Morgunblaðið - 12.10.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1977
19
— Portúgal
Framhald af hls. 1
Heimildirnar sögðu einnig að
ráðherrann heföi talið að full-
margir væru að hafa afskipti af
utanríkismálunum og væri jafn-
vel farið inn á verksvið hans.
Ekki er talið að afsögn hans
muni hafa áhrif á stöðu minni-
hluta stjórnar Soaresar og hann
mun sitja áfram á þingi eftir sem
áður.
— Alþingi
Framhald af bls. 13
kosningalögum þeir Ragnar Arn-
alds, Gils Guðmundsson, Stefán
Jónsson og Svava Jakobsdóttir.
Megininntak þeirrar tillögu er, að
Alþingi ályktar, að kosin skuli
finim manna nefnd, er skipúð sé
einum fulltrúa frá hverjum þing-
flokki, til að semja frumvarp til
laga um hreytingu á lögum nr. 52
frá 1959 um kosningar lil Alþing-
is, er miði að því að gera kjósend-
um auðveldara en nú er að velja
milli frambjóðenda á þeim lista,
sem 'þeir kjösa. Eftir að þessar
tillögu höfðu verið lagðar fram
var fundi sameinaðs þings slitið
og boðaðir fundir í efri og neðri
deild.
Kosninjíar
Einu málin, sem lágu fyrir efri
og neðri deild, voru kosning for-
seta, tveggja varaforseta og skrif-
ara deildanna. Forseti neðri
deildar var kjörin Ragnhildur
Helgadóttir og henni til vara voru
kosnir þeir Magnús Torfi Olafs-
son og Ingvar Gislason og ritarar
deildarinnar voru kjörnir Eyjólf-
ur Konráð Jönsson og Fáll Féturs-
son.
Forseti efri deildar var hins
vegar kosinn Þorvaldur Garðar
Kristjánsson og honum til vara
þeir Eggert Þorsteinsson og
Steingrímur Hermannsson, en
skrifarar efri deildar voru kjörnir
Axel- Jónsson og Ingi Tryggvason.
Að lokum var hlutað um sæti
þingman n a.
— Api
Framhald af hls. I
sjónvarpsstjarna í barnatímum i
Colombíu. Kom liann fram
klæddur rauöum silkijakka og
pípuhatt og lék ýmsar listir við
mikla aðdáun.
Lögreglan handtók Mareo Polo
fljótlega eftir ódæðið og var hon-
um varpað í fangaklefa þar sem
voru fyrir tuttugu vændiskonur
og 15 síafbrotamenn.
Mikil ólga varð i landinu þegar
fréttist um atburðinn og var fyrir-
skipuð gleggri rannsókn á mál-
inu. Var þá komizt að þeirri nið-
urstöðu að ef til vill hefði förnar-
dýrið espað apann að ófyrirsynju
og væri þvi unnt að færa honum
það .fram til málsbóta. Fundust
merki um högg á höfði hans er
bentu til þessa.
Dómari kvað siðan upp þann
úrskurö að apinn skyldi settur í
vörzlu Dýraverndunarfélags
Colombíu og skyidi það ábyrgjast
hann. Marco Folo hefur unnið
sem vörður í svínastíu þegar hann
hefur ekki verið að leika listir
sínar fyrir sjónvarpsáhorfendur.
Formaður Dýraverndunarsam-
taka landsins sagði að líflátsrefs-
ing væri ekki fyrir menn i land-
inu og ekki skyldi taka upp slíkt
f.vrir dýr. Réðu samtökin lögmann
til aö verja Marco Folo og með
fy rrgrei nd u m áran gri.
— Belgrad-
ráðstefnan
Framhald af bls. 1
mestanpart um nauðsyn og mikTl-
vægi afvopnunar.
Sænski fulltiúinn Arvidsson
sagði, að ofsóknir á hendur höp-
um og einstaklingum hefðu graííð
undan trausti almenningsálitsins
á Hélsinki-samkomulaginu og
sögðu heimildir á ráöstefnunni,
að þarna hefði hann átt við atlögu
Sovétmanna að andófsmönnum í
Moskvu og frá útreið sem undir-
skriftarmenn Mannréttindaskrár
1977 hefðu fengið i Tékkóslóva-
kiu. Tékkneski fulltrúinn Dvorak
fordæmdi tilraunir til að eín-
angra ákveðin atriði og sagði að
mannréttindi væru tryggð í
Tékkóslóvakíu og þyrfti ekki að
hafa um þau frekari orð.
Goldberg, aðalfulltrúi Banda-
rikjanna sagði fréttamönnum að
Bandaríkjamenn myndu bera
fram aðrar sérstakar spurningar
sem snertu mannréttindi.
— Frú Tito
Framhald af bls. 1
,,Það er forsetans og stjórnar-
innar að ákveða slikt.“
Sérfræðingar telja málið
töluvert alvarlegs eðlis og seg-
ir að hvarf hennar úr opinberu
lífi bendi til að Tito hafi viljað
draga úr afskiptum hennar af
stjórnmálalegum ástæðum.
Heimildir Reuters bæta við, að
hún kunni að hafa reynt að
hafa einum of mikil áhrif á
eiginmann sinn.
Vangaveltur um hugsanleg
veikindi komu upp þegar frúin
fór ekki með Tito í för sina til
Kina, Sovétrikjanna og N-
Kóreu en áður veik hún vart
frá hlið hans. Hefur þvi sá
orðrómur fengið byr undir
báða vængi nú, að ósamlyndi
sé með þeim hjónum. Sögu-
sagnir hafa orðið svo magnað-
ar og fjölskrúðugar að ein út-
gáfan er slik, að Jovanka hafi
reynzt vera útsendari CIA og
önnur að'hún hafi verið í tygj-
um við serbneskan hershöfð-
ingja.
Jovanka hefur notið þeirrar
algeru sérstöðu að vera í sviðs-
ljósinu ásamt manni sínum, en
yfirleitt fer heldur lítið fyrir
eiginkonum leiðtoga Austur-
Evrópurikja. Jovanka Broz
Tito hefur ekki sézt opinber-
lega síðan Oddvar Nordli, for-
sætisráðherra Noregs, vár i
opinberri heimsókn í Júgósal-
víu i júní sl.
— Nóbels-
verðlaunin
Framhald af bls. 1
Hann er nú belgiskur rikisborg-
ari og er þetta i fyrsta sinn sem
Belgi fær Nóbelsverðlaun í efna-
fræði - Hann hefur áður fengið
ýmis verðlaun og viðurkenningar
fyrir merk rannsóknastörf sín.
Tveir Belgar, Albert Claude og
Christian de Douve, fengu Nób-
elsverðlaun i læknisfræði fyrir
tveimur árum.
Ilya Prigogine fær 700 þús.
krónur sænskar einn, en Nóbels-
verðlaunahafarnir þrír i eðlis-
fræði skipta á miili sín öðrum 700
þús. krónum sænskum (jafnvirði
um 30 millj. isl. króna).
Nóbelsverðlaunahafarnir allir
létu i kvöld í ljós fögnuð vegna
verðlaunanna. Sir Nevill Mott,
einn eðlisfræðiverðlaunahafanna,
sagði að þetta væri viðurkenning
á vinnu þrjátiu manna sem vinna
á hans sviði. Kvaðst hann og telja
mjög að verðleikum að þeir Phil
Anderson og Van Vleck fengju
einnig verðlaunin.
Innbrot í
Funhöfða
INNBROT var framið í bifreiða-
verkstæði í Funahöfða 15 aðfarar-
nótt þriðjudagsins. Þaðan var
stolið milli 20 og 30 þúsund
krónum í peningum. Málið er í
rannsókn.
8
Síaðuríyrír
w 11 s
Að busla í sjó, og sóla sig á sandsírönd
suður á Kanaríeyjum endurnýjar bæði
sál og líkama - betur en nokkuð annað,
og styttir skammdegið svo um munar.
Sért þú að hugsa um sólarfrí í skamm-
deginu þá snúðu þér til okkar.
FLUGFÉLAC LOFTLEIDIR URVAL LANDSYN UTSYN
/ /X MD S Lækjargötu 2
M Sjmj 25100
Eimskipafélags Skólavörðustíg 16 Austurstræti 17
húsinu . Sími 28899 Sími'26611
Sími 26900