Morgunblaðið - 12.10.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKT0BER 1977
t
Maðurinn minn
ÓLAFUR VETURLIÐI ODDSSON
bifreiðarstjóri
Jórufelli 12
andaðist í Borgarspítalanum 1 1 október
Fyrir hönd aðstandenda,
Sóley Halldórsdóttir
Hafnarsamband
sveitarfélaga
Ársfundi Hafnarsambands
sveitarfélaga, sem halda
átti á Húsavík 14. og 15.
þessa mánaðar, er frestað
um óákveðinn tíma, vegna
óvissu um flugsamgöngur
innanlands.
Stjórnin.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
AÍ'GLVSJNGA.
SÍMINN ER:
22480
Ódýr
O Candy
vél...
. . . reyndar sú ódýrasta
á markaðinum í dag
CANDY 132 er 5 kg
þvottavél meö 11 sjálfvirk
þvottakerfi.
Vinduhraöi 400 snúningar
á mínútu.
Verðið aðeins
kr. 108.000.00
Afborgunarskilmálar
Sími 26788
Verkfallsnefnd BSRB er að störfum nær allan sólarhringinn
Mjög gott andrúmsloft ríkj-
andi í herbúðum BSRB
MJÖG gott andrúmsloft var ríkjandi i höfuðstöðvum B.S.R.B. við Laugaveg í gær, er
Morgunblaðið leit þar inn. Mikill ys og þys var hjá öilum, allir símar voru rauðglóandi þar
sem fólk var að spyrja hinna ýmsu frétta vegna verkfallsins.
Morgunblaðið ræddi stutt-
lega við Harald Steinþórsson
framkvæmdastjóra banda-
lagsins og innti hann eftir því
hvernig verkfallsvarzlan
gengi. —Þetta hefur gengið
mjög vel, það hefur nánast
ekkert verið um verkfallsbrot.
En félögin sjálf sjá að mestu
leyti um alla verkfallsvörzl-
una. Hingað berst eigi að
síður geysilegur fjöldi alls
kyns fyrirspurna og beiðna
um undanþágur vegna verk-
fallsins og í því sambandi er
verkfallsnefndin á nánasta
stanzlausum fundum og svo
er hér almenn vakt allan
sólarhringinn.
Það að Starfsmannafélag
Reykjavikurborgar felldi
samníngsuppkastið, sem
stjórn þeirra hafði samið um
við launamálanefnd Reykja-
vikurborgar, er gífurlegur
styrkur fyrir heildarsamstöð-
una í bandalaginu, við gát-
um ekki fengið betra vega-
nesti í þessu fyrsta verkfalli
okkar. Hér er til staðar mjög
stór hópur fólks, sem er tilbú-
inn í ýmiss konar störf fyrir
bandalagið, og siðan erum
við með stóran lista af fólki
sem við getum kallað í hve-
nær sem þörf krefur og það
má segja að andinn hér sé
mjög góður, samstaðan er
alger, að gefast ekki upp fyrr
enn i fulla hnefana
Þá ræddi Morgunblaðið
við nokkra starfsmenn, bæði
i verkfallsnefnd og i almenn-
um störfum, og alls staðar
var sama staðan, alger sam-
staða og að barizt skyldi
harðri baráttu og i engu eftir-
gefið
Forystumenn BSRB, Kristján Thorlacius, Haraldur Stein-
þórsson o.fl.
Frá uppboðinu í gær, ein af mvndum Flóka í boði. Ljósmynd Mbl
Friðþjófur.
Ásgrímsmálverk
á 850 þúsund kr.
„ÞETTA var gott uppboð og ágætt verð fékks fyrir
myndirnar,“ sagði Guðmundur Axelsson í Klausturhól-
um þegar Mbl. leitaði frt'tta af málverkauppboði hans á
Hótel Sögu í gær þar sem 65 verk voru boðin upp. Hæsta
tilboð kom í mynd eftir Ásgrím Jönsson, 850 þús. kr. Þá
nefndi Guðmundur að silkiþrykkmynd með Elísabetu
Englandsdrottningu eftir Erró hefði farið á 52 þús. kr. og
krítarskissa eftir Sverri Halldórsson á 50 þús. kr. Mynd
eftir Svein Þórarinsson fór á 215 þús. kr. Kristján
Davíðsson á 105, Ragnar F’áll á 95, myndir Flóka á um 100
þús. og Kjarval á 325 þús kr.
Gufunes tekur
aðeins á móti
neyðarskeytum
FJARSKIPTASTÖÐIN í Gufu-
nesi sinnir aðeins öryggisþjón-
ustu við skip, flugvélar og bíla og
ekkert umfram það, að því er
stöðvarst jórinn, Stefán Arndal,
tjáði Mbl. í ga‘r.
Reyndar hefur verið veitt
undanþága til að taka við veður-
skeytum frá Grænlandi og kotna
þeim til Veðurstofunnar. Að öðru
leyti er þjónusta Gufunesstöðvar-
innar fyrst og fremst bundin við
öryggi skipa og flugvéla og eru
ekki önnur skeyti en neyðarskeyti
móttekin. 6 starfsmenn vinna nú i
Gufunesi en eru 25 þegar mest er.
Stefán Arndal sagði, að því
yæri misjafnlegá tekið af við-
skiptvinum þegai- þeim væri til-
k.vnnt að ekki væri hægt að taka
við neinum skilaboðum vegna
verkfalls. Þætti sumum það súrt í
broti, sem þyrftu ef til vill að
koma áríðandi skilaboðum á
framfæri.
Arnarflug 1
Norðurpólsflug
ARNARFLl’tí a'tlar í samvinnu
við þýzkar ferðaskrifstofur að
fljúga miðnætursólarferðir að
Norðurpólnuni í maí n.k. og eru
þrjár ferðir áætlaðar.
Farið veröur frá Keflavík að
kvöldi og flogið norður með
austurströnd Grænlands, en flug-
ið til Norðurpólsins. tekur f.jóra
tíma. Siöan verður hringsólað vfir
pólnum. skálað í kampavini og
farþegum afhent skjiil undinituð
af flugstjóranum til staðfestingar
á pólarferðinni.