Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12, NOVEMBER 1977 39 Eftirlaun aldraðra í stéttarfélögum: ®Misrétti verdi Guðmundur H. 1 ® \ m m jg, A A Garðarsson, I f-K 1 f,|-» 1 alþingismaður. w l/ GUÐMUNDUR H. Garðarsson, alþingismaður, hefur flutt eftirfarandi frumvarp til breyt- inga á lögum um eftirlaun aldr- aðra félaga í stéttarfélögum, til að leiðrétta gildandi misræmi: 1. gr. ,,Ur 1. málsgr. 3. gr. laganna (sbr. lög nr. 33/1976) falli orðin: „og veitir honum rétt til örorkulífeyris úr lífeyrissjóði". 2. gr. 1 6. gr. laganna bætist við ný málsgrein, er verói 3. málsgr., svo hljóðandi: Fyrir 1970 skal ekki reikna meira en 1.1 stig fyrir hvert almanaksár. 3. gr. Við 9. gr. laganna bætist ný 2. málsgr., er orðist svo: Heimilt skal lifeyrissjóði að greiða viðbót við lifeyri skv. lögum þessum sem svarar til lækkunar árlegra stiga i 1.1 fyr- ir 1970, sbr. 6. gr. 3. mgr., og lækkunar stiga vegna þess að réttindatími er ekki reiknaður nema frá 55 ára aldri eða frá 1955, sbr. 5. gr. 1. og 2. mgr., enda hafi lífeyrisþeginn greitt til lifeyrissjóðs umræddan tíma og þær greiðslur lagðar til grundvallar stigaútreikningi. Þéssa viðbót skal ekki draga frá greiðslum samkvæmt 7. og 8. gr. Greinargerð Frá því aó aðilar vinnumark- aðarins og ríkisstjórnin gerðu nieð sér samkomulag um aukn- ar greiðslur ellilifeyris frá um- sjónarnefnd eftirlauna hafa komið í ljós ýmsir agnúar. Með þessu frv. er gerð tilraun til að leiórétta hina verstu, sem aóil- um yfirsást að gera er umrætt samkomulag var gert. Um 1. gr. Með breytingu á 1. mgr. 3. gr. laga nr. 63/1971 (sbr. lög nr. 33/1976) er leiðrétt það mis- rétti, sem stafar af misjafnlega ströngum skilyrðum sem líf- eyrissjóðírnir gera til örorkulíf- eyrisþega. Eins og nú er háttað fær maður, sem er í lifeyris- sjóði sem krefst 10 ára réttinda- tima fyrir veitingu örorkulíf- eyris, ekki örorkulífeyri, en annar, sem er i sjóði sem ein- ungis krefst 5 ára réttindatíma, fær lifeyri úr þeim sjóði og frá umsjónarnefnd. Það var aldrei ætlun samningsaðila að mis- muna mönnum þannig eftir að- ild að lífeyrissjóðum. Hér er gert ráð fyrir að báðir hafi 5—10 ára réttindi. Þar með er fyrrgreint misrétti leiðrétt. Um 2. gr. 1 þessari grein er verið að fylla upp í eyður í lögunum og staðfesta framkvæmd umsjón- arnefndar. Um 3. gr. Þar sem sérhver greiðsla úr lífeyrissjóði kemur til frádrátt- ar lifeyrisgreiðslum frá um- sjónarnefnd, og þar sem þessar greiðslur hafa verið verð- tryggðar, ákvarðar lífeyrir frá umsjónarnefnd i reynd samtals greiðslur til lífeyrisþegans frá umsjónarnefnd og ,velflestum lifeyrissjóðum. Það að miðað er við i hæsta lagi 1.1 stig fyrir 1970 (og þau fá flestir) og það að réttindi eru einungis reikn- uð frá 55 ára aldri eða 1955 gerir það að verkum, að ekki skiptir máli fyrir velflesta líf- eyrisþega hvort þeir voru í líf- eyrissjóói fyrir 1970 eóa fyrir 55 ára aldur. 1 þessu felst ákveðið ranglæti gagnvart þeim sem greiddu 10% af launum til lífeyrissjóða um árabil. Njóta þeir þess í engu og lífeyrissjóð- um er fyrirmunað að bæta þeim þetta upp, þar sem sérhver greiðsla af þeirra hálfu kemur til frádráttar lífeyri frá um- sjónarnefnd. Lagagrein þessi mundi gera lífeyrissjóðunum kleift að bæta þetta misrétti á eigin kostnað." Jón Skaftason: Sami kjördagur til þings og sveitarstjóma Jón Skaftason (F) hefur flutt tillögu til þingsályktunar, svo- hljóðandi: „Aiþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta at- huga, hvort ekki sé æskilegt, að reglulegar kosningar til Alþingis og sveitarstjórna fari fram sam- tímis.“ í greinargerð segir að kjörtíma- bil sveitarstjórna og Alþingis sé fjögur ár. Kosningaundirbúning- ur sé tímafrekur og kostnaðar- samur og setji svip á allt þjóð- félagið. Frá þjóófélagslegu sjón- armiði hljóti að vera óheppilegt að hafa þann hátt á að efna í tvígang til þess fyrirtækis, sem kosningaundirbúningur sé, þegar hægt sé að láta þessar kosningar falla í einn undirbúningsfarveg og framkvæmd, án þess að skerða í nokkru þegnrétt kjósandans. Vitnar þingmaður til fordæmis í Sviþjóð, þar sem kosið er samtim- is til þjóðþings (riksdagen), landsþinga (landsting) og sveitar- og bæjarstjórna (kommun). Nýr rafstrengur til Eyja Gunnar Thoroddsen, orkuráð- herra, sagði í svari við fyrirspurn frá Garðari Sigurðssyni, að gerð hefði verið kostnaðaráætlun um nýjan rafstreng (sæstreng) til Vestmannaeyja, er hljóðaði upp á 220 m.kr. Þá hefði og verið gerð tillaga um, að þessi framkvæmd yrði tekin inn á fjárlög komandi árs. „Við meðferð fjárlagafrum- varpsins og/eða lánsfjáráætlunar verður á einn eða annan hátt að tryggja fjármagn til þessa nýja strengs milli lands og Eyja,“ sagði ráðherrann. Garðar Sigurðsson (Abl) þakk- aði ráðherra „fyrir mjög góðar undirtektir og áhuga í rafmagns- málum Vestmannaeyinga". í sama streng tóku fjeiri þingmenn Sunnlendinga. söluskattur: Stjómarþingmenn kref jast endurgreidslu — Stjórnarandstædingar deila um gengislækkun 1972 Endurgreiðsla uppsafnaðs söluskatts Albcrt Guðmundsson (S) hefur borið fram á Alþingi fyrirspurn: „Hvað líður endurgreiðslu upp- safnaðs söluskatts á útfluttum iðnvörum fyrir árin 1975, 1976 og 1977?“ Albert vitnaði í umræður á Alþingi til könnunar iðnþróunar- nefndar 1973 á vandamálum út- flutningsiðnaðar, sem m.a. hefði leitt til endurgreiðslu fyrir árið 1973 2.5% af útfl.verðmæti út- fluttra iðnvara (endurgreióslu £ söluskatti og tolli). Var endur- greiðslum þessum haldið áfram til 1. september 1974 en hætt þá. Síðan vitnaði Albert til skýrslu fjármálaráðuneytis um virðis- aukaskatt (maí/1975). Þar kemur m.a. fram að söluskattur sé ekki hlutlaus. Núgildandi söiuskatts- kerfi feli í sér „uppsöfnun skatts, sem valdið geti m.a. ófyrirsjáan- legri mismunun i samkeppnis- stöðu hinna ýmsu atvinnugreina.'1 Hlutfall uppsafnaðs söluskatt af heildarrekstrargjöldum hafi ver- ið mælt 2% í útflutningsiðnaði (beinn skattur), óbeinn skattur l'A% en samtals sé þetta 3.5%. Sfðan vitnar Albert í skýrslu þjóð- hagsstofnunar (Hagur iðnaðar) þar sem segir: „Þótt söluskattur hafi nú verið felldur niður af iðn- vélum og hlutum í þær, er enn um nokkra uppsöfnun að ræða i iðn- rekstri. Skv. lauslegum áætlunum má meta þessa uppsöfnun nærri 2% af framleiðsluverðmæti iðnaðar við skilyrði i árslok 1977. Þessi áhrif eru nokkuð misjöfn milli iðngreina.'-' Margs konar fleiri tilvitnanir í opinberar skýrslur, viðvikjandi uppsöfnuð- um söluskatti, tindi ræðumaður til. Miðað við þær upplýsingar, sem fyrir liggja, taldi Albert að út- flutningsiðnaðurinn ætti kröfu til endurgreiðslu sem næmi 303 m.kr. fyrir árin 1975 og 1976, að viðbættum þeim 235 rn.kr., sem endurgreiða ætti vegna ársins 1977. Loks vék Albert að tilmæl- um útflutningsiðnaðar um virðis- aukaskatt. Breytileg staða útflutningsiðnaðar Matthfas Á Mathiesen, fjár- málaráðherra, vék fyrst í svari sínu að ákvörðun rikisstjórnar- innar um staðgreiðslu skatta og virðisaukaskatt í kjölfar stað- greiðslunnar. Þá sagði ráðherra, efnislega, að uppsafnaður sölu- skattur hefði á sínum tima verið endurgreiddur af útfluttum iðn- vörum, öðrum en sjávarafurðum, vegna mjög óhagsstæðrar gengis- skráningar fyrir þessa fram- leiðslu. Með gengisbreytingu 1975 hefði ástæður breytzt þann veg, að ekki var talin ástæða til slíkrar endurgreiðslu. Á þessu ári hafi, að tilhlutan fjármálaráðuneytis, enn verið -skoðuð staða út- flutningsiðnaðar með hliðsjón af uppsöfnuðum söluskatti (ný könnun Þjóðhagsstofnunar). Þá hafi komi^ I ljós að uppsafnaður söluskattur hafi verið að meðal- tali 3.6% heildarrekstrargjalda útflutningsiðnaðar (fiskiðnaður ekki meðtalinn). Það var mat Þjóðhagsstofnunar að uppsafnað- ur söluskattur i þessum greinum næmi nálægt 235 m.kr. á árinu 1977. Með hliðsjón af stöðu þessara útflutningsgreina ákvað rikis- stjórnin að endurgreiða á árinu 1978 uppsafnaðan söluskatt af út- flutningi samkeppnisiðnaðar, vegna Efta-aðildar á árinu 1977. Aðstaða þessara útflutnings- greina ræðst að miklu leyti af gengisskráningu á hverjum tíma. Þvi er ekki tímabært að taka ákvarðanir um þetta efni fram i tímann, auk þess eru áform uppi um virðisaukaskatt. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts fyrir árin 1975 og 1976. SFV og gengislækkunin Magnús Kjartansson (Abl) sagði SFV hafa sett fram kröfu um gengislækkun árið 1972. Ætlunin hafi verið að Alþýðu- bandalagið tæki þessi áform óstinnt upp og slitu stjórnarsam- starfi. Við létum hins vegar við það sitja að lýsa andstöðu við gengislækkunina. Gengið var sið- an hækkað aftur 1973, í eina skiptið um langt árabil. Þessi gengishækkun kom vissum grein- um útflutningsiðnaðar í nokkurn vanda. Þess vegna var reynt að tryggja útflutningsiðnaðinum jafnrétti með-umræddum endur- greiðslum. Það gekk illa að koma þáverandi fjármálaráðherra i skilning um, að þessar endur- greiðslur myndu skila sér aftur í auknum útflutningi, gjaldeyri og tollu^ af innflutningi, er gjald- eyririnn gerði mögulegan. Frá þessu var síðar horfið, illu heilli fyrir útflutningsiðnaðinn. Óheppileg og óhyggileg ráðstöfun Magnús Torfi Ólafsson (SFV) taldi það óhyggilega og óheppi- lega ráðstöfun, sem fælist í með- ferð núverandi rikisstjórnar á endurgreiðslu uppsafnaðs sölu- skatts útflutningsiðnaðarins. Tryggja þurfi þessum iðnaði jafna samkeppnisaðstöðu. Greið- asta leiðin til þess sé að létta af honum uppsöfnuðum söluskatti. Magnús vísaði síðan á bug rang- túlkun Magnúsar Kjartanssonar um „hóflega gengisbreytingu i árslok 1972“, sem gerð hafi verið að tilmælum hæfustu efnahags- sérfræðinga. Þessi gengisbreyt- ing gerði það mögulegt að hverfa frá „rígbundinni gengisskráningu til færanlegrar gengisskráning- ar“, gerði m.a. mögulegt að hækka gengið nokkru síðar, þegar skilyrði höfðu breytzt, og nú dett- ur engum manni í hug að hverfa aftur til bindifyrirkomulags, sem áður ríkti, sagði Magnús Torfi Ólafsson. Svarið veldur vonbrigðum Albert Guðmundsson (S) lýsti vonbrigðum sinum með svar fjár- málaráðherra — að því er varðaði afstöðu til uppsafnaðs söluskatts áranna 1975 og 1976. Ráðherra hefði sagt að gengislækkun 1975 hefði bætt stöðu útflutningsiðnað- ar. En greiðsla á uppsöfnuðum söluskatti á ekki að fara eftir sveiflum I rekstri atvinnugreina. Söluskattsskil ríkissjóðs til at- vinnugreina á að lúta sömu regl- um og söluskattskil almennt til ríkissjóðs. Spurningin er, hvort ríkissjóður á ekki að greiða van- skilavexti til útflutningsiðnaðar vegna dráttar sem orðið hefur á endurgreiðslu. Ég vona, sagði ræðumaður, að rikisstjórnin endurskoði þessa afstöðu sína og standi við skuldbindingar sínar frá árunum 1975 og 1976. Fleiri þingmenn á sama máli Þórarinn Þórarinsson (F) og Steingrímur Ilermansson (F) lýstu sig samþykka þeirri stefnu, sem fram hefði komið í máli fyrir- spyrjanda (A.G.). Á meðan við búum ekki við virðisaukaskatt sýndist þeim rétt vera, að endur- greiða eigi söluskatt útflutnings- iðnaðar, til að standa við þau lof- orð sem íslenzkum iðnaði vóru gefin við Eftaaðild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.