Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÖVEMBER 1977
... •• afessaSí-*««?-* sSS*^ -^rss-^«aE£E>'•'?*• ^--..j
.. ._
ST
*»* ;'•;-
*■•- ;'"' ’ «i
I Bláfjöllum hefur að undanförnu verið keppsl við að Ijúka
framkvæmdum og undirhúa skiðasvæðið áður en snjóa tæki.
Ilefur vegurinn verið fluttur fjær brekkunni á 800 m. kafla frá
veginum að Eldborf;argili að Bláfjallaskálanum og hann hækkað-
ur. Einnig horið í veginn. Við enda vegarins uppi í brekkunni
hefur verið gert bílastæði fvrir 500—600 bfla í stað 200—250, sem
talið var að ka-must þar fvrir áður. Efni í veginn var tekið úr
brekku, sem um leið var löguð fyrir skíðamenn. Þá er nú unnið að
því að bæta rafvæðingu á svæðinu, verið að leggja stofnlögn inn í
.. ... .. . ..
Eldborgargil, en á þeirri leið verður ný Ivfta tekin í notkun í
vetur. Olfuknúnu Ivftunum fækkar óðum, en með þessu getur
Fram væntanlega fengið rafmagn við sfna Ivftu. Þá er verið að
koma fyrir lýsingu á nýja bflastæðið og unnið að því að lýsa betur
upp hrekkuna í minni Kóngsgils og nokkuð suður fyrir hana.
/Etlunin er að fá svolftið betri lýsingu á kafla fyrir göngumenn.
Vegaframkvæmdir kostuðu um 20 milljónir og raflagning 7—8
millj.
Hubner og
Lombardy
boðin þátt-
taka í Rvík-
urskákmóti
SKÁKSAMBAND íslands hef-
ur nú boðið stórmcisturunum
Hiibner og Lombardy til þátt-
töku í Reykjavíkurskákmótinu
í febrúar.
Átta keppendur af fjórtán
eru ákveðnir: Friðrik Ölafs-
son, Guðmundur Sigurjónsson
og Ingi R. Jóhannsson, Larsen,
Miles, Browne, Smejkal og
Ögaard. Tveir lslendingar
verða til viðhótar og að sögn
Einars S. Einarssonar, forseta
St, Ifklegast þeir Jðn L. Árna-
son og Helgi Olafsson.
Svar hefur ekki borizt frá
Rússum ennþá, en óskað var
eftir tveimur stórmeisturum
þaðan og tilnefndir Tal,
Romanishin og Vagannjen.
Prófkjör Alþýðuflokks
í Reykiavík um helgina
Prófkjör Alþýðuflokksins til
næstu Alþingiskosninga f Reykja-
vík fer fram um helgina; í dag og
á morgun. Kjörstaðir eru fjórir;
Drafnarfell 2—4, Fáksheimilið,
Sfðumúli 37 og Iðnó, en engin
utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer
fram.
Sex frambjóðendur eru í sætin
þrjú, sem um er kosið; Benedikt
Gröndal, formaður Alþýðuflokks-
ins, til fyrsta sætis, Bragi Jóseps-
son námsráðgjafi, til annars og
þriðja sætis, Eggert G. Þorsteins-
son alþingismaður, til fyrsta og
annars sætis, Jóhanna Sigurðar-
dóttir skrifstofumaður, til þriðja
sætis, Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri, til fyrsta, ann-
ars og þriðja sætis, og Vilmundur
Gylfason menntaskólakennari, til
fyrsta og annars sætis. Til þess að
atkvæði sé gilt verður kjósandi að
greiða atkvæði um öll sætin þrjú.
öllum, sem orðnir eru 18 ára, og
ekki eru flokksbundnir i öðrum
stjórnmálaflokkum og eiga lög-
heimili í Reykjavík er heimil þátt-
taka í þessu prófkjöri Alþýðu-
flokksins.
Réttkjörinn i fyrsta sæti er sá
frambjóðenda til þess sætis, sem
flest atkvæði fær, en atkvæði
frambjóðenda, sem eru i fram-
boði til fleiri sætis en eins, leggj-
ast saman og er sá réttkjörinn i
hvert sæti, sem þannig fær flest
atkvæði.
Urslit prófkjörsins verða kynnt
í kristalssal Hótel Loftleiða eftir
klukkan 21 á sunnudagskvöld.
Samstarfsnefnd fulltrúa freðfísk-, saltfisk- og skreiðarframleiðenda;
Vandi fiskvinnslufyrirtækja
hefur ekki verið leystur
Áœtlað tap fiskvinnshinnar 1300 milljónir í ár miðað við októberverðlag
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá samstarfs-
nefnd freðfisk-, saltfisk- og
skreiðarframleiðenda en hún er
samin í tilefni af birtingu á
Tilgangslaust annað en
segja upp samningum
segir Pétur Sig-
urðsson, formað-
ur ASV, en Þing
þess hefst í dag
VEGNA samgönguerfiðleika á
Vestfjörðum varð að fresta þingi
Alþýðusambands Vestfjarða, sem
hefjast átti 1 gær og hefst það á
hádegi í dag. Pétur Sigurðsson,
formaður ASV, kvað líklegt, að:
þingið ákvæði að segja upp
samningum, en f kjarasamningi
þeim, sem gerður var þar vestra I
sumar, var ákvæði um að aðilar
hefðu heimild til að segja upp
samningum ef fyrirferðarmiklir
hópar launþega fengju meiri
launahækkanir en þar var um
samið. Pétur kvað tilgangslaust
annað en samningum yrði sagt
upp, en endanleg ákvörðun um
það verur tekin á hinginu.
Pétur Sigurðsson kvað þetta
þing vera hefðbundið fjórðungs-
sambandsþing og í raun smækkuð
mynd af þingum Alþýðusam-
bands íslands, þar sem þar væri
fjallað um öll sömu mál og mála-
flokka og gert væri á ASI-þingum.
Hann kvað viðræður á þinginu að
Fi amhaid á bls. 22.
niðurstöðum Þjóðhagsstofnunar
á athugun á afkomu frystihúsa
haustið 1977. Kemur m.a. fram í
fréttatilkynningunni, að sam-
starfsnefndin telur að vandi fisk-
vinnslufyrirtækja hafi ekki verið
leystur og afkoma þeirra sé lak-
ari, en skýrsla Þjóðhagsstofnunar
segi til um. Miðað við október-
verðlag sé áætlað að tapið á fisk-
vinnslunni sé um 1300 milljónir
króna á ársgrundvelli.
Fréttatilkynningin birtist í
heild hér á eftir:
Vegna nýútkominnar skýrslu
Þjóðhagsstofnunar um „Athugun
á afkomu frystihúsa haustið
1977“ vill samstarfsnefnd full-
trúa freðfisk-, saltfisk og skreið-
arframleiðenda taka fram eftir-
farandi:
1. Allt frá því á síðasta ári
hafa talsmenn fiskvinnslufyrir-
tækja bent á neikvæða þróun
varðandi rekstrarskilyrði fyrir-
tækja sinna, þrátt fyrir hækkandi
afurðaverð.
2. Til áréttingar fyrri ummæla
fulltrúa fiskvinnslufyrirtækja,
vill samstarfsnefndin sérstaklega
vekja athygli alþjóðar á eftirfar-
Framhald á bls. 22.
Allsher j aratkvæða-
greiðsla BSRB;
Kjörsókn
virðist
hafa orð-
ið um 60%
„OKKUR sýnist eftir þeim upp-
lýsingum, sem við höfum fengið
utan af landi að þátttakan 1 alls-
herjaratkvæðagreiðslunni sé að
meðaltali um land allt um 60%,“
sagði Haraldur Steinþórsson
framkvæmdastjóri og varafor-
maður BSRB í samtali við Morg-
unblaðið í gær, en þá var lokið
kj rfundi um nýjan kjarasamn-
ing alls staðar, nema hjá Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana, en
þar var kjörfundur opinn til
klukkan 19 1 gærkveldi.
Haraldur sagði að vegna
slæmra veðurskilyrða hefði erfið-
lega gengið að safna kjörgögnum
utan af landi, þar sem flug hefði
fallið niður til það margra staða.
Hins vegar kvað hann BSRB hafa
fengið þær upplýsingar um kjör-
sókn, að svo liti út fyrir að hún
yrði um 60% að meðaltali um
land allt. Einna bezt kjörsókn
mun hafa verið í Félagi íslenzkra
símamanna, þar sem hún varð
81% og i kennarafélögum í ná-
Framhald á bls. 22.
Kjaradómur:
Munnlegur
málflutning-
ur BHM fer
fram í dag
MUNNLEGUR málflutningur f
máli Bandalags háskólamanna
gegn f jármálaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs fer fram í Kjaradómi f
dag. Samkomulag tókst ekki milli
deiluaðila og hefur málinu þvf
verið vfsað til dómsins og verður
hann að hafa kveðið upp úrskurð
sinn fyrir 21. nóvember næstkom-
andi. í dag mun fulltrúi BHM
flytja sóknarræðu sfna og fjár-
málaráðherra varnarræðu sfna.
Jónas Bjarnason, formaður
Bandalags háskólamanna, sagði i
samtaii við Morgunblaðið í gær,
að það tilboð, sem fjármálaráð-
herra hefði gefið BHM hefði verið
mjög í samræmi við kjarasamning
þann, sem hann gerði við Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja. Er
Morgunblaðið spurði Jónas, hvort
BHM byggist við hagstæðari kjör-
um frá Kjaradómi en BSRB hefði
náð með samningum, kvaðst hann
eiga bágt með að trúa öðru. BSRB
færi ekki með samningsrétt fyrir
BHM, og þrátt fyrir allar tilhneig-
Framhald á bls. 22.
Kristbjörn Árnason skipstjóra á Sigurði RE:
„Vínnn slitnaði er við reynd-
um að snurpa nótina inn”
„VIÐ fengum brotsjó bakborðsmegin á skipið og við það lagðist það á hlfðina með þeim afleiðingum að
nótin rann að hluta til f sjóinn. Þrátt fyrir að við gerðum allt hvað við gátum til að ná henni inn á ný,
tókst það ekki og fór hún öll í sjóinn að lokum,“ sagði Kristbjörn Arnason, skipstjóri á aflaskipinu
Sigurði RE, f samtali við Morgunblaðið f gær. Sigurður lá þá inni á Akureyri, en f fyrrakvöld missti
það loðnunótina f sjóinn eins og fyrr segir og var þá statt 70—80 sjömflur norður af Siglufirði.
Nótin, sem Sigurður missti er
nokkurra ára gömul- og er efa-
mál að tii hafi verið fengsælli
nót i heiminum, en að sögn
Kristbjarnar var Sigurður bú-
inn að veiða yfir 100 þús. lestir
af loðnu i þessa nót. Þegar
Sigurður fór af staðnum, þar
sem nótin fór í sjóinn, sáu skip-
verjar grilla í nótina í sjónum
og sagði Kristbjörn, að um leið
og lægði ætluðu þeir á staðinn
aftur og freista þess að ná nót-
inni, eða því sem eftir værí af
henni, um borð.
„Það hefur verið um kl. 20.30
í fyrrakvöld, sem við fengum
brotsjóinn á okkur, en við vor-
um þá staddir á stað 67°6’ norð-
ur og 20° vestur. Vonskuveður
var á þessum slóðum, 10 vind-
stig og skipti það engum togum
að skipið hentist- yfir á
stjórnborðshælið undan þunga
brotsjóarins. Um leið byrjaði
nótin að renna í sjóinn en hún
flaut samt upp. Við reyndum
hvað við gátum að ná nótinni
um borð, en sjórinn sleit hana
frá okkur jafn óðum og rann
nótin út í áföngum. Að lokum
reyndum við að snurpa nótina
um borð, en þá slitnaði snurpu-
vírinn, þannig að þá fór öll nót-
in út.
Við sáum hvar eitthvað af
nótinni flaut uppi er við urðum
frá að hverfa, en við ætlum
okkur að halda á þessar slóðir
og reyna ná nótinni um borð
um leið og veður gengur nið-
ur,“ sagði Kristbjörn.