum ekki fyrir- skipað eitt eða neitt varðandi hverjum skuli hleypa inn á völl- inn og hverjum ekki, ságði Páll. Mér finnst lögreglan halda anzi stíft á málum með að hleypa engum inn á völlinn nema við- komandi hafi sérstök vallar- vegabréf. Þetta hefur komið sér illa fyrir marga. Þannig urðum við að skerast í leikinn og fá lögregluþjónana til að hleypa bifreiðum með oliumöl og oliu inn fyrir, en ökumenn þeirra bifreiða stunda ekki vinnu á Keflavíkurflugvelli og hafa þar af leiðandi ekki nein aðgangskort að vellinum, bætti Páll við. Páll sagði að aðeins landeig- andi gæti kveðið á um hvort mönnum skyldi hleypt inn á svæðið eða ekki i krafti eignar- réttarins. Sagði hann rikið vera eiganda svæðisins og fyrir Framhald á bls. ,30. Fannst lát- Mfög óhreinn fatnadur þarf mjög gott þvottaefm... in í húsgarði UM ATTALEYTIÐ í gærmorgun veitti fólk því athygli, sem átti leið um Barónsstíg í Reykjavík, að lík ungrar stúlku hékk þar í tré í húsgarði. Rannsóknarlögregla ríkisins hóf strax rannsókn þessa máls og voru m.a. kallaðir til yfirheyrslu nokkrir ungir menn, sem höfðu verið í gleðskap um nóttina í hús- inu, sem garðurinn tilheyrði. Kom þá í ljós að stúlkan hafði ekki komið í gleðskapinn og þeir vissu ekkert um ferðir hennar. Var þeim fljótlega sleppt. Hins vegar hafðist uppi á manni, sem vissi um ferðir stúlkunnar i fyrri- nótt og af framburði hans og um- merkjum þótti ljóst, að stúlkan hefði sjálf ráðið sér bana, sam- kvæmt upplýsingum Njarðar Snæhólm yfirlögregluþjóns. Umrædd stúlka var 28 ára göm- ul. Hún þjáðist af þunglyndi og hafði verið undir læknishendi af þeim sökum undanfarna daga. Þess má að lokum geta, að Morgunblaðið segir frétt af sjálfs- morði þessu vegna annarra frétta fjölmiðla, sem gætu gefið villandi upplýsingar um þennan hörmu- lega atburð á almannafæri, enda þótt Morgunblaðið hafi það að reglu að skýra ekki frá sjálfs- morðum. Félagsfundir starfsmanna ríkisstofnana MEÐAN á verkfalli BSRB stendur hefur Starfsmannafélag ríkisstofnana (SFR) ákveðið að efna til daglegra félagsfunda að Hótel Esju frá kl. 14—16. Með Ajax þvottaefni veróur mislítí þvotturínn alveg jafn hreinn og suáuþvotturínn. Hinir nýju endurbættu efnákljúfar gera það kleift aó þvo fafn vel með öllum þvottakerfum. Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus. Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvítur. |; J i • II | 1; j . /' I : I J '1 ’ J 'iÁ» r' BV 11 (M1 !l‘ > Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótviræða kosti sína, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir skýrast. Hreinsandi efni og nýjr, endurbættir efnakljúfar ganga alveg inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni. Ajax pvottaefní þýóir: gegnumhreinn þvottur meó öllum þvottakerfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.