Morgunblaðið - 12.10.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1977
31
Nú á að skora mörg mörk
LEIKIÐ sóknarleik! þannig
hljóðar dagskipun enska lands-
liðsþjálfarans Ron Greenwoods
til sinna manna, fyrir landsleik
Englendinga og Luxemburgara
sem fram fer í Luxemburg í
kvöld, en leikur þessi er í undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar í knattspyrnu, og ákaflega mik-
ilvægt fyrir Englendinga að
vinna hann með miklum marka-
mun, þar sem staða þeirra í riðl-
inum er fremur slæm. Mun enska
landsliðið leika 3—4—3 leikkerfi
í leiknum við Luxemburgara og
valdi Greenwood eftirtalda leik-
menn til leiksins:
Ray Clemenc (Liverpool),
Emlyn Hughes (Liverpool), Dave
Watson (Liverpool), Trevor
Cherry (Leeds) Terry McDermott
(Chelsea), Ray Wilkins
(Chelsea), Ian Callaghan
(Birmingham), Ray Kennedy
Ali til í slaginn
Muhammed Ali, heimsmeistari I
hnefaleikum þungavigtar, hefur lýst
þvi yfir að hann sé reiðubúinn aS
mæta annað hvort landa sínum Leon
Spinks eða ítalanum Alfio Righetti i
hringnum í byrjun febrúar n.k. Þeir
Spinks og Righetti munu keppa i
nóvember. og segist Ali tilbúinn að
mæta sigurvegaranum úr þeim leik.
Er ástæða þess að Ali er svo viljugur
að keppa um þessar mundir sögð sú
að kappann skorti fé, en fyrir þennan
væntanlega leik mun Ali fá upphæð
sem svarar 80 milljónum islenzkra
króna, en sá er keppir við hann fær
hins vegar aðeins um 8 milljónir.
Spinks er nú talinn einn efnileg-
asti hnefaleikari i heimi. Hann er 22
ára að aldri. og hreppti gullverðlaun
á Ólympíuleikunum i Montreal. Sið-
an hann gerðist atvinnumaður i
hnefaleikum hefur hann keppt fimm
leiki og sigrað í þeim öllum með þvi
að rota andstæðinga sina, venjulega
i fyrstu eða annarri lotu. Er sagt að
Spinks svipi mjög til Ali þegar heims-
meistarinn var á sinu léttasta skeiði.
fljótur, áræðinn og með afbrigðum
(Birmingham), Trevor Francis
(Birmingham), Paul Mariner
(Ipswich) og Gordon Hill
(Manchester United)
Meðal varamanna í liðinu er""
Kvein Keegan, leikmaður með
vestur-þýzka félaginu Hamburger
SV. Astæða þess að Keegan var
ekki valinn í hóp þeirra ellefu er
hefja leikinn er sú, að hann hefur
verið kvefaður og lasinn að
undanförnu, en mun nú búinn að
ná sér sæmiléga og þykir mjög
líklegt að Greenwood skipti hon-
um inná í leiknum.
A blaðamannafundi í Luxem-
burg i gær sagði Greenwood að
hann hefði mikla trú á þvi að
enska landsliðinu tækist að
bursta Luxemburgara i leiknum
— alla vega munum við leika
knattspyrnu sem unnendur
sóknarleiks kunna að meta, sagði
hann, — við ætlum að vera með
fimm menn í framlínunni, og ég
hef þá trú á þessum leikmönnum
að þeim takist að brjótast gegnum
varnarmúr Luxemburgaranna, en
ég efa það ekki að þeir munu
leika stifan varnarleik og freista
þess að sleppa bærilega frá leikn-
um.
Knut Hjeltnes, — einn þeirra er fær æfingastvrk.
12 millj. króna æfingastyrkir
til norska frjálsíþróttafólksins
hóggþungur.
Ali — vantar peninga
Mexikanar sigurstranglegir
NU STENDUR yfir i Mexikó
keppni sex þjóða um eitt sæti i
Dregið hjá IK
DREGIÐ hefur verið I happdrætti
Iþróttafélags Kópavogs. Vinning-
ar voru þrjár sólarferðir og komu
á miða nr. 1166, 1510 og 2552.
Vinningsnúmerin eru birt án
ábyrgðar.
úrslitakeppni heimsmeistara-
keppninnar í Argentínu næsta
sumar. Þær þjóðir sem keppa eru
Mexikó, Guatemala, Surinam,
Haiti, E1 Salvador og Kanada.
Fóru fyrstu leikir keppninnar
fram um helgina og sigraði þá
Mexikó í leik sínum við Haiti með
4 mörkum gegn einu, Guatemala
sigraði Surinam 3—2 í miklum
baráttuleik, og E1 Salvador sigr-
aði Kanada 2—1.
4 með 11
1 SJÖUNDU leikviku Getrauna
komu fram fjórar raðir með 11
réttum leikjum og var vinningur-
inn kr. 110.000. Einn þessara
seðla var frá Seyðisfirði, en hinir
frá Re.vkjavíkursvæðinu. Þá
komu fram 20 raðir með 10 rétta
og var vinningurinn á hverja röð
9.400 kr.
Að flestra áliti eru Mexikanar
nokkuð öruggir með sigur i þess-
um riðli, og benda úrslitin í leikn-
um um helgina til þess að svo
verði, enda talið að Haiti eigi
næst bezta liðið i riðlinum.
Staðan i riðlinum eftir leikina
eru þessi:
Mexikó
Guatemala
E1 Salvador
Kanada
Surinam
1100 4—1 2
1100 3—2 2
1100 2—1 2
1001 1—2 0
1001 2—3 0
NORSKA frjálsíþróttasambandið
hefur ákveðið að greiða hópi
frjálsíþróttafólks það sem kallað
er æfingagjald vegna undir-
búnings þess fyrir Ólympiuleik-
ana í Moskvu 1980. Verður varið
til þessa 12 milljónum króna, og
gera forráðamenn sambandsins
sér vonir um að með þessum
greiðslum fáist íþróttafólkið til
meiri æfinga en áður og árangur
þess verði betri en ella á Ól.vm-
píuleikunum. Hefur þvf fólki sem
fær greidd æfingagjöld verið
skipt I tvo hópa, annars vegar í
afreksmannahóp og hins vegar fá
JAFNT í
FRAKKLAND og Sovétrikin
gerðu jafntefli 0—0 i vináttu-
landsleik i knattspyrnu sem fram
fór i Paris á sunnudaginn, að við-
stöddum 49.000 áhorfendum.
Leikur þessi þótti heldur tilþrifa-
lítili, en Sovétmenn áttu þó meira
í honum, án þess að skapa sér
verulega hættuleg færi. Frakkar
áttu aðeins eitt verulega gott færi
nokkrir ungir og efnilegir
íþróttamenn æfingastyrki.
í afreksmannahópnum eru
flestir beztu frjálsíþrttamenn
Noregs og fá þeir meginhluta þess
fjármagns sem til skiptanna er,
en sambandið er ekki búið að
ákveða hvernig peningunum
verður úthlutað. Þeir sem eru i
afreksmannahópnum eru Grete
Waitz, Astrid Tveit, Jan
Fjærestad, Knut Kvalheim,
Johnny Haugen, Terje Totland,
Leif Roar Falkum, Knut Hjeltnes,
Svein Inge Walvik, Björn
Grimnes og Terje Thorslund.
PARÍS
1 leiknum er skæðasti framherji
liðsins, Platini, komst í gegnum
vörn sovézka liðsins, en fast skot
hans fór í stöng. Skömmu eftir að
þetta gerðist áttu þeir Viktor
Kolotov og Aleg Blokhin föst skot
sem fóru rétt framhjá franska
markinu, og síðar í leiknum átti
Blokhiri tvivegis opin færi, en
brást bogalistin i bæði skiptin.
Formaöur norska frjálsiþrótta-
sambandsins sagði er sambandið
tilkynnti ákvörðun sina, að lands-
liðsþjálfurunum yrði falið að
fylgjast með æfingum íþrótta-
fólksins og fengi það að einhverju
leyti greitt eftir ástundun sinni
við æfingarnar. Kvaðst hann gera
sér vonir um að þessar peninga-
greiðslur til íþróttafólksins
myndu þegar skila sér í betri ár-
angri þess á Evrópumeistaramót-
inu sem haldið verður í Prag
næsta sumar, enda væri undir-
búningur fyrir það mót nánast
upphafið að undirbúningi fyrir
Ólympíuleikana í Moskvu. Norð-
menn hafa ekki átt sigurvegara 1
frjálsíþróttakeppni Ólympíuleik-
anna sfðan i Melbourne i Ástralíu
1956, er Egil Danielsen vann þar
frækilegt afrek meö því að setja
nýtt heimsmet i spjótkasti og
hljóta ólympiugull.
ÁRSÞING BSÍ
ÁRSÞING Badmintonsambands
Islands verður haldið sunnudag-
inn 30. október n.k. i Snorrabæ,
Snorrabraut 37, og hefst þingið
kl. 10.00 árdegis.
FYLKIR
FAGNAR
UM SÍÐUSTU helgi afhenti Ellert B.
Schram, formaður KSI, knattspyrnu-
mönnum Árbæjarliðsins Fylkis sigur
laun þeirra í 3. deíldar keppni ís-
landsmótsins í knattspyrnu, en Fylk-
ir var annað tveggja liða sem vann
sér þátttökurétt i 2. deildar keppn-
inni næsta sumar og verður það í
fyrsta sinn sem Fylkir leikur í 2.
deild Með sigri í 3. deildinni öðlast
Fylkir einnig þátttökurétt í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu, þannig
að um mjög mikilsverðan áfanga var
um að ræða hjá félaginu. í 3. deildar
keppninni s.l. sumar náði Fylkir mjög
góðum árangri. Tapaði liðið engum
leik í keppninni, en varð að leika þrjá
úrslitaleiki við KS frá Siglufirði, áður
en sigur vannst. Þegar Fylkismenn
tóku við verðlaunum sinum i Árbæj-
arskólanum voru mættir þar fjöl-
margir velunnarar félagsins, sem
fögnuðu leiknönnunum vel og lengi.
Meðfylgjandi mynd tók Ragnar Ax-
elsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins,
sem jafnframt er einn af leikmönn-
um Fylkisliðsins, af knattspyrnu-
mönnunum og Árbæingum.