Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977 19 ■■v ^ ^......... -^s , . . , ,-■ w>. v •W.. Starfsmenn brezka fiskveiðieftirlitsins revna án árangurs að lokka hvai til að svnda á haf út úr ánni Foyle skammt frá Londonderry á Norður-trlandi. Hvalurinn hefur verið kallaður „Dopey Dick“ og eitthvað virðist ama að honum. en hann var hræddur við að fara undir Craigavon-brúna. Hvalurinn hefur verið I ánni siðan um slðustu helgi. Skemmdir í Búlgaríu Flugvallarstarfsmeim á Spáni í verkfalli rra flððunum I Georglurlki I Bandarlkjunum. Llk fjarlægt frá flóðasvæðinu nálægt Toccoa þar sem stlfla brast og vatn flæddi yfir heimavist með þeim afleiðingum að 33 fórust. Vin, 11. nóvember. Reuter. SKEMMDIR hafa orðið á járn- brautarlfnum. rafmagnslínum og um 8.000 byggingum af völdum jarðskjálfta I Suður-Búlgaríu að sögn búlgörsku fréttastofunnar. Fréttastofan segir að töluvert eignatjón hafi orðið i jarðhrær- ingum dagana 3. til 6. nóvember en ekkert manntjón og enginn hafi slasazt alvarlega. Flestar byggingarnar sem eyði- lögðust í jarðskjálftunum voru íbúðarhús að sögn fréttastofunn- ar. Koma varð fólki fyrir til bráða- birgða á hótelum og í ferða- mannaibúðum. Vistir hafa verið sendar til jarðskjálftasvæðanna. IVladrid, 11. nóv. — AP. Á ELLEFTA þúsund ríkis- starfsmanna þrjátíu og átta flugvalla á Spáni lögðu niður störf á föstu- dag til að leggja áherzlu á kröfur sínar um hærri laun. Öll farþegaafgreiðsla hefur lagzt niður og heim- ildir segja að 300 þúsund farþegar muni ekki kom- ast leiðar sinnar haldi verkfallið áfram næstu þrjá daga, eins og verk- fallsmenn telja. Rfkis- stjórninni tókst ekki að ná samkomulagi við flugaf- greiðslumenn, flugvirkja, hleðlsumenn, skrifstofu- fólk, dyraverði, hreingern- ingafólk og slökkviliðs- menn eftir samingaviðræð- ur aðfaranótt föstudags. Ríkisstjórnin segir verkfalls- mennina heimta 28 prósent launa- hækkun eða 6 prósentum meira en stjórnin vill fallast á sam- kvæmt efnahagsstefnu sinni. Morgunblaðið spurðist fyrir hjá nokkrum ferðaskrifstofum i Reykjavík hvort verkfall flugvall- arstarfsmanna á Spáni kæmi til með að hafa áhrif á íslenzka ferðalanga. Pétur Helgason hjá Orvali sagði að einn hópur væri staddur á Kanaríeyjum og væri hann væntanlegur 18. nóvember. Sá hópur væri á vegum Flugleiða, ferðaskrifstofunnar Utsýnar og IJrvals. Hjá Sunnu fékk Morgun- blaðið þau svör að einn hópur væri staddur á Palma, Mallorka og væri hann vætanlegur um miðjan desember. Sprengja varð íra að bana Belfast, 11. nóv. — Reuter. MAÐUR beið bana af völd- um sprengju, sem hryðju- verkamenn komu fyrir í Belfast í dag. Tvær sprengjur sprungu í kyrrstæðum bifreiðum og ætlað er að sprengjum hafi einnig verið komið fyrir í þremur öðrum bílum. Álitið er að hinn látni hafi verið dyravörður þar sem blaðið Irish Independant er til húsa og sprengjunni hafi verið komið fyrir i kyrrstæðum bíl fyrir utan bygginguna. Unglingar grýttu lögreglu og hermenn, sem komu á staðinn þegar sprengjan sprakk. Þetta er i fyrsta sinn á þessu ári sem sprengjur springa i kyr.rstæðum bílum. 6000 dey ja á ári af völd- um dularfulls s júkdóms Atlanta, Georgiu. 10. nóv. — Reuter. SEX þúsund Bandartkjamcnn eiga á hættu að deyja árlega af völduni dularfulls sjúkdóms, sem fyrrverandi hermenn hafa fengið, segir I frétt frá heilbrigðiseftirlit- inu. Sjúkdómurinn kom upp hjá221 meðlimi félags fyrrverandi her- manna á fundi í Filadelflu I júlí 1976. Tuttugu og niu þeirra dóu af völdum hans. Dr. William Foege tjáði banda- rískri þingnefnd í gærdag, að 0,5 til 1,5 prósent óskýrðra lungna- sjúkdóma ættu rætur sinar að rekja til þessa hermannasjúk- dóms. Taldi dr. Foege að frá 15 til 45 þúsundir tilfella þar af sex þús- und dauðatilfelli gætu komið upp á næsta ári af völdum þessa sjúk- dóms í Bandaríkjunum. Hins vegar áætlaði dr. Foege að hægt yrði að fækka dauðatilfell- um um 15—20% með notkun lyfsins erythromycin. Mús bítur sendiherra London. 11. nóv. — Reuter. SENDIHERRA Saudi — Ara- blu I London, John Wilton, varð fyrir þvl að mús beit hann, þar sem hann svaf svefni hinna réttlátu I rúmi slnu. Sendiherrann skýrði frá þeirri örvæntingu, sem greip hann við músarhitið I bréfi til brezka stórblaðsins Times. Sagðist hann ekki eiga orð yfir fæðuval nútlmamúsa. „I fyrri- nótt beit mig tvisvar mús með augljósa ofbeldishneigð." Fulltrúar utanrlkisráðu- neytisins I London eru fullir samúðar I garð sendiherrans en geta Iftið gert. „Styrkir okkar veita ekki fé til kaupa á músagildrum", sagði einn þeirra. 0.000k róiHt venttaun i® I fjórðu milljónustu fernunni af JROPICANA eru 100.000 kr. verðlaun Fékkst þú þér JROPICANA® í morgun Sólargeislinn frá Florida

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.